Morgunblaðið - 26.10.1986, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986
33
Kaupmáttur þjóöartekna og ráöstöfunartekna
heimilanna á mann 1978- 1986
'Spa
Þessi skýringarmynd, sem fylgdi þjóðhagsáætlun fyrir komandi ár, sýnir verðlagsþróun, eins og hún
var þegar ríkisstjórnin var mynduð, og eins hún hefur veríð á ferli stjórnarinnar.
Taflan, sem fylgdi þjóðhagsáætlun fyrir áríð 1987, sýnir þróun kaup-
máttar ráðstöfunartekna heimila á mann 1978-1986, samanboríð við
þróun þjóðartekna á sama tíma.
Forsenda árangurs:
Aðhald í þjóðarútgjöldum
Hver vill hverfa
til vorsins 1983?
í þjóðhagsáætlun fyrir árið
1987 segir að þjóðarbúið standi
traustarí fótum en um langt ára-
bil. Landsframleiðsla fer vaxandi
þríðja árið í röð. Tekjur heimil-
anna eru meirí en nokkru sinni
fyrr. Atvinnuástand er gott,
framboð vinnu raunar meira en
eftirspurn. „Síðast en ekki sízt
er árshraði verðbreytinga nú
kominn niður undir 10% og mun
að líkindum fara niður fyrir þá
tölu um næstu áramót. Þetta er
langminnsta verðbólga hér á
landi í hálfan annan áratug“.
Þrennt veldur batanum
Hvað veldur þjóðhagsbatanum?
Þjóðhagsáætlun 1987 tjundar
þijár meginástæður:
* 1) Hagstæð ytri skilyrði.
* 2) Samræmd efnahagsstefna
ríkisstjómarinnar.
* 3) Kjarasátt ríkisstjórnarinnar
og aðila vinnumarkaðarins í febrú-
armánuði sl.
Hér hafa orðið mikil umskipti frá
vori 1983. Þá var verðbólga 130%
og vaxandi, atvinnugreinar að sigla
í strand rekstrarlega, krónan hafði
fallið viðvarandi misserum og árum
saman, innlendur peningspamaður
var hrunninn, erlendar skuldir
hrönnuðust upp, viðskiptahalli óx
stöðugt og ríkisbúskapurinn var
rekinn með umtalsverðum halla,
þrátt fyrir hærri skattheimtu ríkis-
ins (sem hiutfall af þjóðartekjum)
en bæði fyrr og síðar.
Víst hefur hagur þjóðarinnar
batnað, þó að sitt hvað standi enn
til bóta. Ýmis erfið úrlausnarefni
em þó framundan. Þjóðhagsáætlun
leggur fyrst og fremst áherzlu á:
„Staðfesta þarf þann mikla árang-
ur, sem þegar hefur náðst, og
jafnframt þarf að legga sérstaka
áherzlu á að eyða halla í viðskiptum
við önnur lönd og draga úr fjárlaga-
halla. Afar brýnt er að hin hag-
stæðu ytri skilyrði verði nýtt til að
ná viðunandi jafnvægi í viðskiptum
við útlönd, þannig að hægt verði
að lækka erlendar skuldir þjóðar-
innar. Aðhald að þjóðarútgjöld-
um er forsenda árangurs í þessu
efni, þótt þjóðartekjur farí nú
vaxandi. Þetta verður að vera
forgangsverkefni á næsta árí.
Þá er ekki síður brýnt að draga
úr hallarekstri ríkissjóðs, þannig
að almenn fjármálastjórn stuðli
betur að jafnvægi í efnahagslíf-
inu“.
Hvað er framundan?
Veldur hver á heldur, segir mál-
tækið. Það á ekki einungis við um
ríkisstjóm og Alþingi, þó rúnir
framtíðarinnar ráðist þar að dijúg-
um hluta. Stefnumarkandi völd
liggja víðar í þjóðfélaginu, t.d. hjá
hagsmunasamtökum vinnumarkað-
arins. Svokallaðar ytri aðstæður
hafa og ómæld áhrif: aflabrögð,
verðþróun á heimsmarkaði (varð-
andi útflutning okkar og innflutn-
ing), gengisþróun gjaldeyris sem
ÞINGBREF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
viðskipti okkar fara fram í, vaxta-
þróun er tengist erlendum skuldum
okkar o.sv.fv.
Þjóðhagsspá 1987 gefur sér for-
sendur, byggðar á Iíkum:
* Sjávarvömframleiðsla aukizt
um 4-5%.
* Meðalvextir af erlendum skuld-
um lækki úr 8,5% í 8%.
* Viðskiptakjarabati haldi áfram
að vaxa, um 1,24% 1987 í stað 4%
1986.
* Verðhækkanir frá upphafi til
loka komandi árs verði 4-5% og
árshraði verðbreytinga innan við
4% í árslok. Meðalhækkun milli
áranna 1986 og 1987 verði heldur
hærri eða um 7 - 8%.
* Þjóðarútgjöid hækki um 2%.
* Samneyzluútgjöld hækki um
1,7%.
* Einkaneyzluútgjöld hækki um
1,5%.
* Viðskiptajöfnuður við um-
heiminn skánar, en verður áfram
óhagstæðun um 700 m.kr. eða 0,4%
af landsframleiðslu.
* Erlendar skuldir lækka sem
hlutfall af landsframleiðslu úr
51,5% í 49%.
Niðurstaða þjóð-
hagsáætlunar
Ef það gengur eftir, sem að fram-
an er spáð, standa líkur til áfram-
haldandi hagvaxtar, þó minni en á
líðandi ári. „Landsframleiðsla gæti
aukizt um rúmlega 2%, samanborið
við spá um 5% hagvöxt á þessu
ári. Landsframleiðsa 1987 yrði.
samkvæmt þessu 154,3 milljarðar
króna, miðað við verðlag í lok þessa
árs, og þjóðarframleiðsla 148,4
milljarðar. Ef verðlagsmarkmið
Þjóðhagsáætlunar nást gæti
meðalverðlag á næsta árí orðið
2,5 - 3% hærra en verðlag í lok
þessa árs“.
Já, ef verðlagsmarkmið þjóð-
hagsáætlunar nást. Það er stóra
spumingin. Sú spuming leitar ekki
sízt svars í samningum á vinnu-
markaði upp úr áramótum. En
jafnframt í stjómvaldsaðgerðum,
m.a. ákvörðunum um verðlagningu
opinberrar þjónustu og verðþyngj-
andi skattheimtu.
„A næsta ári er ekki gert ráð
fyrir svipuðum búhnykk og á þessu
ári“, segir í jajóðhagsáætlun fyrir
komandi ár. Aætlunin í heild er því
reist á nokkurri bjartsýni um fram-
leiðsluaukningu „og jafnframt því
að það takist að stilla þjóðarútgjöld-
um í hóf... Ef útgjaldaþróunin fer
hins vegar úr böndunum, er hætt
við, að það leiddi til aukinnar verð-
bólgu og vaxandi jaftivægisleysis í
þjóðarbúskapnum. Gegn því þarf
að spoma".
Kosningaþing er framundan með
öllu því sem heyrir til. Þá á ábvrgð-
in stundum í vök að veijast fyrir
áróðrinum. Þjóðin á hinsvegar að
meta og dæma stjómmálamenn
sina af ábyrgð, sem þeir sýna, og
árangri, er þeir ná. Ekki af hávaða
og handapati, málþólft og sýndar-
mennsku. Og hún á að skoða sjálfa
sig í sama ljósi. Þá rætist máske
bjartsýn þjóðhagsspá. Og hver vill
aftur f þjóðhagssporín vorið 1983?
ATHUGIÐ
Erum að flytja um helgina að Skipholti
29a. Opnum aftur mánudag 27. okt.
Rafiðnaðarskólinn,
Ákvæðisvinnustofa Rafiðnar.
Fólag löggiltra rafverktaka í Reykjavík,
Landssamband íslenskra rafverktaka.
Söluumboð L.Í.R.
ROBERT
HOGER
RUMBA
smáskór
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 6b,
GEGNT IÐNAÐARMANNAHÚSINU
S.:622812
(Sendum í póstkröfu)
sérvers/un mea barnaskó
RIO
MINIBEL
BARNASKÓR
ROGER