Morgunblaðið - 26.10.1986, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 26.10.1986, Qupperneq 40
C.OO *■ íT'aonT^TO r>r* » rrrrrjrrfyyn rjyrt k jrrrxT T>-*CT/^> * MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986 40 María Árnadóttir og Skúli Gautason i hlutverkum sfnum „EKKIBLÓTA MYRKRI: KVEIKTU LJÓS!“ Leikllst Bolii Gústavsson í Laufási Leikfélag Akureyrar Revíukabarettinn „MARBLETTIR eftir hina og þessa. Höfundar texta og tónlistar: Bengt Ahlfors Kristján frá Djúpalæk Pétur Einarsson o.fl. Leikstjórn og leikmynd: Pétur Einarsson Lýsing': Ingvar Björnsson Búningar: Pétur Einarsson og Freygerður Magnúsdóttir Söngþjálfun: Þuríður Baldurs- dóttir Dansar: Alfs Jóhanns Pétur Einarsson leikhússtjóri bendir réttilega á það í leikskrá þessa verkefnis, að sú lifandi revíuhefð, sem íslendingar áttu fyrr á þessari öld, eða allt fram á sjötta áratuginn, hafi skyndilega dottið upp fyrir. Oneitanlega voru margir snjallir gamanleikarar á dögum þá, menn eins_ og Alfreð Andrésson, Haraldur Á. Sigurðs- son og Lárus Ingólfsson og konur eins og Nína, Emilfa og Áróra. Það var ógleymanlegt að sjá og heyra Alfreð flytja gamanvísur, grafalvarlegan á meðan áhorfend- ur veltust um af hlátri. Og hér fyrir norðan muna allir, sem komnir eru um og yfír miðjan aldur, hinn Qölhæfa listamann, Jón Norðflörð, sem átti jafn hægt með að kitla hláturtaugamar og „kollegar" hans sunnan heiða. Fjölmörg önnur nöfn mætti nefna, kvenna og karla, sem gerðu reví- umar að hressandi skemmtun í skammdeginu. En staðreyndin er sú, að jafnokar þeirra hafa verið á fjölunum síðan og em enn. Hitt er annað mál, að lagtæka revíu- smiði hefur vantað í nær 30 ár. ísland hefur að vísu eignast þjóð- arrevíu, sem birtist á skjánum um hver áramót undir heitinu Skaup. En þótt áramótaskaupið takist oft dável, þá er það ekki lifandi leik- húsverk. Ég er ekki sammála Pétri um það, að með tilkomu atvinnumennsku í leiklist hafí reví- an ekki þótt nógu „fín“ list. Það em miklu fremur rithöfundamir og skáldin, sem ekki láta eftir sér að gera að gamni sínu á léttan og græskulausan hátt. Þeir virð- ast vera svo þrúgaðir af kald- hæðnislegri vonleysisstefnu hemaðarspennunnar og látlausu vandamálaþvargi ríkjandi lífsflótta, sem alið er á í tíma og ótíma, að jafnvel prestum getur blöskrað. Hlý kímni og eðlileg kátína hafa bókstaflega verið „tabú" um nokkurt skeið. Þetta endurspeglast í lokaljóði revíunn- ar Marbletta, sem er alvarlegt, en jákvætt, og ber greinileg höf- undareinkenni skáldsins frá Djúpalæk. „Sé dægra köldum stáloddi stefnt að brjósti þér og standi grátur fastur í hálsi, daprast fer. Þó tímans fljót sé dynþungt um dimmskóg fram að ós, þá dæmdu ekki myrkrið: Kveiktu Ijós! Og kveiktu ljós í gleði og sorgum alveg eins og öllum sem þú kynnist, það linar sviða meins. Og mundu þjáðra meinsemd ef viltu hljóta hrós. í heimi þess er vonar: Kveiktu ljós! Já, tendra kerti döprum, þá kveikt þér Ijósið fæst að kærum degi liðnum og þeim er rennur næst. Og minnstu þess að líf þitt sem elfan nálgast ós. Og ekki blóta myrkri: Kveiktu ljós!“ Og sannast sagna tekst leikurum LA að kveilq'a ljós glaðværðar og jafnframt flugelda og púðurkelling- ar smellinnar þjóðfélagsgagnrýni í sýningu þessa revíu-kabaretts. Marbiettir eru sagðir unnir úr verki fínnska-sænska rithöfundarins og leikhúsmannsins Bengts Ahlfors. Þeir félagar, Pétur Einarsson og Kristján frá Djúpalæk, hafa verið nokkuð hiklausir í byltingu þess verks, sem betur fer, enda hefðu þeir hæglega getað logið því, að þetta væri frumsmíð þeirra sjálfra. Fjallar verkið fyrst og fremst um íslensk efni, eins og um menningu, sem „er ekkert sérlega arðbær", og hvalablástur, þar sem sungið er: „0, Regan vertu ekki reiður," eða þá dálítið lauslætislegar kennara- ráðstefnur. Svo er að sjálfsögðu fjallað um navigeisjón, sungið: „Gorbaséff, há dú jú dú,“ og ekki gleymt að rekja raunir „Berta litla". Eg álit að þeir Pétur og Kristján ættu einfaldlega að sleppa því með öllu næst, að sækja kveikju í verk erlends höfundar, því þeir eru full- komlega færir um að vinna „pá det privata plan...“ eins og segir í smellnum þætti um Norðurlandaráð er hefst á segulbandsupptöku á skandinaviskri ræðu, sem gamall skólabróðir minn, Páll Pétursson á Höllustöðum, flytur með frumleg- um og bráðskemmtilegum fram- burði. Páll skemmir ekki revíuna, enda ennþá alvarlegri en Alfreð Andrésson forðum. Þótt víða sé komið við f Marblett- um og söguþræði sleppt, þá tekst leikstjóranum, Pétri Einarssyni, að halda vel utan um sýninguna svo á henni er góður heildarsvipur. Leik- arar eru Sunna Borg, Marinó Þorsteinsson, María Amadóttir, Skúli Gautason, Inga Hildur Har- aldsdóttir og Einar Jón Briem. Þau fara úr einu hlutverkinu í annað, svo eðlilega, að manni fínnst í fljótu bragði að þau hafí ekkert fyrir því. Það hljóta að teljast með- mæli. Maríu Amadóttur hefí ég ekki séð á leiksviði fyrr, en hún hefur starfað sem fastráðinn leikari við Borgarleikhúsið í Malmö í Svíþjóð undanfarin fimm ár. Styrk- ur hennar felst ekki síst í sérlega skýrri og blæbrigðaríkri framsögn. Fagmannleg persónusköpun með skörpum skilum milli ólíkra mann- gerða einkennir og leik hennar. Skúli Gautason er snjall gamanleik- ari, tileinkar sér ákjósanlega hógværð og veldur þvf vel. Þau María eiga það sammerkt að þau skila söngvum sérlega vel. Þá er leikur Ingu Hildu Haraldsdóttur kfminn, hlýr og yfírleitt yfírvegað- ur. Samtal hennar til Bubba fyrir kennaraþingið er vel gert atriði. Einar Jón Briem fer misjafnlega vel með hin ýmsu hlutverk — minni- legust er túlkun hans á þættinum um böm byltingarinnar. Er mér ekki grunlaust um, að honum henti betur að glíma við alvörugefnari verk. Þá virðist raddbeiting hans þarfnast meiri ögunar á stundum. Marinó Þorsteinsson nýtur þess greinilega að leika í þessari sýn- ingu. Hann er meinfyndinn í nöldraranum, sem situr eins og negldur fyrir framan sjónvafpið og bölvar þar öllu í sand og ösku, jafn- vel veðurfregnunum, en gleymir sér annað slagið og hlær eins og tröll. Þá duttu mér ýmsir ágætir vinir mínir í hug. Sunnu Borg skortir hvorki hressileik eða leikgleði og öryggið bregst henni ekki fremur en fyrri daginn. Umgerð þessarar sýningar er einföld í sniðum, en þeim mun meiri kröfur eru gerðar til ljósameistar- ans, Ingvars Bjömssonar, sem vandar vel til verksins, svo hvergi skeikar. Undirleik annast Ingimar Eydal og Aðalheiður Þorsteisndóttir og er hann léttur og leikandi eins og vera ber. Ég hef trú á að þessi revíu- kabarett eigi eftir að vekja kátínu manna á norðurslóð. Raunar er vel athugandi að auka við sýninguna eftir atvikum, þegar fram í sækir. Mætti þá m.a. bjóða frambjóðend- um í væntanlegum þingkosningum að leggja eitthvað til málanna á sviðinu. Ég minnist þess t.d. að hafa leikið með Halldóri Blöndal í leikritinu Æðikollinum á vegum menntaskólans fyrir meira en þijátíu árum og þar fór hann með hlutverk skrifara (þ.e.a.s. möppu- dýrs) af sannri innlifun. Og fram- sóknarmenn á Norðurlandi eystra gætu ósköp vel sungið í þessari sýningu. „Eitt par fram fyrir ekkju- mann“, eða eitthvað ámóta skemmtilegt. Sem sagt, maður verður dálítið kátur í Leikhúsinu á Akureyri um þessar mundir. Breytt og stækkað hjá Pelsinum Flókinn og erfiður jass sem reynir á hæf ileikana - Léttsveitin með tónleika á Hótel Borg NÝLEGA opnaði Pelsinn að nýju verslun sína við Kirkjutorg eftir stækkun og breytingar. Pelsinn hefur nú verið starfræktur sem sérverslun með loðskinns- og leð- urfatnað í 14 ár. í nýju versluninni verður m.a. seldur fatnaður frá hönnuðum á borð við Jil Sander, Yves Saint Laurent, Jean Pécarel, Bartoli, Casavenetta, Pentik, Turkis Tukku o.fl. Eigendur Pelsins eru þau Ester Ólafsdóttir og Karl Steingrímsson. (Fréttatilkynning) LÉTTSVEIT Ríkisútvarpsins efnir til sinna fyrstu opinberu tónleika á Hótel Borg á þriðju- dags- og fimmtudagskvöld og hefjast þeir klukkan 22.00. A efnisskránni verður jasstónlist, sem „ samanstendur af flóknum og erfiðum jassstemmum, sem reyna mjög á getu og hæfileika hljómsveitarmanna", að þvi er Ólafur Þórðarson, framkvæmda- stjóri sveitarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið. Léttsveit Ríkisútvarpsins var stofnuð í maímánuði árið 1985. í fyrstu var hér um að ræða tilrauna- starfsemi og hljóðritaði hljómsveitin 10 íslensk dægurlög, sem notuð hafa verið við ýmis tækifæri í hljóð- varpinu. Árangurinn þótti lofa góðu og var ákveðið að halda starfsem- inni áfram og nú eru til í fórum hljóðvarpsins 20 hljóðrituð lög með sveitinni og þar af lög þar sem margir þekktir innlendir söngvarar syngja með. Tónleikamir nú eru hins vegar fyrstu opinberu tónleikar hljóm- sveitarinnar og er efnið að mestu fengið frá dönsku útvarpshljóm- sveitinni. Auk undirbúnings fyrir tónleikanna hefur hljómsveitin verið að undibúa upptökur fyrir íslenska sjónvarpið, að sögn Ólafs Þórðar- sonar. Hljómsveitarstjóri Léttsveitar- innar er Vilhjálmur Guðjónsson og aðrir liðsmenn eru saxófónleikar- amir Kristinn Svavarsson, Rúnar Georgsson, Stefán S. Stefánsson og Þorleifur Gíslason. Á trompett leika Ásgeir Steingrímsson Jon Sig- urðsson og Sveinn Birgisson, á básúnu Oddur Bjömsson og Edvard Fredriksen, á slagverk Pétur Grét- arsson og Steingrímur Óli Sigurðs- son, á gítar Bjöm Thoroddsen, á hljómborð Þórir Baldursson og á bassa Gunnar Hrafnsson. Morgunblaðið/JÚIÍUB. Léttsveit Ríkisútvarpsins á æfingu fyrir tónleikana undir stjórn Vil- hjálms Guðjónssonar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.