Morgunblaðið - 28.10.1986, Page 12

Morgunblaðið - 28.10.1986, Page 12
-12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐ.IUDAGUR 28. 0KT0BER1986 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Fymim íslandsmeistari, Þórhallur Kristjánsson, óskar nýja meistaranum Jóni Ragnarssyni til ham- ingju með titilinn, en hann og sonurinn Rúnar tryggðu sér titilinn í Norðdekk-rallinu. Myndin er tekin fyrir tvær síðustu leiðirnar en þá voru úrslitin orðin nokkuð örugg. arakeppni í rallakstri. Þórhall- ur Kristjánsson og Gunnlaugur Rögnvaldsson á Peugeot Talbot náðu öðru sæti í rallinu og varð Þórhallur þar með að láta ís- landsmeistaratitilinn af hendi. Hafsteinn Aðalsteinsson og Úlfar Eysteinsson á Ford Esc- ort RS urðu þriðju. Fjórtán bílar komust í mark af átján sem lögðu af stað. Norðdekk-rallið bar nafn með rentu, snjóhjólbarðar voru kepp- endum nauðsyn alla keppnina, leiðimar voru undirlagðar snjó og ís, aðstæður sem íslenskir rallöku- menn eru óvanir að keppa við. Þegar lagt var af stað frá Gúmmí- vinnustofunni í Réttarhálsi á laugardag var beygur í mörgum bílstjóranum og það kom á daginn að erfitt reyndist að stjórna bílun- um í hálkunni. Á fyrstu leið hættu keppni Hjörleifur Hilmarsson og Sigurður Jensson á Toyota Cor- olla með bilaða vél, en margir Norðdekk-rallið: Meistarasigur feðganna FYRST voru það bræðurnir Ómar og Jón Ragnarssynir sem urðu Islandsmeistarar, núna feðgamir Jón og Rúnar og hver veit nema Jón keppi með baraa- barai sinu í framtíðinni og nái árangri. Fjölskylda hans hefur a.m.k. staðið vel að baki honum í þau tólf ár, sem Jón hefur þeyst um keppnisleiðir ýmist sem aðstoðarökumaður eða ökumaður. Er hann fyrstur ís- lendinga til að hljóta bæði Islandsmeistartitil ökumanna og aðstoðarökumanna, eftir sigur í Norðdekk-rallinu um helgina á Ford Escort RS. Son- urinn Rúnar er yngsti aðstoðar- ökumaður heims til að hjjóta titil aðstoðarökumanna í meist- Lokastaðan í Norðdekk-rallinu: Refsing klst. 1. Jón Ragnarsson/ Rúnar Jónsson, Ford Escort 2.01.22 2. Þórhallur Kristjánsson/ Gunnlaugur Rögnvaldsson, Peugeot 2.03.15 3. Hafsteinn Aðalsteinsson/ Úlfar Eysteinsson, Ford Escort 2.04.43 4. Þorvaldur Jensson/ Guðmundur Jónsson, Opel Kadett 2.0.815 5. Einar Þ. Magnússon/ Þór Kristjánsson, Ford Escort 2.09.29 6. Elmar Ingibergsson/ Jóhannes Helgason, Ford Escort 2.13.17 7. Daníel Gunnarsson/ Birgir Pétursson, Opel Kadett 2.18.29 8. Jón S. HaUdórsson/ Bergþór Bergþórsson, Porsche 911 2.20.05 9. Friðrik Sigurbergsson/ Grétar Sigurbergsson, BMW 2002 2.23.01 10. Bragi S. Guðmundsson/ Arnar Theódórsson, Lada 2.23.03 11. Ævar Hjartarson/ Þorgeir Kjartansson, Skoda 2.27.49 12. Olafur Baldursson/ Hilmar Héðinsson, Lada 2.28.45 13. Eiríkur Friðriksson/ Þráinn Sverrisson, Ford Escort 2.30.17 14. Michael Reynisson/ Sigurður Helgason, Ford Escort 3.19.19 Það gekk hvorki né rak hjá Jóni S. Halldórssyni á Porsche vegna lélegs dekkjabúnaðar. Bíllinn er sá fyrsti sinnar tegundar í keppni hérlendis. ! sinni annarri keppni náðu Einar Þór Magnússon og Þór Kristj- ánsson fimmta sæti með ágætum akstri á Ford Escort. höfðu spáð þeim velgengni. Sömu- leiðis var búist við árangri hjá Porsche-ökumönnunum Jóni S. Halldórssyni og Bergþóri Berg- þórssyni en rangur dekkjabúnað- ur varð þeim að falli og þeir urðu fljótlega mjög aftarlega. Kraft- minni bílunum gekk betur í hálkunni, Þorvaldur Jensson og Guðmundur Jónsson á Opel Kad- ett voru í toppsætunum, þangað til að þeir festust í skafli á Lyng- dalsheiði og töpuðu dágóðum tíma. En á laugardeginum tóku Jón og Rúnar forystu strax á annarri leið og í lok dagsins höfðu þeir rúmlega tveggja mínútna for- skot á þá Þórhall og Gunnlaug, sem töpuðu talsverðum tíma á frystu leið vegna fannfergisins, sem fyrsti bíll inn á leiðina. Akst- urinn hjá Hafsteini og Úlfari var góður, en á Gunnarsholti sprakk tvisvar og margar mínútur fór í súginn, en þeir voru þó í þriðja sæti, 45 sekúndum frá öðru sæti. Á sunnudagsmorgun þóttu Jón og Rúnar líklegir til að halda fyrsta sætinu, forskot þeirra var það mikið. Aðeins óhapp gat sett strik í reikninginn. Meiri keppni var hinsvegar um annað sætið, en Þórhallur tryggði sér það með góðum akstri um ísólfsskálaveg og Hafsteinn endaði í því þriðja. En feðgamir Jón og Rúnar óku stíft og örugglega og voru vel að sigrinum komnir, óku skynsam- lega og áfallalaust í gegnum keppnina. Nokkuð sem hefur tryggt þeim sigur í þremur keppn- um á árinu. Opel Þorvalds Jens- sonar endaði í fjórða sæti og unnu hann og Guðmundur Jónsson sinn vélarflokk, flokk breyttra bíla með 1600cc—2000cc vél. Flokk 0—1600cc unnu Einar Þór Magn- ússon og Þór Kristjánsson á Ford Escort eftir mjög góða frammi- stöðu, náðu þeir fimmta sæti yfir heildina í sinni annarri keppni. Flokk óbreyttra bíla unnu Ólafur Baldursson og Unnar Héðinsson á Lada. Sigurvegari í sveitakeppni var Matsölustaðurinn Úlfar og ljón, með bíla í öðru, þriðja, átt- unda og þréttánda sæti. - GR. Lokastaðan í íslandsmeistarakeppninni: Ökumenn stig Jón Ragnarsson, Ford Escort 75 Þórhallur Kristjánsson, Peugeot 67 Hafsteinn Aðalsteinsson, Ford Escort 51 Hjörleifur Hilmarsson, Toyota 45 Aðstoðarökumenn Rúnar Jónsson, Ford Escort 75 Sigurður Jensson, Toyota 45 Úlfar Eysteinsson, Ford Escort 39 Gunnlaugur Rögnvaldsson, Peugeot 35 „Gaman að verða meistari með syninum“ — sagði Jón Ragnarsson „ÉG ÆTLA nú ekkert að verða langafi í þessari íþrótt, en það er óneitanlega gaman að verða íslandsmeistari með syninum,“ sagði sigurvegari Norðdekk-rallsins, Jón Ragn- arsson, í samtali við Morgun- blaðið. Hann vann keppnina ásamt 17 ára syni sínum, Rúnari Jónssyni, á Ford Esc- ort KS og tryggðu þeir sér þar með Islandsmeistaratitil- inn, eftir keppni við Þórhall Kristjánsson á Peugeot á ár- inu. „Það var ofsalega gaman að keyra í snjónum, keppnin var mjög vel skipulögð hjá Bifreiða- íþróttaklúbbi Reykjavíkur. Það sýndi sig í þessari keppni að allir ökumenn okkar eru í mik- illi framför og bílamir verða sífellt betri. Tímamir á keppnis- leiðunum vom hraðir miðað við aðstæður og keppnin spenn- andi. Það kom ekkert upp á hjá okkur, þetta gekk alveg áfalla- laust. Okumenn á kraftminni bílunum vom til að byija með að kitla þá sem venjulega hafa staðið í toppbaráttunni, því krafturinn skipti ekki eins miklu máli í snjónum. Ég er mjög ánægður með árið í heild, við Rúnar höfum þrisvar unnið keppni og einu sinni náð öðm sæti. Við höfum ekki sprengt eitt dekk og ekkert óhapp kom- ið fyrir í akstrinum. Það fer mikill tími í þetta og ég fæ hjálp frá mörgum duglegum mönn- um, annars væri þetta ekki hægt. Eg veit ekki hvað skeður núna. Ég er búinn að keppa í tólf ár og reyna allt sem hægt er í þessari íþrótt. Bikarsafnið er orðið stórt, þekur heilu hillu- samstæðumar. Á næsta ári verður grimmari keppni sem þarf því meiri undirbúning, það er óljóst hve mikinn tíma maður hefur," sagði Jón, en víst er að hann mætir í slaginn að ári, ef marka má óbilandi áhuga hans á rallinu gegnum árin. Og eng- inn hefur jafn mikla keppnis- hörku og Jón Ragnarsson. Til hamingju með titilinn! G.R.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.