Morgunblaðið - 28.10.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.10.1986, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1986 Gítarleikur Tónlist Jón Ásgeirsson Pétur Jónasson gítarleikari hélt tónleika á vegum Tónlistarfélags- ins og flutti tónlist eftir Tarrega, Ponce, Moreno—Torroba og frum- flutti nýtt verk eftir Kjartan Ólafsson. Pétur Jónasson er einn þeirra tónlistarmanna sem vandar mál sitt af kostgæfni og er trúr texta höfundanna. Það eina sem flnna mætti að, er, að í leik hans fínnst ekki sú áhætta, sem skap- ast við það að öllum beislis- taumum er sleppt lausum. Yfirvegaður leikur á vel við eldri tónlist en skapþrunginn og ástríðufullur leikur, í bland við ljóðræna mýkt, er eitt af því sem gefur spánskri (og mexikanskri) gítartónlist sérstakan blæ, þar sem tónvefurinn er frekar einfald- ur. Þessi fallega hljómandi tónlist verður því fremur litlaus ef tilfínn- ingunum er ekki gefinn laus taumurinn, hvort heldur er leikið með kraftmiklar tilfínningar eða viðkvæmni. Karakter-verkin eftir Moreno-Torroba voru feikna fal- lega leikin sum þeirra, en einmitt falleg tónmjmdun er eitt af því sem best lætur að heyra í leik Péturs. Tilbrigði við jómfrú heitir verk eftir Kjartan Ólafsson og er nafnið svo tilkomið, að gerð þessa verks er Jómfrúrsmíð" hans að prófí loknu. Verkið ber nokkur merki ákveðinnar tónsmíðastefnu en auk þess má heyra tóntiltektir sem benda til þess að hér sé á ferðinni alvarlega þenkjandi tón- smiður, þrátt fyrir að verkið í heild væri nokkuð slitrótt, jafnvel Pétur Jónasson. af tilbrigðaverki að vera. Vera má að það sé vegna þess að höf- undinum var meir umhugað að fást við ýmsar útfærsluaðferðir en að semja tónlist. Þetta er því miður mjög áberandi í tónsmíðum nútímans, að svo virðist sem meiri áhersla sé lögð á aðferðafræðilega hönnun, frekar en að iáta tilfínn- ingamar ráða ferðinni í gerð tónverka. Það vill svo til að erfítt er að gera greinarmun þar í milli, því vitsmunir og tilfínning manns- ins eiga sér ekki önnur skil en að hægt er að ieggja áherslur á einstaka þætti innan þessara fyr- irbæra en aldrei að útiloka annan hvom þáttinn. Þar sem list hefur risið hæst, hefur flæði þessara fyrirbæra birst í samvirku átaki vitrænnar og tilfinningalegrar upplifunar. Morgunstunc|,r gefur gull í mund, eftir væran svefn á heilsudýnu og kodda frá Bay J acobsen. 14 daga skilafrestur TJARNARGATA 2 230 KEFLAVIK SÍMI 3377. HRINGDU STRAX í DAG. Kötturinn (Helgi Björnsson) kemur heimilisfólkinu í skilning um aö maðurinn lifir ekki á brauði einu saman. Hugmynd um frelsi Leiklist Jóhann Hjálmarsson Aljþýðuleikhúsið: KOTTURINN SEM FER SÍNAR EIGIN LEIÐIR eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikstjóri: Sigrún Valbergs- dóttir. Leikmynd og búningar: Gerla. Lýsing: Lárus Bjömsson. Tónlist og textar: Ólafur Hauk- ur Símonarson. Útsetning tónlistar: Gunnar Þórðarson. Um köttinn sem fer sínar eigin leiðir yrkir Ólafur Haukur Símon- arson: Mér er ferðafrelsið meira en innantómt orð, líf mitt er hreyfing, ég er þannig gerður. Enginn skal halda að ég sé háseti um borð, ég hata púlið, ég er þannig gerður. Og enn yrkir Ólafur Haukur um sama kött: Því ég er villtur og ég verð það alla tíð, vonlaus til nytja, ég þoli ekki helsi. Sumum er það hulið hvað ég á móti býð, hugmynd um lífið, - hugmynd um frelsi. Leikritið um köttinn hefur Ólaf- ur Haukur samið eftir ævintýri Rudyards Kipling og stuðst við þýðingu Halldórs Stefánssonar. Kötturinn er klókur. Hann hef- ur sínar hugmyndir um lífíð og þó einkum frelsið. í leikritinu glímir hann við konuna sem líka veit sínu viti, stofnar heimili og iðkar fjölskyldulíf þar sem maður- inn og dýrin gegna þvf hlutverki að vera til þægðar. Sú hugmynd um konuna sem kemur fram í leikritinu getur varla talist í kven- frelsisanda. Og lítið verður úr karlmanninum. Vissulega má draga ýmsa lær- dóma af túlkun Ólafs Hauks í Kettinum sem fer sínar eigin leið- ir. En leikritið er fyrst og fremst til þess gert að skemmta, það er dæmigert bamaleikrit með tónlist og söng. Lög Ólafs Hauks eru yfírleitt geðfelld og textar hnyttn- ir. Sama gildir um samtöl í leikrit- inu. Þau eru sjaldan daufleg. Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri hefur valið þá leið að gera hlut ævintýrsins sem mestan og nýtur til þess fulltingis Gerlu og Lárusar Bjömssonar. Sviðsetningin er fremur hefðbundin eins og eðlilegt verður að teljast. Helgi Bjömsson lék köttinn af miklu fjöri og allir hinir leikaram- ir sýndu góða innlifun í hlutverkin: Gunnar Rafn Guðmundsson (hundurinn), Bjami Ingvarsson (hesturinn), Erla B. Skúladóttir (kýrin), Barði Guðmundsson (maðurinn), María Sigurðardóttir (konan) og Margrét Ólafsdóttir (bamið). Það var góð stemmning í Bæj- arbíói í Hafnarfírði á frumsýningu og virtust krakkar kunna vel að meta Köttinn sem fer sínar eigin leiðir. í FARARBRODDI í 9 ®TVNGSRAM Heildsötudreifing: RAFTÆKJAVERSLUN ÍSLANDS S: 688 660 ■ 688 661
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.