Morgunblaðið - 28.10.1986, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.10.1986, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1986 t Eiginkona mín og móðir okkar, LIUA PÉTURSDÓTTIR frá Guðnabakka ( Stafholtstungum ( Borgarfirði, lést ó Hrafnistu í Reykjavík 17. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir eru færöar til starfsfólks á hjúkrunardeild G-1 á Hrafnistu í Reykjavík. Kristinn Guðnason, börn og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, REINHARDT REINHARDTSSON, Æsufelli 2, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag, þriðjudaginn 28. okt., kl. 13.30. Ólöf önundardóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir okkar, ARNFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, frá Súgandafirði, lést í Borgarspítalanum aðfaranótt sunnudagsins 26. okt. si. Jarðaförin veröur tilkynnt síðar. Þorvaldur Kristjánsson, Kristfn Kristjánsdóttir. t Eiginmaður minn og faöir okkar, PÁLL guðmundsson, Blómvallagötu 13, lést í Borgarspftalanum 25. október. Guörún Ólafsdóttir og börn. t Ivióðir okkar og tengdamóðir, MARGRÉT SIGTRYGGSDÓTTIR frá Siglufiröi, verður jarðsungin þriðjudaginn 28. október kl. 15.00 frá Fossvogs- kapellunni. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þess óskað að þeir sem vilja minnast hennar láti í þess stað Sunnuhlfð eða aðrar Ifknarstofnan- ir njóta þess. Jakobfna Stefánsdóttir, Andrés Davfösson, Sigtryggur Stefánsson, Maj Britt Stefánsson, Hjördfs Stefánsdóttir, Finnbogi F. Arndal. t Móðir okkar og tengdamóöir, STEINUN THORARENSEN frá Hróarsholtl, fyrrum frú f Kirkjubæ á Rangárvöllum, lést 19. október. Útförin hefur farið fram. Þökkum samúö og vinarhug. Börn og tengdabörn. t Þökkum auösýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, AÐALBJARGAR JÓNSDÓTTUR, Oddagötu 7, Akureyrl, Guöný Þ. Pálsdóttir, Einar Kr. Pálsson Hallgrfmur J. Pálsson, Aöalgelr Pálsson og fjölskyldur. Minning: Páll Sveinsson frá Hvannstóði Það var á sólríkum júlídegi á liðnu sumri að við Páli Sveinsson skruppum saman til Brúnavíkur austan Borgarfjarðar. Þar hafði hann í fyrra gengið fram á lyngteg- und í mýrarhalla sem við nánari athugun reyndist vera áður óþekkt- ur fulltrúi í flóru íslands, kallaður ljósalyng. Bóndasonurinn frá Hvannstóði áttaði sig strax á að hér var óvenjuleg planta á ferðinni, því hann þekkti obbann af íslensk- um jurtum á heimaslóðum. Erindi okkar yfir Hofstrandarskarð var að skoða vaxtarstaðinn nánar og það samfélag sem ljósalyngið dafnaði í. Við spjölluðum margt á göngu okkar í sunnanþeynum. Ég fræddist um margt af Páli og komst að því hve vel hann var heima í náttúru- fræði, athugull og spurull og skýr í tilsvörum. Skólaganga hans var skyldunámið, en síðan hafði hann stöðugt verið að auka við sig þekk- ingu og víkka sjóndeildarhringinn. Páll átti ekki langt að sækja áhuga sinn á umhverfinu. Foreldrar hans, Anna Björg Jónsdóttir og Sveinn Bjamason bóndi í Hvann- stóði, hafa bæði lifandi áhuga á íslenskri náttúru og hafa miðlað henni til bama sinna tíu að tölu. Páll var lj'órði elstur í þeim mann- vænlega hópi. Móðirin miðlaði þeim bömum af þekkingu sinni á grösum, faðirinn vísaði til fugla og Borgar- flörður með alla sína fjölbreytni í steinum og bergi kveikti áhugann á jarðfræði. Páll aðstoðaði við búskapinn, en kaus að vera laus við, stundaði sjó frá Homafirði undanfama vetur, annaðist um eyðingu minka á stóm svæði, fór í skoðunarferðir um landið og hafði unun af. Líklega var það í fýrra sem hann fór um landið vestanvert og lukust þar upp nýir heimar, sem hann sagði mér frá þessa dagstund. Virðing fyrir umhverfinu var þessum sólbrennda Borgfirðingi í blóð borin og í frásögn hans bland- aðist saman kímni og alvara. Ég Minning: Olafur Indriða- son - verkstjóri Fæddur 4. október 1921 Dáinn 16. október 1986 Það er ávallt erfitt að missa ást- vin. Það virðist vera svona í skarkala lífsins að maður veit ekki hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Ólafur, sem margur mætti taka til fyrirmyndar í sínum daglegu samskiptum við aðra, því kærleikur var honum í blóð borinn, átti við skæðan sjúkdóm að stríða síðustu ár ævi sinnar, sem dró hann síðan til fundar við Guð sinn og foreldra í fögru sveitunum. Olafur var mikið náttúrubam í hjarta sínu og naut stn hvergi betur en í sveitinni. Það var stór þáttur í lífi hans og Guðríðar að aka eitt- hvert upp í sveit í húsbflnum sínum sem Óli hafði innréttað til þess brúks með fagmannlegri hendi. Ólafi var ýmislegt til lista lagt, t.d. eigum við náttlampa sem Oli hefur smíðað úr greni frá Hallorms- staðarskógi. Málverk uppi á vegg prýðir stofuna heima sem Óli hefur málað og er það af gömlum sveitabæ sem þakinn er snjóföli og fjallasýn að baki. Einhveiju sinni sagði Óli við mig að hann hefði átt sér draum frá því í barnæsku; að verða bóndi í sveit, helst átti það að vera á bemskuslóð- um. „Þetta er bara fjarlægur draumur," sagði hann svo og kímdi. Kannski á sá draumur eftir að ræt- ast nú í fögru sveitunum. Ólafur giftist fyrri konu sinni, Maríu Jónasdóttur frá Þuríðarstöð- um í Fljótsdal, og fluttust þau til Reykjavíkur 1952. Ólafur vann lengst af hjá Reykjavíkurborg sem verkstjóri, og var hann vel kynntur sem slíkur meðal vinnufélaga sinna. Ólafur eignaðist þrjú böm með fyrri konu sinni: Indriða Pál, Soffíu og Jónas. Seinni kona Ólafs er Guðríður Valdimarsdóttir og var hún honum styrkur og stoð þar til yfír lauk. Þökkum innilega samúö og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU SVEINSDÓTTUR WAAGE, Ljósalandl 7, Bolungarvfk. Jón Magnússon, Ólafur M. Waage, Guðmundur M. Waage, Árni Már M. Waage, Ragnheiður M. Waage, Edda M. Waage, Ómar M. Waage, Inga Anna M. Waage, Sigurlaug M. Waage, barnabörn og Marfa Úlfarsdóttir, Katrfn Eyjólfsdóttir, Sigrfður Gfsladóttir, Valgeir Jónsson, Nils Nllsen, Hólmfríður Georgsdóttir, Ásgeir Guömundsson, Bjarnl Samúelsson, barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för móður okkar og ömmu, KRISTGERÐAR E. GÍSLADÓTTUR, Meöalholti 21. Sérstakar þakkir til starfsfólks B-álmu, 6. hæð Borgarspítala. Börnin. Legsteinar ýmsar gerðir Marmorex Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður hugsaði til þess ða geta fræðst meira af Páli í betra tómi og sjálfur bað hann mig um að fá að slást í för við hentugleika. Nú er hann allur fyrr en nokkum varði. Það hefur dregið skugga yfir Borgarfjörð við að missa góðan dreng í blóma iífsins. Öll getum við þó verið viss um að Páll átti góða daga og sólríka fram undir hið síðasta eins og svo margir, sem leita í skaut íslenskrar náttúru. Ég sendi samúðarkveðjur heim í Hvannstóð. Hjörleifur Guttormsson Guðríður á þijú böm af fyrra hjónabandi, Margréti, Magnús og Smára, og vom þau honum jafn kær og hans eigin. Að endingu vil ég votta þér, Guðríður, bömum þínum og bama- bömum og ykkur, Indriða Páli, Soffiu og Jónasi, og öllum öðmm ættingjum og vinum mína dýpstu samúð með orðum úr Spámanninum eftir Kahlil Gibram: „Hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo hann geti risið upp i mætti sínum og óQötraður leitað á fund guðsins." Tengdasonur, Jón Emil Kristinsson. Blömastofa FriÖjinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavfk. Sími 31099 Opið ölt kvöld tll kl. 22,- elnnig um helgar. Skreytingar vlð öll tiiefni. Gjafavörur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.