Morgunblaðið - 28.10.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1986
(gntinental®
Betri barðaralltárið
Hjólbarðaverkstæði
Vesturbæjar
Ægissíðu, sími 23470.
STEYPIBAÐ
Þú stillir vatnshitann með
einu handtaki á hitastýrða
baðblöndunartækinu frá
Danfoss, og nýtur síðan
steypibaðsins vel og lengi.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2.SIMI 24260
Niður
með hita-
kostnaðinn
OFNHITASTILLAR
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
Hús Mjólkursamsölunnar á Bitruhálsi vígt
„Nýtískulegasta
mjólkurstöð heims“
- sagði forstjóri APV við vígsluathöfnina
Femur á færiböndum í pökkunarsal.
Morgunblaðið/Einar Falur
NÝ MJÓLKURSTÖÐ Afjólkur-
samsölunnar í Reykjavík að
Bitruhálsi 1 var vígð síðastliðinn
laugardag. Magnús H. Sigurðs-
son í Birtingaholti, formaður
stjómar Mjólkursamsölunnar,
bauð gesti velkomna í upphafi
vigsluathafnarinnar en gestir
vom m.a. starfsfólk samsölunnar
og ýmsir sem tengst hafa upp-
byggingunni. Guðlaugur Björg-
vinsson forstjóri MS gerði grein
fyrir aðdraganda og ástæðum
nýbyggingarinnar og Pétur Sig-
urðsson framkvæmdastjóri
tækni- og framleiðslusviðs, sem
jafnframt er formaður bygg-
inganefndar, sagði frá bygging-
arframkvæmdum og lýsti
starfseminni. Jón Helgason land-
búnaðarráðherra flutti síðan
stutt ávarp og lagði hornstein
byggingarinnar. Þeir erlendu
gestir sem til máls tóku við at-
höfnina töldu að mjólkurstöðin
væri sú nýtískulegasta í heimin-
um i dag.
Gamla stöðin hönnuð
fyrir átöppun á mjólk-
urflöskur
Guðlaugur Björgvinsson sagði í
ræðu sinni að gamla mjólkurstöðin
við Laugarveg, sem vígð var 18.
maí 1949, hefði verið stórvirki á
sínum tíma. Hún svaraði hins vegar
ekki kröfum tímans lengur og væri
fyrir löngu orðin of lítil. Sem dæmi
um þetta nefndi hann að hún hefði
verið byggð miðað við mjólkursölu
á glerflöskum. Þá hefði markaður-
inn verið um 60 þúsund manns,
viðskiptavinir 240 og 12 vöruteg-
undir. Nú væru allar umbúðir úr
pappír eða plasti, viðskiptavinir
950, neytendafjöldinn 160 þúsund
og vörutegundimar nær 100.
Lýsti Guðlaugur undirbúningi
byggingarinnar sem að mestu fór
fram á árunum 1977—80. Athugan-
ir leiddu í ljós að ódýrast og
hagkvæmast væri að staðsetja
neyslumjólkurbú sem næst mark-
aðnum, það er í Reykjavík. Útilokað
hefði reynst að breyta gömlu mjólk-
urstöðinni við Laugarveg svo að vit
væri í, og því hefði verið ákveðið
árið 1980 að byggja nýja mjólkur-
stöð á lóð sem borgaryfírvöld höfðu
tekið frá að Bitruhálsi. Pálmi Jóns-
son þáverandi landbúnaðarráðherra
Vöruval MS fyrr (til vinstri) og nú.
tók síðan fyrstu skóflustunguna
þann 25. mars 1982.
Heildarkostnaður 850
milljónir kr.
Forstjórinn færði öllum þeim sem
stuðluðu að því að gera nýju mjólk-
urstöðina að veruleika og nefndi
sérstaklega nafn Ágústar Þorvalds-
sonar á Brúnastöðum, fyrrverandi
formanns MS, í því sambandi. Sagði
Guðlaugur að vel hefði tekist til við
framkvæmdina, tíma- og kostnað-
aráætlanir hefðu nokkum veginn
gengið eftir. Heildarkostnaður við
nýju mjólkurstöðina er um 850
milljónir kr. á núgildandi verðlagi,
sem er um 12% yfír því sem upphaf-
leg kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir.
Byggingarkostnaðurinn er fjár-
magnaður að SA hlutum með lánsfé,
um helmingi þess erlendu.
Guðlaugur Björgvinsson sagði að
bygging nýju mjólkurstöðvarinnar
væri forsenda þess að Mjólkursam-
salan geti áfram skilað sínu mikil-
væga hlutverki. Hann sagði að
þrennt þyrfti að vera fyrir hendi til
að standast þær miklu kröfur sem
gerðar væru til fyrirtækisins. í
fyrsta lagi gott hráefni frá framleið-
endum. I öðru lagi gott og hæft
starfsfólk.. Og í þriðja lagi húsnæði
og vélar í samræmi við kröfur hveis
tíma. Sagði Guðlaugur að nú hefði
Mjólkursamsalan yfír öllu þessu að
ráða og óskaði þess að nýja mjólk-
urstöðin yrði neytendum, viðskipta-
vinum og bændum til heilla.
Starfsemin fiutt í vor
Pétur Sigurðsson formaður
bygginganefndar lýsti bygginga-
Pétur Sigurðsson formaður
bygginganefndar.
Bladburöarfólk
óskast!
KÓPAVOGUR AUSTURBÆR
Bræðratunga Oðinsgata
Hlíðarvegur 1-29 o.fl.
Hlíðarvegur 30-57
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra leggur hornstein bygging-
arinnar.
sögunni í ræðu sinni, allt frá þvi
að ákveðið var að ráðast í hana
fyrir nákvæmlega sex árum. 1 mars
síðastliðnum var farið að flytja
tæki úr gömlu mjólkurstöðinni upp
á Bitruháls og í lok apríl hófst til-
raunavinnsla þar. Þann 21. maí var
öll pökkun og vinnsla flutt og skrif-
stofur um tveim vikum síðar. Húsið
var ekki fullfrágengið, en unnið var
að lokafrágangi til vígsludags.
Mjólkurstöðin stendur á 6,3 ha
lóð, en gólfflötur hússins er 13.800
fermetrar. Húsið er teinað af arki-
tektunum Guðmundi Kr. Guð-
mundssyni og Ólafi Sigurðssyni og
landslagsarkitekt var Reynir Vil-
hjálmsson. Húsasmíðameistari var
Guðjón Davíðsson, rafvirkjameist-
ari Ölafur Sveinsson, pípulagninga-
meistari Guðmundur Finnbogason
og múrarameistari Páll Þorsteins-
son. Hönnum burðarvirkis annaðist
verkfræðistofa Braga Þorsteinsson-
ar og Eyvindar Valdimarssonar,
hönnun rafmagns Rafhönnun hf.,
lagna og loftræstingar Teiknistofa
SIS og mjólkurvinnslukerfis fyrir-
Guðlaugur Björgvinsson for-
stjóri Mjólkursamsölunnar.
Magnús H. Sigurðsson formaður
stjórnar Mjólkursamsölunnar.