Morgunblaðið - 28.10.1986, Page 50

Morgunblaðið - 28.10.1986, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1986 Ást er. . ... horfumst í augu grámyglur tvær TM Reg. U.S. Pat. Oft.-all rights reserved 01986 Los Angeles Times Syndicate Er þessi eldri en gömlu brandaramir sem hann lætur fjúka? Þú kvartar yfir að messan sé dauf og þegar maður reynir að hressa upp á hana þá ferðu af hjörun- um. HÖGNI HREKKVÍSI „KÚhtKJINN HEFUR ALLTAFKÉTT FyRJR.séK.4 Vr- v - p 1 m ' í EN HÖQNI EK EKKl SAAAASINNIS.7' ti Ohæfa að beina hingað út- lendingum til rjúpnaveiða Kæri Velvakandi Mig langar til þess að beina þeirri spumingu til forráðamanna um landvemd, hvort eftirlit sé haft með þeim tryllitækjum, sem nú darka um ijöll og heiðar í leit að ijúpum. Nú greinir blað hér í höfuð- staðnum frá því að farið sé að nota fjögurra hjóla torfæruhjól til þess að þurfa ekkert á sig að leggja til þess að murka lífíð úr þessum litla ijúpnastofni okkar. Það mun alkunna fyrir norðan, að menn þeysi um á vélsleðum og skjóti líkt og btjálæðingar á ijúpna- hópa hvar sem þeir finnast. Djúpar rásir í Qallshlíðar verða að lækjar- farvegum í leysingum og stuðla að uppblæstri. Til hvers er verið að sá í örfoka land með æmum kostnaði ef mönnum er liðið að eyðileggja landið á umræddan hátt? Svo munu Húsvíkingar ætla að beina her útlendinga hingað til ijúpnadráps. Þokkaleg iðja það. Rjúpnastofninn þolir ekki meira álag en það sem við íslendingar veiðum og því er óhæfa að beina hingað útlendingum til veiða. Vitanlega ætti að stöðva þetta áður en af verður. Það er líka ábyrgðarhluti að beina hingað út- lendingum til veiða á fjöllum landsins í skammdeginu. Þó eitt og eitt hótel úti á landsbyggðinni hafí ekki næga gesti um vetrarmánuð- ina, verða þeir góðu menn að fínna sér eitthvað annað til en að beina hingað herflokkum útlendinga til þess að útrýma ijúpunni. Verði af þessum fáránlegu hugmyndum þeirra Þingeyinga, legg ég til að ijúpan verði alfriðuð og er ef til vill ekki seinna vænna. Fyrirspurn til fasteignasala Að hve miklu leyti tilheyrir það verkahring fasteignasala að veita ráðgjöf, upplýsa viðskiptavini sína og gæta hagsmuna allra aðila? Á hvaða þáttum varðandi fasteigna- viðskipti bera þeir ábyrgð sam- kvæmt lögum og hveijar eru siðferðilegar skyldur þeirra. Af eigin reynslu sýnist mér að óvant fólk geti ekki treyst því að fá nægilega ráðgjöf. Fyrir einu og hálfu ári skrifaði ég undir kaup- samning vegna íbúðarkaupa. Þegar ég ætlaði að greiða af láni Bygg- ingasjóðs ríkisins, sem ég hafði yfírtekið, kom í Ijós að seljandinn hafði ekki greitt af láninu í mörg ár og skuldaði stóra uphæð. Hefði fasteigasalinn ekki átt að athuga þetta áður en kaupsamningurinn var gerður? Hann hafði bara þetta að segja: „Fáðu þér lögfræðing." Við afsal, sem fram fór fyrir stuttu, var ég í þeirri aðstöðu að geta greitt upp skuldabréf, sem átti að vera til þriggja ára. Fyrir- spum minni, hvort slíkt væri hagstætt fyrir mig, svaraði fast- eignasalinn á þá leið að ég færi sennilega best út úr því. Hann benti mér þó ekki á, að algengt væri að skuldabréf væru seld með afföllum. Að sjálfsögðu var það mín ákvörðun að kaupa skuldabréfið á nafnverði og fullkomlega löglegt. En það var þó gert án þess að fá ábendingar um þær siðvenjur, sem ríkja í skuldabréfaviðskiptum. Ef til vill „á maður bara að vita svona ein- falda hluti" en ég þekki fjölda fólks, sem er reynslulítið á þessu sviði og treystir á fagmanninn (fasteigna- salann). Fleiri en ég hafa rekið sig á, að geta hvorki vænst öruggrar ráðgjafar né geta treyst þeim upp- lýsingum, sem fasteignasalar láta í té varðandi þær eignir sem verið er að selja. Maja Loebell Víkverji skrifar Loksins hefur Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti verið vígð og er þar með lokið rúmlega 40 ára byggingasögu þessarar miklu kirkju, sem löngu er orðin sem eins konar minnismerki um sálmaskáld- ið og táknmerki fyrir höruðborg okkar, svo vítt sést hún að þar sem hún stendur. Fyrst, þegar kirkjusmíðin hófst urðu talsverðar deilur um bæði út- lit kirkjunnar og staðsetningu. Sumum þótti kirkjan ekki falleg og skopteiknarar sáu í útlínum hennar mynd sæljóns, en allar slíkar raddir hafa smám saman hljóðnað og nú stendur kirkjan þama á holtinu og trónar yfír umhverfi sitt, sem virð- ist harla lítið í samanburði við hana. En þótt kirkjan hafí nú verið fullsmíðuð og hafi verið vígð nú um helgina, hefur verið messað í henni eða hluta hennar í áratugi. Lengi vel fóru guðsþjónustur fram í kja.ll- ara kórsins, sem fyrstur var reistur og stóð lengi einn á holtinu. Síðar, þegar byggingin var komin lengra á veg var messað í neðsta hluta tumsins, „vængnum" mót suðri. Þannig mun messugjörð í Hallgrí- mskirkju verða enn eldri en kirkjan sjálf. En Hallgrímskirkja, svo vegleg kirkjubygging sem hún er, er ekki aðeins hús til þess að flytja talað guðsorð, heldur er þetta musteri Krists einnig hin veglegasta tónlist- arbygging með hljómburði, sem sæmir stórbókmenntum tónlistar- innar. Með kirkjunni skapast möguleiki á tónleikahaldi, sem vantað hefur í Reykjavík og verður skemmtilegt að geta heyrt tónlist í Reykjavík við þær beztu aðstæður, sem til eru. XXX Ifrétt í Morgunblaðinu síðastlið- inn laugardag er frá því skýrt, að 64% Islendinga á aldrinum 18 til 69 ára reyki ekki. Þessar upplýs- ingar komu út úr könnun, sem borgarlæknir lét gera, en jafnframt kemur fram að reykingar eru 36% algengari meðal stúlkna en pilta á gagnfræðaskólaaldri. Aróðurinn gegn reykingum hefur greinilega borið talsverðan árangur og er það vel. En hvers vegna skyldi hann síður ná til stúlkna en drengja? Það er spuming, sem tó- baksvamamefnd ætti svo sannar- lega að velta fyrir sér. Það er nú ekki lengur „fínt“ meðal ungs fólks að reykja og sjálfsagt er það ánægjulegasti árangur þess vamar- starfs, sem unninn hefur verið. Þar lýsir árangurinn sér bezt. Hér áður fyrr var enginn unglingur maður með mönnum, nema hann púaði sígarettur. Núna er nánast farið að líta niður á þá unlginga sem reykja og foringjamir í hveijum árgangi reykja ekki. Er það vel. Þá kemur fram í þessari könnun að talsverður mismunur er á reykingum bama eftir búsetu. Tíu sinnum fleiri segjast t.d. reykja á Höfn í Homafirði en í Bolungarvík. Þessar staðreyndir em alvarlegar og virðist nauðsynlegt að reykinga- vamanefnd láti þennan mismun til sín taka. XXX Fjármálaráðherra virðigt nú vera kominn í deilu við fyrrverandi félaga sína hjá Vinnuveitendasam- bandi íslands. Snýst deilumálið um það, hvort skattar hækka að raun- gildi milli á árinu og um hve mikið. Þorsteinn Pálsson hefur stór orð um mennina í Garðastræti 41 og kveður svo fast að orði að tala um bamaskap eða vísvitandi blekking- ar. Eðlilegt er að fjármálaráðherra svíði stór orð Vinnuveitendasam- bandsins. Sjálfstæðisflokkurinn hafði jú lofað skattalækkunum fyr- ir síðustu kosningar. En ef að líkum lætur er þessu deilumáli ijármála- ráðherra og Vinnuveitendasam- bandsins ekki lokið enn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.