Morgunblaðið - 28.10.1986, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1986
17
ans i Rekjavík sáu um flutning
tónlistar.
Vígsluathöfnin hófst klukkan
10.30 með því að prestar og biskup-
ar gengu frá Iðnskólahúsinu í kirkju
og leikin var inngöngutónlist eftir
Þorkel Sigurbjömsson. Hermann
Þorsteinsson, formaður sóknar-
nefndar Hallgrímskirkju, flutti bæn
og sagði: „Drottinn, þú býrð ekki í
þeim musterum, sem með höndum
eru gerð, heldur ert þú alls staðar
nálægur og himinn og jörð geta
ekki rúmað þína eilifu hátign. Þó
höfum vér reist þetta hús þínu heil-
aga nafni til dýrðar og biðjum þig
að helga það með nálægð þinni og
láta héðan streyma ljós og kraft
þinna lífsins orða inn í hjörtu safnað-
ar þíns, svo að þau beri jafnan
mikinn ávöxt hjá þeim, sem orðið
heyra, þeim til helgunar og huggun-
ar. Bænheyr það í Jesú nafiii.
Amen“.
Því næst bám fulltrúar safnaðar-
ins kirkjumuni úr gamla messusaln-
um að hinu nýja altari, þar sem
biskup tók við þeim. Lesnir voru ritn-
ingartextar, sem tengdust einstök-
um munum kirkjunnar og hlutverki
þeirra. Biskupinn yfir íslandi, herra
Pétur Sigurgeirsson, vígði siðan
kirkjuna og sagði í vígsluorðum
sínum: „Ver höfum heyrt orð Drott-
ins og beðist fyrir. Guðs orð og
bænin helga lífið og alla hluti. Drott-
inn Guð vor skal tilbeðinn á þessum
stað og honum einum þjónað. Hér
er Guðs hús, hér er hlið himinsins,
staðurinn, sem þú stendur á, er heil-
ög jörð. Blessað sé þetta musteri
Drottins. Blessað sé allt, sem hér fer
fram. Blessað sé lífsins orð og lífsins
borð. Blessaðar séu bænir og lof-
söngvar. Blessaður sé hver sá, sem
hingað leitar á Drottins fund. Ég
lýsi yfir þvf, að þetta hús er vígt í
nafiii Guðs, föður og sonar og heil-
ags anda.
Biðjum: Blessa þú, Drottinn, alla
sem hingað koma til þess að heyra
þitt orð og biðja til þín. Blessa hvert
bam, sem borið verður að skímar-
laug þinni. Blessa þá, sem koma til
altaris þíns til þess að neyta hjálp-
ræðisgjafa þinna. Blessa fermingar-
bömin, sem hér játast skímamáð
þinni. Blessa brúðhjónin, sem leita
þín og biðja þig að helga heit sín
og samlíf. Blessa þú, Guð allrar
huggunar, þá syrgjendur, sem hér
kveðja látna ástvini. Styrk þá í lif-
andi von fyrir upprisu Jesú Krists
frá dauðum. Blessa hveija bæn og
bæt úr a.llri þörf af ríkdómi náðar
þinnar. í Jesú nafni. Amen.
Þetta vígða Guðs hús er hér með
afhent presti og söfnuði til afnota
og umönnunar. Lofið nú Guð í þess-
um helgidómi hans. Lofið hann fyrir
máttarverk hans. Lofið hann eftir
mikiileik hátignar hans. Allt, sem
andardrátt hefur, lofi Drottin.
Biðjum: Heyr bænir vorar, eilifí
Guð og faðir, þú, sem hefur heitið
því að vera nálægur þeim, sem
ákalla þig og veita þeim miskunn
og eilífa hjálp. Lát ásjónu þína lýsa
yfir þennan stað. Fyll þetta hús friði
og helgi himins þíns. Gjör hjörtu vor
að bústað anda þíns, að vér tilheyr-
um þér og þínu ríki í lífi og í dauða
og að eilífii. Fyrir son þinn Jesú
Krist, Drottin vom, sem með þér lif-
ir og ríkir í einingu heilags anda,
einn sannur Guð um aldir alda.
Amen“.
Að loknum vígsluorðum biskups
flutti forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir ávarp og sagði meðal
annars að Hallgrímskirkja hlyti um
ókomna tíma að skipa sérstakan
sess í huga þjóðarinnar, vegna þeirra
minninga sem hún tengdist. Hún
væri tákn þess, sem væri ennþá
meira og stærra en sérhvert hús
gert af manna höndum, því hún
væri tákn þess hvemig einum manni
í þjáðningu og neyð, tókst með trúar-
styrk og andagift að blása þjóð sinni
í bijóst þolgæði og samhug á þreng-
ingartímum. „Sá dimmi dalur, sem
Hallgrímur gekk á sinni tíð, er langt
að baki. Á björtum degi íslenskrar
sögu, hvarflar hugur okkar aftur til
hans og við óskum þess að þetta
hús, sem reist er í minningu hans,
verði þjóð okkar öraggt athvarf og
uppspretta hins sama styrks og hon-
um var gefin," sagði forsetinn meðal
annars.
Að lokinni vígsluathöfii hófst
messa og var í upphafi hennar flutt
tónverkið Introitus fyrir kór, málm-
blásara, pákur og orgel eftir Áskel
Másson, en þessu tónverki hefur
höfundurinn ánafnað kirkjunni.
Guðrún Finnbjamardóttir, kirkju-
vörður og Dómhildur Jónsdóttir,
safnaðarsystir, lásu ritningarorð
Biskupinn, herra Pétur Sigurgeirs-
son, predikaði. Sfðan var geysifjöl-
menn altarísganga. Um þúsund
manns gengu til altaris og mun það
vera flölmennasta altarisganga á
íslandi til þessa. Átta prestar þjón-
ustuðu, þar af tvennir feðgar, þeir
séra Sigurbjöm Einarsson, fyrrver-
andi biskup og sonur hans séra
Karl Sigurbjömsson og séra Ragnar
Fjalar Lárasson og sonur hans séra
Þórsteinn Ragnarsson. Auk þeirra
Morgunblaðið/Einar Falur
Hörður Áskelsson, organisti,
stjómaði tónlistarflutningi við
athöfnina.
þjónustuðu séra Ólafur Skúlason,
vígslubiskup, séra Jón Bjarman,
sóknarprestur Landsspítalans, Pétur
Sigurgeirsson, biskup og séra Láras
Halldórsson, sem þjónaði í Hall-
grímskirkju sem farprestur um
árabil.
Allir sálmamir sem sungnir vora
við athöfnina vora eftir Hallgrím
Pétursson og hafði Þorkell Sigur-
bjömsson útsett lögin til að auðvelda
safnaðarsöng, sem var mikill og al-
mennur.
Athöfninni lauk með því að Jón
Helgason, dóms- og kirkjumálaráð-
herra fiutti ávarp og greindi frá
áframhaldandi stuðningi ríkisins við
að fullgera kirkjuna og vinna að
fegran hennar.