Morgunblaðið - 28.10.1986, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.10.1986, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1986 19 í mörg ár höfum við Ólsarar leit- að eftir heimild til að vinna hörpu- disk, en hann er unninn í öllum öðrum byggðarlögum við Breiða- flörð að Rifi undanskildu. Hörpudiskurinn veiðist í dag í kringum Bulluskerið, sem er innan hafnarlögsögu Ólafsvíkurhafnar. Hann veiðist einnig á Flákanum sem er örskammt hér frá. í dag fylgjumst við með bátum frá nágrannabyggðum að veiðum á þessum svæðum. Á sama tíma er dauft yfir atvinnulífinu hér í Ól- afsvík, eins og oftast er á þessum tíma árs. Þetta ástand, að sjá að- komubáta að veiðum hér á víkinni og við einungis áhorfendur, minnir mig dálítið á íslandskvæði Einars Benediktssonar, sem hann orti þeg- ar íslendingar voru áhorfendur að veiðum erlendra skipa, en í kvæðinu segir hann svo: „Þú býr við lagarband - bjarglaus við frægu fiskisviðin, fangsmár, þótt komist verði á miðin,”... Ég vil einnig minna þig á, að Rif er eina plássið við BreiðaQörð, sem ekki hefur fengið rækjuleyfi enn, þrátt fyrir ítrekaðar umsóknir. Ég vona, Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra, að þú endur- skoðir afstöðu þína gagnvart okkur útnesingum og skoðir þessi mál með sanngimi, jákvæð afstaða af þinni hálfu er okkur mikils virði. Með vinsemd og virðingu. Höfundur er bæjarstjórí í ÓI- afsvík. ATTAYITAR Benco Bolholti 4, s. 91-21945 Opið bréf tíl Halldórs Ásgríms- sonar sjávarútvegsráðherra GERKOMPLEX • ÞEGAR GEFUR Á BÁTINN Gericomplex inniheldur 10 steinefni, 11 vítamín og Ginseng G115 Þessvegna er það einstakt. Gericomplex hjálpar líkamanum að byggja upp, eflir hann og styrkir. Hugsaðu um heilsuna. Hún er dýrmæt þegar gefur á bátinn. G&ioon ^ooomplw Þú færð Gericomplex í næstu lyfjabúð. Gilsuhúsiö Skólavörðustig 1 Simi 22966 101 Reykjavik Gericomplex - þvf hellean sklptir máli Gericomplex er ekkert undralyf. Það skilar einfaldlega árangri. Og þá verða sumir undrandi. Þeir eru hressari á morgnana, vinna betur á daginn og sofa betur á nóttunni. eftir Kristján Pálsson Sæll ráðherra! Ég þakka þér fyrir móttökuna þann 8. þ.m. á skrifstofu þinni, en þá komum við sveitarstjómarmenn frá Ólafsvík á þinn fund. Erindi okkar vom eins og þú eflaust manst nokkur en þessi tvö helst: 1. Að fá leiðréttingu á kvóta drag- nótabáta. Skýringin á þessari beiðni er sú helst, að eftir að kolinn var tek- inn út úr kvótanum misstu margir dragnótabátar allan svo- kallaðan skrapfisk úr heildark- vóta sínum þannig að hann er ekki fyrir hendi til að nýta sér 10% regluna og breyta skrap- fiski í þorsk. Krafa dragnóta sjómanna í Ól- afsvík var sú, að á móti þessari skerðingu á sveigjanleika kvót- ans fengju þeir helminginn af haustveiðum fyrir utan kvóta eins og tíðkast á línuveiðum, enda er gæðamat dragnótafisks álíka og línufisks. Svar þitt ráðherra við þessari beiðni um leiðréttingu var þvert nei, það yrðu engar frekari breytingar gerðar á núverandi fiskveiðistefnu. 2. Að færa svokallaða norður- suður-línu þannig, að þegar togarar eru flokkaðir eftir svæð- um, þá teljist Snæfellsnestogar- amir til N-svæðis í stað S-svæðis eins og nú er. Ástæðan fyrir því, að Snæfells- nes fiokkaðist upphaflega svona er ekki fundin, staðreyndin er nefnilega sú, að afla- og sóknar- munstur snæfellskra togara var það sama og hjá vestfirskum togurum. Ég vil taka sem dæmi b/b Má, en samkvæmt reynslu viðmiðunaráranna þriggja var aflasamsetning hans þannig, að 55% var þorskur, sem er álíka hlutfall og hjá VestQarðatogur- um. Á S-svæðinu var þetta hlutfall um 20% af þorski. Svar þitt við þessari beiðni var það sama og þeirri fyrri, þvert nei, það yrðu engar frekari breytingar gerðar á núverandi fiskveiðistefnu. Þessi n-s-skipting hafði ekki svo mikil áhrif þegar einungis var kost- ur á aflamarki og reynsla hvers skips var nær öll látin ráða. En eftir að reglum um sóknarmark var breytt á þann veg að öll skip gátu tekið fastan þorskkvóta, em skip sem vom með t.d. 500 tonna þorskkvóta samkvæmt reynslu komin með 1.150 tonna þorskkvóta í sóknarmarki meðan þeir sem vom háir í kvóta fá enga viðbót. Á N-svæðinu er fasti þorskkvót- inn 1750 tonn af þorski, meðan reynsla einstakra skipa er aðeins jafnvel 900 tonn. Á þennan hátt hefur þeim, sem „Svar þitt, ráðherra, við þessari beiðni um leiðréttingu var þvert nei, það yrðu engar frekari breytingar gerðar á núverandi fiskveiðistefnu.“ stóðu sig sem verst, verið launað ríkulega meðan þeim sem sóttu stíft, er haldið niðri. Þetta kalla ég hámark meðal- mennskunnar og í raun óskiijanlegt hvemig þessi mál era að þróast. Það var á Fiskiþingi 1983, sem kvótahugmyndin fékk byr undir báða vængi. Á þessu þingi var skip- uð sérstök nefnd um þetta mál og átti ég sæti í henni. Þar vom mótað- ar þær tillögur sem upphaflegt kvótafrumvarp var byggt á. Það var rauður þráður í gegnum allar umræðumar í nefndinni, sem og á Fiskiþinginu sjálfu, að aldrei skap- aðist sú staða, að einstaka skip Kristján Pálsson fengju ekki að njóta fyrri árangurs á meðan þetta kerfi væri í gildi, það bað enginn um kvóta meðal- mennskunnar heldur sanngjama stjómun veiða í takmarkaða fiski- stofna. Við voram margir sem höfðum barist gegn kvótahugmyndinni en töldum í erfiðri stöðu væri kvóta- leiðin til bóta um tíma með eðlileg- um leiðréttingum. Á þeim ámm, sem kvótinn hefur gilt, hafa margar vafasamar leið- réttingar verið látnar óátaldar, eins og það, að aðeins nokkrir skipstjór- ar fengu að flytja með sér kvóta á milli skipa. Nokkrir aðilar hafa fengið að flytja skip á milli svæða en aðrir ekki og margt fleira mætti tína til. Þegar við Snæfellingar för- um fram á leiðréttingu á áugljósu misræmi þá er þvert nei. Ég held, ráðherra, að tími sé kominn til að endurskoða kvóta- kerfið, þessum málaflokki verður ekki stjómað með lítt sveigjanleg- um lagaboðum ámm saman, það er svo margt, sem breytist snöggt í okkar þjóðfélagi fiskimanna, markaðir, staðhættir, aflabrögð og fleira. Ég ætla ekki að ljúka þessu bréfi án þess að minna þig á, að þetta er ekki í fyrsta sinn sem Snæfelling- ar fara bónleiðir til búðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.