Morgunblaðið - 28.10.1986, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1986
25
Stóri hvellur geng-
inn yfir í kauphöllinni
London:
„Stórí hvcllur" (Big Bang) gekk yfir í kauphöllinni í London í gær.
Með honum rann upp nýtt skeið í kjölfar mikilla breytinga, sem
veríð hafa í undirbúningi i mörg ár. í stuttu máli má segja, að losað
hafði veríð um eldrí reglur og hefðir í þessarí virtustu kauphöll
heims, sem veríð hefur við lýði í 185 ár. Eftirleiðis geta nær allir
tekið þar þátt í kaupum og sölu á verðbréfum.
Gamlar hefðir hafa veríð ríkjandi í kauphöllinni i London og aðeins
tiltöiulega fá fyrírtæki hafa fengið að taka þátt í viðskiptum þar.
Nú verður þar mikil breyting á. Þessi mynd var tekin, áður en Stórí
hvellur gekk yfir.
Þetta þýðir, að kauphöllin er opn-
uð upp á gátt fyrir umheiminum og
jafnframt verður tölvutækni nútí-
mans beitt að langmestu leyti við
skráningu verðbréfa, hvort sem það
eru hlutabref í fyrirtælgum, ríkis-
skuldabréf eða gjaldmiðlar rílg'a um
víða veröld.
Markmiðið með þessari breytingu
er að tryggja, að London verði áfram
ein helzta miðstöð alþjóðafjármála
við hliðina á New York og Tókíó.
Samkcppnin innbyrðis milli þeirra
fyrirtækja, sem stunda kauphallar-
viðskipti, verður hins vegar enn
harðari en áður eða eins og haft
var eftir einum grónum kaupahéðni
við opnun kauphaliarinnar í gær-
morgun: „Meiri viðskipti fyrir meiri
hagnað en með meiri áhættu blasa
nú við.“
Margs konar hömlum verður nú
aflétt af verðbréfaviðskiptum í
kauphöllinni, sem þýðir það m. a.,
að þessi viðskipti flytjast í stórum
mæli frá kauphöllinni sjálfri til ann-
arra fyrirtækja. Þar eiga þau að
fara fram á hundruðum tölvuv-
æddra sjónvarpsskerma, sem birta
á augabragði verðbreytingar á verð-
bréfum út um víða veröld, er
verðbréfasalar eða peningastofnanir
hagnýta sér síðan við kaup og sölu
á verðbréfum í gegnum síma.
Mikilvæg breyting felst ennfrem-
ur í því, að nú verður ekki um föst
umboðslaun að ræða fyrir þessa
þjónustu, eins og verið hefur heldur
er unnt að semja við verðbréfasala
um þóknun þeirra hveiju sinni.
Þetta er tal- ið, að eigi eftir að hafa
í för með sér lægri umboðslaun í
framtíð-inni, en til þessa hafa þau
verið föst eða 1,65% en verða vænt-
anlega um 1% í framtíðinni.
Þá er aðgreining felld niður milli
þeirra, sem starfa sem umboðsmenn
annarra við að kaupa og selja verð-
bréf (brokers) og hinna, sem selja
og kaupa fyrir eigin reikning
(stock-jobbers).
Ýmsar hrakspár hafa verið uppi
um, að hið nýja kerfí muni bresta
fljótlega sökum þess að verðbré-
fasalamir kunni ekki að meðhöndla
hina nýju tölvuvæddu upplýsinga-
starfsemi, sem verður f senn
umfangsmikil og víðtæk. Jafnframt
kunni tölvukerfíð sjálft að bila, þeg-
ar sízt skyldi og valda ótrúlegum
glundroða á sviði alþjóðaflármála.
Á það er bent, að einhver tími
hljóti að líða, unz hið nýja kerfi nær
fótfestu. Margir gamlir og reyndir
verðbréfasalar munu sjálfsagt eiga
í erfiðleikum með að tileinka sér hið
nýja kerfi strax og hafa því vafalí-
tið tilhneigingu til að skrá allar tölur
með penna eða blýanti í vasabókina
eins og þeir hafa gert til þessa.
í framtíðinni munu kauphallar-
viðskipti í miklu meira mæli ná til
alls heimsins en áður hefur verið.
Þessi viðskipti munu jafnframt eiga
sér stað jafnt að nóttu sem degi,
því að alltaf verður einhver hinna
stóru kauphaila opin, á meðan aðrar
eru lokaðar. Þegar það er nótt í
New York, þa er dagur í Tókíó og
kauphöllin þar starfandi af krafti.
Bretar vænta mikils af þessum
breytingum. Þeir vonast t. d. til að
ná til sín miklum viðskiptum frá
New York. Þetta stafar m. a. af
því, að London er á undan, hvað
tíma snertir. Því má gera ráð fyrir,
að mikil viðskipti kunni þegar að
hafa farið fram í London, áður en
Wall Street opnar.
Kauphöllin í London nær því jafn-
framt að opna, áður en lokað er í
Tókíó. Hún nær því saman á einum
degi viðskiptum við bæði Tókíó og
New York. Landfræðilega liggur
London því betur við viðskiptum
með verðbréf en bæði Tókíó og New
York. Benda má á hér til athugun-
ar, að Reykjavík hefur í þessu tilliti
svipaða sérstöðu og London.
Til þess að lýsa þessum viðskipt-
um og þeirri upplýsingatækni, sem
þar liggur að baki má taka tæmi:
Lífeyrisjóður í Rómaborg tekur ák-
vörðun um að festa fé í hlutabréfum
í Fiatverksmiðjunum. Á meðal
þeirra, sem haft er samband við
símleiðis, er verðbréfasali í London.
Hann gerir sér síðan lítið fyrir og
kallar upp á tölvuskermi sinn upp-
lýsingar um hlutabréf í Fíat, þar á
meðal verð og framboð á slíkum
hutabréfum þá stundina. Með þessu
símtali fer síðan fram sala á umtals-
verðu magni af hlutabréfum í
Fiatverksmiðjunum.
Samtímis því sem þetta gerist
eiga sér stað sams konar viðskipti
um um allan heim með önnur hluta-
bréf eða verðbréf. Verðbréfasali í
Wall Street fær upphringingu frá
aðila, sem vill kaupa eða selja hluta-
bréf í Sonyfyrirtækjunum í Japan.
Áður en stundarljórðungur er Iiðinn
eru viðskiptin afgreidd og miklir
fjármunir hafa skipt um hendur.
Enginn veit, hverjum datt það
fyrst í hug að kalla þessar breyting-
ar á kauphöllinni í London „Stóra
hvell". Þetta heiti er stundum notað
af vísindamönnum yfír upphaf al-
heimsins, þar sem allt á að hafa
gerzt skyndilega. Alheimurinn á að
hafa orðið til í geysimikilli spreng-
ingu og er enn að þenjast í sundur.
Að því leyti hittir þetta heiti í
mark. í brezkum kauphallarvið-
skiptum hefur hefðin og staðnað
fyrirkomulag ráðið allt of miklu til
þessa. Við breytingamar nú verða
slík þáttaskil, að aðstæðum verður
bezt líkt við algera byijun með af-
leiðingum, sem eiga eftir að snerta
allt og alla.
IJOSRITIINARVELAR
Þó að tækniframfarirá venjuiegum Ijósritunarvélum stefni í rétta átt
eralltafþörffyrirþærsem skara fram úr. Nýju SHARP
Ijósritunarvélarnareru framúrskarandi góðar.
Þærauka framleiðni skrifstofunnar með háþróaðri tæknisem
auðvelt er að stjórna. SHARP vélarnar tryggja þér óbrigðul Ijósrit
sem eru fullkomin eftirmynd frumrits. í Hljómbæ eru til 8 gerðir
Ijósritunarvéla á lager, verð frá kr.
81,000.- stgK
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
AP/SImamynd.
Jeremy Shearar, formaður sendinefndar Suður-Afríkustjóraar á Al-
þjáðaþingi Rauða krossins, heldur á loft spjaldi með nafni lands síns.
Myndin var tekin á laugardag eftir að meirihlutinn hafði bannað
honum að ávarpa þingið.
hjálp við óbreytta borgara.
Mósambík - Þrátt fyrir „margí-
trekaða beiðni" hefur stjómin ekki
viljað fallast á lágmarkskröfur
Rauða krossins um öryggi en þær
er „forsenda þess, að hann geti sinnt
starfí sínu“.
Eþíópfa - Þrátt fyrir stórkostlegt
hjálparstarf við eina milljón fómar-
lamba þurrkanna og átakanna í
landinu hafa Rauða krossmenn ekki
fengið að fylgjast með aðbúnaði
stríðsfanga.
Suður-Súdan - Þrátt fyrir miklar
samningaviðræður við uppreisnar-
menn hefur Rauða krossinum reynst
ókleift að koma hjálp til allra þeirra,
sem eiga um sárt að binda.