Morgunblaðið - 28.10.1986, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1986
41
Minning:
Margrét Sigtryggs-
dóttirfrá Siglufirði
Fædd 21. júní 1892
Dáin 20. október 1986
Margrét kvaddi heiminn með
sömu hógværðinni og ljúfleikanum
í garð allra eins og hún var vön
að umbera hið óhjákvæmilega. Líf
hennar fjaraði út sem hljóðlátur og
tær lindarlækur sem leitar til móð-
unnar miklu, sem flytur okkur öll
einhvemtíma til sælli heima.
Hún var á nítugasta og fimmta
aldursári þegar hún lést, fædd 21.
júní 1892 á Ljótsstöðum á Höfða-
strönd. Foreldrar hennar voru
Jakobína Friðriksdóttir og Sig-
tryggur Sigmundsson, sem bjuggu
um þetta leyti í sambýli við foreldra
föður hennar, en það voru hjónin
Margrét Þorláksdóttir, sem átti
ættir að rekja til Hörgárdals í Eyja-
firði (afí þessarar Margrétar var
Þorlákur dannebrogsmaður á
Skriðu í Hörgárdal), og Sigmundur
Pálsson, sem var héraðskunnur
gunnreifur hvatamaður að ýmsum
framfaramálum í sinni sveit, stofn-
andi Búnaðarfélags Hofshrepps,
oddviti og hreppstjóri sveitar sinnar
um tíma en kunnastur mun hann
hafa verið sem verslunarstjóri í
Hofsós og Kolkuósi.
Foreldrar Margrétar, Sigtryggur
og Jakobína, bjuggu lengst af í
Gröf á Höfðaströnd og orð fór af
því heimili fyrir gestrisni og aðra
hjálpsemi við granna sína, enda var
Sigtryggur þjóðhagi og mikið til
hans leitað um úrlausnir í þeim efn-
um. í huga Margrétar var bærinn
Gröf unaðsreitur bemsku hennar
og æskustöðvamar sveipaðar dýrð-
arljóma sem skiljanlegt er þeim,
sem kann að njóta stórfengleiks
náttúru og landslagsdýrðar Skaga-
íjarðar á þekkri stund.
Margrét var þriðja f röðinni af
systkinahópnum. Elstur var Friðrik,
sem seinna varð smiður á Siglu-
firði, þá Sigmundur, sem gerðist
fyrst bóndi á Höfðaströnd en síðar
verslunarmaður á Siglufirði og
yngstur var Benedikt, sem dó um
aldur fram, en hafði þá verið símrit-
ari um nokkurt skeið á Seyðisfirði.
Fleiri vanabundin og munaðar-
laus böm ólust upp í Gröf um lengri
eða skemmri tíma og báru vitni um
hlýtt hugarþel sem þau urðu þar
aðnjótandi.
Um tvítugsaldur fór Margrét
suður til Reykjavíkur til að afla sér
menntunar í hússtjómarfræðum og
þegar spánska veikin geisaði hér
veturinn 1918 þá lenti hún í að
sinna dauðvona sjúklingum sem
varð henni oft að frásagnarefni og
hún minntist með gleði ef vel tókst
til. Slík verkeftii vom líka í sam-
ræmi við manngerð og skaphöfn
hennar.
Áður en fjötrar efri aldursáranna
lögðust yfir var hún óvenjulega
kraftmikil, óvílsöm og viljasterk og
kom það fram í öllu dagfari.
Síðar lærði hún karlmannafata-
saum á Akureyri, sem síðar kom
að góðum notum til telquöflunar.
Arið 1923 giftist Margrét Stefáni
Guðmundssyni sem þá var sjómaður
á Hofsósi og settu þau þar saman
bú. Þar fæddist þeim Jakobína, nú
húsmóðir í Kópavogi og Sigtrygg-
ur, nú byggingarfulltrúi fyrir
Eyjaflarðarsvæði og kvongaður er
sænskri konu Maj Britt Stefánsson.
Árið 1925 flytja þau til Sigluljarðar
og reisa hús í samvinnu við Friðrik.
Þar fæddist þriðja systkinið,
Hjördís, nú húsmóðir í Hafnarfirði,
gift Finnboga F. Amdal. Síðar tóku
þau til uppeldis unga móðurlausa
stúlku, Guðlaugu Stefánsdóttur,
ættaða úr Héðinsfirði sem dvaldi
hjá þeim til fullorðins ára.
Stefán, maður Margrétar, sem
gerðist múrarameistari á Siglufirði,
lést um aldur fram 1947 en Mar-
grét og Friðrik héldu heimili saman
með hjálp bamanna þangað til þau
fluttu suður í skjól Jakobínu og
manns hennar, Andrésar Davfðs-
sonar, 1957. Friðrik lést árið 1971
á elliheimilinu Gmnd.
Margrét dvaldi á Hrafnistu frá
1976 en flutti nokkmm ámm seinna
á Hjúkmnarheimilið Sunnuhllð f
Kópavogi þar sem hún naut sérlegr-
ar umönnunar starfsfólksins og
vandamenn Margrétar þakka sér-
staklega.
Margrét var fögur kona og gædd
sérstökum persónutöfrum, sem áttu
rætur að rekja í eðlislægri góðvild
og manngæsku, sem allir er hún
umgekkst urðu aðnjótandi. Þess
vegna verður minning hennar öllum
vandamönnum dýrmæt og öðmm
sem kynntust henni gleðigjafi.
Blessuð sé minning hennar.
Andrés Davíðsson
„Annir“ Kvennalista
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Kvennalista:
María Jóhanna Lámsdóttir tók
sæti á Alþingi í gær í fjarveru
Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur.
María Jóhanna er sjöunda konan á
framboðslista Kvennalistans í
Reykjavík og fimmta varaþing-
konan. Vegna frétta í dagblöðum
þann 24. október vill Kvennalistinn
koma eftirfarandi á framfæri:
Kvennalistinn er ekki stjómmála-
flokkur heldur kvennahreyfing sem
hefur m.a. það markmið að auka
áhrif kvenna í þjóðfélaginu. Starf-
semi Kvennalistans er öðmvísi
byggð upp en starfsemi stjómmála-
flokka. Hver kona er virkur þátttak-
andi f hreyfingunni og skipta konur
ört um hlutverk. Það er alveg rétt
eins og fram kom í frétt Tímans
þann 24. október að konur hafa
mikið að gera og em Kvennalista-
konur sem og aðrar konur í fslensku
þjóðfélagi undir miklu vinnuálagi.
Þessar skiptingar henta því
Kvennalistanum betur þar sem
bæði vald og vinnuálag dreifist á
herðar fleirri kvenna. Sú kona sem
hefur aðstöðu og tíma í það og það
skiptið tekur að sér hin ýmsu verk-
efni. Þess vegna hefur María
Jóhanna nú tekið að sér þingstörf
um stundarsakir. Kvennalistinn vill
jafnframt benda á að hlutverka-
skipti kvennalistakvenna em ekki
fjármagnaðar úr ríkissjóði heldur
af kvennahreyfíngunni.
FRAM
Leiðbeinendur:
Krístján Gunnarsson,
verkfræðingur
Bjöm Viggósson,
markaös- og söluróö-
gjafi
Eiríkur Þorbjörnsson,
framkvæmdastjóri
TÖLVUSKÓLI
Tölvuvæðing fyrirtækja
Hefur þú hugleitt hvað það kostar fyrirtæki þitt að tölvuvæðast?
Veistu að það er ódýrast að hafa hlutina í lagi?
Námskeiðið Tölvuvæðing fyrirtækja er ætlað öllum þeim sem hugleiða tölvu-
kaup fyrir meðalstór og minni fyrirtæki.
Kynntur verður vél- og hugbúnaður fyrir einkatölvu en á því sviði hafa átt sér
stað byltingarkenndar framfarir.
Farið er vandlega yfir þau fjölmörgu atriði sem þarf að taka með í reikninginn
við tölvuvæðingu.
Efni: Hvaða hugbúnað þarf?
Kynntur verður samhæfði hugbúnaðurinn STÓLPI sem hentar flestum gerðum
fyrirtækja s.s. iðnaðarfyrirtækjum, verktökum, þjónustufyrirtækjum, prent-
smiðjum, bókaútgáfum, heildverslunum, verslunar-, fjölmiðla- og ráðgjafafyrir-
tækjum. Helstu þættir hans eru:
* Fjárhagsbókhald
* Lánardrottnabókhald
* Birgðakerfi
* Sölunótukerfi
*' Skuldunautabókhald
* Launakerfi
* Verkbókhald
* Tilboðskerfi
Kynntur verður annar hliðstæður búnaður, algeng ritvinnslukerfi, gagnasafn-
kerfi og töflureiknar.
Hvaða vélbúnað þarf?
Hér er gefið yfirlit yfir allar þær fjölmörgu tölvur semeru á boðstólum og er farið
í þau atriði sem máli skipta við val á vélbúnaði.
Hvað kostar tölvuvæðingin?
Farið er í alla helstu þætti stofnkostnaðar, rekstrarkostnaðar og byrjunarkostn-
aðar en mjög algengt er að slíkir hlutir gleymist þegar fyrirtæki tölvuvæðast.
* Með góðum undirbúningi og réttu vali á tækjum og búnaði geta fyrirtæki sparað
bæði fé og fyrirhöfn. Þetta námskeið er því peninganna virði auk þess sem þátttak-
endur öðlast rétt á ókeypis kaupendaráðgjöf Töhmskólans FRAMSÝN.
Staður: Tölvuskólinn FRAMSÝN, Siðumúla 26, simar 91-39566 og 91-687434
Timi: miðvikudag 29. október kl. 8.30—12.30
Núerbaraaðglímavið
eigin sköpunargáfu því
TOYOTA-SAUMAVÉLIN SÉR UM FRAMKVÆMDINA
TOYOTA 8900 er með 25 sporum sem gefa þér allar auðveldustu leiðirn-
ar til frábærs saumaskaps.
Þú snertir bara hnappinn og velur sporið sem þú vilt.
SOLUUMBOÐf
VIÐ ERUM EINU SPORI A UNDAN TIMANUM:
kVARAHLUTAUMBOÐIÐ
Bkotic
ÁRMÚLA 23 SÍMAR 685870-681733
KLAPPARSTÍG 31 SÍMI 14974