Morgunblaðið - 28.10.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1986
47
Eiton John og Renate,
kona hans við brúðkaup
Andrews Bretaprins og
Fergie.
Námskeið í almennri
skyndihjálp
| Reykjavíkurdeild RKÍ heldur námskeið í
almennri skyndihjálp. Það hefst miðviku-
daginn 29. október kl. 20.00 í kennslusal
RKI, Nóatúni 21. Námskeiðsgjald er kr.
1000. Leiðbeinandi er Guðlaugur Leós-
son. Öllum heimil þátttaka.
Skráning í síma 28222.
+---------------------------------
spymuliðsins Watford, sem hann á
meirihlutann í, mátti heyra áhorf-
endur syngja þúsundradda um kyn-
hneigð hans. „Ég hefði getað farið
mjög illa út úr þessu", segir Elton,
sem að öðru leyti neitar að ræða
þessi mál, jafnvel við Carol Thatc-
her (dóttur Margrétar), sem han
hefur samþykkt sem ævisöguritara
sinn.
Hjónaband var varla sú lausn á
vanda Eltons, sem flestir bjuggust
við. Og ekki verður heldur sagt að
Renata hafa verið hin augljósa
brúður. „Hún er mjög hlédræg
kona, algerlega jarðbundin", segir
Patti Nolder, fyrrum yfirmaður
hennar við A/R-hljóðverið, en Ren-
ata var áður upptökustjóri þar.
Elton er hins vegar hvorugt. Þegar
hann kemur til klæðskera síns ferð-
ast hann um í einum af Bentleyun-
um sínum. Ef hann er í rauða
bílnum er hann klæddur í stíl o.s.
frv. „Hann kemur hálftíma áður en
við eigum stefnumót, enda veitir
ekki af“, segir klæðskerinn, Tommy
Nutter, „því hann þarf að gefa eig-
inhandaráritanir og hvað ekki“.
Þegar hinn skartgjami píanóleik-
ari og söngvari, sem heitir Reginald
Dwight réttu nafni, kvæntist hinni
þýskbomu eiginkonu sinni fyrir
nákvæmlega tveimur ámm, sögðu
illar tungur að hann hefði kvænst
henni til þess að hreinsa af sér
slyðruorðið, en ekki vegna ástar.
Ekki bætti úr skák að hjónakomin,
sem höfðu unnið saman við upptök-
ur ás plötunni Too Low for Zero,
höfðu aldrei sést saman áður, enda
höfðu þau verið upptekin við vinnu.
En nú eru þau saman öllum stund-
um. „Það er ánægjulegt að koma
heim og deila sér og sínu með ein-
hveijum öðrum. Ég sé ekki eftir
því að hafa hætt piparsveinslífemi
mínu. Ég sé mig í anda gamlan og
sérvitran, Ha-ha, það væri sjón!“
Hvað Renötu varðar hefur hún
einnig breyst. Aður var hún alltaf
í gallabuxum og bolum. Nú sést
hún hins vegar ekki nema í dýrind-
is klæðum, eins og klippt úr
Dynasty.
Þannig geta nánar samvistir við
konungsfjölskylduna farið með
mann. Elton hefur lengi verið óopin-
ber hirðtónlistarmaður og vinskap-
ur hans við ýmsa meðlimi hennar
hefyur lengi verið á allra vitorði.
Árið 1976 var hann fylgdarmaður
Margrétar prinsessu á frumsýningu
kvikmyndar nokkurrar. Hann er
einnig góðvinur drottningarmóður-
innar, sem bauð honum til kvöld-
matar í fyrra og kom til John-
hjónanna í te skömmu síðar. „Hann
hefur dansað við drottningarmóður-
ina í Windsor hvað eftir annað“.
Nýjasti vinur hans í Qölskyldunni
er Andrés Bretaprins og hertogi af
Jórvík, sem hefúr fengið hann til
þess að leika á píanóið þar við
mörg tækifæri. Þess má geta að á
morgni brúðkaups þeirra, fékk
prinsinn BBC til þess að leika lög
eftir Elton John.
Ekki svo að skilja að Elton þyrfti
á auglýsingunni að halda. Nú hefur
Elton vermt sæti vinsældalistanna
í rúmlega 16 ár og sýnir engin
merki um þreytu.
Fítons-
kraftur
*
1
óperunni
Nú bráðlega verður söngleikur
þeirra Gilberts og Sullivans,
Míkadó, færður upp í Ensku þjóð-
aróperunni. Lítill vafi er á að
uppfærsla þessi á eftir að vekja
nokkra athygli fyrir ýmsar sakir.
T.a.m. mun Monty Python-maður-
inn Eric Idle koma fram í óperu í
fyrsta skipti og mun hann leika
hinn keisaralega yfírböðul Kó-Kó.
Jonathan Miller leikstjóri ( A Long
Day’s Joumey Into Night) hefur
einnig breytt stað og stund óper-
unnar, því að hún gerist ekki í Japan
síðustu aldar, heldur í Englandi á
fjórða áratugnum. „Ég held að
þetta verði svipað og Marx bræður
í Englandi", sagði Idle í samtaliu
við The London Standard.
Idle lendir öðruhveiju í aðdáend-
um á menntaskólaaldri, sem horfa
á endursýngar á Monty Pythons
Flying Gircus. „Þeir ganga upp að
mér og fara með heilt atriði, sem
getur orðið soldið þreytandi", segir
Idle. „Þá segi ég vanalega eitthveð
mjög ruddalegt, sem þeim finnst
einstaklega fyndið og hrynja niður
í hlátursflogum".
COSPER
Ég hef reynt að gefa honum bæði koníak og rússneskan
kaviar, en hann vill hvorugt.
249.000 kr. er lítið verð fyrir
AXEL, sterka og stóra smábílinn.
AXEL - ódýr, sterkur og stór.
WMGIobus?
LAGMULA 5
SÍMI 681555
Kahrs gæðaparket er
lakkað um U.V. lakki
sem tekur öðru lakki
fram. Lakkið hefur
matta og stama áferð.
Það er svo sterkt og frá-
bært í frammistöðu að
Kahrs ráðleggur ekki
frekari lökkun.
Kahrs
Líttu við, það
borgar sig.
Parket er okkar fag
SOára parketþjónusta
EGILLARNASONHF.
PARKETVAL
SKEIFUNNI 3, SÍMI 91-82111
Parketnýjung