Morgunblaðið - 26.11.1986, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
5
Síðustu umferðirnar
eru langmikilvægastar
- segir Jóhann Hjartarson stórmeistari
„VIÐ erum orðnir ansi þreyttir
og því mjög- fegnir að það skuli
vera frídagur framundan svo við
getum hvUt okkur fyrir síðustu
fjórar umferðirar, en þær eru að
sjálfsögðu langmikilvægastar,"
sagði Jóhann Hjartarson stór-
meistari og skáklandsliðsmaður í
samtali við Morgunblaðið í gær
en Jóhann keppir nú á Ólympíu-
mótinu í skák í Dubai ásamt
Helga Ólafssyni, Jóni L. Árna-
syni, Margeir Péturssyni,
Guðmundi Sigurjónssyni og Karli
Þorsteins. 10. umferð mótsins var
tefld í gær og í dag eiga skák-
mennirnir frí en alls eru tefldar
14 umferðir á mótinu.
FVammistaða íslenska liðsins á
Ólympíumótinu hefur vakið at-
hygji og sérstaka eftirtekt vakti
að íslendingar skyldu ná jafntefli
við Sovétmenn í 7. umferð móts-
ins. Jóhann tefldi við Anatoly
Karpov fyrrverandi heimsmeist-
ara, og náði jafntefli eftir langa
skák. „Ég hef aldrei teflt við hann
áður,“ sagði Jóhann um skákina.
„Þetta var nú hálfvitlaus skák.
Ég fékk lakara tafl eftir byijunina
og mjög vandasama stöðu í mið-
taflinu. Síðan fékk ég smá
tækifæri á að sprikla og þegar
skákin fór í bið var hún líklega
jafntefli. Égfann síðan ekki sterk-
ustu leikina í framhaldinu en
Karpov lék af sér á móti og skák-
in endaði með jafntefli."
Margeir Pétursson þurfti einnig
að tefla framlengda skák til að
innbyrða vinning gegn Sovét-
meistaranum Tceckovski. Jóhann
og Margeir voru síðan ekki fyrr
staðnir upp frá biðskákunum en
þeir settust á móti Englendingum
og gegn þeim tapaði Island á öll-
um borðunum fjórum. Var upp-
stillingin gegn Englendingum
mistök?
„Það er ekki auðvelt að finna
skýringar á þessu tapi,“ sagði
Jóhann. „Það var að vísu komin
þreyta í liðið og það má segja að
það hafi verið rangt að stilla okk-
ur upp sem vorum að beijast í
biðskákunum. En við Margeir
vorum svo hressir og ánægðir að
okkur fannst við vera meira en
tilbúnir að tefla áfram. Þegar fór
að líða á tók úthaldsleysið að segja
til sín. Og síðan vill oft fara svo
í sveitakeppni að þegar einum fer
að ganga illa byija hinir að spenna
sig til að bjarga málunum. Þetta
verður þá einskonar keðjuverk-
un.“
Fyrir mótið spáðu flestir Sovét-
mönnum auðveldum sigri. Þeim
hefur hinsvegar ekki gengið sem
best það sem af er og Jóhann var
spurður hveiju hann teldi þetta
sæta. „Það verður að líta á það
að allir í rússnesku sveitinni eru
að koma úr erfíðum einvígum.
Karpov og Kasparov eru að
standa upp frá heimsmeistaraein-
víginu, og Sokolov og Yusupov
eru nýbúnir að tefla saman erfitt
einvígi. Það er því von að þeir séu
hálf vatnslausir. Ef ég á að spá
einhveijum sigri nú væri það Eng-
lendingum." sagði Jóhann.
Jóhann sagði að skákmönnun-
um liði mjög vel og andinn í liðinu
væri góður þrátt fyrir tímabund-
inn mótbyr. Jóhann sagði að
heilsufar þeirra hefði einnig verið
gott enda væru aðstæður í Dubai
eins og best verður á kosið
Englendingar
kæra Spánverja
Skák
Bragi Kristjónsson
íslendingar tefldu við sterka sveit
Kúbumanna í 10. umferð Ólympíu-
skákmótsins í Dubai í gær. Jafntefli'
varð á 2.-4. borði en á efsta borði
á Helgi mjög vænlega biðstöðu.
Englendingar, sem voru lang-
efstir fyrir umferðina, töpuðu mjög
óvænt fyrir Spánveijum, V2—3V2.
Englendingar tóku tapinu afar illa
og kærðu Spánveija fyrir að hafa
rangt við. I sjónvarpsviðtali eftir
umferðina sagði Miles, að andstæð-
ingur Nunn hafi farið til fyrirliða
síns til að bera undir hann jafnteflis-
boð Englendingsins. Fyrirliði og
þjálfari Spánveija er sovéski stór-
meistarinn Georgadze, og á hann
að sögn Miles að hafa rakið vinn-
ingsleiðir fyrir Spánveijann. Miles
kvað ungverskan skákmann hafa
orðið vitni að þessu. Kærunefnd
mótsins hefur ekki enn tekið kæru
Englendinga fyrir. í gærmorgun
tefldi Jóhann biðskákina við Sznap-
ik áfram og fór skákin aftur í bið
í eftirfarandi stöðu:
Sznapik — Jóhann, svartur lék
biðleik.
í sland — Kúba 1 '/2— 1V2
Helgi — Nogueiras biðskák
Jón L. — Am. Rodriguez V2—V2
Margeir — S. Garcia V2-V2
Guðmundur — Vera V2—V2
Kúbumenn eiga sterka sveit með
fjóra stórmeistara, Jesus Nogueiras
komst í áskorendamót á síðasta ári
og Amador Rodriguez tefldi við
Margeir á millisvæðamótinu í Biel.
Helgi tefldi í fyrsta skipti Griin-
felds-vöm og virtist kunna vel við
sig i þeirri tvieggjuðu byijun. Kúbu-
maðurinn tefldi frumlega, en lenti
við það í verra endatafli. Þegar
skákin fór í bið virtist Helgi eiga
mjög góðar vinningshorfur.
Nogueiras — Helgi sv. lék bið-
leik.
Skákir Jóns L. og Margeirs voru
allan tímann í jafnvægi, en skák
Guðmundar var mjög fjömg. Kúbu-
maðurinn fómaði skiptamun í
flókinni stöðu úr Sikileyjarvöm og
fékk í staðinn næg færi til að ná
jafntefli.
Önnur úrslist í 10. umferð: Júgó-
slavía — Frakkland 3—1; Sovétríkin
— Rúmenía 2—1; Kasparov — Suba:
jafnteflisleg biðskák; Ungveijaland
— V-Þýskaland 3—1; Argentína —
Bandaríkin U/2—2V2; Búlgaría —
Chile 1—1, 2 í bið; Kína — Indó-
nesía 2V2— U/2; Ástralía — Tékkó-
slóvakía IV2—2V2.
Staða efstu þjóða eftir 10 um-
ferðir: 1. Bandaríkin 27V2 v.; 2.—
3. England og Spánn 27 v.: 4.-5.
Sovétríkin og Ungveijaland 26V2
v. og 1 biðskák. Islendingar hafa
22V2 v. og 2 biðskákir.
Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu að bæta
J3
«0
(0
(0
XI
(0
*
a>
>
I
n
'55
>
-Q
«0
(0
3
t
LU
LÆKKAÐ VERÐ
Afsl.
Málning .......... 15°/o
Penslar, bakkar,
rúllusett .......... 20%
Veggfóðurog veggdúkur. 40%
Veggkorkur ......... 40%
Veggdúkur somvyl ... 50%
LÆKKAÐ VERÐ
til hagræðis fyrir þá sem eru að
BYGGJA - BREYTA EÐA BÆTA
Líttu við í LITAVERI því það hefur
ávallt borgað sig.
m
3
c
0)
o»
a
(Q
(Q
w‘
C
CT-
<3
%
0)
TT
0>
c
Q>
o»
(T
Ertu að byggja — Viitu breyta — Þarftu að bæta
Verslunin t-11M* Borgartúni 20
Athyglin
beinist að
Gæði
Fegurð
Góð þjónusta
þjóðfræði
im. 4$ KMbÆA
f r«i
m:nr
J.,; .y <
! «*«•** M" >
Ævisögur orða
eftir Halldór
Halldórsson.
Nýtt rit í bókaflokknum
íslensk þjóðfræði. Fyrir
alla sem áhuga hafa á
íslenskri tungu.