Morgunblaðið - 26.11.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
19
Það sem foreldrar eru
erfiðir unglingunum
Þau eru öll góð inn við beinið: persónur f Breakfast Club.
Leiklist
Jóhanna Kristjónsdóttir
Leikfélagið Allt milli himins
og jarðar sýnir í Verzlunar-
skólanum:Breakfast Club
Leiðbeinendur: Anna Melsteð
og Þorsteinn Bachmann
Ljós: Gunnar Sigurðsson
Svið: Ellý Ármannsdóttir,
Guðný R. Sigurbjörnsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir, Þyrý
Kristjánsdóttir, Ingibjörg O.
Vilhjálmsdóttir og Guðmund-
ur Guðnason
Hljóð: Birgir Birgisson
MER skilst, að leiðbeinendur
Verzlunarskólaleikaranna, þau
Anna Melsteð og Þorsteinn
Bachmann, hafi haft þann hátt-
inn á við þessa sýningu, að þau
hafí tekið kvikmynd með þessu
nafni og margir munu þeklga,
þýtt, breytt og staðfært. Og far-
ið síðan með efnið upp á sviðið.
Leikritið ljallar um unglinga,
sem eiga við vandamál að stríða.
Annað hvort væri nú. Þau verða
að mæta í skólann og sitja eftir
upp á gamla móðinn undir
skringilega slöku og tilviljana-
kenndu vonds kennara, sem
heitir Vilhjálmur. Hann situr
sem sagt löngum inni á skrif-
stofunni sinni og drekkur kaffí,
meðan unglingamir eiga í sál-
arstríði og stríði sín á milli inni
í kennslustofunni. Þar er töffgæ-
inn Eiríkur, sem er versta fól,
hrekkir og hrellir og er nánast
óþolandi kjaftaskur. Drengurinn
Gísli, sem er flóknari en hann
sýnist í fyrstu. Smástaulinn
Helgi Bjöm, sem er barnalegur
og fjarska vænn. Svo eru þama
tváer stúlkur, önnur ber flækj-
umar utan á sér, hin vill helzt
hafa þær inni í sér. Þessi hópur
fer að tala saman, svona þegar
mesta hrinan er um garð geng-
in. Það kemur í ljós, að þau eiga
eiginlega öll við sama vandamál
að stríða: foreldrarnir þeirra eru
meira og minna hryllilegir og
gera þeim lífíð leiðara en orð fá
lýst. Það er sök foreldranna en
ekki þeirra, hvað þau em öll
meira eða minna að fíjósa í sál-
inni.
Efnið er ekki ýkja fmmlegt
og efnistökin ekki heldur. En
það leynist ýmiss sannleikur í
öllu orðakafaldinu og leikur
Verzlunarskólanema var
frísklegur og einlægur. Athygl-
isverð typa fannst mér vera
Ingibjörg Ósk Birgisdóttir og
Eiríkur Smári Sigurðsson fór
hressilega og hiklaust með hlut-
verk töffarans, sem reynist
auðvitað bezti drengur - eins og
þau náttúrlega öll. Taktar Eiríks
urðu dálítið leiðigjamir til lengd-
ar, það verður að skrifast^ á
leiðbeinendur. Helgi Björn Ól-
afsson var sannfærandi sakleys-
ingi og raunar var þetta
ágætlega gert hjá krökkunum,
svona þegar á heildina er litið.
Leiðbeinendur hefðu átt að
stytta dansatriðið í seinni hluta
og víðar hefði mátt sníða betur
og skera af. Annars tókst stað-
færslan oft harla vel.
Þótt þessi sýning sé sjálfsagt
aðallega hugsuð fyrir nemendur
skólans, aðstandendur og vini,
er alveg óþarfa hroðvirkni að
ganga út frá því sem gefnu, að
allir hafi séð kvikmyndina. Því
hefði átt að gera skil í leikskrá,
hvernig að var unnið.Það hefði
verið til bóta að íslenzka nafnið.
Kahrs
Parket
í sérflokki
Það sérð þú
þegar þú skoðar
KÁHRS-parketið
hjá okkur.
Náttúrulegt gólf-
efni, fallegt, hlýlegt
ogvirðulegt.
Kahrs
Líttu við og skoðaðu meistara-
verkið. Það borgar sig.
Egill Árnason hf.
Parketval
Skeifunni 3, sírrii 91 -82111
MIKIÐ ÚRVAL AUKAHLUTA
Sætaáklæði 9.980 kr.
Gólfmottur frá 2.485 kr.
Strípur
(Corolla, Tercel) frá 3.200 kr.
Hreinsiefnabakki 893 kr.
Mælaborðsbakki
(Hiace) 450 kr.
TOYOTA
VARAHLJUTIR
NÝBÝLAVEGI8 200 KÓPAVOGUR SÍMI: 91-44144
Með elnu símtali er hægt að breyta inn-
heimtuaðferðinni. Eftir það verða áskriftar-
gjöldin skuldfærð á viðkomandi greiðslu-
ortareiknmg manaðarlega
togunMafeifr
SÍMINN ER
691140
691141