Morgunblaðið - 26.11.1986, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
Kynningarfundur:
Hvernig starfar Rauði krossinn?
Rauði krossinn starfar í 144 löndum heims. Innan vé-
banda Rauða krossins eru um 250 milljónir manna.
Rauði kross íslands var stofnaður 1924 og eru félags-
menn nú um 20.000 í 48 deildum um allt land.
Á verkefnaskrá félagsins er m.a. þetta:
Sjúkraflutningar
Skyndihjálp
Hjálpartækjabanki
Múlabær
Blóðsöfnun
Öldrunarmál
Starfsþjálfun fatlaðra
Neyðarvarnir
Sjúkrahótel
RKÍ-hús fyrir æskufólk
Hlíðabær
Unglingamál
Sjálfboðastörf
Alþjóðamál
Kynningarfundur verður haldinn í fundarsal félagsins
að Nóatúni 21 miðvikudaginn 26. þ.m. kl. 20.15—22.
30 og er dagskráin þessi:
Ávarp formanns RKÍ Guðjóns Magnússonar.
Almennt um starfið — Jón Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri RKÍ og fleiri. Kvikmynd og kaffi. Umræður.
Nýir félagar fá barmmerki félagsins og RKÍ-fréttir
o.fl. Árgjaldið er 400 krónur. Vinsamlega tillkynnið
um þátttöku í sima 26722 (Anna).
Verið velkomin.
Kór Víðistaðasóknar. ^
GLEÐIRIKJA SKAL
Hljómplötur
Egill Friðleifsson
Kór Víðistaðasóknar í Hafnar-
fírði gaf út hljómplötu nú í haust
er ber titilinn „Gleði ríkja skal“.
Þar er að fínna 22 lög af ýmsum
toga. Kór Víðistaðasóknar var
stofnaður árið 1977 og hefur
starfað af þrótti þennan tæpa
áratug. Kórinn hefur farið í söng-
ferðir bæði innan lands og utan,
efnt til söngkvölda í Hafnarfirði
og verið menningarauki í bæjarlíf-
inu. Kristín Jóhannesdóttir
organisti hefur stjómað kómum
frá upphafí og unnið þar gott
starf. Árið 1984 stofnaði hún
einnig bamakór og hefur það
aukið á fjölbreytnina. Við mótuna
kórsins virðist mér Kristín leggja
fyrst og fremst áherslu á nettan
og áferðarfallegan söng. Hún tek-
ur ekki áhættu hvað varðar
hraðaval eða styrkleikabreyting-
ar, ætlar sér ekki um of en heldur
utan um hin músíkölsku atriði af
varfærinni alúð, enda kórinn ekki
fjölmennur, sem sníður allri túlk-
un nokkuð þröngan stakk.
Sem fyrr segir em 22 lög á
plötunni. Á hlið I eru 11 veraldleg
lög úr ýmsum áttum. Þar er að
fínna lítil og létt lög eins og „Litla
Stína“ flutt af áreynslulausri
glaðværð, en einnig fágætar perl-
ur eins og hið undurfagra lag
Sibeliusar „Því er hljóðnuð þýða
raustin", sem er mjög viðkvæmt
í flutningi, og verður að segjast
að kórinn kemst allvel frá þeirri
raun. Sömuleiðis er norska lagið
„Brúðkaupskvæði" í snjallri radd-
færslu Thomas Becks ágætlega
flutt.
Á hlið II em 11 jólalög og
mörg þeirra við texta Ingólfs
Jónssonar frá Prestbakka. Þar
kemur bamakórinn einnig við
sögu og bregða tærar raddir bam-
anna björtum blæ á flutninginn.
Halldór Víkingsson sá um upp-
töku sem fram fór í Öldutúnsskóla
og hefðu kunnugir ekki talið að
það væri sérlega hentugur staður
til slíkra athafna. En máttur
tækninnar er mikill. Með þessum
stafrænu (digital) tilfæringum er
engu líkara en við séum stödd í
Skálholtskirkju en ekki í litla saln-
um í Öldutúnsskóla. Þessi hljóm-
plata er Kór Víðistaðakirkju til
sóma. Sterkasta hlið kórsins er
e.t.v. fyrst og fremst sönggleðin
og því er titill plötunnar rétt-
nefni, „Gleði ríkja skal“.
EIN MEST SELDA HEIMIUS-
TÖIWJ Á MARKAÐNUMI
Það er engin tilviljun að AMSTRAD er ein vinsaelasta tölvan í heiminum í dag. Síöastliðin tvö ár
hafa yflr 1 milljón AMSTRAD tölvur verið seldar. Með hverjum degi sem líöur fá tölvukaupendur
meira og meira fyrir peningana sína. í þeirri þróun er AMSTRAD tvímælalaust í fremstu röð.
AMSTRAD CPC 6128 og CPC 464 sameina frábæra hönnun, afl og hraða, einstaklega góða liti í
skjá, gott hjjóð og geysispennandi notkunarmöguleika. - Tvær afburðatölvur sem færa þig nær
framtíðinni.
CPC 6128
• TÖLVA • DISKSTÖÐ • UTASKJÁR
128 K RAM örtölva Z80A 4MHz meö innbyggðu Basic.
hátalara og tengjum fyrir prentara. segulband og aukadiskstöð.
640x200 teiknipunktar á skjá. 27 litir.
20, 40 eöa 80 stafir í Ifnu, (slenskir stafir.
CP/M PLUS stýrikerfi og DR.LOGO forritunarmál
Verð aðeins
35.980,— kr. stgr.
CPC 464
• TÖLVA • SEGULBAIMD • UTASKJÁR
64 K RAM örtölva Z80A MHz með innbyggðu Basic, hátalara
og tengjum fyrir prentara og diskstöö.
640x200 teiknipunktar á skjá, 27 lítir.
20, 40 eöa 80 stafir í línu, íslenskir stafir.
Verð aðeins
26.980,- kr. stgr.
ÞUSUIMDIR FORRITA!
Urval af forritum, bókum og tímaritum fyrir AMSTRAD.
Aukahlutir: Diskdrif - stýripinnar - teiknipenni - stereohátalarar - mús o.fl. o.fl.
_25%
utborqun
eftirstöðvar allt "eið 6 mán.!
Bókabúö
Brara
TÖLVUDEILD 49
v/Hlemm, sfmar 29311 & 621122.
Umboðsmenn útl á landl: Akranes: Bókaskemman, Akureyrl: Bókabúðin Edda, Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga, DJúplvogur: Verslunin
Djúpiö. Grlndavík: Bókabúö Grindavfkur, Hafnarfjörður: Kaupfélag Hafnfiröinga, Húsavfk: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar, ísafjörður:
Hljómborg, Keflavík: Bókabúö Keflavíkur, Vestmannaeyjar: Vídeóleiga G.S.
öll verð miöuö vlö gengi I. okt 1986 og staögreiöslu
TÖLVULAND HF., SÍMI 17850
Litlir karlar og stórir
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Tónabió: Maðurinn frá Majorka
— Mannen frán Mallorca
☆ ☆ >/z
Leikstjóri Bo Widerberg. Hand-
rit Widerberg eftir skáldsögu
Lef G.W. Persson. Kvikmynda-
taka Thomas Wahlberg, Gunnar
Nilsson, Hans Welin. Aðalhlut-
verk Sven Wollter, Thomas von
Brömssen, Hákan Sernar, Ernst
Gunther, Thomas Hellberg
Svensk Filmindustri, SVT2,
Svíþjóð 1984.
Einn af eftirminnilegri lögreglu-
þrillerum síðari ára er Maðurinn á
þakinu, sem Bo Widerberg gerði
1976 og var sýnd við góðar undir-
tektir í Austurbæjarbíói, ef ég man
rétt. Það var því með talsverðri
eftirvæntingu sem ég leit einskonar
framhald hennar Mauninn frá
Majorka, (’84). Nú hefur Wider-
berg ekki kraftmikla sögu frá hendi
Sjövalls og Wahlöö sér til stuðn-
ings, MfM er byggð á skáldsögu
eftir Leif G.W. Persson. Efnið er
engu síður athyglisvert, vanmáttug
viðbrögð gegn spillingu á efstu
stöðum, en gefur ekki tilefni til jafn
mikillar spennu né átaka og prýddi
fyrri myndina.
Þeir Wollter og von Brömssen
eru leynilögreglumenn sem falið er
að rannsaka póstrán í Stokkhólmi.
Þeir félagar hafa úr litlu að moða
og gengur hægt að komast á sporið.
Þegar á líður tekur rannsóknin
á þessu venjulega máli, nýja, hættu-
lega stefnu — beint inná borð hjá
dómsmálaráðherra. Þar er málið
kæft með pólitískri valdbeitingu og
vonsvikin snúa peð kerfísins sér að
næsta máli.
Widerberg er fylginn sér og ein-
staklega vandvirkur leikstjóri sem
á álíka auðvelt með að kryfja
mannsorann niður í lq'ölinn í harð-
soðnum lögreglumyndum og blessa
æskuljómann og fegurðina í jafn
fallegum og fáguðum ástarhugvekj-
um og Elviru Madigan. M.f.M.
hefur margt það til að bera sem
prýðir einlæga mynd um vanþakk-
látt starf Jögreglumanna sem levfí-
Sven Woilter þjarmar að einum
stórborgarsílinum i hinum þétta
lögregluþriller Widerbergs,
Manninum frá Majorka.
legt er að siga útí allan andskotann
en verða jafnframt að hlíta því að
draga sig í hlé ef sömu yfirboðarar
kippa í spottann.
Þeir von Brömssen en þó mun
frekar Wollter, skapa trúverðugar,
lífsþreyttar persónur. Skyldu stór-
þorgarlöggur um heim allan hafa
það svona dæmalaust skítt (ef þeir
eru heiðarlegir), lifa á sorpfæði í
pulsusjoppum og hamborgarabúll-
um, vinafáir utan félagans í bílnum,
oftast heimilis- og kvenmannslaus-
ir, því yfírleitt er búið að stinga
undan þeim í skáldskapnum? Hún
er allavega ekki glæsileg myndin
sem Wambaugh, Moore, (The
French Connection), Sjövall og
Wahlöö og fleiri góðir pennar hafa
dregið upp af þessum púlsmönnum
réttlætisins.
Það var til of mikils ætlast að
vona að Widerberg væri kominn
með jafn stórgóða mynd og Mann-
inn á þakinu, en þó Maðurinn frá
Majorka standi henni nokkuð að
baki — einkum efnislega — er hér
á ferðinni geysivandaður lögreglu-
þriller í vel vænu meðallagi, hafandi
innanborðs hárfínan leik Sven
Wollters og listamannshandbragð
leikstjórans.