Morgunblaðið - 26.11.1986, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
43
Stöð 2 ásakar RUV um falsanir
-Leggjum áherslu á að ríkisútvarpið nær til
allra landsmanna, segir Markús Orn Antonsson
SJÓNVARPSSTJÓRI Stöðvar 2,
Jón Óttar Ragnarsson, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að i
raun væri það fölsun hjá ríkisút-
varpinu, þegar það í auglýsing-
um i dagblöðunum sýndi linurit,
þar sem borin er saman hlustun
i landinu öilu, þótt Stöð 2 nái
aðeins tij höfuðborgarsvæðisins.
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri sagði i samtali við Morgun-
blaðið, að ríkisútvarpið vildi
leggja áherzlu á að það næði til
allra landsmanna og að auglýs-
endur gætu útbúið auglýsingar
sinar með tOliti til þerss.
„Að mínu áliti höfum við verið
mjög sanngjamir í samkeppni okk-
ar við RUV, en þetta er í fjórða
skiptið sem RUV reynir að klekkja
á okkur," sagði Jón Óttar. “Fyrst
reyndi RUV að útiloka Stöð 2 frá
leiðtogafundinum, í öðru lagi reyndi
RUV að koma í veg fyrir samninga
Stöðvar 2 við World Television
News, þaðan sem allar erlendar
fréttamyndir koma. í þriðja lagi
hefur Utvarpsráð fært fréttatíma
sjónvarpsins fram og aftur eftir því
sem Stöð 2 hefur ákveðið hveiju
sinni og í ijórða lagi nú viðvíkjandi
könnun Félagsvísindastofnunar.
Grundvallarregla í slíkum könnun-
um er að samanburðarsvæðin séu
hin sömu og fínnst mér spuming
um hvort þessar auglýsingar RUV
séu ekki brot á reglum um eðlilega
viðskiptahætti," sagði Jón Óttar.
Markús Öm Antonsson, útvarps-
stjóri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að Ríkisútvarpið hefði lagt á
það áherslu í auglýsingum sínum,
sem beint er til auglýsenda, að dag-
skrá RUV nái um allt land. „Aug-
lýsendur em auðvitað að útbúa
sínar auglýsingar með tilliti til þess
að ná sem víðast um landið. Við
miðum við landið allt vegna þess
að við erum að höfða til auglýsenda
í þessum auglýsingum okkar í dag-
blöðunum."
Markús bætti því við að þegar
könnunin var birt, hefði Jón Óttar
sent frá sér fréttabréf þar sem hann
sagði að niðurstöður könnunarinnar
væm orðnar úreltar, þá átta daga
gamlar. • „Hann sagði jafnframt í
fréttabréfínu að eigin kannanir
Stöðvar 2 sýndu að nýja sjónvarps-
stöðin væri að ná undirtökum á
Ný verslun,
Gulleyjan
HINN 1. nóvember sl. hóf ný
verslun, Gulleyjan, starfsemi i
Ingólfsstræti 2, við horn Banka-
strætis í fyrrverandi húsnæði
Pennaviðgerða.
Gulleyjan mun bjóða upp á úrval
af tískuskrauti, tískuúmm, skart-
gripum, snyrtivömm, m.a. frá
Crabtree og Evelyn, kvenleðurtösk-
um, leðurbeltum og gjafavömm
fyrir dömur og herra.
Eigandi hinnar nýju verslunar er
Sveinn Aðalsteinsson viðskipta-
fræðingur og verslunarstjóri Níelsa
Magnúsdóttir.
Níelsa Magnúsdóttir og Sveinn Aðalsteinsson í nýju versluninni sem
ber nafnið Gulleyjan.
sjónvarpsmarkaðnum. Þá leyfir
maður sér að spyrja hvað séu fals-
anir og hvað ekki.“
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi fréttatilkjmning frá Fé-
lagsvfsindastofnun: „Að gefnu
tilefni vill Félagsvísindastofnun
upplýsa að allar útvarps- og sjón-
varpsstöðvar landsins og Samband
íslenskra auglýsingastofa em aðilar
að fjölmiðlakönnunum stofnunar-
innar. Félagsvísindastofnun mælir
hlustun á útvarp og notkun sjón-
varps um land allt meðal íbúa á
aldrinum 15 til 70 ára, samkvæmt
samkomulagi við ofangreinda aðila.
Til að mæla notkun unglinga og
bama undir 15 ára aldri og fólks
yfír 70 ára aldri er, af aðferðafræði-
legum ástæðum, æskilegast að gera
sérkannanir, og er nú unnið að
undirbúningi slíkra kannana á veg-
um stofnunarinnar.
í skýrslum stofnunarinnar em
niðurstöður fjölmiðlakannana sett-
ar fram á tvo vegu. Annars vegar
fyrir landið allt og hins vegar fyrir
samkeppnissvæðin (þar sem báðar
sjónvarpsstöðvar sjást eða þar sem
allar útvarpsstöðvar heyrast). Ef
menn vilja vita til hve margra not-
enda hver stöð nær er eðlilegt að
gera samanburð fyrir landið allt,
en ef menn vilja meta hljómgmnn
einstakra stöðva meðal almennings
er eðlilegt að gera samanburð með-
al þeirra sem ná öllum þeim stöðv-
um sem bera á saman.
Félagsvísindastofnun getur ekki
blandað sér í ágreining um túlkun
niðurstaðna fjölmiðlakannana. Ef
niðurstöður væm falsaðar eða rang-
lega farið með tölur úr könnunum
þessum gilti öðm máli. Til slíks
hefur þó ekki komið svo stofnunni
sé kunnugt."
„Villti
baróninn“
- ný skáldsaga eftir
Victoriu Holt
KOMIN er út skáldsagan „Villti
baróninn" eftir Victoria Holt.
Þetta er 19. bók höfundar, sem
Bókaútgáfan Hildur gefur út.
Sagan segir frá ungri, enskri
stúlku, sem er síðasta afsprengi
frægrar ættar listmálara, sem aðal-
lega hafa málað smámyndir, „miniat-
ures“. Sagan gerist á tímum frönsku
stjómarbyltingarinnar og á þeim
tíma var ekki til siðs, að konur stund-
uðu slík störf.
Faðir hennar er kvaddur til Frakk-
lands, til að mála slíkar myndir fyrir
voldugan barón. Hann er farinn að
missa sjónina, svo að Kata fer með
honum og það er hún sem málar
myndimar. Baróninn styður hana og
hjálpar henni til að koma undir sig
fótunum á listasviðinu.
En jafnframt mætir hún örlögum
sínum í Frakklandi.
Bókin er 217 blaðsíður að stærð.
BETRA BRAGÐ OG MEIRI NÆRING.
Matseld dagsins þarf ekki alltaf aö taka hálftima,
klukkutíma eða jafnvel lengur.
Moulinexörbylgjuofninn styttir þann tima i örfáar minútur.
Moulinex fer einnig vel með gott hráefni.
Raunverulegt bragð matarins heldur sér óskert,
næringarefnin hverfa ekki í soð eða feiti og vökvatap er
hverfandi litið.
Notkun Moulinex örbylgjuofnanna er auðveld og
elnföid - allt að því barnaleikur.
Njóttu góðrar máltíðar með Moullnex.
Upphaf góðrar máltíðar
Fæst í næstu raftækjaverslun
W P&Ö/SlA