Morgunblaðið - 26.11.1986, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
þu bara 5&lor hann J sarnband einu
5inni ímánuðl."
Mamma bjó líka til svona
bollur og við kölluðum
þær handsprengjur!
Með
morgrinkaffínu
Tóm sardinudós þarf
ekki að vera vísbending
um að við séum nærri
ströndinni?
HÖGNI HREKKVISI
„GÖMLU ASTARBREFIM OKKAR E’KU
'A FLUGI OM ALLT HVERFIÐ.' "
Þar er Kain á ferð
Þ.G. skrifar:
Mikil upplyfting er nú í Alþýðu-
flokknum er þeir heimta aftur þann
hóp manna sem strauk úr flokki
þeirra fyrir nokkrum árum og hafa
nú þegar dregið í dilka. Bandalagið
hugðist gera stóra hluti en veslaðist
upp.
Líklega vantaði þá fijókorn
rauðu rósarinnar sem Alþýðu-
flokksmenn trúa á. Roðinn frá
austri hafði fölnað því rósimar voru
bleikar við móttökuathöfnina. Á
þessu ævintýri sést vel hvað til-
gangslítið það er að hlaupa úr einu
í annað og stofnsetja smáflokka
sem enga framtíð eiga fyrir sér, en
Alþýðuflokkurin heimti sitt fé aftur
og hann vill meira. Slagorð Al-
þýðuflokksins er „Við eigum
landið". Þeir beijast nú fyrri því
að þjóðnýta landið. Ríkið skal eiga
lendur allar og bændur greiða af-
notatoll til þess. Þó Alþýðuflokkur-
inn og fleiri telji fijálshyggjumenn
ágjama, þá hef ég aldrei heyrt frá
þeim að þeir telji sig eiga landið
umfram það að vera Islendingar.
Alþýðuflokkurinn telur sig með
rétti geta tekið eignamámi hvað
sem honum sýnist og telur sig hafa
not af til skattheimtu. í mínum
augum er þetta yfirgangur af gróf-
ara taginu og þessi hugsunarháttur
veldur því, að eignir eru af mörgum
taldar illa fengnar og er sú hug-
mynd sprottin af öfund, þar er
Kain á ferð. Hópur bama og ungl-
inga telur það ekkert mál að
skemma og eyðileggja annarra
eignir. Þvílíkt innræti er hættulegt
heiðri og velsæmi hverrar persónu
að ala með sér, alþýðuflokkamir
eiga dijúgan þátt í innrætingu þetta
varðandi.
Þó langt bil sé á milli minna
hugmynda um stjómmál og Al-
þýðuflokksins, þá vil ég samt óska
honum þess, að honum takist að
reyta fylgi af Alþýðubandalaginu,
svo það verði minnsti flokkur lands-
ins.
Alþýðuflokkurinn þykist hafa
gripið feita gæs þar sem Bandalag
jafnaðarmanna er.
Sannleikurinn er bara sá að
Bandalagið skreið undir væng Jóns
Baldvins Hannibalssonar í bæjar-
og sveitarstjómarkosningum nýver-
ið og hef ég mikla tilhneigingu til
að álíta, að uppgangur Alþýðu-
flokksins er ekki sá sem af er
státað. Alþýðuflokkamir em miklir
félagshyggjuflokkar, en þeir hafa
ekki gætt þess að félagshyggjan
getur skaðað bæði land og þjóð ef
hún er ofnotuð og misnotuð eins
og auðvelt er að heyra og sjá.
Þjónustustörf hér á landi em
komin langt yfír hættumörk og
freklega misnotuð á svo mörgum
sviðum, svo tími er til kominn að
staldra við og gaumgæfa það svið
og skipuleggja upp á nýtt. Ekki
kann það góðri lukku að stýra þeg-
ar þjónusta fer langt fram yfír
verðmætasköpun hvað kostnað
varðar.
Eða hvemig ætli þeim bónda
famaðist sem héldi fjölda vinnuhjúa
og afrakstur búsins hrykki ekki til
að gjalda launin? Eins er rekstri
þjóðarbúsins varið.
HEILRÆÐI
Bömin í umferðinni em bömin okkar. Þar sem þau eru á eða við
akbrautir, er nauðsynlegt að sýna sérstaka aðgát. Öll viljum við
vemda bömin okkar fyrir hættum í umferðinni. Það gemm við best
með því að sýna gott fordæmi.
Yíkverji
Ymsum fannst þeir gerast næsta
auglýsingaglaðir, reykvísku
prófkjörskandidatamir sumir hveij-
ir, þegar þeir leiddu saman hesta
sína á dögunum. Eitt eða tvö
Reykjavíkurblaðanna tóku enda
fram reiknistokkinn og komu tveim-
ur ef ekki þremur vonbiðlanna
langleiðis upp í milljón í auglýsinga-
kostnaði; og hneyksluðust síðan eða
býsnuðust að minnstakosti ein
ósköp, enda hafnaði bróðurpartur-
inn af fyrmefndum hjálparbeiðnum
víst hér í Morgunblaðinu.
Þó var þessi auglýsingaslagur
bamaleikur einn, eins og sannaðist
fyrir skemmstu, í samanburði við
hamaganginn í fjölmiðlaveldinu
mikla, Bandaríkjunum. Þeim taldist
svo til á Newsweek á eftir að þar
á bæ hefðu kappamir sem bitust
um sætin í fulltrúa- og öldunga-
deild ausið út um 400 milljónum
dala og að af þeirri fúlgu hafí ekki
minna en 60% farið í auglýsingar
stórar og smáar sem þeir létu dynja
á hæstvirtum kjósendum í sjón-
varpinu einkanlega.
xxx
Kosningar til öldungadeildar-
innar fara þannig fram að
kosið er um þriðjung sætanna
skrifar
hveiju sinni. Þingmenn deildarinnar
eru hundrað talsins, svo að 33 sæti
eru „laus" á hveijum kjördegi,
þijátíu og þijú og eitt þriðja raun-
ar, nema þeir hafi það eins og
dagatalsmeistaramir, og geymi sér
eitt sæti til einskonar hlaupárs sem
sýnist satt að segja óhjákvæmilegt.
En hvað sem því líður kosta sætin
þau augljóslega skildinginn, enda
dijúgt fínna að vera öldungadeild-
armaður er bara einn af mergðinni
í fulltrúadeildinni.
Þeir Reykvíkingar og aðrir lands-
menn, sem ganga með þingmann í
maganum, fara með öðmm orðum
einkar hóflega í peningaausturinn
enn sem komið er og miðað við þá
sem svipað em innréttaðir vestra;
og tekur því naumast að nefna þetta
lítilræði, mundi Kaninn líka áreið-
anlega segja.
En raunar em Bandaríkjamenn
samt sjálfír famir að ókyrrast. Fyrr
má nú rota en dauðrota, kvað vera
tónninn í mörgum um þessar mund-
ir, enda em 400 milljónir dollara
hreint ekki lítið fé eða vel yfír
16.000 milljónir í íslenskum krón-
um, gjörið svo vel!
Þar við bætist að framboðsaug-
lýsingamir kváðu sífellt verða
háværari, persónulegri og mdda-
legri. Newsweek er þeirrar skoðun-
ar að í ár hafi samt keyrt um
þverbak. Menn virðast hafa lagt
minni áherslu á það en endranær
að upphefja sjálfa sig og í staðinn
lagt því meira kapp á að útbreiða
dylgjur og óhróður um andstæðing-
ana.
XXX
Hér hefur verið að því vikið oft-
ar en einu sinni hve sumir
blaðamenn virðast vera ókunnugir
í heimi persónufomafnanna okkar.
Blessunarlega fáir, satt er það, en
of margir samt.
Hér em tvö nýleg dæmi. Víkveiji
hefur leyft sér að feitletra orðin sem
staglast er á.
Hið fyrra: Ámi sagði að NT og
DV hefðu tekið þátt í undirbúningi
að þessu eftirliti, en þegar að eftir-
litinu hefði komið, hefði komið í
ljós að DV vildi ekki taka þátt í
eftirlitinu.
Og hið síðara: Félag eldri borg-
ara í Reykjavík og nágrenni hefur
aukið félagatölu sína um rúm 50%
á undanfömum tveimur dögum. Á
fímmtudaginn gengu 80 manns í
félagið og á föstudag 470 til við-
bótar. Fyrir í félaginu vom tæp
þúsund manns, en félagið var
stofnað 15. mars síðastliðinn.