Morgunblaðið - 04.01.1987, Side 2
2________________
Olíuverðhækkanir:
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
Áhrifin koma
í ljós í febrúar
ÁHRIF olíuverðhækkana á
mörkuðum ytra nú undir
áramótin koma ekki í Ijós hér
á landi fyrr en í fyrsta lagi
í febrúar þar sem olía hingað
Ms. Suðurland:
Sjóprófin
í Hafnar-
firði á
mánudag
SJÓPRÓF vegna sjóslyssins,
þegar ms. Suðurland sökk 290
sjómílur norðaustur af
Langanesi á aðfangadags-
kvöld, verða hjá bæjarfóget-
anum í Hafnarfirði á morgun,
mánudag, og hefjast klukkan
10 fyrir hádegi.
Utgerð Suðurlandsins, Nes-
skip hf., óskaði eftir að sjópróf
faeru fram fyrir borgardómi
Reykjavíkur, en þar sem skipið
var skráð í Hafnarfirði þótti
eðlilegra að sjóprófin færu fram
þar.
Guðmundur L. Jóhannsson
héraðsdómari stjómar sjópróf-
unum en meðdómendur verða
Viðar Þórðarson hafnsögumað-
ur og Hans Linnet vélstjóri.
I gær og í fyrradag fór fram
útfor þriggja skipverja af Suður-
landi; þeirra Svans Rögnvalds-
sonar, Hlöðvers Einarssonar og
Sigurðar ÖIvis Bragasonar.
til lands verður ekki lestuð
fyrr en þá. Farmur sem nú
er á leiðinni til íslands var
lestaður áður en olía hækk-
aði að ráði.
OPEC ríkin samþykktu fyrir
jólin að hækka jarðolíu í 18 doll-
ara á fatið á þssu ári, en þegar
olíuverð var hvað lægst fór það
niður fyrir 10 dollara. Olíuverðið
hefur síðan hækkað undanfama
daga og nú lætur nærri að olíu-
verð á mörkuðum í Rotterdam
sé um 22% hærra en á birgðum
hér á landi.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Vilhjálmur Jónsson for-
stjóri Olíuverslunar íslands að
nú væri ekki hægt að sjá fyrir
áhrif þessara verðhækkana á
olíuverð á Islandi. „Það eru skip
að koma til landsins núna en
engar frekari lestanir verða fyrr
en í febrúar. Farmamir nú vora
lestaðir fyrir jól og þó einhver
hækkun hafi orðið á þeim hefur
þróunin á næstu mánuðum
mesta þýðingu," sagði Vilhjálm-
ur.
í%7i
1786
1986
íl! í>» ,•... 'gr
u ■r~
Súlumar við Geitháls líta Ola út, brotið gler úr einni hlið og málað á aðra.
»'5sSáí*!
.v>.;'
Súlurnar standa áfram
ÖNDVEGISSÚLURNAR við borgarmörk
Reykjavíkur, sem reistar voru í ársbyijun 1986
í tilefni 200 ára afmælis borgarinnar, verða látn-
ar standa áfram að sögn Daviðs Oddssonar
borgarstjóra.
Davíð sagði að afmælismerkið sem er á súlunum
yrði fjarlægt og merki borgarinnar sett í staðinn
og ef til vill skuggamynd af Ingólfi Amarsyni. Lýs-
ing verður deyfð nokkuð en að öðru leyti fá súlumar
að standa áfram, að minnsta kosti það sem eftir
er vetrar. Vegagerð ríkisins veitti bráðabirgðaleyfí
fyrir staðsetningu súlnanna og verður farið fram á
að fá það framlengt. Nokkuð var um að skemmdar-
verk væm unnin á súlunum en mjög hefur dregið
úr þeim og sagði Davíð að flestir væm mjög ánægð-
ir með þær.
Gengi dalsins lækkar:
Arnarflug 1986:
Lækkun um 1% rýrir tekjur
frystingar um 130 milljónir
GENGI Bandaríkjadals var á föstudag lægra en í mörg undanfar- uði ársins. Um 75% þess vom seld 40 yj 45 mjiijónir króna og meira
in ár gagnvart öðrum helztu gjaldmiðlum heimsins og hafði þá í dölum og tekjutap miðað við fyrr- miðað við útflutning alls ársins
lækkað um nálægt 1% milli daga. Gengi hans var ekki skráð hér nefnda lækkun dalsins verður því 1986.
34% aukning
á flutningum
á landi í gær, en á gamlársdag var það 40,18 krónur. Meðaigengi
dalsins síðasta ár var um 41 króna. Utflytjendur sjávarafurða hafa
af þessu miklar áhyggjur enda eru nálægt 70% fiskmetis seld fyr-
ir dali. Miðað við útflutning ársins 1986 og fyrir síðustu gengis-
skráningu þýðir lækkun dalsins um hvert eitt prósent, rúma 40
aura, um 130 milljóna króna tekjuskerðingu fyrir frystinguna eina,
en hún er nú talin rekin með 2% tapi af tekjum.
Starfsfólk á Borgarspítalanum:
Almennur fundur
á þriðjudaginn
MIKIL aukning varð á bæði far-
þega- og vöruflutningum Arnar-
flugs á síðasta ári. Alls nam
aukning flutninga félagsins 41%.
Farþegar urðu 50.052 sem er
34% meira en árið áður. Þessi fjölg-
un farþega er hlutfallslega meiri
en heildaraukning farþegaflutninga
til og frá íslandi, sem var rúm 20%.
Einnig varð mikil aukning á
vöruflutningum félagsins. Alls voru
flutt 1462 tonn sem er 66% meira
en árið 1985.
Síðustu 11 mánuði síðasta árs
nam útflutningur Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna um 9 milljörðum
króna. Um það bil tveir þriðju hlut-
ar þess eða 6 milljarða virði var selt
í dölum. 1% lækkun dalsins þýðir
því um 60 milljóna króna tekjutap
miðað við sama útflutning á sama
tímabili þetta ár og meira miðað
við ársútflutning.
Eftir fyrstu 10 mánuði ársins var
verðmæti útflutnings á frystum
flski um 15,7 milljarðar króna og
er áætlað um 18 milljarðar króna
allt árið, um 450 milljónir dala.
Miðað við áætlað útflutningsverð-
mæti alls ársins og að um tveir
þriðju hlutar framleiðslunnar séu
seldir fyrir dali, verður tekjutap
frystingarinnar í heild um 130 millj-
ónir króna, lækki dalurinn um 1%.
Á móti þessu kemur svo nokkur
hækkun annarra gjaldmiðla, sem
fiskur er seldur í og jafnframt lækk-
un skulda í dölum. Ennfremur
dregur lækkun dalsins úr skuldum
útgerðar og lækkar verð á olíu í
íslenzkum krónum talið.
Sjávarafurðadeild Sambandsins
seldi frystar sjávarafurðir fyrir um
5,8 milljarða króna fyrstu 11 mán-
Innflutningur á not-
uðum bílum:
Nær fjórföld-
unfrá 1985
INNFLUTNINGUR notaðra
fóiksbíla jókst mikið á síðasta
ári, 1986, og voru á fyrstu tíu
mánuðum þess fluttir inn 966
bílar, sem er nær fjórföldun frá
sama tíma árið 1985.
í október 1986 voru fluttir inn
jafn margir bílar og á fyrstu tíu
mánuðum ársins á undan.
LÆKNARÁÐ og starfsmannaráð
Borgarspítalans hafa komið á fót
5 manna viðræðunefnd við full-
trúa borgar og ríkis vegna
fyrirhugaðrar sölu Borgarspítal-
ans.
Hlutverk nefndarinnar er að
tryggja sjálfstæði spítalans og rétt-
indi starfsfólks. Almennur fundur
starfsfólks verður haldinn á þriðju-
daginn þar sem þessi mál verða
reifuð.
Að baki viðræðunefndarinnar er
stærri nefnd, en í henni eiga sæti
um 20 manns, læknaráð, starfs-
mannaráð og fulltrúar flest allra
starfsstétta sem starfa á spítalan-
um.
Stóreignaskattur
síðast lagður á
á sjötta áratugnum
STÓREIGNASKATTUR var siðast lagður á árið 1956 þegar
vinstri stjóm Hermanns Jónassonar var við völd en áður var
slíkur skattur lagður á árið 1950 þegar stjórn Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks var við völd undir stjórn Steingríms
Steinþórssonar. Stjómarandstöðuflokkarnir nú hafa allir gert
tillögur um að leggja á slíkan skatt, sem einkum beinist að félög-
um og fyrirtækjum.
Sigurbjörn Þorbjörnsson fyrr-
verandi ríkisskattstjóri sá um að
reikna út stóreignaskattinn 1950.
Að sögn Sigurbjöms var fram-
kvæmdin í stórum dráttum sú að
öllum félögum var skipt niður á
eigendur og eignir reiknaðar út á
hvem og einn og út frá því var
skatturinn reiknaður út. Sigur-
bjöm sagði að þessi útreikningur
hefði ekki tekið ýkja langan tíma,
en eftirmál orðið talsverð og mála-
ferli.
Sigurbjöm sagði að i seinna
skiptið hefði framkvæmd stór-
eignaskattsins verið byggð á
sama kerfínu og 1950 en útreikn-
ingur hefði tekið mun lengri tíma.
Vinstri stjóm Hermanns Jónas-
sonar fór frá völdum í nóvember
1958.