Morgunblaðið - 04.01.1987, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
Super-
mac
Sljórnaði Bretlandi undir kjörorðinu:
„Þið hafið aldrei haft það jafngott“
HAROLD MACMILLAN, sem lézt á mánudaginn, 92 ára
gamall, sætti brezku þjóðina eftir ófarirnar í Súezdeil-
unni 195 og var meðal merkustu stjórnmálaleiðtoga
hennar á þessari öld. Hann stjórnaði landinu undir kjör-
orðinu „Þið hafið aldrei haft það eins gott“ og hagur
þjóðarinnar batna’i á sjö ára valdaskeiði hans. Hann
gegndi forystuhlutverki í heimsmálunum, stuðlaði að
bættum samskiptum við kommúnistaríkin, vann a’ aukn-
um tengslum Bretlands og annarra Evrópuríkja og kom
á nánu samstarfi við Bandaríkin. John F. Kennedy for-
seti kallaði hann „frænda“ og sagði að samningurinn
um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn 1963 hefði
verið staðfestu hans og þrautseigju að þakka.
Harold Macmillan Morgunbiaíið/ói.K.M.
Macmillan bar titilinn jarlinn af Stockton
þegar hann lézt og var kallaður „Sup-
ermac" eða „Wondermac“ (Ofurmac eða
Undramac)) vegna pólitískra klókinda hans.
Hann stóð af sér ýmis áföll, en varð að
segja af sér eftir skurðaðgerð 1963. Þegar
hann mótmælti apartheid-stefnunni í sögu-
legri ræðu í suður-afríska þinginu 1960
talaði hann um „vind breytinganna" í Afríku
og segja má að hann hafi haft yfirumsjón
með upplausn brezka heimsveldisins.
Þegar Macmillan kom við á Keflavíkur-
flugvelii 25.september 1960 á leið til
Bandaríkjanna ræddi hann við Ólaf Thors
þáverandi forsætisráðherra um deilu Breta
og íslendinga um útfærslu íslenzku land-
helginnar í 12 mflur. Bjami Benediktsson
sagði í æviágripi um Ólaf Thors: „Með þessu
samtali var grundvöllur lagður að lausn
málsins ogþar með að einum stærsta stjóm-
málasigri íslendinga."
Skozkur að ætt
Macmillan, sem fæddist lO.febrúar 1894,
leit út fyrir að vera dæmigerður enskur
aðalsmaður, en var stoltur af því að afí
hans var skozkur smábóndi, sem fór fót-
gangandi til Lundúna 1843 frá hjáleigu sinni
á eynni Arran með tvær hendur tómar og
stofnaði Macmillan-útgáfufyrirtækið, sem
varð stórveldi. Móðir Macmillans var
bandarísk læknisdóttir, Helen Belles frá
Indiana, sem kynntist foður hans þegar hún
stundaði tónlistamám í París, þá orðin
ekkja. Harold fékk styrki til náms í Eton
og Oxford, þar sem hann varð ritari stúd-
entafélagsins og fékk þá einkunn í blaði
stúdenta að hann væri „langfágaðasti ræðu-
maðurinn í félaginu - kannski einum um
of fágaður.“
í fyrri heimsstyrjöldinni barðist Macmill-
an með Grenadier-varðsveitunum, varð
höfuðsmaður og særðist þrívegis. Stríðið
hafði meiri áhrif á hann en flesta aðra
brezka stjómmálamenn og fyllti hann óbeit
á styijöldum. Eftir stríðið var hann aðstoð-
armaður hertogans af Devonshire, sem þá
var landstjóri Kanada, og kvæntist dóttur
hans, lafði Dorothy Cavendish. Hann teng-
dist því einni af fáum fjölskyldum, sem enn
“réðu íhaldsflokknum" samkvæmt kenning-
um vinstrisinna. Mágur hans gekk að eiga
systur Salisbury lávarðar af Cecil-ætt, sem
hefur haft mikil áhrif síðan á dögum Elísa-
betar I. Alls komst Macmillan í tengdir við
200 fulltrúa yfirstéttarinnar í Neðri málstof-
unni, Lávarðadeildinni og efstu þrepum
ríkmþjónustunnar og utanríkisþjónustunnar.
Árið 1924 var Macmillan kjörinn á þing
fyrir Stockton-on-Tees, iðnaðarbæ á Norð-
austur-Englandi. Þrengingar kjósenda hans
í kreppunni runnu honum svo til rifja að
hann stofnaði starfsmenntunarskóla fyrir
eigið fé til að auka atvinnumöguleika verka-
manna. Á þingi gagnrýndi hann íhalds-
flokkinn fyrir aðgerðarleysi og kallaði hann
“flokk undir stjóm annars flokks bmggara
og erindreka fyrirtækja". Árið 1936 greiddi
hann atkvæði með tillögu Verkamanna-
flokksins um vítur á stjómina fyrir aðgerð-
arleysi á svæðum, sem höfðu orðið hart úti
í kreppunni, og kvað það verkefni kynslóðar
sinnar að „sigrast á fátæktinni og fínna
nýjar leiðir til að dreifa allsnægtunum."
í bók sinni „The Middle Way“ (Miðleiðin)
1938 mælti hann með áætlunarbúskap og
tryggingum og virtist aðhyllast svipaðar
skoðanir og og Roosevelt Bandaríkjaforseti.
íhaldsmenn kölluðu hann og fylgismenn
hans „KFUM-strákana“ í háði. Þeir voru
einnig andvígir friðkaupastefnu flokksins í
utanríkismálum og Macmillan ákvað að
mótmæla þeirri stefnu þegar ítalir voru
ekki beittir viðskiptaþvingunum eftir árás-
ina á Abyssiníu 1936 með því að hlýða
ekki lengur flokksaga á þingi. Tveimur árum
síðar fór Anthony Eden utanríkisráðherra
að dæmi hans.
Erindreki Churchills
Eftir árás Rússa á Finnland fór Macmillan
þangað til að kynna sér ástandið og gagn-
rýndi stjómina harkalega þegar heim kom.
Þegar Churchill tók við völdunum 1940 fól
hann Macmillan störf í birgðamálaráðuneyt-
inu. Tveimur árum síðar sendi Churchill
hann til Norður-Afríku, þar sem hann varð
pólitískur fúlltrúi Breta í aðalstöðvum
Bandamanna, og þar tókst góð vinátta með
honum og Eisenhower hershöfðingja. Móðir
Macmillans hafði kennt honum frönsku áður
en hann var orðinn talandi á ensku og hann
átti þátt í því að sættir tókust með De
Gaulle og Giraud hershöfðingja. Síðan varð
hann yfínnaður Eftirlitsnefndar Banda-
manna á Ítalíu og gerði friðarsamning við
Badoglio marskálk. Seint í stríðinu var hann
sendur til Grikklands til að miðla málum í
blóðugu borgarastríði og gerði Damaskinos
erkibiskup að ríkisstjóra.
íhaldsmenn guldu mikið afhroð í kosning-
unum í lok stríðsins og Macmillan tapaði
þingsætinu í Stockton, en náði stuttu síðar
kjöri í aukakosningu í Bromley skammt frá
London. Nú var hann ekki lengur uppreisn-
armaður, því að flokkurinn tók upp stefnu
hans. Hann hélt uppi hörðum árásum á
stjóm Attlees og kallaði hana „fish and
Cripps" eftir ströngum ráðherra Verka-
mannaflokksins.
Þegar Churchill kom aftur til valda 1951
varð Macmillan húsnæðisráðherra. og efndi
„Við fótskör meistarans": Margaret Thatcher hlýðir á Macmillan á fundi í Carlton-
klúbbnum skömmu fyrir 85 ára afmæli hans 1979.
Á veiðum í Yorkshire 1963 ásamt hertog-
anum af Devonshire (t.h.), hertoga-
frúnni, Sir David Ormsby-Gore (á bak
við hana) og Hugh Fraser, þáverandi
flugmálaráðherra.
Jarlinn af Stockton ásamt Home lávarði,
öðrum fyrrverandi forsætisráðherra,
þegar í fyrsta skipti var sjónvarpað frá
umræðum á Lávarðadeildinni í janúar
1985.