Morgunblaðið - 04.01.1987, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
Super-
mac
„Eng’inn segir mér
Macmillan þurfti oft að gera út um deilu-
mál í stjóm sinni og viðumefnið „Mac the
Knife" var endurvakið þegar hann rak allt
í einu sjö ráðherra 1962. Nokkur hneykslis-
mál komu upp í stjómartíð hans og þeirra
erfíðast var Profumo- máiið. Hermálaráð-
herra hans, John Profumo, varð að segja
af sér, þegar hann hafði logið því að þing-
inu að hann þekkti ekki símavændiskonu
að nafni Christine Keeler, sem hann og flota-
málafulltrúi Rússa höfðu átt vingott við.
“Enginn segir mér nokkum hlut,“ sagði
Macmillan mæðulega á þingi, en neitaði að
biðjast lausnar, þótt fast væri að honum
lagt. Hann sagði ekki af sér fyrr en ijórum
mánuðum síðar, í október 1963, þegar hann
veiktist af bólgu í blöðruhálskirtli og var
skorinn upp.
Honum var vart hugað líf og hann hætti
þingmennsku eftir 40 ára þingmannsferil.
Þrettán ára stjómartíð íhaldsflokksins lauk
með kosningasigri Verkamannaflokksins
1964. Macmillan tók aftur við stjóm fjöl-
„Toppfundur" á dagskrá: Macmillan að-
stoðar Eisenhover.
skyldufyrirtækisins og hóf að rita endur-
minningar sínar, sem komu út í sex bindum.
Á níræðisafmæli sínu 1984 þáði hann jarl-
stign, þótt hann hefði hafnað henni 20 árum
áður með þessum orðum: „Ég er stoltur af
nafni mínu og vil ekki breyta því.“.
í jómfrúræðu sinni í Lávarðadeildinni
hneykslaði jarlinn af Stockton, eins og hann
hét nú, ráðherra og sainflokksmenn með
því að gagnrýna sölu á ríkisfyrirtækjum til
að stuðla að skattalækkun. Hann líkti þessu
við að hjón seldu ^ölskyldusilfrið þegar illa
áraði og hvatti til þjóðarsáttar svo sð endi
yrði bundinn á „illt hatur í nýrri mynd.“
Ræðan var óbein gagniýni á Margaret
Thatcher forsætisráðherra, en hann var
ákaft hylltur þegar hann hafði lokið máli
sínu. Gamli maðurinn hafði ekki komið ná-
lægt stjómmálum í 21 ár. Hann var hálf-
blindur og hmmur og rödd hans titraði af
geðshræringu. Hann virtist fulltrúi liðins
tíma, en orð hans fengu hljómgmnn í
breyttri veröld.
Macmillan notaði fleiri tækifæri til að
hvetja til þess að reynt yrði að draga úr
atvinnuleysi, minnka bilið milli ríkra og fá-
tækra og stuðla að þjóðarsátt. Hann lýsti
frú Thatcher þannig að hún væri „frábær
harðstjóri, umkringd miðlungsmönnum", en
taldi að hún væri of þröngsýn og að það
gæti haft skaðleg áhrif og valdið sundur-
lyndi.
Undir lok ævi sinnar sætti Macmillan
gagnrýni fyrir afdrif 40,000 Kósakka og
hvítiiða, sem vom fluttir gegn vilja sínum
til Sovétríkjanna í stríðslok þegar hann var
enn erindreki Churchills. Flestir þessara
manna vom skotnir eða iétust í fangabúðum
samkvæmt bók eftir Nikolai Tolstoy greifa.
Macmillan svaraði ekki þessum ásökunum,
en í skrifum hans hafði komið fram að þess-
ir atburðir hefðu valdið honum „mikilli
sorg“. Hann viðurkenndi í stríðsendurminn-
ingum sínum að hann hefði dæmt Kósakk-
ana „til ánauðar, pyntinga og sennilega
dauða,“ en sagði að hjá því hefði ekki verið
komizt vegna samninga Rússa, Bandaríkja-
manna og Breta í stríðinu.
Macmillan tekur við embætti forsætisráðherra.
Macmillan og Efnahagsbandalagið: gömlum skemmtiþáttum aflýst.
Hailsham lávarður, gamall samheiji og
keppinautur Macmillans, sagði um hann
látinn að hann hefði sennilega verið hæf-
asti forsætisráðherra Breta eftir stríðið. I
viðtali í sumar sagði Haiisham að Macmillan
væri eini forsætisráðherrann, sem hann
hefði þekkt, sem mundi deyja ánægður.
Macmillan var frábær leikari, sagði Hails-
ham. „En þegar hann var forsætisráðherra
var hann heldur lágróma, hæglátur og lét
lítið yfir sér. Og veiztu af hveiju? Beztu
menn af hans kynslóð höfðu fallið í stríðinu
1914 og hann þóttist sjá vofur þeirra virða
hann fyrir sér frá ímynduðum áhorfenda-
pöllum og segja: „Sjáið þið bara. Þetta er
hann Harold litli. Þeir hafa gert hann að
forsætisráðherra og við vorum miklu snjall-
ari en hann.“ Við þessa tilhugsan setti hann
hljóðan."
GH
Ef svo er, þá eigum við einn slíkan handa þér
MAZDA 323 Station er framdrifinn gæðavagn með
nægu rými fyrir fjölskylduna og farangurinn.
Verð frá aðeins 377 þúsund
krónum með1300ccvél
og 430 þúsund krónum
með 1500 cc vél
í GLX útgáfu
ptiergmti-
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
^Apglýsinga-
síminn er 2 24 80