Morgunblaðið - 04.01.1987, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
Svaf bara yfir mig
- Þú mátt alveg selja það í fyrirsögn, segir
göngugarpurinn Reynir Pétur á Sólheimum
„Segðu bara að ég hafi sofið
yfir mig, enda er það bara al-
veg satt“, sagði Reynir Pétur á
Sólheimum, er blaðamaður
spurði hann af hveiju hann
hefði brugðið út af þeim vana
sínum að koma gangandi á
móti rútu Lionsmanna úr Ægi,
þegar þeir fóru austur að Sól-
heimum í Grímsnesi til að halda
hátíðleg Litlu-jólin nú rétt fyrir
jólin.
Reynir Pétur kom þó fyrstur
út á hlað á móti rútunni og tók
á móti „ljónunum" með sínu
landsfræga, geislandi brosi og
hann hló dátt og lengi, er hann
heyrði að blaðamaður og ljós-
myndari Morgunblaðsins hefðu í
fljúgandi hálku ekið alla leiðina í
jeppa á undan rútunni til að ná
myndum af honum, þegar hann
mætti rútunni og heilsaði Lions-
mönnum. Reynir sagðist barasta
hafa sofið yfir sig, en hafði þó
dulitla afsökun. Gefum honum
orðið:
„Það var svo slæm veðurspá í
útvarpinu. Sagt var að það mundi
skella á hið mesta óveður. Ætii
ég hafí ekki barasta sofið svona '
fast út af því. Ætlar þú að fara
að skrifa þetta?“
— Já og ætli fyrirsögnin verði
ekki sú, að Reynir Pétur hafi sof-
ið yfir sig.
Reynir Pétur hlær nú enn
hærra, slær sér á læri og segir:
„Þú ert sko alveg ... en þú mátt
alveg setja það í fyrirsögn, að ég
hafi sofið yfir mig. Það er alveg
rétt.“
— Hvemig er það Reynir Pét-
ur. Þú átt enn eftir að ganga
hringinn um Vestfirðina. Ertu
eitthvað farinn að spá í hvenær
þú gerir það?
„Já, ég hefði viljað ganga Vest-
firðina líka og ég geri það, þegar
og ef ég fæ góða fylgd, bíl og
fólk. Ég get vel hugsað mér að
ganga strax í sumar, en ég vil
ekki vera með neinaóþolinmæði."
Reynir Pétur sagði ennfremur,
að af sér væri allt gott að frétta,
reyndar bæði af sér og Hanný
kærustunni hans. Hann var já-
kvæður að venju og hrókur alls
fagnaðar á Litlu-jólunum. Hann
bað blaðamann fyrir jólakveðjur
til allra þeirra sem hann hefði
kynnst og veitt hefðu sér og Sól-
heimum liðsinni á íslands-
göngunni. Er því hér með komið
á framfæri.
Reynir Pétur brosir sínu landskunna brosi og útskýrir málið fyr-
ir „ljóninu" Valdimar Örnólfssyni um leið og hann býður hann
velkominn i hlaðinu á Sólheimum.
sveinamir Hurðaskellir og Stúfur
varmar móttökur, en hurðaskellir-
inn Magnús Ólafsson - þótti nokkuð
erfiður nemandi, og reyndi talsvert
á þolrifin, þegar reynt var að kenna
honum rétta textann við „Nú skal
segja,.. “. Lúdó og Stefán spiluðu
gamla slagara við frábærar undir-
tektir. Komu þeir mannskapnum í
svaka-stuð. Með tilkomu nýja húss-
ins gátu heimilismenn að þessu
sinni skellt sér í dans í lokin, sem
nokkrir notfærðu sér óhamlað. í lok
skemmtunarinnar flutti formaður
klúbbsins, Halldór Steingrímsson,
nokkur þakkarorð og óskaði heimil-
ismönnum gleðilegrar hátíðar.
Ekki aðeins íþróttahús
Líklega eru fáir þjónustuklúbbar
eins vel mannaðir skemmtikröftum
og Lionsklúbburinn Ægir. Auk
framantaldra er Halli, - Haraldur
Sigurðsson - félagi, en hann var
ekki með á staðnum að þessu sinni.
Þetta jóla-verkefni er enda upphaf-
ið að inngöngu margra í klúbbinn
og má þar nefna Ómar Ragnarsson
sem kynntist Ægismönnum fyrst
sem skemmtikraftur á Litlu-jólun-
um að Sólheimum.
íþróttahúsið á Sólheimum er
hvað þekktast fyrir göngu Reynis
Péturs heimilsmanns á Sólheimum
í kringum landið sumarið 1985. í
húsinu er ekki aðeins rúmgott
íþrótta- og félagsheimili. Þar eru
ennfremur vinnustofur heimilis-
manna í kjallara á 375 fermetra
gólffleti. Vinnustofumar eru: kerta-
gerð, smíðastofa og vefstofa en
vinnuaðstaða heimilismanna er
þeim mikilvæg, ekki síður en öðrum
þjóðfélagsþegnum. Verðmæti
byggingarinnar er um 20 milljénir
króna. Af því hafa safnast um tíu
milljónir króna og því er húsið nefnt
„þjóðargjöfin mikla".
íþróttasalurinn er til margra
hluta brúklegur og hefur húsið því
stundum verið kallað íþróttaleikhús.
Auk þess að vera íþróttasalur
heimamanna er hann tilvalinn til
nota við landsmót fatlaðra, sem
kom best í ljós er Sólheimaleikamir
voru haldnir 29. til 30. ágúst sl.
en þá var húsið ennfremur vígt sem
íþróttahús. Þá hafa Lionsmenn
komið upp ágætu leiksviði í húsinu
og var það vígt með uppsetningu á
þáttum úr óperunni Rómeó og Julíu
sem heimilismenn á Sólheimum
sýndu við góðar undirtektir fjöl-
margra áhorfenda. Biskupinn yfir
íslandi blessaði síðan húsið við helg-
iathöfn 23. nóvember sl.
Hafa stutt Sólheima-
starfið í 30 ár
Af öllum öðmm ólöstuðum þar
með töldu Foreldra- og vinafélagi
Sólheima, sem unnið hefur heimil-
inu ótal margt gott, hafa Lions-
Þetta var líklega það sem lengst verður komist við að festa Ómar Ragnarsson á filmu, enda maðurinn sjaldan kyrr, eins og alþjóð veit.
söng þessi ljónakór, sem Guðmundur Guðmundarson stjórnaði
menn stutt það hvað mest í þá þijá
áratugi sem klúbburinn hefur starf-
að, en hann verður 30 ára 6. marz
á komandi ári. Að sögn Gunnars
Ásgeirssonar forstjóra, sem er einn
af stofnfélögum Ægis, var það fyr-
ir ábendingu Jónasar B. Jónssonar
skólastjóra og skátahöfðingja að
klúbburínn lét málefni Sólheima til
sín taka. Auk fjölmargra sérstakra
verkefna sem klúbbfélagar hafa
styrkt og/eða séð alfarið um sjálfír,
svo sem hús- og sundlaugarbygg-
ingu á staðnum, hefur klúbburinn
staðið fyrir Qölskylduferðum ár
hvert þar sem allir sem vettlingi
geta valdið hafa gróðursett tré með
heimilismönnum. Trén umhverfis
húsaþyrpinguna telja nú þúsundir.
Nýjasta framlag þeirra Lions-
manna eru innréttingar í íþróttahú-
sið: gólf, svið auk þess sem þeir
gáfu hljómburðartæki og Ijósabún-
að í salinn.
Heimilið að Sólheimum er skil-
greint sem meðferðarsamfélag fyrir
þroskaheft fólk. Sesselja Sigmunds-
dóttir stóð að stofnun þess árið
1930 í samvinnu við Bamaheimilis-
nefnd Þjóðkirkjunnar. Sólheimar
era því elsta starfandi heimilið á
þessu sviði hér á landi. Sesselja
hafði unnið á heimilum og stofnun-
um fyrir þroskahefta í Danmörku
og Þýskalandi og kynnst þar kenn-
ingum Rudolfs Steiners. Áhrifa
þeirrar stefnu gætir enn á ýmsum
sviðum í starfi á Sólheimum. Þar
búa nú 40 vistmenn á aldrinum frá
16 til 55 ára. Vistmenn búa í sex
húsum eða heimiliseiningum, fímm
til átta í hverju húsi.
Þjóðargjöf sem stuðlar
að sjálfstæði heimilis-
manna
Forstöðumaður Sólheima er
Halldór Júlíusson. Blaðamaður
ræddi við hann í lok Litlu-jólanna
um starfsemi heimilisins. Hann
sagði m.a. að fötlum heimilismanna
væri mjög mismunandi, sumir væru
vel sjálfbjarga en aðrir krefðust
mikillar umönnunar. Starfsmenn
eru 30 í 28 og.hálfri stöðu. Aðspurð-
ur um starfsemi heimilisins sagði
hann hana í stórum dráttum þá,
að heimilismenn sæktu vinnu eða
stunduðu skóla, hver og einn eftir
þroska og hæfileikum. Á Sólheim-
um er smíðastofa, kertagerð og
vefstofa. Þá er stunduð garðyrkja,
ylrækt auk lítilsháttar búskapar.