Morgunblaðið - 04.01.1987, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna— atvinna
Sölumaður
Óskum eftir að ráða sölumann til afgreiðslu-
starfa og símavörslu hjá Tölvufræðslunni
strax eftir áramót. Góð laun í boði.
Upplýsingar í síma 686790.
L^’jklÖLVUFRÆÐSLAN
Kvenfataverslun
Starfsfólk á aldrinum 35-60 ára óskast til
afgreiðslustarfa strax í kvenfataverslun í
miðbænum.
Vinnutími frá kl. 10.00-14.00.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og
fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „AE — 569“ fyrir 8. janúar.
Sölumaður
Heildverzlun með velþekktar íþróttavörur
óskar eftir að ráða duglegan sölumann. Vel
launað framtíðarstarf.
Umsókn merkt: „R — 2025“ óskast send
auglýsingadeild Mbl. fyrir 12. janúar.
Bakarasveinar og
nemar
Óska eftir að ráða bakarasveina og nema til
starfa í nýtt bakarí að Álfabakka 12 sem allra
fyrst.
Skriflegar umsóknir óskast sendar á Grens-
ásveg 48.
jminnxjtafeari ‘ZT'"
BAKARf — KONDITORI — KAFFI
Vilt þú lifandi starf?
Seldu þá líftryggingu
Við bjóðum ykkur vinnu sem gefur góða
tekjumöguleika, vinnutíma sem hentar þér,
skemmtilegt og lærdómsríkt starf.
Við erum að leita að duglegu fólki, sem get-
ur unnið sjálfstætt, á auðvelt með að
umgangast fólk og hefur góða framkomu.
Þetta starf hentar mjög vel t.d.
skólafólki, húsmæðrum, vakavinnufólki o.fl.
Setjið á blað nafn, heimilisfang, aldur og
símanúmer og sendið til auglýsingadeildar
Mbl.„ merkt— LÍF 86“ og við munum hafa
samband.
Kerfisfræðingur
— forritari
Hf. Eimskipafélag íslands óskar eftir að ráða
til framtíðarstarfa í tölvudeild félagsins
kerfisfræðing — forritara.
Tölvudeild Eimskips vinnur stöðugt að þróun
nýrra kerfa til notkunar hjá félaginu innan-
lands og erlendis og notar við það öflugan
tölvubúnað:
• IBM System/38
• Yfir 100 jaðartæki
• Fjarvinnsluumhverfi
— innanlands og utan
• Gagnagrunn „Relational Database"
Við leitum að starfsmanni með:
• Menntun á sviði tölvufræða.
• Þekkingu og reynslu í gagnasafnsfræðum.
• Áhuga og vilja til að taka þátt í hópvinnu
við úrlausn verkefna, jafnframt reynslu í
sjálfstæðri vinnu.
• Ahuga á framtíðarstarfi við uppbyggingu
og þróun eigin tölvukerfa Eimskips.
Starfsreynsla í skipulagðri forritun „Structu-
red programming, RPG III, PL/I“ æskileg.
Allar nánari upplýsingar veita deildarstjóri
tölvudeildar og starfsmannastjóri í síma
27100. Umsóknareyðublöð liggja frammi í
starfsmannahaldi, Pósthússtræti 2 og skal
umsókn skilað á sama stað fyrir 7. janúar 1987.
EIMSKIP
*
Hrafnista í
Reykjavík
Starfsstúlkur óskast í borðsal og á vist-
heimilið.
Upplýsingar gefurforstöðukona í síma 30230
og 38440 frá kl. 10.00-12.00 virka daga.
Ung stúlka
menntuð förðunarmeistari óskar eftir sjálf-
stæðri spennandi framtíðarvinnu allan
daginn. Margt kemur til greina.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„F — 2022" sem fyrst.
Innheimtumaður
óskast í hálfsdagsstarf. Þarf að byrja strax
og verður að hafa bfl.
John Lindsayhf.,
sími26400
Læknaritari
Fyrirtækið er sjálfseignarstofnun í Reykjavík.
Starfið felst í almennum læknaritarastörfum
s.s. vélritun eftir diktafóni, skráningu tíma-
pantana, skjalavörslu og umsjón með spjald-
skrá.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi starfs-
reynslu sem læknaritari eða reynslu af
sambærilegum störfum. Æskilegt er að við-
komandi hafi stúdentspróf. Umsækjendur
þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Vinnutími er frá kl 08.30-16.00.
Umsóknarfrestur er til 8. janúar 1987.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustíg la - 101 Reykjavik - Sfmi 62135S
Ritari — sölumaður
Karl eða kona óskast strax til starfa hjá einni
af elstu fasteignasölum borgarinnar.
Skilyrði: Góð menntun og dugnaður.
Umsóknir með traustum upplýsingum
sendist auglýsingadeild Morgunblaðsinsfyrir
kl. 17.00 nk. þriðjudag 6. janúar merktar:
„Dugnaður — stöðuhækkun — 2651“.
Næturvarsla
Ábyggilegur maður eða kona 25-40 ára ósk-
ast strax til starfa við næturvörslu. Starfið
felst í eftirliti með allmörgum húseignum í
borginni.
Umsækjendur þurfa að hafa bílpróf, hreint
sakavottorð og góð meðmæli frá fyrri vinnu-
veitendum.
Reynsla í eftirlits- eða lögreglustörfum
æskileg en ekki nauðsynleg.
Umsóknir, ritaðar eigin hendi, með upplýs-
ingum um aldur, menntun, starfsreynslu og
annað er máli skiptir sendist auglýsingadeild
Mbl. merktar: „Framtíðarstarf — 2653“.
Atvinna íboði
Vegna mikilla anna vantar starfsfólk í eftirtal-
in störf:
* Aðstoð við brauðabakstur, vinnutími frá
kl. 12.00 til ca. 20.00.
* Aðstoð við bakstur, vinnutími frá kl. 5.00-
14.00
* Tiltekt á pöntunum, vinnutími frá kl. 5.00-
13.00
* Pökkun, vinnutími frá kl. 7.00-15.00
* Þvottur á áhöldum, vinnutími frá kl. 7.00-
13.00
* Afgreiðslustarf í kaffiteríu, vinnutími frá kl.
11.00-19.00 annan hvern dag virka daga.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni og hjá
verkstjórum.
Brauð hf.,
Skeifan 11.
Starfsmannahald.
rm wGFRwm
Markaðsstjóri
★ Fyrirtækið:
Stór heildverslun. Sala fyrst og fremst til
endurseljenda. Góð viðskiptasambönd.
Traust fjárhagsstaða. Tölvuvæðing á háu
stigi. Um 20 starfsmenn.
★ Starfssvið:
Innlend og erlend viðskiptasambönd. Stefnu-
mótun og áætlanagerð. Markaðsathuganir
og samræming markaðsaðgerða. Stjórnun
söludeilda.
★ Starfsmaðurinn:
Viðskiptafræðingur eða sambærileg mennt-
un! Framhaldsmenntun erlendis svo og
starfsreynsla æskileg.
★ Starfið:
Krefjandi stjórnunarstarf. Laust strax.
Allar fyrirspurnir og umsóknir trúnaðarmál.
Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við
Holger Torp fyrir 12. janúar nk.
FRUm Starf smannast jómun - Ráöningaþjónusta
Sundaborg 1 - 104 Reykjavík - Simai 681888 og 681837
Ýmislegt
Óskum eftir að ráða 2 menn til léttra starfá
við sendlastörf innanhúss, dyravörslu o.fl.
Um er að ræða 86% starf sem unnið er 2
daga aðra vikuna og 4 daga hina vikuna frá
kl. 8.00-20.00. Frí á sunnudögum.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri frá kl.
10.00-12.00 á staðnum frá mánudegi til
föstudags.
Hótel Saga v/Hagatorg.
107 Reykjavík.