Morgunblaðið - 04.01.1987, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNTJDAGUR 4. JANÚAR 1987
51
laus við þær þjáningar sem hún var
búin að líða. Okkur þykir því við
hæfi að kveðja hana með lokaerind-
inu úr jólasálminum hans Stefáns
frá Hvítadal:
Guð er eilíf ást,
engu hjarta er hætt.
Ríkir eilíf ást,
sérhvert böl skal bætt.
Lofið guð, sem gaf,
þakkið hjálp og hlíf.
Tæmt er húmsins haf,
allt er ljós og líf.
Elskulega frændfólk. Okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. Blessuð
sé minning Helgu.
Abba og Nonni frændi
á Syðri-Á
Elskuleg móðursystir okkar,
Helga Sigríður Sigvaldadóttir, lést
í Borgarspítalanum í Reykjavík 22.
desember síðastliðinn eftir þunga
sjúkdómslegu.
Helga frænka, eins og okkur var
tamast að kalla hana, fæddist á
Syðri-Á í Ólafsfirði 3. júní árið
1914. Hún var dóttir hjónanna
Sigríðar Elínar Þorsteinsdóttur sem
ættuð var af Suðumesjum og Sig-
valda Grímssonar ættuðum úr
Eyjafirði. Sigvaldi hafði lokið gagn-
fræðaprófi frá Möðruvallaskóla árið
1887. Hann stundaði bamakennslu
í æskubyggð sinni auk sjómennsku
og annarra starfa.
Þau hjónin eignuðust átta böm
og var Helga yngst þeirra. Að henni
látinni eru nú tvö eftirlifandi af
systkinunum, Dagbjört og Sólrún,
báðar búsettar í Olafsfírði.
Helga ólst upp hjá foreldrum
sínum á Syðri-Á á stóru og anna-
sömu heimili. Nutu þau systkin
ástríkis og umhyggju góðra foreldra
og varð það þeim ríkulegt vega-
nesti æ síðan. Mikil samheldni og
sterkar taugar til æskuheimilisins
hafa jafnan verið rík í Helgu og
systrum hennar (eini bróðirinn í
hópnum drukknaði ungur að árum).
Lýsir þetta sér meðal annars í því
að tamt var að segja „heim að
Syðri-Á“ þótt búsetan væri víðs
fjarri og hefur þessi arfur jafnvel
skilað sér til yngri kynslóðar.
Helga giftist árið 1934 Þórði
Ólafssyni sem ættaður var úr Fljót-
um í Skagafirði. Hann var vélstjóri
og stundaði lengst af sjómennsku.
Þau hjónin bjuggu fyrst á Kleifum
í Ólafsfírði, síðan um skeið í Bol-
ungavík en fluttu svo aftur til
Ólafsfjarðar. Síðustu búskaparár
sín bjuggu þau í Glerárþorpi við
Akureyri. Helga og Þórður eignuð-
ust 5 börn en misstu eitt þeirra,
tvíburann Ólaf Tryggva, á bams-
aldri. Hafði hann verið líkamlega
veill allt frá fæðingu. Auk þessara
erfiðleika átti Þórður lengi við al-
varlegan sjúkdóm að stríða. Síðustu
mánuðina naut hann umönnunar
konu sinnar í heimahúsum. Þórður
lést árið 1953 og stóð þá Helga
uppi með ungan bamahóp. Naut
hún þá dyggilegs stuðnings elsta
sonarins á erfíðleikatímum.
Elst bama þeirra er Jóhann
Theodór sem stundað hefur sjó-
mennsku, lengi sem stýrimaður og
skipstjóri á togurum. Hann er
kvæntur Maríu Jóhannesdóttur og
eru þau búsett í Hafnarfirði. Björg
er bókavörður við Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri, gift Kristjáni
Kristjánssyni. Helgi Sigurður Sig-
valdi (tvíburi við Olaf Tryggva) er
verkamaður í Ólafsfirði, kvæntur
Róslaugu Gunnlaugsdóttur. Ólafur
er tónlistarkennari og starfsmaður
hjá Ríkisútvarpinu, kvæntur Bryn-
hildi Sigurðardóttur og eru þau
búsett í Reykjavík.
Þá eignaðist Helga síðar soninn
Kormák Þráin Bragason sem er
kennari í Ólafsfírði, hans kona er
Gréta E. Sörensen.
Helga hlaut í vöggugjöf góða
söngrödd og helgaði líf sitt að miklu
leyti söng, aðallega í kirkjukórum.
í mörg ár söng hún með kór Lög-
mannshlíðarkirkju og um tíma með
Kantötukór Akureyrar.
Árið 1957 fluttist hún suður og
bjó lengst af í Kópavogi. Þá starf-
aði hún með kór Háteigskirkju og
síðar í kór Kópavogskirkju. í söng-
starfi sínu eignaðist Helga tryggan
vinahóp, enda fylgdi henni alltaf
glaðværð og kímni sem henni var
eiginleg. Hún átti auðvelt með að
slá á létta strengi og brá þá stund-
um fyrir sig bundnu máli en ást á
ljóðum og hagmælska var arfur sem
hún hlaut í foðurgarði.
Helga frænka var glæsileg kona
og hélt hún reisn sinni allt til hins
síðasta.
Vegna fjarlægðar við okkar
æskustöðvar tengdumst við henni
e.t.v. sterkari böndum. Minnumst
við frændsystkinin ótal stunda sem
við nutum í návist hennar í gleði
og söng.
Það er ef til vill táknrænt að
Helga frænka okkar kvaddi þennan
heim er hátíð ljóssins gekk í garð.
Um langa tíð hafði hún átt þátt í
að lofsyngja þessa hátíð og verið
umlukin birtu sem lýsti upp veg
samferðafólksins á líkan hátt og
jólin lýsa upp skammdegismyrkrið.
Minningin um hana verður áfram
ljós á vegi okkar.
Sigríður Steingrímsdóttir,
Ingi Viðar Árnason.
„Hvað er hel?.ÖUum líkn sem lifa
vel.“
Þessi orð úr sálmi Matthíasar
Joe.humssonar komu upp i hugann
þegar okkur barst fregnin um lát
vinkonu okkar, Helgu Sigvaldadótt-
ur. Dauðinn var henni líkn, svo lengi
hafði hún barist við ólæknandi sjúk-
dóm, sem hún bar með mikilli reisn
og æðruleysi til hins síðasta.
Hér skal ekki rakin ætt né ævi-
ferill Helgu, enda ekki þekking til
þess. Aðeins viljum við minnast
hennar með fáeinum orðum og
þakka fyrir að hafa fengið að njóta
samfylgdar hennar nokkurn spöl á
lífsins göngu.
Helga starfaði með okkur í Kór
Kópavogskirkju um árabil og er hún
okkur öllum minnisstæður persónu-
leiki sakir mannkosta sem hún hafði
til að bera. Helga hafði hljómfagra
söngrödd og næmt söngeyra. Hún
hafði mikið yndi af að syngja hvort
heldur var í kirkju eða utan. Á gleði-
stundum var hún hrókur alis
fagnaðar og léttleiki hennar og hin
græskulausa glettni smitaði alla
sem voru í návist hennar. Þar leið
öllum vel.
Nú hljómar rödd Helgu ekki leng-
ur í kórnum okkar. En hljómur
minninganna bærist hið innra með
okkur og yljar okkur um hjartaræt-
ur.
Við þökkum Helgu samveru-
stundirnar og biðjum henni guðs-
blessunar. Óllum afkomendum
hennar svo og öðrum ættingjum og
vinum vottum við sámúð okkar.
Kór Kópavogskirkju
Gísli Jónsson tré-
smiður - Minning
Fæddur 23. apríl 1910
Dáinn 25. desember 1986
Gísli Jónsson trésmiður, stjúp-
faðir okkar, andaðist að morgni
jóladags. Ókkur langar til að
minnast hans nokkrum orðum.
Gísli Jónsson fæddist á Sveins-
eyri við Dýrafjörð 23. apríl 1910,
sonur Höllu Bjamadóttur og Jóns
Guðmundssonar. Æskuslóðimar við
Dýrafjörð vom Gísla jafnan mjög
kærar, og sérstaklega hafði hann
yndi af því að rifja upp þann tíma
sem hann var smali á Skálará. Þar
var hann hjá góðu fólki. Á þeim
bæ bjó þá gamall maður, sem Mark-
ús hét, mikill fræðaþulur, og af
honum lærði Gísli kynstur af vísum
og kvæðum, sem hann hafði mjög
á hraðbergi allt fram á síðasta dag.
Tvítugur að aldri fluttist hann
með foreldrum sínum og systkinum
til Reykjavíkur. Hann var eftir það
lengi háseti á Goðafossi. Á styijald-
arárunum hóf hann nám í trésmíði.
Hann var þá kvæntur maður og
tveggja bama faðir. Fljótlega að
námi loknu réðst Gísli til starfa hjá
Ingólfi Guðmundssyni trésmíða-
meistara á Landakotsspítala og
vann þar samfellt þangað til hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Árið 1934 gekk Gísli í hjónaband
með Sigríði Jóhannsdóttur og eign-
uðust þau fjögur böm. Sigríður lést
árið 1968.
Kynni okkar af Gísla hófust þeg-
ar hann kvæntist móður okkar á
haustmánuðum 1974. Það varð
brátt auðfundið, að við bræðumir
áttum góðan að þar sem Gísli var.
Við þurftum oft að leita til hans
um hvers kyns aðstoð, og var hún
jafnan veitt umyrðalaust. .Einkum
naut hann sín, þegar hann gat kom-
ið við tækjum sínum og tólum, enda
var hann smiður góður og höndin
hög. Um það bera vitni fjölmargir
munir, sem hann skar út af miklum
hagleik, og era sumir hrein lista-
smíð. Gísli undi sér mjög við
útskurð, en þegar vanheilsa mein-
aði slíkt, sneri hann sér að auðveld-
ari handavinnu, því að iðjulaus gat
hann ekki verið.
Gísli gat virst hijúfur maður við
fyrstu sýn, enda talaði hann sjaldan
tæpitungu, hver sem í hlut átti. Við
nánarí kynni kom í ljós að hann var
maður glettinn og gamansamur og
hafsjór af alls konar sögum og
vísum. Börnum leið mjög vel í ná-
vist hans, því að hann bjó yfir
mikilli frásagnargleði, sem þau
kunnu að meta. þeir sem best
þekktu til vissu, að hann hafði einn-
ig hrifnæma lund og gat orðið djúpt
snortinn, ekki síst af fegurð ljóðs
og tóna.
í þann mund sem við fögnuðum
fæðingu nýs lífs á jólanóttinni hélt
Gísli upp í sína hinstu för. Hann
kveið ekki þessum „vistaskiptum",
eins og hann komst sjálfur að orði,
því að síðast mundi leiðin liggja
heim í föðurgarð. Við vonum og
biðjum, að hann hafi átt góða heim-
komu.
Guð blessi minningu hans.
Ástráður, Reynir, Gunnar
og Guðmundur Garðar
Blömastofa
Friöjinm
Suðurtandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
0pi6 öll kvötd
tll kl. 22,- eínnig um helgar.
Skreytingar viö öll tilefni.
Gjafavörur.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
EINAR E. HAFBERG,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 6. janúar kl.
10.30.
Guðbjörg Kristjánsdóttir,
Guðlaug Einarsdóttir, Sigurður Geirsson,
Lára Hanna Einarsdóttir.
+ Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og tengdasonur, STEFÁN HARALDSSON járnsmiður, Skeljagranda 1, verður jarðsunginn frá Langhoitskirkju miðvikudaginn 7. janúar kl. 15.00. Guðrún Sigurðardóttir, Haraldur Sigurðsson, Þóra Stefánsdóttir, Þóra Steingrímsdóttir, Haraldur Arnar Stefánsson, Sigurður Þorgrímsson.
+ Útför bróður míns og föðurbróður okkar, SNORRA HJARTARSONAR, skálds, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 7. janúar kl. 1 5.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans láti líknar- eða menningarsjóði njóta þess. Torfi Hjartarson, HjörturTorfason, Snorri Ásgeirsson, Ragnheiður Torfadóttir, Ragnheiður Ásgeirsdóttir, Sigrún Torfadóttir, Halldór Ásgeirsson, Helga S. Torfadóttir.
1
+ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir og afi, GÍSLI JÓNSSON, Nökkvavogi 9, verður jarðsunginn mánudaginn 5. janúar 1987 kl. 13.30 frá Lang- holtskirkju. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Guðríður Ástráðsdóttir, Kjartan R. Gfslason, Coletta Burling, Halla Gísladóttir, Lárus Gunnlaugsdóttir, Jóhann Gíslason, Sigrfður Gísladóttir, Benedikt Gröndal, Ástráður S. Guðmundsson, Erlín Óskarsdóttir, Reynir Guðmundsson, Gunnar F. Guðmundsson, Guðmundur Garðar Guðmundsson og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HANS ÁRNA TÓM ASSON AR,
Þórustíg 24, Y-Njarðvfk.
Elfnbjörg Georgsdóttir,
Tómas Hansson, Bára Lárusdóttir,
Ágústa Ágústsdóttir, Guðmundur S. Runólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum er sýndu okkur hlýhug og sam-
úö við andlát og útför eiginmanns míns, sonar, föður, tengdaföður
og afa,
JÓNS MARÍUSAR JÓNSSONAR,
Hamarsstíg 39,
Akureyri.
Petrea Jónsdóttir,
Hafþór Jónasson,
Þorbjörg Björnsdóttir,
Gerður Róbertsdóttir,
Guðrún Ragnarsdóttir,
Vilborg H. Jónsdóttir
og barnabörn.
Kristfn Jóhannsdóttir,
Heiða Jónsdóttir,
Óttar Jónsson,
Óðinn Jónsson,
Pótur Jónsson,
Jón Mar Jónsson,