Morgunblaðið - 04.01.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
en
Ui7
Hinrík Thorarensen
læknir - Minning
Fæddur 15. september 18911
Dáinn 26. desember 1986
Það er marg: ad minnast þegai
litið er yfir farinn veg, frá því ég
fyrst kynntist tengdaföður mínum
árið 1951 og þar til hann lést á
Hrafnistu í Hafnarfírði 93 ára að
aldri. Hann var ekki allra. Hlédræg-
ur maður í umgengni, en traustur
og raungóður þegar á reyndi. Hon-
um var sérlega annt um fjölskyldu
sína og var ekkert til sparað til að
tryggja velsæld hennar og koma
bömum sínum til mennta.
Hinrik fæddist á Akureyri, sonur
hjónanna Odds C. Thorarensen, ljrf-
sala, og konu hans, Önnu Clöru
Schiöth. Hann ólst upp á Akureyri
í heimahúsum, en stundaði síðan
nám við Menntaskólann í Reykjavík
og lauk þaðan stúdentsprófi 1913.
Síðan lagði hann stund á læknis-
fræði við Háskóla íslands og lauk
þaðan prófí 1918 með góðum vitnis-
burði. Árið 1919 kvæntist Hinrik,
Svanlaugu Ólafsdóttur, kaupmanns
á Stokkseyri, Ámasonar, og Mar-
grétar Friðriksdóttur Muller. Þau
höfðu kynnst á menntaskólaárum
þeirra beggja og höfðu strax fellt
hugi saman. Þau fluttu til Akur-
eyrar fljótlega eftir brúðkaupið þar
sem Hinrik varð aðstoðarlæknir um
tíma, en sigldu síðan til Danmerkur
og var Hinrik læknir á sjúkrahúsum
þar um skeið. Eftir heimkomuna frá
Danmörku settust þau að í Reykja-
vík um tíma, en síðar á Siglufirði
og var Hinrik læknir þar um ára-
bil. Svanlaug og Hinrik eignuðust
flóra syni þá Odd, Ragnar, Ólaf og
Hinrik og þegar kom að skólagöngu
þeirra stofnuðu þau vetrarheimili á
Akureyri, en synimir stunduðu nám
við Menntaskólann þar. Dvaldi Hin-
rik með fjölskyldu sinni á Akureyri
eins oft og við var komið yfir vetur-
inn, en á vorin, þegar skólanum
lauk, fluttist fjölskyldan til Siglu-
fjarðar og dvaldi þar fram á haust.
Svanlaug hélt heimili af mikilli
rausn og myndarskap og var rómuð
gestrisni þeirra hjóna. Hinrik dáði
Svanlaugu alla tíð, en þau hjón
vom ólík um margt og áttu ekki
skap saman og slitu samvistir. Bjó
Hinrik síðán einn á Siglufirði allt
til ársins 1947. Síðar eignaðist Hin-
rik dótturina Stellu Klöru, sem hann
kom til mennta og lauk hún prófi
frá Kennaraskóla íslands. Hún er
búsett í Kanada ásamt manni sínum
og bömum.
Hinrik var mjög bamgóður og
fór sérstakt orð af honum sem
bamalækni. Hann átti sæti í bæjar-
stjóm Siglufjarðar 1924-1930 og
lagði sig fram um, meðal annars,
að bærinn stofnsetti mjólkurbú til
að sjá bömum fyrir mjólk, sem oft
vildi vera af skornum skammti á
Siglufirði í þá daga. Hinrik var
duglegur maður og áhugasamur um
margt, og gerðist umsvifamikill á
viðskiptasviðinu á Siglufírði. Hann
eignaðist meðal annars prentsmiðju
og gaf út fréttablað, reisti kvik-
myndahús og starfrækti, svo og
hótel og verslun, og annaðist um-
sjón þessara fyrirtækja, allt þar til
hann afhenti sonum sínum Oddi og
Ólafi reksturinn árið 1947 og flutti
til bemskustöðva á Akureyri. Eftir
nokkurra ára dvöl á Akureyri flutti
Hinrik síðan til Reykjavíkur og hóf
störf við lyfjainnflutning hjá fyrir-
tæki Stefáns Thorarensen, bróður
síns. Hjá Stefáni starfaði Hinrik svo
til sjötugs en þá hætti hann störfum
og settist í helgan stein.
Hinrik var tvígiftur. Hann
kvæntist seinni konu sinni, Guðrúnu
Olgu Ágústsdóttur frá Stykkis-
hólmi, árið 1954. Guðrún var hin
mætasta manneskja og reyndist
hún Hinrik vel allt þar til hún lést
1977.
Þegar ég giftist manni mínum
árið 1952 hófum við búskap okkar
á Laugavegi 34A, þar sem tengda-
faðir minn var einnig búsettur. Er
mér sérlega minnisstæð hjartahlýja
hans og umhyggja fyrir mér og
bömunum. Hann var mjög sjálf-
stæður persónuleiki og var lítt fyrir
það gefínn að vera upp á aðra kom-
inn. Hann naut útivistar og á efri
ámm var hann tíður gestur í skrúð-
görðum borgarinnar og næsta
umhverfi Tjamarinnar. Þar virtist
hann kunna best við sig. Síðustu
tvö ár ævi sinnar dvaldi Hinrik á
Hrafnistu í Hafnarfirði, síðara árið
á sjúkradeild, því þá var hann að
mestu rúmfastur. Naut hann þar
ágætrar umhyggju starfsfólks, sem
annaðist hann af mikilli alúð, og
leið honum þar eins vel og best
verður á kosið. Öllum ættingjum
Hinriks sendi ég hugheilar samúð-
arkveðjur á þessari stundu í vissu
þess að handan við landamæri lífs
og dauða, bíða bjartir heimar.
Emilia Thorarensen
NANETTE
NELMS
frá NEW YORK JUBILATIONS
ATVINNU-
DANSARAfí
ATHUGIÐ!
Gelum skipulagl
sérslaka
tyrir ykkur undir
handleiðslu
Nanelte Nelms.
Wterkurog
k_/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Kennsla hefst miðvikudatíinn 7. ianúar. i
Byijendur (yngst 5 ára) og framhaldsnemendur. 9
Nemendur mæti eftir stundaskrá. i\J
Kennslukerfi: ROYAL ACADEMY OF DAEICING RUSSIAN METHOD \ . J ,2 n
Innritun og upplýsingar í J t
síma 72154. ■ I \ 1
Félag íslenskra listdansara.
BRLLETSHÓU 5IGRÍÐRR RRfYIRRI 1
SKÚLAGÖTU 32-34 000 GYLMIR/SlA
VINNINGASKRÁ í
STÓRHAPPDRÆTTI
LANDSAMBANDS'^^^
FLUGBJÖRGUNARSVEITANNA.
Dregið 24.desember 1986.
2 TOYOTA LANDCRUSER
komu á miða númer
58955 og 139656
3 Heimilispakkar með:
GoldStar 20"sjónvarpi,
Mitsubishi farsíma,
Macintosh einkatölvu,
GoldStar-HQ myndbandstæki,
GoldStarhljómtækjasamstæðu
og GoldStar ferðatæki.
Komu á miða númer:
16152,53326,116503
17 GoldStar 20"sjónvörp
komu á miða númer:
740, 1998, 23549, 23578,
43694, 45303, 55500,
56130, 66803, 67036,
87683, 90451,108838,
112154,132056, 142158,
160666.
17 Mitsubishi farsímar
komu á miða númer:
6817, 13060, 27705,
28556, 46371,46907,
61454, 61573, 70050,
92162,112380,134693,
135177, 142479, 142767,
161717,163547.
17 Macintosh einkatölvur
komu á miða númer:
13499, 13554, 29502,
30147, 47072, 47483,
62321,76046, 80289,
92971,95212, 114276,
115106,136011,136027,
144644, 144764.
17 GoldStar
hljómtækjasamstæður
komu á miða númer:
15736, 17214, 34471,
37814, 47683, 62663,
62825, 81620, 81450,
95937, 97601,116310,
120547, 138974, 139401,
145235,145246.
17 GoldStar HQ
myndbandstæki
komu á miða númer:
19211,19687, 38072,
53185, 53291,64213,
65541,82513, 83398,
97796, 99977, 121616,
122858, 139430, 139486,
152230,153657.
17 GoldStar ferðatæki
komu á miða númer:
22333,40731,43061,
54005, 54970, 66172,
66544, 83759,85197,
100643, 106704, 129507,
129847,140338,141634,
157274, 158431.
Birt án ábyrgöar.
Upplýsingasími er 25851
Þökkum vinum og
velunnurum veittan
stuðning á liðnu ári.
FLUGBJÖRGUNARSVEITIRNAR