Morgunblaðið - 04.01.1987, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
Að vera misskil-
inn af heiminum
ísland í brennipunkti
Fyrir Reykjavíkurfundinn og
meðan á honum stóð voru ís-
lendingar og ýmis mál Islandi tengd
vinsælt fréttaefni víðs vegar um
heimsbyggðina. Morgunblaðinu
berast öðru hvetju blaðaúrklippur
héðan og þaðan af jarðkúlunni með
þess háttar efni og fyrir skömmu
kom ein slík úr blaðinu Wilmington
News Journal í Delawere í Banda-
ríkjunum.
I greininni, sem bar nafnið
„Heimurinn fylgist með íslandi",
var sagt frá Dr. Erni Aðalsteins-
syni, efnaverkfræðingi, og fjöl-
skyldu hans, rætt við þau hjónin
og lesendur fræddir lítillega um
ísland og það sem íslenskt er.
Dr. Örn er sem fyrr segir efna-
verkfræðingur og vinnur við aðal-
stofnun fyrirtækisins DuPont, sem
er eitt hið stærsta í heimi á þessu
sviði. Kona hans er Eva Aðalsteins-
son og hefur hún fengist við rit-
og fréttastörf ýmiskonar, en auk
þess hefur hún lokið baccalaureats-
prófi á sviði menningarsamskipta
og hefur verið í framhaldsnámi við
það. Þau hjónin eiga tvær stúlkur,
þær Bryndísi, sem er tæplega fjög-
urra ára gömul, og Solnýju, tæplega
ársgamla.
Dr. Öm hefur sinnt ýmsum mál-
um íslendingum viðkomandi og er
hann forseti íslendingafélagsins á
svæði, sem nær yfir Delawere,
Pennsylvaníu og suðurhluta fylkis-
ins New Jersey.
í greininni segir að Örn sé öflug-
ur málsvari íslands og hafi hann
ekki undan við að leiðrétta ýmsan
misskilning um ísland. „Fólk spyr
hvort Örn hafi alist upp í snjóhúsi",
segir Eva og bætir við að ein or-
saka þess að fólk viti lítið um landið
sé sú að það sé svo ofarlega á hvel-
inu og laust við allan vanda, sem
væri líklegur til þess að vekja at-
hygli á því. Þá benda þau hjón á
að nafnið sé ekki vænlegt til vin-
sælda, en geta þess jafnframt að
loftslagið sé Jíkara því sem gerist
í Maine.
„Annars er íslendingum býsna
sama [um að vera misskildir]“, seg-
ir Öm. „í mjög góðri bók, sem
nefnist „Vandinn við að vera Islend-
ingur“ segir höfundur að einn þeirra
hluta sem sameini íslendinga sé sú
tilfmning að vera misskildir af
heiminum. Samt sem áður leggja
þeir nú ekki hart að sér við að leið-
rétta misskilninginn."
Þegar þau eru spurð hversvegna
þau telji að Island hafi orðið fyrir
valinu telja þau staðsetningu þess
líklega ástæðu, þá sé ísland eina
Evrópulandið sem ekki hafí orðið
fyrir barðinu á Chemobyl-slysinu
The world watches Iceland
lt> IÍAKV MIU..NMAN
.fi.ir.iK1'
tul. Miit
A ko"*I “iv 1» d
r.ill ii "ih«- ItusM.in
In thinry. unly |«-
■■irKc;iuan atul (inrlxichov do comc to an agavmcnt.
uill aluaxs Iv known as the kvlaiul Aco>nl."
Vuli Mnii' liK'k nihlKi.'U; ll'* ’
II vuu ri' l.flmK • hui li-.li
.isk .in I. . I..1..I.1 h..«
wh.il.- hluMxr F..i
... 11/'"",/,i..r„,
”•""«> ' ' l !U' "»
M■••//,/ v **" i
' M h,-
•"'CZ.ip'X,!1'"
i.
"'.'11,, '"""Ihy
'ii "i
"••• w.,".'.1 "•"''•r, „n1"; .-.n,
Úrklippan úr Wilmington News
og auk þess sé einangrun þess kost-
ur í þessu tilviki. Eva tekur einnig
fram að Rússar telji einnig ólíklegt
að íslendingar mótmæli hemaði
Rauða hersins í Afganistan eða
mannréttindabrotum í Sovétríkjun-
um, en slíkt vilji Kremlarbændur
forðast í lengstu lög.
Journal.
I lok greinarinnar er spurt hvaða
staður annar sé betur til þess fall-
inn að semja um heimsfrið, þar sem
að íslendingum takist að lifa í sátt
og samlyndi, vopnaburður sé þar
óþekkt fyrirbæri, bókmenntahefðin
rík og yfirlcitt allt á besta veg.
Vonlaust að ná
sér í strák
Brooke Shields barmar sér
Le»kkonan unga, Brooke
Shields, hefur að undanförnu
kvartað sáran undan strákahall-
æri — þeim skorti, sem maður
hefði haldið að hún þyrfti síst
að líða. Hún segist vera viss um
að hún eigi eftir að giftast einn
góðan veðurdag, en hún er ekki
viss um að hún eigi eftir að
bindast neinum jafnheitt og
móður sinni. Tilvonandi biðlar
skyldu því hafa það hugfast að
þeir eru jafnframt að biðla til
tengdamúttu.
Brooke sagði að henni væri
sjaldan eða aldrei boðið út af
bekkjarbræðrum sínum í
Princeton, en þar dvelst hún við
COSPER
— Augnablik, ég verð að fá mér stærri peru í ljósið.
Brooke Shields ásamt móður
sinni, Teri.
nám. Sagði hún að þeir væru
feimnir við að nálgast sig þar
sem hún hefði þegar fengið á
sig kynbombustimpilinn. „Pilt-
arnir hér vilja fara út með
stúlkum, sem þeir geta kynnt
fyrir móður sinni. í þeirra aug-
um væri í hæsta lagi hægt að
sína sig með mér á diskóteki
eða kokteilboði, þar sem öllum
væri ljóst að um mjög laust
samband sé að ræða.“
„Vitaskuld vil ég giftast ein-
hverntímann í framtíðinni, en
nú er ekki rétti tíminn.“ Hún
ítrekaði það ennfremur að hún
ætti erfítt með að ímynda sér
að einhver komi í stað móður
hennar.
Þær geta verið erfíðar stúlk-
umar.
AUGNLÆKNASTOFA OPNAR
Hef opnað stofu í Hafnarstræti 11,
2. hæð. Tímapantanir í síma
622870.
Kristján Þórðarson,
augnlæknir.
Hárvaxtarkremið
frá Dorothy Gleave Ltd.
Englandi
Hárvaxtarkremið hefur þegar gefið frábæran árangur
hérlendis. Við notkun þess verður hárið einnig fallegra
og hraustlegra, það stöðvar hárlos og flösu, og þar sem
eru skallablettir vegna þess að hárrótin er óvirk og f
dvala, fá hársekkirnir og hárrótin næringu og hvatningu
frá hárvaxtarkreminu.
Með því að nudda hárvaxtarkreminu mjúklega í hár-
svörðinn daglega einungis 15 mín. kemur árangur í Ijós
innan mánaðar.
BBC útvarp og sjónvarp og dagblöð í Bretlandi og víðar
hafa sagt frá hárvaxtarkreminu sem þegar hefur vakið
verðskuldaða athygli. Mánaðarskammtur kostar kr.
2.500,- en 2 mánuðir kr. 4.500,-. Shampoo fylgir hverj-
um tveimur glösum af hárvaxtarkreminu. Vinsamlega
sendið greiðslu í póstgíró eða ávísun ásamt nafni og
heimilisfangi til:
Logaland,
Pósthólf 7163, 127 Reykjavík.
Nánari upplýsingar í síma 29015.
P.S. Svörum einnig í allan dag, sunnudag.
KÚPLINGSPRESSUR
KÚPLINGSDISKAR
KÚPLINGSLEGUR
BMW
DAIMLER BENZ
HONDA
DATSUN
Útvegum í allar helstu tegundir
fólks- og vörubifreiða.
Þeiœing Reynsla Þjónusta
FALKIN N
SUOURLANPSBRAUT 8, SIMI 84670