Morgunblaðið - 04.01.1987, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
m
_.s-
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 17-18
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu .. .
Þvílíkt
hneyksli!
Faðir hringdi:
Jóla- og nýárshátíðin er sá tími
ársins sem fólk sér sér helst fært
að setjast niður saman og njóta
fjölskyldulífsins án þess að þurfa
að vera með áhyggjur af vinnu,
námi og öðru því sem það fæst
við dags daglega. Það er líka stað-
reynd að fólk notar mikið af
þessum frítíma sem gefst yfir
hátíðimar saman fyrir framan
sjónVarpið. Nú hefði mátt ætla
að forráðamenn sjónvarpsstöðv-
anna tveggja tækju tillit til
þessarar staðreyndar og reyndu
að velja efni með þeim hætti að
það sé við hæfi almennings. En
viti menn, hvað gerist hjá ríkis-
stofnuninni Sjónvarpið, sem
státar sig stundum af því að vera
fjölmiðill „allra landsmanna"? Á
nýársdag er þar sýnt leikrit sem
varla getur talist við hæfi margra
landsmanna og alls ekki yngstu
kynslóðarinnar. En það virðist líka
vera takmark í sjálfiim sér á þeim
bæ að ganga fram af fólki með
meiri glæsibrag á ári hveiju. Ég
ætla svo sem ekki að fara fram
á að efni af þessu tagi verði alis
ekki sýnt í sjónvarpinu. Vel getur
að einhverjir afbrigðilegir hópar
hafi unun af að horfa á þetta, og
þeir verða víst að fá sitt eins og
aðrir, en sem venjulegur borgari
þá hlýtur maður að geta gert þá
kröfu að á hátíðardegi eins og
nýársdegi reyni dagskrárgerðar-
menn ljósvakafjölmiðlanna að
setja saman dagskrá sem sé við
hæfí venjuíegra flölskyldna. Að
minnsta kosti ef þeir telja sig
vera fjölmiðla „allra landsmanna".
Kvenlakkskór
týndust á ný-
ársnótt
HerdSs Sif Þorvaldsdóttir
hringdi.
Ég týndi svörtum kvenlakks-
kóm á nýarsnótt á leiðinni frá
Stýrimannastíg að Reynimel.
Finnandi vinsamlegast hafí sam-
band í síma 25483/83185.
Nokkrar
spurningar til
forráðamanna
sjónvarpsins
Guðmundur Gíslason hringdi.
Mig langar til að leggja nokkr-
ar spumingar fyrir forráðamenn
Sjónvarpsins. Hver ber ábyrgð á
sýningu leikritsins er sýnt var á
nýársdagskvöld?
Lagði Kvikmyndaeftirlit ríkis-
ins blessun sína yfír þá sýningu?
Er þetta kannski upphaf þess
sem koma skal á nýju ári?
Er þetta að frumkvæði kvik-
myndasnillingsins og menningar-
frömuðsins Hrafns Gunnlaugs-
sonar, sbr. Blóðrautt sólarlag?
Ef svo er væri æskilegt að sjón-
varpið arfleggi Svía að Hrafni og
allri hans menningu, sbr. fréttir
frá Svíþjóð af Skjækjunni og böðl-
inum. Þetta virðist gott framlag
Sjónvarpsins við vágestinn eyðni
og ber höfundi og öðrum aðstand-
endum sfnum gott vitni.
Stefáns
Jökulssonar
saknað
Útvarpshlustandi hringdi:
Hvemig stendur á því að maður
heyrir ekki oftar í Stefáni Jökuls-
syni? Hann er einn af okkar bestu
útvarpsmönnum.
Abending til
Stöðvar tvö
Hrönn og Dísa hringdu og
kvörtuðu yfír því að Myndrokk á
Stöð tvö væri læst. Einnig vildu
þær koma þeirri ósk áleiðis til
Stöðvarinnar að endurtekinn yrði
þátturinn með Don Johnson.
Gleraugu
týndust á að-
fangadag
Margrét hringdi:
Ég varð fyrir því óláni að týna
gleraugunum mínum á aðfanga-
dag og kemur það sér mjög illa
fyrir mig. Þau vom í dökkbrúnu
hörðu hulstri og týndust líklega
hjá Fossvogskirkjugarði, Klepps-
spítala eða á Blómvallagötu.
Finnandi vinsamlegast hafí sam-
band í síma 12124.
Þakkir til
Sverris Storm-
skers
Bryndís hafði samband:
Ég vil þakka Sverri Stormsker,
stórlistamanni og frábæmm húm-
orista, fyrir mjög góða og auð-
heyranlega mjög vel unna plötu
sem var að koma inn á markað-
inn. Þar er að fínna söng tiifínn-
ingamikils manns sem ristar mjög
djúpt í sálina. Söngur um sorg,
kvíða og tregablandna gleði er
meginefni lífsleiðarinnar. Ljóst er
að höfundur hefur í flestum tilfell-
um verið þungt haldinn í tilfínn-
ingalífi sínu er hann samdi (orti)
efnið á plötuna. Þessi plata er ein
sú besta á hljómplötumarkaðinum
þessa stundina og einnig allra
tíma. Mæli ég eindregið með því
að fólk fjárfesti í slíkum kosta-
grip og um leið heilu listaverki.
Vísa í tilefni
áramótanna
Elín Guðmundsdóttir hringdi:
og vildi koma á framfæri vísu, í
tilefni áramótanna, sem hún
mundi úr æsku sinni. Elín er 92
ára gömul.
Af hvaða lesti er hneykslið mest?
Óðar þegar hátíð hallar
heyra má um götur allar,
þar sem einn til annars kalian
Gleðileg rest, gleðileg rest!
Vísan er eftir Lárus Thoraren-
sen skáld en hann þá kennari á
Isafirði.
Eykon alltaf
traustur
Sjálfstæðismaður i
Reykjavík hringdi:
Þeir eru ekki margir þing-
manna okkar sjálfstæðismanna
sem sjaidan eða aldrei falla f ríkis-
forsjásgrjfyuna. Einn þeirra er þó
tvímælalaust Eyjólfur Konráð
Jónsson. Með andstöðu sinni við
hallarbyggingar ríkisins og ríkis-
stofnana, nú síðast forljótum
kassa á vegum Alþingis, sem ekk-
ert erindi á í miðbæ Reykjavíkur,
hefur Eykon sýnt og sannað enn
einu sinni að hann er trausts verð-
ur.
Hefur fuglafóðrið
nýst nógu vel?
Erlingur Þorsteinsson læknir
hringdi:
Velvakandi góður.
í framhaldi af greininni sem þú
varst svo vænn að birta fyrir mig
í dálkum þínum 28. nóv. sl. og
nefndist „Fuglakomið kemur" lang-
ar mig til að segja frá því að það
kom til landsins skv. áætlun þó að
það dróst að ná því úr skipunu um
tvo daga vegna óviðris. Þegar kom-
ið svo kom í land reyndist það mun
grófkomaðra en ætlast var til skv.
sýnishomi af maískurli sem Fóður-
blandan sendi til Hamborgar.
Ég var afar leiður og vonsvikinn
yfír þessu. Að vísu var komið ekki
allt jafn gróft og all mikið af minna
kominu minnan um. Eftir að ég
hafði fengið dálítið af þessu komi
f hendumar hafði ég samband við
Ævar Petersen, fuglafræðing, og
bar undir hann hvort fuglunum
gæti orðið meint af þessu fóðri.
Svar hans var eins og ég bjóst við
að þeir mundu aðeins éta það sem
þeir réðu við og leyfa hinu. Ég fór
svo að gefa fuglunum þetta kurl
ásamt öðru eldra og fíngerðara sem
ég dreifði skammt frá. Þeir vora
að vfsu fljótari með það fíngerðara
en kláruðu þó nýja kurlið að mestu.
Þegar maís er kurlaður myndast
alltaf nokkuð af salla og mjöli, sem
fer forgörðum í snjónum þegar gef-
ið er. Kurlið þarf að sigt vel og það
er næstum ekkert mjöl í því sem
kom frá Hamborg, en það hefur
oft verið all mikið af mjöli og salla
í þvf kurli sem verið hefur hér á
boðstólnum einkum fyrr á árum.
Ég ákvað svo eftir nokkrar vanga-
veltur að senda sekki af þessu nýja
maískurli til bamaskólanna og sem
beðið höfðu eftir fuglafóðrinu alltof
lengi. Þriú fyrirtæki hafa pakkað
samskonar fuglakomi í eins kíló
poka til dreifíngar í verslanir.
Nokkrir fuglavinir hafa hringt til
mfn og kvartað undan þessu grófa
fóðri og kveðið fuglana trega til að
borða það, og hef ég reynt að skýra
málavexti. Fóðurblandan kvartaði
strax við hina þýsku framleiðendur
og gerðu þeir þegar tilraun með
nýja framleiðslu og sendu sýnis-
homa af henni. Forstjóri Fóðurblön-
dunnar hefur tjáð mér að
komastærðin sé mjög hæfíleg og
er nú von á nýrri sendingu með
skipi um 10. þessa mánaðar. Að
endingu langar mig til að biðjast
fyrir kveðju til bamaskólanna og
vona að þeir láti mig vita um þetta
fóður sem Sólskríkjusjóður sendi
hefur ekki nýst þeim nógu vel og
mun ég þá senda aukapoka hið
bráðasta.
ENSKUNÁMSKEIÐ byrja 19. janúar.
Kennt er í litlum hópum tvisvar í viku.
Kennari er Anna Cosser.
Upplýsingar í síma 36016. Upplýsingar um
enskuskóla í Englandi í sama síma.
------------1----------------------&
tð* °rðui
ð^
ÞÁ ER BlBLÍUSKÓLIINn KJÖRIIN
LEIÐ FYRIR ÞIG!
innRiTun er hafiin ávorönn.
EIN Á HEININI BJÓÐAST:
a) Rómvetjabréfid.
b) Kristindómur og stefnur i samtímanum.
c) Lúthcr, sidbótin og lútherskur kristindomur.
INNRITUN FER FRAM A AÐALSKRIFSTOFUNNI
AMTMANNSSTÍG 2B, REYKJAVÍK. SÍMI 13437
Evangelisk-lútherski Bibliuskólinn
v>
Tannlæknastofa mín
er flutt frá Miklubraut 1 að Skóla-
vörðustíg 6b, 3. hæð. Símanúmerið
verður óbreytt 21645.
Sigurður Jónsson,
tannlæknir.
Byrjendanámskeið
í Karate
Námskeið fyrir byrjendur
í Goju Ryu Karate Do eru
að hefjast
Karate er skemmtileg íþrótt, afbragðs líkamsþjálf- V
un og ein fullkomnasta sjálfsvörn sem völ er á
jafnt fyrir konur sem karla á öllum aldri.
Innritun og upplýsingar í Ármúla 36, III. hæð
(gengið inn Selmúlamegin) og í síma 35025 vikuna
5.-9. janúar milli kl. 19 og 21 fyrir byrjendur.
Eldri félagar athugið að æfingar
hefjast 5. janúar.
Karatefélag Reykjavíkur,
Ármúla 36, .108 Reykjavík.
Simi91-35025.