Morgunblaðið - 04.01.1987, Síða 72
X-Jöfðar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
SUNNUDAGUR 4. JANUAR 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Frá Seyðisfirði
Fiskverka-
fólki sagt
upp störfum
MÖRG fiskvinnslufyrirtæki,
„^meðal annars á Húsavík og i
Siglufirði, hafa gripið til þess
ráðs að segja fiskverkafólki upp
störfum frá og með mánudegin-
um vegna hráefnisskorts af
völdum verkfalls sjómanna. Það
er í samræmi við ákvæði í kjara-
samningi fiskverkafólks frá þvi
í febrúar á síðasta ári þess efnis
að hin almenna regla um fjög-
urra vikna uppsagnarfrest gildi
ekki, verði hráefnisskortur í
vinnslunni af ófyrirséðum eða
óviðráðanlegum orsökum.
Samkvæmt kjarasamningnum
fær fiskverkafólk atvinnuleysis-
bætur frá fyrsta degi atvinnuleysis
í tilfellum sem þessum, samkvæmt
- ^pplýsingum Ágústs H. Elíassonar,
framkvæmdastjóra Sambands físk-
vinnslustöðvanna.
Samningafundur í kjaradeilu sjó-
manna og útgerðarmanna stóð til
miðnættis aðfaranótt laugardagsins
og hófst aftur klukkan 10 á laugar-
dagsmorgun.
JHandtöku-
málið í
rannsókn
Verkfall farmanna hefst annað kvöld náist ekki samningar:
Þijú erlend leigxtskip
halda áfram flutningum
VERKFALL farmanfia, sem kemur til framkvæmda á mánu-
dagskvöld, náist ekki samningar fyrir þann tíma, hefur
ekki áhrif á flutninga Eimskipafélagsins og skipadeildar
Sambandsins fyrr en um miðjan mánuðinn. Floti Skipa-
útgerðar ríkisins mun hinsvegar stöðvast fljótlega eftir þessa
helgi, að sögn Guðmundar Einarssonar forsljóra.
„VIÐ höfum áhyggjur af þessu
máli en getum lítið sagt eins og
stendur þar sem við höfum ekki
ennþá næga vitneskju um hvað
olli þessu," sagði Fredrika
Schmadel, hjá vegabréfadeild
bandaríska sendiráðsins í
Reykjavík, þegar hún var spurð
um viðbrögð sendiráðsins við þeim
atburði að tvitug islensk stúlka,
Harpa Högnadóttir, er starfaði í
/S^rslun Islensks markaðar í
Chicago, var handtekin í vinnu
og fangelsuð vegna ófullnægjandi
vegabréfsáritunar.
„Það er verið að rannsaka málið
og áður en þeirri rannsókn er lokið
getum við ekkert sagt um þetta mál,“
sagði hún.
„Það hefur ekkert borist formlega
til ráðuneytisins um þetta mál en það
verður væntanlega athugað eftir
helgi,“ sagði Ingvi S. Ingvarsson,
ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis-
ins. „En af fréttinni í Morgunblaðinu
að dæma er þetta forkastanleg fram-
koma hjá yfírvöldum í Chicago."
Ekkert skipa Sambandsins
verður hér við land í næstu viku,
að sögn Ómars Jóhannssonar
framkvæmdastjóra skipadeildar.
Fyrstu skipin koma til landsins
um miðjan mánuðinn og í kringum
25. janúar gæti allur flotinn verið
stöðvaður standi verkfallið enn.
Tvö erlend leiguskip, Este-Trader
og Jan, eru nú í flutningum fyrir
skipadeildina og mun verkfallið
ekki hafa áhrif á siglingar þeirra
þar sem áhafnirnar eru erlendar.
Ómar sagði að erlendu skipin
myndu halda áfram sínum reglu-
bundnu verkefnum. Áætlun þeirra
yrði ekki breytt til að anna þeim
ferðum sem féllu niður vegna
verkfallsins.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskipafélagsins, sagði að Foss-
arnir myndu flestir stöðvast í
Reykjavík frá 16.-20. janúar, en
síðustu skipin kæmu til landsins
í lok mánaðarins. „Við höfum ver-
ið með tvö erlend leiguskip í
verkefnum og mun annað þeirra
væntanlega halda uppi siglingum
frá Bandaríkjunum til íslands og
meginlandsins. Hitt skipið er hins-
vegar komið til Þýskalands í
eftirlit þar sem við áformum að
leigja það án áhafnar. Okkur hefn-
ist fyrir að ætla að manna þetta
skip íslenskri áhöfn því hún átti
að sækja skipið um miðjan mánuð-
inn, en nú eru allar líkur til að
það verði innlyksa," sagði Hörður.
Skipaútgerð ríkisins hefur eng-
in erlend leiguskip í flutningum.
Þar sem öll skip útgerðarinnar eru
í strandflutningum munu þau
verða meðal þeirra fyrstu sem
stöðvast í verkfallinu. Guðmundur
Einarsson sagði að í fyrri verk-
föllum hefði verið veitt leyfi til
þess að skipin mættu ljúka ferðum
í Reykjavík.
Islendingar óttast krabba-
mein mest allra sjúkdóma
ÍSLENDINGAR eru hræddastir
við að fá krabbamein sam-
kvæmt könnun sem Hagvangur
gerði fyrir tímaritið Heilbrigð-
ismál. í úrtakinu voru eitt
þúsund karlar og konur á aldr-
inum 18-69 ára og fengust svör
frá 782.
Ef sleppt er 115, sem sögðust
ekki vita hvað þeir óttuðust mest,
voru 57% hræddastir við að fá
krabbamein, 15% óttuðust al-
næmi, 9% hjarta- og æðasjúk-
dóma, og 19% aðra sjúkdóma.
Mestur var óttinn við alnæmi í
yngsta aldurshópnum, 18-20 ára,
en þar óttast 34% alnæmi mest
allra sjúkdóma, 17% þeirra sem
eru 25-29 ára óttast alnæmi mest,
en aðeins 10% þeirra sem eru
30-69 ára. Konur og karlar virð-
ast óttast alnæmi álíka mikið, 13%
kvenna og 17% karla óttast al-
næmi mest. Alnæmisótti er meiri
í dreifbýli en i þéttbýli úti á landi
og á höfuðborgarsvæðinu, 21%
óttast alnæmi í dreifbýlinu, 17%
í þéttbýli úti á landi og 13% á
höfuðborgarsvæðinu. Langskóla-
gengið fólk virðist óttast sjúk-
dóminn síður en þeir sem hafa
styttri skólagöngu.
Fáir óttast hjarta- og æðasjúk-
dóma, sem teljast þó helmingur
allra dánarorsaka, eða veikindi og
örkuml af völdum slysa. 11,9%
karla óttast hjartasjúkdóma og
5,8% kvennanna. Þá óttast lítill
minnihluti sjúkdóma svo sem
Parkinson-veiki, sykursýki, heila-
og mænusigg. Konur virðast
hræddari við sjúkdóma en karlar,
19,4% karlanna segjast ekki
hræddir við neinn sjúkdóm en
6,6% kvennanna.