Morgunblaðið - 13.01.1987, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
7
Dr. Þórir Kr. Þórðarson
Ritum
sköpunar-
söguna
NÁMSGAGNASTOFNUN hefur
gefið út ritið Sköpunarsagan í
fyrstu Mósebók, ný viðhorf, eftir
dr. Þóri Kr. Þórðarson prófessor.
í fréttatilkynningu segir að rit
þetta sé skrifað með þarfir grunn-
■skólakennara í huga en nýtist
einnig öðrum sem áhuga hafa á
efninu. Dr. Þórir fjallar hér einkum
um sköpunarsöguna í 1. kap. 1.
Mósebókar, en einnig er vikið að
hugtakinu sköþun í ritningunni,
hver sé hin kristna sköpunartrú og
hvernig greina megi í sundur ræðu
náttúruvísinda um sköpun og tal
Biblíunnar um tilgang alls lífs. Er
hér um mikilvægt innlegg að ræða
í umræðuna um sköpunartrú og
náttúruvísindi.
Skemmdar-
verká
íbúðar-
húsum
Borg í Miklaholtshreppi.
BÆRINN Skjálg í Kolbeinsstaða-
hreppi hefur um nokkurt árabil
verið í eyði en hús hafa verið
notuð til sumardvalar af eigend-
um. Þokkalegt íbúðarhús er þar
ásamt útihúsum.
Aðfaranótt si. sunnudags hafa
einhveijir sem haldnir eru skemmd-
arfýsn komið þangað heim, gengið
var á íbúðarhúsum með bareflum
og gijóti og voru brotnar í því níu
rúður. Lögreglan í Stykkishólmi
kannaði þetta mál en er allt óvíst
hveijir hafa verið þarna að verki.
Páll
I Drabert
siturðu rétt.
Sá sem ekki situr rétt nær ekki
fullum afköstum í vinnunni. í Dra-
bert siturðu rétt. Tökum sem
dæmi EDL stólinn. Hann er sér-
hannaður fyrir þá sem þurfa að
sitja lengi og halda fullri einbeit-
ingu, til dæmis við tölvuvinnslu,
vélritun og stjórnun. Hann er sér-
hannaður fyrir vöðvauppbygg-
ingu líkamans og hreyfiþörf hans,
þannig að þú getur ekki annað en
setið.rétt í honum. Þú hvílist og
slakar á í vinnunni í Drabertstóln-
um.
..á
Er ekki kominn
tími til að skipta?
Þú veist að það er
ekki ráð nema í
tíma sé tekið.
Alþjóðleg búsáhalda- og gjafavörusýning
„International Spring Fair“
Haldin í Birmingham i Englandi dagana 1.-5. febrúar 1987.
Tiska framtíðarinnar
„Future Fashion Scandinavia Fair“
Haldin í Kaupmannahöfn í Danmörku dagana 19.-22. febrúar 1987.
Alþjóðleg pípu- og hitalagnasýning
„ISH“
Haldin i Frankfurt i Þýskalandi dagana 17.-21. mars 1987.
Alþjóðleg matvælasýning
„Tema ’87 International Food Fair“
HaldiniKaupmannahöfniDanmörkudagana 10.-14. april 1987.
Húsgagnasýning Norðurlandanna
„Scandinavia Furniture Fair“
Haldin í Kaupmannahöfn i Danmörku dagana 7.-11. maí 1987.
Viö veitum allar
upplýaingar um aðr-
ar heimssýningar
fyrir öll fyrirtæki.
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17
Sími 26611