Morgunblaðið - 13.01.1987, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
Yfirlýsing og athuga-
semd vegna Staksteina
eftirÁrna
Gunnarsson
í Staksteinum Morgunblaðsins
laugardaginn 10. janúar eru birtar
hugleiðingar um grein, sem var á
baksíðu Alþýðublaðsins föstudag-
inn 9. janúar. Fyrirsögn Staksteina
er „Nýr kraftakarl". Þar er vegið
ósæmilega að Jóni Sigurðssyni,
fyrrum forstjóra Þjóðhagsstofnun-
ar, sem nú skipar efsta sætið á
framboðslista Alþýðuflokksins í
Reylqavík vegna væntanlegra Al-
þingiskosninga. Honum eru gerðar
upp skoðanir og fullyrt að hann sé
höfundur baksíðugreinar Alþýðu-
blaðsins, sem var skrifuð undir
dulnefninu „Steintak". Jón Sig-
urðsson er ekki höfundur grein-
arinnar. Þessa grein skrifaði Öm
Bjamason, rithöfundur, sem verið
hefur blaðamaður á Alþýðublaðinu
um nokkurt skeið. Yfirlýsing frá
honum fylgir hér með.
Þetta er í annað skipti að Morg-
unblaðið segir Jón Sigurðsson
höfund nafnlausra greina í Al-
þýðublaðinu. Þegar blaðið hefur
slegið þessu föstu er fundið tilefni
til árása á Jón Sigurðsson, sem eru
óvenjulega rætnar. Þetta bendir til
þess, að Morgunblaðið hafi nokkrar
áhyggjur af framboði Jóns Sigurðs-
sonar í Reykjavík og leiti allra leiða
til að fínna á honum höggstað. En
hér hefur blaðið gengið of langt.
Það tekur nafnlausa grein og full-
yrðir að höfundur hennar sé annar
en greinina skrifaði. Til að bæta
gráu ofan á svart birtir Morgun-
blaðið mynd af fyrirsögn greinar-
innar, haus Alþýðublaðsins og setur
þar inn mynd af Jóni Sigurðssyni.
Og ekkert skortir á fullyrðing-
amar. í formála Staksteina segir:
„Á Alþýðublaðsgreininni er nokkur
viðvaningsbragur, en höfundarein-
kenni leyna sér ekki; þama festir
Jón Sigurðsson, efsti maður á lista
Alþýðuflokksins í Reykjavík, hugs-
anir sínar á blað.“ Þá segir í
greininni: „Og enn segir Jón Sig-
Árni Gunnarsson
urðsson eða Steintak:" Og aftur er
fullyrt: „Steintak eða Jón Sigurðs-
son segir einnig:"
Þegar Morgunblaðið fullyrti í
fyrra skiptið að Jón Sigurðsson
V estmannaeyjar:
Talsverð umsvif
hjá frístundabændum.
Vestmannaeyjum.
VESTMANNAEYINGA er ekki
oft getið þegar fjallað er um
landbúnaðarmálin og þeir hafa
svo sem ekki verið að barma
sér yfir þeim hrellingum sem
nú ganga yfir þar á bæjum.
Sjávarútvegurinn hefur verið
vettvangur Eyjamanna og þeir
stundum barið lóminn þar með
öðrum. Engu að síður er tals-
verð búfjáreign í Eyjum og þar
eru all margir fristundabændur
sem lifa sig inn í rollustand,
hestastúss og raunar ýmislegt
annað.
Á vegum bæjarins er starfandi
svokölluð landnytjanefnd og auk
þess að annast um gerð forða-
gæsluskýrslna sér hún um „dýra-
tal“. Dýrin em jú skráð og flokkuð
rétt eins og mannfólkið. Sam-
kvæmt nýjastu talningu voru um
áramótin 510 ær búsettar í Eyj-
um, 28 hrútar og sauðir og 107
gemlingar. Hestar reyndust vera
10 talsins, hryssur 2 ogfolöld 3.
Fiðurfé á líka sína fulltrúa og
voru varphænur 2.400 talsins í
alifuglabúinu Sæfelli sem nýlega
tók til starfa hér. Endur og gæsir
töldust 35. Þá eru hér 40 angóru-
kanínur sem Valgeir Jónasson
hefur ræktað og annast um af
mikilli umhyggju. Heyforði mæld-
ist vera 550 hestburðir þurrheys
og 6 hestburðir af votheyi
-hlq.
„Þrátt fyrir yfirlýsingn
Jóns Signrðssonar um
að hann haf i ekki ritað
þá grein, sem hér er
vitnað til, fullyrðir
Staksteinahöfundur að
hann hafi gert það.
Þessi blaðamennska
Morgunblaðsins er ekki
bara óheiðarleg, hún
brýtur í bága við þær
siðareglur, sem blaða-
menn hafa sett sér. Hér
er blaðið að f inna sér
tilefni til að koma höggi
á pólitískan andstæðing
á forsendum, sem eru
rangar og ósannar.“
væri höfundur nafnlausrar greinar
í Alþýðublaðinu svaraði Jón og lýsti
yfir því, að þá grein hefði hann
ekki skrifað. Hann kvaðst ekki hafa
lagt það í vana sinn að skrifa nafn-
lausar greinar og myndi ekki gera
það. Þrátt fyrir þessa yfírlýsingu
segja Staksteinar á laugardag: „í
Staksteinum hefur áður verið vakið
máls á því, að Jón Sigurðsson hafí
birt nafnlausa grein í Alþýðublað-
inu. Hann mótmælti því, að svo
væri. í þeirri grein var ráðist harka-
lega á Seðlabankann, sagt, að hann
sé „orðinn áhrifalaus og gagnslaus"
og þess vegna liggi beinast við „að
leggja hann niður eða sameina
Landsbanka", í gær ritar hann svo
fyrmefnda árásargrein á Sjálf-
stæðisflokkinn undir dulnefni."
Þrátt fyrir yfírlýsingu Jóns Sig-
urðssonar um að hann hafí ekki
ritað þá grein, sem hér er vitnað
til, fullyrðir Staksteinahöfundur að
hann hafí gert það. Þessi blaða-
mennska Morgunblaðsins er ekki
bara óheiðarleg, hún brýtur í bága
við þær siðareglur, sem blaðamenn
hafa sett sér. Hér er blaðið að finna
sér tilefni til að koma höggi á
15
pólitískan andstæðing á forsendum,
sem eru rangar og ósannar.
Það er rétt að benda á grein
Víkverja, sem birtist í Morgun-
blaðinu sama daginn og títtnefndir
Staksteinar. Þar segir orðrétt: „I
umræðum um alþjóðamál hefur at-
hygli beinst mjög að því undanfarin
misseri, sem kallað er disinformati-
on á erlendum tungum. Það er
vísvitandi lygum í því skyni að ná
ákveðnum pólitískum markmiðum
eða spilla fyrir því, sem andstæðing-
urinn er að gera.“ — Varla verður
skrifum Staksteina betur lýst.
Þessi skrif eru langt fyrir neðan
virðingu Morgunblaðsins, sem virð-
ist hafa gert sér far um það á
síðustu árum, að vanda til frétta-
flutnings og greinaskrifa. Morgun-
blaðið ætti að biðja Jón Sigurðsson
afsökunar. Málflutningur Stak-
steina á ekkert skylt við málefna-
lega, pólitíska baráttu á ritvellinum.
Þetta er fölsun, gerð í þeim til-
gangi að koma höggi á pólitískan
andstæðing, sém Morgunblaðið og
sjálfstæðismenn óttast í þeim átök-
um, sem framundan eru. En þessi
andstæðingur er áreiðanlega tilbú-
inn að takast á við hvem sem er
undir fullu nafni. Til þess hefur
hann alla burði.
Að lokum þetta: Getur Morgun-
blaðið greint frá því hver er
höfundur Staksteina sl. laugardag?
Því verður ekki trúað, að ritstjórar
blaðsins hafí skrifað þennan pistil
né vitað um efni hans. Þeir em
þekktir að öðru vinnulagi.
Höfuadur er rítstjórí Alþýðublaðsins
Yfirlýsing
Að gefnu tilefni skal það tekið
fram, að Jón Sigurðsson fyrr-
um forstjóri Þjóðhagsstofnun-
ar, skrifaði ekki svargrein
undir dulnefninu Steintak. Það
gerði ég, undirritaður
Orn Bjarnason, blaðamaður
á Alþýðublaðinu.
LITGREINING MED
CROSFIELD
LASER
LYKILUNN AO VANDADRI LITPRENTUN
MYNDAMOTHF
Hverfisgötu 33 - Sími 91 -20560
Helstu söluaðilar: Bókaversl. JónasarTómassonar (safirði • Bókaversl. Þórarins
StefánssonarHúsavík • Bókval Akureyri • E.Th.Mathiesen Hafnarfirði • Fjölritun
s.f. Egilsstöðum • Kaupfél. Árnesinga h.f. Selfossi • Kjarni Vestmannaeyjum
• Penninn Hallarmúla
MESSAGE C-11
MESSAGEC-12
... KR. 39.800
MESSAGE-rafeindaritvélarnar eru góðar og nýtískulegar, hljóðlátar og
skemmtilegar. Þær hafa sjálfvirkt leiðréttingarminni, þægilegt lyklaborð,
snarpan vinnsluhraða og allt það annað sem prýðir fyrsta flokks
rafeindaritvélar. MESSAGE-ritvélarnareru níðsterkar-og þjónustan
ávallttil staðar. Þess vegna finnurðu MESSAGE-rafeindaritvélarnar ekki
eingöngu í íslenskum bönkum og íslenskum fyrirtækjum - heldur líka í
íslenskum skólum sem þurfa liprar og sterkar kennsluvélar fyrir
nemendursína.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.