Morgunblaðið - 13.01.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
25
Steinn Lárusson í Ósló:
Weinberger:
Vopnasöluhugmyndir út í hött
Washington, New York, Reuter, AP.
Engin vand-
ræði vegna
kuldanna
„ÞAÐ er ekkert annað að segja
um veðrið en það, að frá áramót-
um hefur frostið verið þetta frá
15 upp í 25 gráður. Það er að-
eins mildara í dag, ekki nema
17-18 gráða frost, sól á lofti og
stillilogn. Astandið er því
kannski ekki eins alvarlegt og
ætla mætti af heimspressunni,"
sagði Steinn Lárusson, svæðis-
stjóri Flugleiða í Ósló, i viðtali
við Morgunblaðið.
„Það hafa ekki orðið nein vand-
ræði vegna rafmagnstruflana, ekki
enn a.m.k. og sem betur fer því hér
í Ósló eru mörg hús kynt með raf-
magni. Margir hafa þó aðra kynd-
ingu einnig, t.d. kamínur og annars
konar ofna. Þessir kuldar hér eru
í sjálfu sér ekkert óvenjulegir nema
fyrir það hvað þeir hafa staðið lengi
og það sér ekki fyrir endann á þeim.
Veðurfræðingar segja, að ekki sé
útlit fyrir neinar breytingar fram á
föstudag a.m.k. en lengra fram í
tímann treysta þeir sér ekki til að
spá,“ sagði Steinn.
Steinn sagði, að kuldarnir væru
meiri norðar í landinu og austur
við sænsku landamærin þar sem
frostið hefði mælst allt að 48 gráð-
ur. Ef vind hreyfði væri að sjálf-
sögðu óbærilegt að vera úti við.
„Norðmenn gera ekki mikið af
því að brosa til nágrannanna, Svía,
en það gera þeir þó þegar þeir heyra
kuldatölurnar þaðan,“ sagði Steinn
og bætti því við, að um helgina
hefðu verið sýndar í sjónvarpi
myndir, sem voru teknar á Karli
Jóhann klukkan átta á laugardags-
kvöldi og hefði þar ekki verið sálu
að sjá. Fólk færi helst ekki út úr
húsi að nauðsynjalausu.
Sviss:
Of kalt til
að njóta
frábærs
skíðafæris
ZUrich, frá Önnu Bjarnadóttur,
fréttaritara Morgunblaðsins.
Vetrarkuldinn, sem hefur ríkt
í norðurhluta Evrópu undan-
farna daga, teygði sig suður eftir
álfunni yfir helgina. Bílar fóru
ekki í gang, lestum seinkaði og
fólk fór helst ekki út fyrir húss-
ins dyr í Sviss á mánudagsmorg-
un þegar meðalhiti á láglendi var
um *r20 stig. Kaldast varð í norð-
austurhluta landsins en þar
mældist +41 stig aðfaranótt
mánudags.
Lausamjöllin liggur yfir öllu,
veðrið er bjart og fallegt og skíða-
færið sagt frábært. En kuldinn er
of mikill fyrir aðra en hraustustu
menn. Loftið er þurrt og vindar
hafa blásið snjónum burtu í suður-
hluta Sviss svo að þar er nú mikil
hætta á skógareldum.
Mikil snjókoma í Austur-Evrópu
olli víða glundroða á mánudags-
morgun. Umferðaröngþveiti ríkti í
Vínarborg og skólahaldi á lands-
byggðinni var aflýst. Snjókomu er
spáð í Sviss í dag, en snjórinn um
helgina koma lögreglunni í Winter-
thur vel. Þjófur einn gáði ekki að
sér og skildi eftir spor í snjónum
alla leið frá innbrotsstaðnum og
heim til sín. Þar hafði lögreglan
hendur í hári hans.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, hélt áfram að senda
írönum vopn þrátt fyrir and-
stöðu nokkurra helstu ráðgjafa
sinna og eftir að ljóst var að
gíslar voru ekki látnir lausir í
Líbanon, eins og lofað hafði ver-
ið, að því er William Cohen,
öldungadeildarþingmaður segir.
Cohen á sæti í rannsóknarnefnd
þeirri er öldungadeildin hefur skip-
að til að rannsaka íransmálið og
segir hann að forsetinn eigi hrós
skilið fyrir að vilja fá gísla látna
lausa í Líbanon og að vilja ná sam-
bandi við íranska stjórnmálamenn,
London, AP.
BANDARÍKJADOLLAR lækkaði
í gær gagnvart flestum helztu
gjaldmiðlum heims. Síðdegis í
gær kostaði brezka pundið
1,4895 dollara (1,4755), en ann-
ars var gengi dollarans þannig,
að fyrir hann fengust 1,89925
vestur-þýzk mörk (1,9180),
en því miður hafi hann haft að
engu orð Shultz utanríkisráðherra,
Weinbergers varnarmálaráðherra
o.fl., en stuðst við ráðleggingar
„leikmanna". Fram hefur komið að
í september 1985 hafi bandarísk
stjórnvöld átt von á að 5 banda-
rískir gíslar yrðu látnir lausir í
Líbanon, en aðeins einum var
sleppt. Caspar Weinberger varnar-
málaráðherra staðfesti í sjónvarps-
þætti sl. sunnudagskvöld, að hann
hefði álitið vopnasöluhugmyndirnar
út í hött og ekki haft trú á að hóp-
arnir er hafa hefði átt samband við
í íran væru til.
1,58825 svissneskir' frankar
(1,6037), 6,3200 franskir frankar
(6,3825), 2,1430 hollenzk gyllini
(2,1630), 1.344,75 lírur (1.358,50),
1,3682 kanadískir dollarar
(1,3698) og 157,05 jen (158,35).
Gullverð hækkaði og var
410,50 dollarar únsan (404,00).
Bandarískir fjölmiðlar halda því
nú fram, að mun fleiri menn séu
flæktir í málið er varðar vopnasöl-
una til írans, en áður hefði verið
vitað og að milljónir dollara virðist
hreinlega hafa gufað upp.
Samkvæmt skoðanakönnun er
vikuritið Time birti sl. sunnudag
hefur dregið úr vinsældum Reagans
forseta og sögðust 60% aðspurðra
vilja að næsti forseti landsins hefði
önnur mál á stefnuskrá sinni og
41% áleit að demókrati ætti að
gegna embættinu.
Svíþjóð:
Fjárlagahalli
221 milljarður
RÍKISSTJÓRN jafnaðarmanna i
Svíþjóð lagði í gær fram fjár-
lagafrumvarp sitt fyrir árið 1987
og hljóðar það upp á rúmlega
2.000 milljarða isl.kr. og er halli
á þvi talinn verða um 221 millj-
arður ísl.kr.
Fjármálaráðherrann, Kjell-Olof
Feldt, sagði að mikils aðhalds væri
gætt í þessu frumvarpi. Verðfall
varð á verðbréfamarkaði er fregnir
bárust af fjárlagafrumvarpinu og
vextir hækkuðu annan daginn í röð.
Gengi gjaldmiðla
^ Sýning - Sýning
Sýnum í þessari viku
allar gerðir símkerfa
Kanda EK-516 Kanda EK-616 Kanda EK-1232 Kanda EK-2064
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800
Fyrir stóru
fyrirtækin. 20 línur
og 64 símtæki.
Fullkomið kerfi
með mikla
möguleika.
Fyrir miðlungsstór
fyrirtæki.
5 bæjarlínur og
16 símtæki.
Nýjasta kerfið sem
sameinar kosti stóru
símkerfanna og
verð litlu kerfanna.
12 bæjarlínur og
32 símtæki. Eitt
fullkomnasta
símkerfið með
fjölda möguleika.
Við önnumst uppsetningar,
breytingar og viðgerðarþjónustu.
Komum á staðinn, ráðleggjum og
gerum tilboð.
Eurokredit - Kaupleigusamningar.
VIÐ TOKUM VEL Á MÓTIÞÉR