Morgunblaðið - 13.01.1987, Síða 27
Tser íiAimAi ,ei HUOAauaanw .aiOAiaviaoHo?,-;
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
Samkomulag á fundi EMS um helgina:
Markið hækkar
um 3% en frankinn
helzt óbreyttur
Briissel, Reuter, AP. ^
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR aðildarlanda EMS (Evrópska peninga-
kerfisins) akváðu í gærmorgnn að hækka gengi fjögurra sterkustu
gjaldmiðlanna þar gagnvart öðrum gjaldmiðlum EMS og binda með
því enda á þann glundroða, sem kominn var upp í gjaldeyrissvið- ■
skiptum milli landanna.
I síðustu viku snarféll franski
frankinn gagnvart vestur-þýzka
markinu. Urðu vinnudeilumar í
Frakklandi mjög til þess að rýra
traust manna á frankanum, en
markið hækkaði aftur á móti dag
frá degi vegna vaxandi eftirspum-
ar, ekki sízt sökum veikrar stöðu
Bandaríkjadollars.
Samkvæmt því samkomulagi,
sem gert var í gær, var gengi vest-
ur-þýzka marksins og hollenzka
gyllinisins hækkað um 3% og
belgíska- og lúxemborgarfrankans
hækkað um 2%. Gengi franska
frankans, ítölsku límnnar, dönsku
krónunnar og írska pundsins var
hins vegar látið halda sér eins og
það hafði verið.
Það er fyrst og fremst franska
stjórnin, sem hefur fagnað þessa
samkomulagi, því að með því hefur
gengisfellingu franska frankans
verið afstýrt. Það er einnig talið
vera stjórn Belgíu mjög að skapi,
þar sem hækkun belgíska frankans
gerir henni auðveldara um vik um
að framfylgja aðhaldssamri stefnu
sinni í efnahags- og ríkisfjármálum.
Evrópska peningakerfmu var
komið á fót 1979 og var því ætlað
að treysta stöðu gjaldmiðla aðild-
arríkjanna, sem em átta. Það setur
ákveðin takmörk við því, hve mikið
gengi gjaldmiðla þeirra má hækka
sín í milli og gerir þá kröfu, að
seðlabankar aðildarlandanna grípi
til ráðstafana til þess að halda
gjaldmiðlum þeirra innan þessara
marka, ef nauðsyn krefur.
Mark Eyskens, fjármálaráðherra
Belgíu, sem var í forsæti á fundi
EMS í gærmorgun, sagði að viðræð-
umar hefðu bæði verið langar og
erfiðar. Hann kvaðst hins vegar
vera þess fullviss, að það samkomu-
lag, sem náðist á fundinum, yrði
til þess að koma á jafnvægi á ný í
gjaldeyrisviðskiptum í Vestur-
Evrópu.
Filippseyjar:
Ovægin gagnrýni á ekki
heima í ríkisfj ölmiðlum
- segir talsmaður Aquino forseta
Manila, AP.
HIN opinbera fréttastofa á Filippseyjum sakaði í gær uppreisnar-
menn kommúnista um að hafa drepið tvo menn á eyjunni Mindanao
á sunnudag. Þykja þetta slæm tiðindi í Ijósi þess, að i dag eiga samn-
ingamenn stjórnvalda og kommúnista að taka upp aftur viðræður í
Manila.
Miklar umræður hafa orðið að
undanfömu um drög þau að stjóm-
arskrá sem kosið verður um 2.
febrúar nk. Hefur Corason Aquino,
forseti, hvatt til þess að drögin verði
samþykkt, en stjórnarandstæðingar
til þess að þau verði felld. Sl. sunnu-
dag efndu um 30.000 vinstrisinnar
og um 3.000 stuðningsmenn Marc-
osar, fyrrverandi forseta, til
mótmælaaðgerða sitt í hvoru lagi,
þar sem fólk var hvatt til að fella
drögin.
Juan Enrile, fyrmm varnarmála-
ráðherra Filippseyja, var gestur á
vikulegum fundi fréttamanna í
gærmorgun og var hann þar harð-
orður í garð stjómarinnar og
sagðist vilja láta fella stjómarskrár-
drögin. Fundi þessum er venjulega
sjónvarpað í ríkissjónvarpinu, en
svo var ekki í þetta sinn. Virðast
stjómvöld vera að herða tök sín á
fjölmiðlum og sagði Teodoro Ben-
igno, talsmaður forsetans, í gær að
eðlilegt væri að koma í veg fyrir
óvægna gagnrýni á stjóm landsins,
slíkt væri gert í ýmsum Evrópulönd-
um, s.s. Frakklandi.
Tilkynnt var í gær að dagblaði
sem stutt hefur Marcos fyrrum for-
seta, yrði lokað um næstu mánaða-
mót. Yfírvöld yfirtóku blaðið á
síðasta ári og bera því nú við að
mikið tap sé á rekstrinum og ekki
borgi sig að gefa blaðið út.
Corason Aquino, forseti, veifar til mannfjölda, áður en hún held-
ur ræðu til stuðnings drögunum að stjórnarskrá sem kjósa á um 2.
febrúar.
Farymann
Smádíselvélar
5.4 hö við 3000 SN.
8.5 hö við 3000 SN.
Dísel-rafstöðvar
3.5 KVA
irfir N
©QyirÐmDgjyir
Vesturgötu 16,
sími 14680.
HITAMÆLAR
sm
Vesturgötu 16,
sími 13280.
VERZLUNARSKÓLA
ÍSLANDS
ÖLDUNGADEILD
Kennsla hefst 19. janúar.
Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar: Bókfærsla,
enska, hagfræði, íslenska, efnafræði, stærðfræði,
stjórnun, vélritun, þýska.
STARFSNÁM
Kennsla hefst 26. janúar.
BÓKHALDSBRAUT:
Verslunarreikningur, bókfærsla I, rekstrarhag-
fræði, tölvunotkun, bókfærsla II, bókfærsla III,
tölvubókhald, kostnaðarbókhald.
SKRIFSTOFUBRAUT:
Vélritun I, bókfærsla I, verslunarreikningur,
íslenska, vélritun II, ritvinnsla, lögfræði, skjala-
varsla og stjórnun, enska.
Innritun er hafin. Ekki komast fleiri en 25 á hvert
námskeið.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Verzlunarskól-
ans að Ofanleiti 1, 108 Reykjavík.
AÐEINS ÞESSA VIKU
marimekko
iittala
30 % AFSLÁ TTUR
AF FATNAÐI OG TÖSKUM
Eldri gerðir af glösum og ská/um
Hálsfestar frá AAR/KKA
KRISTJAN SIGGEÍRSSON
GJAFAVÖRUDEILD
Laugavegi 13 Reykjavík Sími 25870