Morgunblaðið - 13.01.1987, Page 30

Morgunblaðið - 13.01.1987, Page 30
raer haúmai. sr íirroArnHöifltí .öiga.;h'/i;;)íiom MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987 Almennur félagsfundur Dagsbrúnar: Nýir kjarasamningar sam- þykktir með þorra atkvæða Frá félagsfundi Dagsbrúnar í gær. Á neðri myndinni er Þröstur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar, í ræðustól og við borðið sitja Guðmundur J Guðmunds- son, formaðurDagsbrúnar og Halldór Björnsson vara- formaður. NYGERÐIR kjarasamningar verkamannafélagsins Dagsbrúnar við Vinnuveitendasamband íslands og Vinnumálasamband samvinnufé- lagana voru samþykktir á almennum félagsfundi í Dagsbrún í gær með atkvæðum þorra fundarmanna. 34 greiddu atkvæðiu á móti samningunum á fundinum, sem var nokkuð vel sóttur. I upphafí fundar gerði Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Dags- brúnar, grein fyrir efni samning- ana, en um var að ræða aðalkjara- samning og níu sérkjarasamninga. Sagði hann að Dagsbrún hefði náð fram 3-5% meiri kauphækkunum á launatöxtum sérkjarasamninga, en kjarasamningur ASÍ og VSÍ frá því í desember kveður á um og vakta- vinna hækkaði um meira en þetta. Þröstur sagði að sá hópur sem færi verst út úr þessum samningum, væru þeir sem hefðu 26.500-28.000 krónur í laun á mánuði og ynnu ekki samkvæmt sérkjarasamningi. Þá náðist einnig fram 3% hækkun fyrir þá sem hafa unnið 15 ár eða lengur í fískvinnu, en sama ákvæði hefur náðst fram í kjarasamningum félaga á nokkrum stöðum á landinu. Þröstur sagði að aðalkjarasamn- ingurinn væri í öllum meginatriðum samhljóða samningi ASÍ og VSÍ hvað varðaði lágmarkslaun og áfangahækkanir á þessu ári, að öðru leyti en því að 15 ára ungling- ar í fískvinnu fengju 85% af lágmarkslaunum. Aðalkjarasamn- ingurinn er afturvirkur frá 1. desember, en sérkjarasamningamir frá 1. janúar. Gert er ráð fyrir að Dagsbrún geri í samvinnu við Verkamannasambandið þrjá nýja ^érkjarasamninga á samningstíma- bilinu, fyrir byggingarverkamenn, bifreiðastjóra og fólk sem vinnur í matvælaiðnaði. Auk þess gerir Dagsbrún þrjá sérkjarasamninga, fyrir vaktmenn, fyrir starfsmenn á bifreiðaverkstæðum og þá sem vinna í sfldar- og fískimjölsverk- smiðjum. í aðalkjarasamningi er bókun um að yfirvinna verði 1% af mánaðar- launum. Þröstur sagði að það þýddi að 73,3% álag kæmi á alla yfirvinnu í stað 40% álags á eftirvinnu og 80% álags á næturvinnu. Það þýðir að verkamenn þurfa að vinna meira en 18 tíma í yfirvinnu í viku til þess að bytja að tapa á þessu ákvæði. Þá er ákvæði um það að verkamenn fái greidda 4 tíma, í stað 3 áður séu þeir kallaðir út til vinnu. Þá er einnig í aðalkjarasamn- ingnum skýrari ákvæði um laun í veikindum hvað yfirvinnu snertir. Þröstur sagði að sérkjarasamn- ingur um hafnarvinnu hefði tekið hlutfallslega mestan tíma í samn- ingaviðræðunum. í honum væri ákveðið að taka upp ábataskipta- kerfi hjá Eimskip og skipadeild Sambandsins svipað því og verið hefur í gildi hjá Skipaútgerð ríkis- ins. Taldi hann að hægt yrði að taka upp þetta kerfi fyrir haustið og að það myndi ekki þýða minna en 20% kauphækkun fyrir hlutað- eigandi. Sagði hann að hjá Skipaút- gerð ríkisins hefði slíkt bónuskerfi ekki þýtt aukið álag á mannskap- inn, heldur fyrst og fremst orðið til þess að vinnan væri betur skipu- lögð. Þá hækkar vaktaálag við höfnina úr liðlega 20% í 33%. Vaktavinnan hækkar við þetta um 20-22%. Þá samþykkir Eimskip að greiða 10 þúsund króna ársuppbót fyrir vinnu á síðasta ári. Þröstur sagði að bensínaf- greiðslumenn hækkuðu um 23% að meðaltali með nýjum aðal- og sér- kjarasamningi og starfsmenn Mjólkurstöðvarinnar um 0,5-3,0%, en yfirvinna um 24%, þar sem auka- greiðslur hefðu verið færðar inn í taxta. Stjómendur vinnuvéla hækka um 7,5-9,5% á samningstí- manum og hlaðmenn Flugleiða um 7-9%. Starfsmenn Securitas hækka um 8,5%. Eftir er að semja um sérkjarasamning við ríkið, Reykjavíkurborg og önnur sveitar- félög. Þröstur sagði að Dagsbrúnar- menn gætu vel unað við þessa samninga, samanborið við það sem náðst hefði fram í samningi ASI og VSÍ í desember, en Dagsbrún dró sig úr samningaviðræðum þá. Skoraði Þröstur á fundarmenn að samþykkja samninginn, það væri ljóst að ekki væri hægt að ná fram fleiri kröfum öðru vísi en með verk- föllum. Sagði hann að Dagsbrún Þórarinn V. Þórarinsson, f ramkvæmdastj óri VSI, um samningana við Dagsbrún: Svipuð aukiiiug launa- kostnaðar og vegara sa.mninga.niia. við ASI „Meginatriðið er það að launakostnaðarauki vinnuveitenda vegna samninga við Dagsbrún er mjög svipaður og samkvæmt samningunum við Alþýðusambandið. Við metum það svo að launakostnaðaraukinn út úr samningunum öllum sé nálega 3%,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands íslands, aðspurður um nýgerða kjarasamninga við Dagsbrún. Þórarinn sagði að samningam- ir við Dagsbrún skiptust í tvo þætti. Að stofni til væri um samning Alþýðusambandsins að ræða með tveimur breytingum, annars vegar um 3% álag fyrir fastráðið starfsfólk í fískiðnaði, sem hefði starfað í 15 ár hjá sama vinnuveitenda. Þetta ákvæði væri hliðstætt þeim sem samþykkt hefðu verið á nokkrum öðrum stöðum. Hins vegar væri breytt ákvæðum um útköll og væru greiddar 4 stundir fyrir þau, í stað 3 stunda sem hefðu verið greiddar fyrir útkall að kvöldi til áður. Þórarinn sagði að hinn þáttur samningana væri endurskoðun á níu sérsamningum félagsins. Kjarasamningur fyrir bensínaf- greiðslumenn væri nánast bein afleiðing a* samningi Alþýðu- sambandsins um 26.500 króna lágmarkslaun. Bensínafgreiðslu- menn fengju nokkra hækkun og stafaði það einfaldlega af því að þessir starfshópar hefðu verið lágt flokkaðir áður og flyttust upp í 26.500 króna lágmarks- laun. Breytingar á launatöxtum fyrir hafnarvinnu, stjórnendur þungavinnuvéla, starfsfólk hjá steypustöðvunum og starfsmenn olíufélagana hvað starfsaldurs- þrep snerti, væru á bilinu 1,8-5% og að meðaltali um 3%, en þessir launataxtar hefðu allir verið tals- vert hærri en lágmarkslaunin og þurft að endurraða þeim í sam- ræmi við þau. Launagreiðslukerf- ið hjá Mjólkurstöðinni væri stokkað upp frá grunni og yfír- vinna hækkaði allverulega við það, en föst mánaðarlaun breytt- ust ekki. Um ábataskiptakerfið sem fyr- irhugað er að taka upp í hafnar- vinnu hjá Eimskip og skipadeild SÍS, sagði Þórarinn, að menn væru sammála um það hjá Ríkis- skip að þar hefði það verið báðum aðilum í hag. „Ef það er hægt að ná fram meiri framleiðni, þá erum við sannarlega til viðræðna um að skipta þeim ábata og um það var samið," sagði Þórarinn. Hann sagði að vaktavinna á höfn- inni hækkaði einnig talsvert. „Það er okkar mat að launa- kostnaðaraukinn sé hliðstæður því sem annars staðar gerist, til dæmis því sem iðnaðarmenn fengu að meðaltali út úr hækkun lágmarkslaunanna. Við teljum því að við höfum náð samningi sem er á sama kostnaðarstigi og samningamir í desember. Það varð hins vegar ekki hjá því kom- ist að endurskoða þessa sérsamn- inga og þar komu til bæði hagsmunir okkar og Dagsbrúnar, vegna þess að til þess að taka upp 26.500 króna lágmarkslaun- in á félagssvæði Dagsbrúnar, þá varð víða að fella inn sérstaka Morgunblaðið/Bjami kaupliði, sem hafa verið samn- ingsbundnir," sagði Þórarinn. Hann sagði að sérsamningarnir, en hinn elsti er um 20 ára, hefðu bæði orðið atvinnurekendum og verkafólki til hagsbóta. „Ég er mjög ánægður yfir að þessir samningar hafa tekist og tel að það skipti miklu máli að okkur tókst að ná saman, þannig að báðir voru sáttir. Ég skil þá afstöðu þeirra Dagsbrúnar- manna, að hafa ekki getað gengið að Alþýðusambands- samningnum óbreyttum. Það var augljóst að það þurfti að aðlaga hann ýmsum sérsamningum fé- lagsins og fyrir okkar part er ég ánægður yfir að hafa náð samn- ingum án átaka, sem fela í sér svipaða launaaukningu og al- mennt hefur orðið vegna desem- bersamninganna," sagði Þórarinn V. Þórarinsson að lok- um. tók Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, til máls og fjallaði nokkrum orðum um and- mæli, sem fram höfðu komið við samningunum. Benti hann á að aðstaða til verkfalla væri erfíð með- al annars vegna verkfalla sjómanna og ef ekki hefði verið samið nú, hefði ekki náðst fram sú aftur- virkni, sem ákvæði væru um í samningunum. Skoraði hann á fé- lagsmenn að vera virkari og sækja félagsfundi betur og sagði síðan: „Við skulum gera þetta félag sterkt. Það er mikið í húfi fyrir Reyk- víkinga og verkafólk á allri lands- byggðinni. Við höfum sýnt svart á hvítu að það var hægt að komast lengra en í samningi ASÍ og VSÍ og það er mikilvægt". Þórarinn V. Þórarinsson. hefði með þessum samningi sýnt ábyrgð gagnvart þjóðfélaginu, jafn- framt því að nýta til fulls það svigrúm sem væri til launahækk- ana. Ef Dagsbrún færi í verkfall myndu margir atvinnurekendur grípa tækifærið og hækka verðlag og Dagsbrún yrði kennt um að hafa ónýtt það átak, sem get hefði verið í desember samningunum í þágu láglaunafólks, og væri alla góðra gjalda vert. Fundurinn gerði góðan róm að máli Þrastar. Tveir fundarmenn tóku til máls og skoruðu á fundinn að fella samningana. í lok fundarins GENGIS- SKRANING Nr.6 - 12. janúar 1987 Kr. Kr. Toll- Ein.Ki. 09.15 Kaup Sala gengi Dollari 40,000 40,120 40,580 St.pund 59,392 59,570 59,145 Kan.dollari 29,213 29,301 29,400 Dönskkr. 5,5230 5,5395 5,4561 Norskkr. 5,4723 5,4887 5,4364 Sænsk kr. 5,9466 5,9645 5,9280 Fi. mark 8,4818 8,5072 8,3860 Fr.franki 6,3042 6,3231 6,2648 Belg. franki 1,0095 1,0125 0,9917 Sv.franki 25,1296 25,2050 24,7326 Holl. gyllini 18,5856 18,6414 18,2772 V-þ. mark 21,0001 21,0631 20,6672 ít. líra 0,02972 0,02981 0,02976 Austurr. sch. 2,9801 2,9890 2,9416 Port.escudo 0,2740 0,2748 0,2742 Sp.peseti 0,3055 0,3064 0,3052 Jap. ven 0,25405 0,25481 0,25424 Irsktpund 56,650 56,820 56,123 SDRiSérst.) 49,2932 49,4407 49,2392 ECU,Evrópum.43,4180 43,5483 42,92%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.