Morgunblaðið - 13.01.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
31
Dalvík:
BöggvisstaðafjaJli
Innheimta bæj-
argjalda hefur
aldrei verið betri
Dalvík.
INNHEIMTA bæjargjalda á
Dalvík hefur aldrei verið betri
en nú uni þessi áramót. A gaml-
ársdag þegar skrifstofu bæjarins
hafði verið lokað kom í ljós að í
bæjarsjóð höfðu gjaldendur
greitt 94,5% álagðra gjalda.
Álögð gjöld voru kr. 43.259.743
og af þeim innheimtust 94,5%. Þar
af voru útsvör og aðstöðugjöld kr.
32.607.912 og fasteignagjöld kr.
10.651.831. A árinu 1985 inn-
heimtust 92,8% bæjargjalda og er
því hlutfallið nú nokkru betra.
Fréttaritarar.
íbúum Dal-
víkur fækk-
ar um einn
Daivík.
SAMKVÆMT manntali þann 1.
desember sl. hefur íbúum Dalvík-
urbæjar fækkað um einn á milli
áranna 1985 og 1986. Hefur því
ibúum fækkað um 0,1% í bænum
en að meðaltali hefur íbúum á
Norðurlandi eystra fækkað um
0,6%.
Alls eru íbúar Dalvíkur taldir
1339 þann 1. desember 1986. Á
árinu urðu 17 bamsfæðingar, þar
af 13 sveinbörn og 4 meybörn.
Árið 1985 varð íbúafækkun mun
meiri en þá fækkaði íbúum bæjarins
um 19 manns.
Fréttaritarar.
Frá blysför Skíðafélags Dalvíkur
Dalvík:
Blysför í
Dalvík.
Á þrettándadagskvöld efndu
félagar í Skíðafélagi Dalvíkur
til blysfarar í Böggvisstaða-
fjalli. 40 félagar af öllum aldri
renndu sér þá niður hlíðar
fjallsins í fagurlegum sveigum
með logandi kyndla.
Það er orðið að fastri siðvenju
í starfi félagsins að fara um skíða-
landið með logandi kyndlum á
þrettándadagskvöld. Að þessu
sinni var veður kyrrt og frostlítið
og silfraður máninn lýsti upp
næturhimininn. Fylgdust því
Dalvíkingar vel með þessari
skemmtilegu athöfn Skíðafélags-
manna auk þess sem menn
skemmtu sér við þrettándabrennu
á Böggvisstaðasandi.
Jól og áramót fóm mjög frið-
samlega fram hér á Dalvík.
Veðurfar hefur verið mjög gott
og hefur fólk komist allra sinna
ferða. Enda þótt allgóður skíða-
snjór sé í skíðalandinu er ekki
mikill snjór í þorpinu. Skíðalandið
í Böggvisstaðafjalli hefur verið
mikið notað og hafa menn komið
víða að til að njóta veðurblíðunnar
og útivistar.
Fréttaritarar.
Framboðs-
listi Kvenna-
listans á
Reykjanesi
FRAMBOÐSLISTI Kvennalist-
ans í Reykjaneskjördæmi hefur
verið ákveðinn.
Listann skipa: Kristín Halldórs-
dóttir alþingismaður Seltjamamesi,
Anna Ólafsdóttir Bjömsson sagn—
fræðingur Bessastaðahreppi,
Sigrún Jónsdóttir þjóðfélagsfræð-
ingur Kópavogi, Kristín Sigurðar-
dóttir sölumaður Mosfellshreppi,
Þómnn Friðriksdóttir kennari
Keflavík, Guðrún Jónsdóttir
líffræðingur Kópavogi, Edda Magn-
úsdóttir matvælafræðingur, Selt-
jamarnesi, Álfheiður Jónsdóttir
nemi Hafnarfirði, Þóranna Páls-
dóttir veðurfræðingur Kópavogi,
Bryndís Guðmundsdóttir kennari
Hafnarfirði, Jóhanna B. Magnús-
dóttir rannsóknarmaður Mosfells-
hreppi, Ingibjörg Guðmundsdóttir
bókbindari Hafnarfirði, Guðrún S.
Gísladóttir skrifstofumaður^
Garðabæ, Sigurborg Gísladóttir
vökumaður Hafnarfirði, Rakel
Benjamínsdóttir húsmóðir Sand-
gerði, Hafdís Guðjónsdóttir kennari
Hafnarfirði, Hrafnhildur Baldurs-
dóttir hjúkmnarfræðingur Kópa-
vogi, Jenný Magnúsdóttir ljósmóðir
Njarðvík, Bima Sigurjónsdóttir
kennari Kópavogi, Guðrún Lára
Pálmadóttir, nemi Kópavogi, Ragn-
hildur Eggertsdóttir húsmóðir
Hafnarfirði og Sigurveig Guð-
mundsdóttir kennari Hafnarfírði.
VIÐ BJÓÐUM YKKUR VELKOMIN Á
Frumsýning 16.-17. janúar nk.
WJirflrGL
Þórskabarett allar helgar
Borðapantanir hjá
veitingastjóra í síma 23335
Stórkostleg skemmtun
og veisla
sem munað verður eftir
Stórkostlegur þríréttaður kvöldverður, meiri-
háttar kabarettskemmtun með þátttöku margra
af okkar þekktustu skemmtikröftum svo sem:
Ragnar Bjarnason, Ómar Ragnarsson, Þuríður
Sigurðardóttir, Hermann Gunnarsson auk hins
frábæra Tommy Hunt, sem er lykillinn að ógley-
manlegri kvöldstund.
★ Hinn frábæri söngvari Tommy
Hunt skemmtir
★ Raggi Bjarna og Þuríður Sigurð-
ardóttir syngja nokkur lög
★ Ómar Ragnarsson aldrei betri
en nú
★ Hemmi Gunn mætir til leiks
Santos-sexettinn leikur
Brautarholti 20, símar 23333, 23334, 23335