Morgunblaðið - 13.01.1987, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 13.01.1987, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987 Fiskmörkuðum okk- ar var stefnt í voða - segir Matthías Á. Mathiesen „VIÐ VONUMST auðvitað eftir því, að deiiuaðilar nái samkomu- lagi sín á milli áður en Alþingi þarf að grípa í taumana, en eins og staðan var í sjómannaverkfallinu, þótti ekki annað fært en að kalla Alþingi saman og binda enda á verkfallið með Iögum,“ sagði Matthias A. Mathisen, utanrikisráðherra, i samtali við Morgun- blaðið í gær. Matthías sagði, að síðdegis í gær hefðu hann, forsætisráðherra og sjávarútvegsráðherra boðað for- menn þingflokkanna á sinn fund og kynnt þeim stöðu sjó.nannadeil- unnar og hugmyndir ríkisstjómar- innar um lausn málsins með gerðardómi. Þingflokkamir mjmdu ^ræða málin fyrir hádegi í dag. „Staðan í þessari deilu var slík, að samkomulag virtist eiga langt í land og fískmörkuðum okkar er þegar stefnt í voða. Þess vegna ákvað ríkisstjómin að grípa inn í og vonast til þess að Alþingi vinni hratt í þessu rnáli," sagði Matthías A. Mathiesen. Óeðlilegt að grípa inn í samningana - segir Ragnar Arnalds „ÞAD virðist vera ljóst, að báðir deiluaðilar eru jafn lítið hrifnir af þvi að ríkisstjórn og Alþingi fari að skipta sér af málinu. Sjómenn halda þvi "beinlínis fram, að þá fyrst hafi málið strandað, þegar farið var að hvíslast á um það, að til stæði að gripa inn í með bráðabirgðalögum. Út- gerðarmenn hafa gefið það í skyn, að þetta sé þeim líka mjög á móti skapi. Ég held að það sé mjög óeðlilegt af rikisstjórninni, að eyðileggja möguleika samningsaðila til að komast að sameiginlegri ^niðurstöðu á endasprettinum með þvi að fara að grípa inn í málið,“ sagði Ragnar Arn- alds, formaður þingflokks Alþýðubandalagsins. Ragnar Arnalds sagði, að þing- menn Alþýðubandalagsins hefðu ekki haft tækifæri til að íjalla um stöðuna í sjómannadeilunni og því vildi hann ekki vera með neinar yfírlýsingar að svo stöddu um málsatvik að öðru leyti. Hann sagði, að enginn gæti hins vegar verið á móti því, að Alþingi kæmi saman fyrr en ætlað var, enda hefði það nóg verk að vinna og hefði þess vegna eins getað komið saman fyrir viku. Forystumenn þingflokkanna voru síðdegis í gær kvaddir á fund forsætisráðherra, sjvarútvegs- ráðherra og utanrikisráðherra, þar sem þeim var skýrt frá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að boða Alþingi til fundar í dag vegna sjómanna- verkfallsins. Að óbreyttu hefði Alþingi ekki komið saman fyrr en 19. janúar. A myndinni eru f.v. Ingvar Gíslason, varaformaður þingflokks framsóknarmanna, Svavar Gestsson, formaður Morgunblaðið/Þorkell Alþýðubandalagsins, Ólafur G. Einarsson, for- maður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Matthías Á. Mathiesen, utanríkisráðherra, Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, Halldór Ás- grímsson, sjávarútvegsráðherra, Eiður Guðna- son, formaður þingflokks Alþýðuflokksins, og Guðrún Agnarsdóttir, formaður þingf lokks Sam- taka um kvennalista. Þingstörf hefjast í dag Alþingi Islendinga, 109. lög- gjafarþing, kemur saman til framhaldsstarfa í dag, 13. jan- úar, tæpri viku fyrr en áform stóðu til. Ríkisstjórnin tók ákvörðun um þetta á fundi í gærmorgun. Þingstörf hefjast með fundi í Sameinuðu þingi. Því næst hefst fundur í þingdeild, væntanlega neðri deild, þar sem lagt verður fram stjórnarfrumvarp til lausnar á vinnudeilu sjómanna og útvegs- menna. Frumvarpið fjallar væntan- lega um gjörðadóm, er fái ákvörðunarvald um þetta efni. Ekki munu dæmi þess síðustu áratugi að starfshlé Alþingis yfir jól og áramót hafi verið stytt af hliðstæðu né öðru tilefni. Lýðræðislegra en að setja bráðabirgðalög - segir Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra „ÁSTÆÐAN fyrir þvi, að Al- að það er mat þeirra manna þingi er kallað saman er sú, er best þekkja, sáttasemjara Ekki talinn grundvöllur fyrir bráðabirgðalögum -segir Friðrik Sophusson „í VIÐRÆÐUM forystumanna Sjálfstæðisflokksins um þessi mál kom fram, að það væri ekki efni til þess að setja bráðabirgðalög til lausnar sjó- mannadeilunni," sagði Friðrik Sophusson, varaformaður flokksins, í samtali við Morg- unblaðið. Friðrik sagði, að sjálfstæðis- menn væri ekki spenntir fyrir því, að grípa inn í kjarasamninga með löggjöf. Sú hefði hins vegar orðið niðurstaða viðræðna for- Munum ekki tefja framgang málsins - segir Eiður Guðnason ystumanna flokksins um sjó- mannadeiluna, að ef grípa þyrfti inn í hana með slíkum hætti, skyldi það gert með venjulegri löggjöf. Alþingi yrði þá kallað sérstaklega saman í þessu skyni eða beðið til mánudagsins 19. jan- úar. „Þetta sýnir líka, að menn vilja síður ganga of langt í beit- ingu bráðabirgðalöggjafarvalds- ins,“ sagði hann. Friðrik Sophusson sagðist ekki hafa séð frumvarp ríkisstjórnar- innar um stöðvun sjómannaverk- fallsins, en hann kvaðst eiga von á þvi að stjórnarflokkarnir báðir myndu styðja framgang þess á Alþingi. og þeirra tveggja ráðherra sem falið var að fylgjast með málinu, að sjómannadeilan sé komin í mjög mikinn hnút. Eg taldi réttara, að kveðja saman þing heldur en að selja bráða- birgðalög," sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráð- herra, í samtali við Morgun- blaðið. Á aukafundi ríkisstjórnar- innar í gærmorgun var samþykkt, að kveðja Alþingi saman til fundar í dag, þriðju- dag 13. janúar, vegna þeirrar stöðu, sem upp er komin í sjó- mannadeilunni. Að óbreyttu hefði Alþingi ekki komið sam- an fyrr en mánudaginn 19. janúar. Forsætisráðherra sagði, að það væri að ýmsu leyti lýðræð- islegra að fara þessa leið, þegar svo skammt væri til þess að þing ætti að koma saman, heldur en að selja bráðabirgðalög. Hann sagði, að þetta gæfi líka deiluaðilum tækifæri til þess að gera grein fyrir sínu máli fyrir þing- Steingrímur Hermannsson nefndum. „Þó að það sé orðið gífurlega aðkallandi, að leysa þetta mál vegna þess að mark- aður okkar fyrir vestan er i stórkostlegri hættu, þá töldum við að það væri rétt, að taka þetta lengri tíma í málið,“ sagði forsætisráðherra. Steingrímur Hermannsson sagði, að ríkisstjórnin myndi strax í dag leggja fyrir Al- þingi frumvarp um stöðvun sjómannaverkfallsins. Sam- kvæmt frumvarpinu væri Hæstarétti falið, að skipa sér- stakan kjaradóm til að leysa sjómannadeiluna og gefið það að forskrift, að taka tillit til þeirra atriða, sem þegar hefðu unnist og orðið sam- komulag um, og.þeirra sjónar- miða, sem fram hefðu komið við meðferð málsins hjá sátta- semjara. „VIÐ TÖKUM ágætlega í það, að Alþingi sé kvatt saman. Það stendur ekkert á okkur að koma til fundar," sagði Eiður Guðnason, formaður þing- 'flokks Alþýðuflokksins, í samtali við Morgunblaðið i gær, þegar Ieitað var álits hans á samþykkt rikisstjórnarinnar. Eiður sagði, að þingflokkur Al- þýðuflokksins hefði verið boðaður uaman til fundar snemma í fyrra- málið og þar yrði rætt um frumvarp ríkisstjómarinnar um stöðvun sjómannaverkfallsins. Að svo stöddu vildi hann því ekki láta í ljós skoðun á efnisatriðum frum- varpsins. „Ég skýrði hins vegar frá því á fundi með forsætisráðherra, sjáv- arútvegsráðherra og utanríkisráð- herra í dag, að óháð því, hver yrði afstaða þingflokksins til frum- varpsins sjálfs, myndum við ekki tefja framgar.g málsins á Al- þingi," sagði Eiður. Betra en að setja bráðabirgðalög segir Guðrún Agnarsdóttir „MÉR FINNST það vera gott, að þingmenn skuli fái að fjalla um þær aðgerðir, sem ríksstjórnin hyggst beita í þessum efnum. Mér finnst það miklu betra, heldur en að ríkis- stjórn hefði sett bráðabirgða- lög,“ sagði Guðrún Agnars- dóttir, formaður þingflokks Samtáka um kvennalista, þeg- ar leitað var álits hennar á samþykkt ríkisstjórnarinnar í gær. „Eg fagna því, að okkur skuli gefið tækifæri til að fjalla um þetta mál,“ sagði Guðrún. Hins vegar kvaðst hún vilja bíða með, að taka afstöðu til efnisatriða í væntanlegu frumvarpi ríkisstjórn- arinnar. „Ég hef ekki séð, hvað ríkisstjórnin hefur fram að færa og vil ekki taka afstöðu til þess fyrr en ég hef kynnt mér málið," sagði hún.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.