Morgunblaðið - 13.01.1987, Qupperneq 56
STERKTKÐRT
ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
LANDLÆKNIR hefur sent öllum læknum landsins bréf þar sem
mælst er til þess að þeir láti mæla hvort mótefni gegn alnæmisveir-
unni finnist í blóði þungaðra kvenna sem koma í fyrsta skipti til
mæðraskoðunar og einnig kvenna sem gangast undir fóstureyðingu.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Ólafur Ólafsson landlæknir að
þama væri aðeins um tilmæli að
ræða, en það væri ljóst að ef móðir
hefði alnæmisveiruna í sér hefði
fóstrið hana einnig og sagði Ólafur
að slíkt væri að sínu mati ástæða
til fóstureyðingar.
Ólafur sagðist gera ráð fyrir að
um 4000 konur á ári kæmu til
mæðraskoðunar og um 700 konur
gangast undir fóstureyðingu að
meðaltali á ári. Áður hefur land-
læknisembættið mælt fyrir um að
allir blóðgjafar í blóðbankanum,
fíkniefnasjúklingar sem leggjast inn
á sjúkrastofnanir, og fangar gang-
ist undir mótefnamælingu vegna
alnæmis.
3-5% umfram
ASI samningimi
- segir Þröstur Ólafsson,
ramkvæmdastj óri Dagsbrúnar
ALMENNUR félagsfundur
verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar samþykkti í gær nýgerðan
aðalkjarasamning og níu sér-
kjarasamninga félagsins við VSÍ
og VMS með þorra greiddra at-
kvæða. 34 greiddu atkvæði á
móti.
Þröstur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Dagsbrúnar, segir að samn-
ingurinn með sérkjarasamningum
feli í sér 3-5% hækkun á launa-
taxta umfram það sem samið var
um milli ASÍ, VSÍ og VMS í des-
ember. Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, segir að
samningurinn þýði sömu útgjöld
Rauðmagi snemma
á ferðinni í ár
Sigiufiröi.
Trillubáturinn Jökull II hefur
undanfarna daga verið á rauð-
magaveiðum og kom hann inn með
400 í fyrradag og 150 í gær.
Eigandi Jökuls II er Gunnar Jó-
hannsson. Það er óvenjulegt að
rauðmagi veiðist á þessum árstíma
en aðalvertíðin er á vorin.
Matthías
fyrir vinnuveitendur og samningur
VSÍ við ASÍ í desember.
Sjá frásögn á bls. 30.
Morgunblaðið/Bjami
Á myndinni afhendir þjóðleikhússtjóri, Gísli Alfreðsson, Stefáni Baldurssyni, leikhússtjóra LR, gjöf
Þjóðleikhússins.
Leikfélag Reykjavíkur 90 ára
LEIKFÉLAG Reykjavíkur hélt upp á 90 ára af-
mæli sitt á Hótel Sögu í gærkvöldi að viðstöddu
miklu fjölmenni. Félaginu bárust margar gjafir,
blóm og heillaóskaskeyti. Gísli Alfreðsson, leik-
hússtjóri Þjóðleikhússins færði „afmælisbarn-
inu“ að gjöf gyllta klukku. Davíð Oddsson,
borgarstjóri tilkynnti um þá ákvörðun borgar-
yfirvalda að greiða laun fjögurra starfsmanna
til viðbótar launum þeirra 38, sem þegar eru á
launaskrá borgarinnar. Sveinn Einarsson, fyrr-
um leikhússtjóri, afhenti verðlaun úr verðlauna-
sjóði LR, sem hefur það að markmiði að styrkja
unga leikara fyrir framlag þeirra. Verðlaunin
að þessu sinni hlaut Þröstur Leó Gunnarsson.
Erfingjar Vilhelms Norðfjörð færðu félaginu af
gjöf leikritasafn hans, alls 206 bindi, en safnið
verður áfram í vörslu erfingjanna þar til bóka-
safn Borgarleikhússins tekur til starfa. Fram-
kvæmdastjórn Listahátíðar 1986 færði félaginu
að gjöf grafíkmyndir eftir Ragnheiði Jónsdótt-
ur. Þar að auki barst leikfélaginu mikið af
blómum og heillaóskaskeytum.
Kjaradeilur farmanna og fiskimanna:
Frumvörp til laga um
tvo kjaradóma tilbúin
RÍKISSTJÓRNIN hefur nú ákveðið að kalla Alþingi saman, tæpri viku
fyrr en áætlað var, til að binda enda á kjaradeilu sjómanna og útvegs-
manna. í dag verður lagt fram stjórnarfrumvarp þess efnis að deilunni
verði visað til sérstaks kjaradóms skipuðum af hæstarétti og verk-
falli verði jafnframt aflétt.
Ennfremur hefur ríkisstjómin til-
búið frumvarp um svipaða lausn
kjaradeilu farmanna og útgerða
kaupskipa og sagði forsætisráðherra
í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að ákvörðun um að leggja
síðamefna framvarpið fram í dag
verði tekin árdegis, en litlum til-
gangi þjóni að leysa sjómannaverk-
fallið, ef ekki sé unnt að koma
fiskinum á erlenda markaði, sem sé
mjög brýnt.
Síðdegis á sunnudag voru útgerð-
armenn og fiskimenn kallaðir á fund
stjómvalda og þeim gert Ijóst, að
þau hygðust grípa inn í deiluna með
lagasetningu, ef þeir næðu ekki að
semja. Á sunnudagskvöldið komu
menn til fundar hjá sáttasemjara til
að ræða tillögu hans um skipan sér-
staks gerðardóms skipuðum af
deiluaðilum, sem hefði úrskurðar-
vald í þeim málum, sem þá vora
óútkljáð, meðal annars um hluta-
skipti við löndun heima og sölu
erlendis úr gámum. Um þá hugmynd
náðist ekki samstaða og sleit sátta-
semjari þá viðræðunum í fyrrinótt.
Ríkisstjómin kom saman til sér-
staks fundar í gærmorgun, þar sem
tekin var ákvörðun um að kveðja
Alþingi til fundar í dag og ennfrem-
ur átti ríkisstjómin fund með fulltrú-
um þingflokkanna síðdegis.
Sjá fréttir og samtöl á bls. 4,
22 og 33.
Leitað að alnæm-
ismótefni í verð-
-andi mæðrum
Dómsmálaráðherra:
■Foi-svarsmenn SVFI
og Landhelgisgæslu
kvaddir til viðræðna
JÓN Helgason dómsmálaráðherra kallaði í gær Harald Henrýs-
son formann Slysavarnafélags íslands og Gunnar Bergsteins-
forstjóra Landhelgisgæslunnar á sinn fund í framhaldi af
bréfi sem læknar á Borgarspítalanum sendu til stjórnvalda til
að vekja athygli á „stjórnleysi sem einkennir skipulag björgun-
armála hér á landi“ eins og segir í bréfinu,
Viðræður milli Slysavamafé-
lagsins og Landhelgisgæslunnar
um samvinnu sín á milli um stjóm
og skipulag björgunaraðgerða á
-t^nu við Island, strönduðu fyrir
rúmu ári á því atriði hver ætti að
sjá um stjómstöð slíkra aðgerða.
„Það hafa komið fram ábend-
ingar um að þama þurfi að vera
nánari tengsl á milli og því kall-
aði ég þessa aðila til viðræðna,"
sagði Jón Helgason í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Ég ræddi
nauðsyn þess að gera það sem
hægt er til að skipulagning á þess-
um málum verði sem best og að
viðræður milli þessara aðila haldi
áfram með fulltrúa frá ráðuneyt-
inu,“ sagði Jón Helgason.
Sjá nánar blaðsíðu 2.
Frá slökkvistarfinu við veiðihúsið. Morgunblaðið/Júiius
Brennuvargar í Reykjavík
BRENNUVARGAR virtust vera á ferð austast í Reykjavík skömmu
eftir miðnættið í nótt því með skömmu millibili kviknaði í veiði-
húsi við Elliðaár, og vinnuskúr við Sævarhöfða, Slökkvilið
Reykjavíkur slökkti eldinn í báðum húsunum en ekki var ljóst
þegar Morgunblaðið fór í prentun í nótt hvort skemmdir voru
miklar.