Morgunblaðið - 11.02.1987, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1987
7
l'KVÖLD
BLÓÐBAÐIÐ í
CHICAGO 1929 (St.
Valentine's Day
Massacre). Bandarisk bíó-
mynd með Jason Robards,
George Segal og Ralph Mee-
ker iaðalhlutverkum. Bönnuð
börnum.
KL
22:10
A NÆSTUNNI
Fimmtudagur RITA
HAYWORTH. Bandarisk
biómyndfrá 1983um
21:15
leikkonuna Ritu Hayworth. A
fimmta áratugnum lagði Rita Hayw-
orth Hollywood að fótum sér.
yi Föstudagur ÍUPP-
B,fc HAFISKAL ENDIR-
22:55» iniAISKOÐA (The Gift
ofLife). Bandarísk sjónvarps-
mynd. Hjón hafa árangurlaust
reynt að eignast barn. Þau
halda að vandinn sé leystur
þegarþau fá konu til að ganga
með barnið fyrirsig.
A uglýsingasími
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lykilinn færð
þúhjá
Heimilistækjum
<8>
Heimilistæki hf
S.62 12 15
V estmannaeyjar:
Sindra VE verður
breytt í Þýskalandi
Vestmannaeyjum.
SKUTTOGARINN Sindri VE. 60
lagði í gær af stað í söluferð til
Þýskalands með fullfermi, 130
tonn, sem seld verða i Bremer-
haven á mánudaginn. Að lokinni
löndun siglir togarinn til borgar-
innar Travemiinde þar sem
Þorsteinn
Pálsson á opn-
um fundi
SJÁLFSBJÖRG, landssamband
fatlaðra stendur fyrir opnum
fundi fimmtudaginn 12. febrúar
í matsal Sjálfsbjargarhússins
annarri hæð. Fundurinn hefst
kl. 12.00
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra mætir á fundinn og svarar
fyrirspumum um málefni fatlaðra.
Fundurinn er öllum opinn og
verður eins og áður segir í hádeginu
á morgun.
gerðar verða talsverðar breyt-
ingar á skipinu.
Sindri er í eigu Samtogs sf. og
sagði Hjörtur Hermannsson for-
stjóri fyrirtækisins, að settur yrði
nýr gír og rafall við aðalvél og allt
spilkerfið endumýjað. Settar yrðu
við það rafdrifnar spildælur. Þá
verður hluti af trolldekki endumýj-
aður og lagfæringar gerðar á
millidekki. Auto-troll verður sett í
skipið.
Verkið verður unnið hjá Schlich-
ting Werft í Travemiinde við Liibeck
og samkvæmt samningi á því að
ljúka á fjórum vinnuvikum. Sagði
Hjörtur að kostnaður við þessar
breytingar væri um 30 milljónir og
hefði verið leitað tilboða í verkið
bæði innan lands og utan. Tilboð
þýsku skipasmíðastöðvarinnar
reyndist hagstæðast bæði hvað
varðaði tíma og verð. Þá sagði
Hjörtur Hermannsson að nýtt að-
gerðarkerfi yrði sett í skipið þegar
það kæmi heim og væri það smíðað
hér heima.
— hlg.
Frá Vestmannaeyjahöfn
Rætt um rekstrarform
stóru spítalanna
SAMTÖK Heilbrigðisstétta
halda fund, sem opinn verður
öllum heiibrigðisstéttum, í Do-
mus Medica fimmtudaginn 12.
febrúar kl. 16.00 til 19.00. Fimd-
arefni verður rekstrarform
stóru spítalanna.
Ætlunin er að reifa þau mál
er varða rekstur stóru spitalanna
frá sem flestum sjónarhomum.
Hafa því verið fengnir einstakl-
ingar úr hinum ýmsu starfsstétt-
um spítalanna, rekstrarhagfræð-
ingur og fulltrúi neytenda til að
hafa framsögu um þetta efni. Að
því loknu verða pallborðsumræður
og gefst þá þeim, sem vilja tæki-
færi til að tjá sig um þessi mál.
Framsöguerindi flytja: Ólafur
Öm Amarson yfírlæknir Landa-
kotsspítala, Þórarinn Sveinsson
yfirlæknir Landspítala, Margrét
Tómasdóttir hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri Borgarspítala,
Magnús Karl Pétursson yfírlæknir
Landspítala, Edda Hjaltested
deildarstjóri Landakotsspítala,
Lára Margrét Ragnarsdóttir
framkvæmdastjóri Stjómunarfé-
lags íslands og Hörður Bergmann
fræðslustjóri.
RIO TRIO I BROADWA Y
laugardaginn 14. febrúar
(ath. aðeins þetta eina laugardagskvöld).
Vegna fjölda áskorana mun Ríó Tríó ásamt stórhljómsveit Gunnars
Þórðarsonar skemmta gestum okkar nk. laugardagskvöld.
Þetta er skemmtun í algjörum sérflokki þar sem Ríó Tríó fer svo sannarlega
á kostum ásamt stórhljómsveit Gunnars Þórðarsonar.
Matseðill:
Rjómasúpa Agnes Sorel
Innbakað lambafillet
Karamellurjómarönd
MISSIÐ EKKIAF bESSU EINSTAKA TÆKIFÆRI
Húsið opnar kl. 19. Miðasala og borðapantanir í Broadway virka
daga frá kl. 11-19 og 14-17 laugardag. Sími 77500.