Morgunblaðið - 11.02.1987, Síða 18

Morgunblaðið - 11.02.1987, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1987 Búnaðarfélag íslands 150 ára Landbúnaðar- sýningin hápunktur afmælishaldsins Á ÞESSU ári eru 150 ár liðin frá upphafi búnaðarfé- lagsskaparins á íslandi. Á árinu 1837 var stofnað í Reykjavík Suðuramtsins húss- og bústjórnarfélag, sem er forveri Búnaðarfélags íslands, og minnist Búnaðar- félag Islands því 150 ára afmælis síns á árinu. Afmælisins verður minnst á ýmsan hátt. Aðalatriðið verður landbúnaðarsýningin BÚ ’87 sem haldin verður í Reiðhöllinni í Víðidal í Reykjavík og svæðinu þar í kring dagana 14,—23. ágúst í sumar. Saga Búnaðarfélagsins kemur út á bók á árinu. Efnt verður til hugmyndasamkeppni um nýjungar í atvinnulífí í dreif- býli og ritgerðasamkeppni. I athugun er að gera heimildamynd um félagið. Afmælisins verður minnst á búnaðarþingi sem kemur saman í þessum mánuði og hugmyndir eru um að búnaðarþing komi saman til sérstaks hátíðarfundir síðar á árinu. Kjörorð landbúnaðarsýningarinnar verður: „Máttur lífs og moldar“. Landbúnaðarsýningar hafa verið haldnar, 1921, 1947 og 1968 og búvörusýningar á Selfossi 1974 og í Reykjavík 1984. Sýningin BÚ ’87 verður stærsta landbúnaðarsýningin. Sýningar- deildir verða 15, bæði úti og inni. Sýndar verða allar nýjungar í búgreinum, bútækni, kynbótum, tölvutækni og vöruþróun. Ahersla verður lögð á að böm og unglingar komist í snertingu við dýr og gróður. Forráðamenn sýningarinnar gera sér vonir um að helmingur þjóðannnar sæki hana, eða 120 þúsund manns. Fram- kvæmdastjóri BÚ ’87 er Magnús Sigsteinsson ráðunautur. Texti: Helgi Bjarnason Morgunblaðið/Ól.K.M. Búnaðarfélagshúsið við Lækjargötu þar sem Búnaðarfélag íslands hafði aðsetur árin 1906—1964. Leiðbemingaþjónustan er meginverkefni félagsins Er landsamband búnaðarfélaganna í landinu STARFSEMI Búnaðarfélags íá- lands er allumfangsmikil nú á 150 ára afmæli félagsins. Jónas Jóns- son búnaðarmálastjóri hefur tekið saman yfirlit um uppbygg- ingu þess og starfsemi og er eftirfarandi byggt á upplýsingum hans: Hreppabúnaðarfélög Búnaðarfélög eru starfandi í öll- um sveitum (hreppum) landsins og víða í kauptúnum og bæjum. Allir bændur eru í búnaðarfélögum og eiga makar þeirra einnig rétt til að vera það með fullum réttindum. Búnaðarfélögin vinna að ýmsum framfaramálum á starfssvæði sínu. Víða eiga þau ýmis tæki sem hentar að hafa í sameign, útvega lyf og fleiri rekstrarvörur og víða annast þau áburðarkaup félagsmanna. Þá taka þau þátt í kynbótastarfseminni þar sem ekki starfa sérstök sauð- fjárræktar-, nautgriparæktar- eða hrossaræktarfélög. Búnaðarfélög hreppanna eru einnig grunneiningar í Stéttarsambandi bænda. Búnaðarsambönd Búnaðarfélög hreppanna mynda með sér búnaðarsambönd. Búnað- arsamböndin eru 15 og eru starfs- svæði misstór. Stærst er Búnaðar- samband Suðurlands sem nær yfír þijár sýslur og eru um 1400 bændur á félagssvæði þess. Þá nær Búnaðar- samband Vestfjarða yfir flórar sýslur en bændur eru þar miklu færri. Búnaðarsamband Austurlands hefur mjög stórt starfssvæði og nær yfír allt Austurland (Norður- og Suður-Múlasýslur). Þar eru um 500 bændur. Búnaðarsamband Borgar- fjarðar nær yfir Borgarfjarðar- og Mýrasýslur og Búnaðarsamband Kjalarnesþings nær yfir Gullbringu- og Kjósarsýslur. Önnur búnaðar- sambönd sem ná yfir eina sýslu eru: Bsb. Snæfellinga, Bsb. Dalamanna, Bsb. Strandamanna, Bsb. Vestur- Húnavatnssýslu, Bsb. Austur-Húna- vatnssýslu, Bsb. Skagfírðinga, Bsb. Eyjafjarðar (sem auk Eyjafjarðar- sýslu tekur til tveggja vestustu hreppa Suður-Þingeyjarsýslu), Bsb. Suður-Þingeyinga, Bsb. Norður- Þingeyinga og Bsb. Austur-Skaft- fellinga. Sljórnir Fulltrúar búnaðarfélaganna, að jafnaði 2—3 frá hveiju félagi sitja aðalfund búnaðarsambanda og kjósa stjórnir þeirra. Þeir eru einnig kvaddir til aukafunda þegar þurfa þykir. Héraðsráðunautar eru í flest- um- tilvikum framkvæmdastjorar búnaðarsambandanna. Starfsemi Búnaðarsamböndin hafa fjölþætta starfsemi bæði í fagmálum og fé- A ve lagsmálum bænda. Á vegum þeirra starfa héraðsráðunautamir, 38—40 talsins. Flestir eru þeir hjá Bsb. Suðurlands eða 8, hjá Bsb. Austur- lands starfa 4 og hjá Bsb. Eyjafjarð- ar 4 en hjá öðmm færri og aðeins 1 hjá hveiju hinna smærri. Þar sem tveir eða fleiri ráðunautar starfa skipta með sér verkum ýmist eftir fagsviði eða landsvæðum. Helstu fagsviðin em jarðrækt og búfjárrækt, sem aftur skiptist eftir búíjárgreinum. Við búfjárræktina vinna héraðs- ráðunautar mjög mikilvæg störf í sambandi við afurðaskýrsluhald og allar kynbætur. Þeir halda búfjár- sýningar eða aðstoða við þær þegar um lögboðnar sýningar er að ræða, auk þess leiðbeina þeir um fóðmn og hirðingu búQárins. Á sviði jarðræktar ráðleggja hér- aðsráðunautar um undirbúning og framkvæmd nýræktar og veita áburðarleiðbeiningar. Þeir mæla fyr- ir skurðum og skipuleggja aðra framræslu. Þá taka þeir út og skrá alla ræktun og aðrar framkvæmdir svo sem byggingar á heygeymslum og peningshúsum. Taka jarðvegs- og heysýna til efnagreininga og síðan leiðbeiningar í samræmi við fengnar niðurstöður era snar þáttur í starfí héraðsráðu- nauta. Margháttuð störf era lögð á herðar héraðsráðunauta af stjóm- völdum með lögum eða reglum, svo sem að færa ýmsar skýrslur eða sjá um skil á þeim, gefa umsagnir í sambandi við lán eða leyfi til bú- stofnunar og mætti svo lengur telja. störf í þágu bænda og sveitanna. Þau beita sér fyrir fundum um fag- mál og hagsmunamál og frá þeim fundum koma oft ályktanir og ábendingar um það sem til úrbóta og framfara horfir. Mörg búnaðarsambandanna ann- ast rekstur ræktunarsambanda er sjá um framræslu og framvinnslu lands til ræktunar og nokkur hafa byggingarflokka í samræmi við húsagerðarsamþykktir. Fjölþætt félags- málastörf Búnaðarsamböndin vinna fjölþætt fjölmargar ályktanir frá búnaðarfé- lögum og búnaðarsamböndum, búnaðarþingsfulltrúar leggja þar fram mál og mál koma oft frá stjóm og starfsmönnum félagsins. Öll mál fara til nefnda sem starfa á þinginu og fá þar rækilega umfjöllun. Nefnd- ir Búnaðarþings afla oft mikilvægra upplýsinga og skila ítarlegum grein- argerðum. Búnaðarþing kýs oft milliþinganefndir til að vinna að meiriháttar málum svo sem endur- skoðun á lögum eða nýjum laga- framvörpum. Rekja má upphaf fjölmargra framfaramála landbúnaðarins til Búnaðarþings og velflest hafa þau hlotið þar einhveija umíjöllun. Samband búnaðar- sambandanna Búnaðarþing og stjórn Á vegum búnaðarsambandanna er kosið til Búnaðarþings, beinni almennri kosningu. Þar eiga sæti 25 fulltrúar. Búnaðarþing kemur saman í febrúar ár hvert og situr í um það bil tvær vikur. Það er æðsta vald í máleftium Búnaðarfélags Ís- lands og kýs því þriggja manna stjóm til fjögurra ára, á fyrsta þingi eftir búnaðarþingskosningar. Þingið gerir ijárhagsáætlun fyrir starfsemi Búnaðarfélagsins og fjall- ar um ársreikninga þess. Stjóm Búnaðarfélags íslands ræður búnaðarmálastjóra, sem er framkvæmdastjóri félagsins. Hún ræður einnig ráðunauta féiagsins og annað fast starfsfólk. Eins og áður hefur komið fram era allir bændur landsins aðilar að Búnaðarfélagi íslands í gegnum búnaðarfélög sem félagsmenn í bún- aðarfélögum hreppanna og búnað- arsamböndum. - Búnaðarfélag íslands er því ekki ríkisstofnun þó að það sinni Qölmörgum verkefnum fyrir ríkisvaldið. Það er sjálfstætt félag bænda og má líta á það sem landssamband búnaðarsamband- anna, enda er því stjómað af fulltrú- um þeirra. Störf Búnaðarþings Auk þess að vera æðsta vald í málefnum Búnaðarfélags íslands er Búnaðarþing ráðgjafarþing um mál- efni landbúnaðarins, einkum þau er varða landbúnaðarlöggjöf og falla ekki undir verksvið Stéttarsambands bænda. Til búnaðarþings berast jafnan Leiðbeiningaþjónustan meginverkefnið Búnaðarfélag íslands hefur yfir- umsjón með þeirri leiðbeiningaþjón- ustu sem veitt er í landbúnaði hérlendis, þó með nokkrum undan- tekningum (veiðimál og skógrækt era t.d. undanskilin). Búnaðarfélag íslands leitast við að hafa í þjónustu sinni sérfróða ráðunauta í sem flestum greinum íslensks landbúnaðar. Héraðsráðu- nautar búnaðarsambandanna hafa mikla samvinnu við ráðunauta BÍ í viðkomandi grein. í nokkram bú- greinum og á allmörgum sérsviðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.