Morgunblaðið - 11.02.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1987
29
Chad:
Frönskum
hermönnum
fjölgað
París, Damaskus. AP, Reuter.
FRAKKAR hafa ákveðið að efla
herstyrk sinn í Chad og verða
fluttir þangað 1000 hermenn frá
herstöðvum í öðrum Afríkuríkj-
um. Fyrir viku ráðlagði Khadafy,
Líbýuleiðtogi, Frökkum að
„læðast“ út úr landinu og hafa
þeir nú brugðist við með þessum
hætti.
Franska varnarmálaráðuneytið
skýrði frá því á mánudag, að
frönskum hermönnum í Chad yrði
fjölgað um 1000, upp í 2400, og
aðallega fluttir þangað frá Miðafrí-
kulýðveldinu. Var lögð áhersla á,
að eftir sem áður væri franski her-
aflinn aðeins til varnar.
Stjórnin í N’djamena, höfuðborg
Chad, heldur því fram, að Líbýu-
menn hafi tvöfaldað herafla sinn í
Chad, úr 10.000 í 20.000, en á
Vesturlöndum er það talið heldur
ólíklegt þótt vitað sé, að líbýsku
hermennirnir eru komnir vel yfir
10.000.
Abdel-Salam Jalloud, sem næst-
ur gengur Khadafy að völdum í
Líbýu, sagði í Damaskus í gær, að
í Chad yrði engin lausn fundin fyrr
en Frakkar færu þaðan. Sagði
hann, að áður en Frakkar skárust
í leikinn „vorum við í þann veginn
að finna afríska lausn á Chadmálinu
en Frakkamir eyðilögðu það allt
saman".
Murdoch kaupir stærstu
blaðasamsteypu Astralíu
Sydney, Ástralíu. Reuter.
BLAÐAKÓNGURINN Rupert
Murdoch seldi á mánudag tvær
stórar sjónvarpsstöðvar í Melbo-
urne og Sydney og ruddi þar
með úr vegi síðustu hindruninni
fyrir kaupum sínum á stærstu
blaðasamsteypu Ástralíu.
Sala sjónvarpsstöðvanna gerði
honum kleift að eignast Herald and
Weekly Times (HWT) eftir tveggja
mánaða stríð við keppinauta, stjóm-
sýslustofnanir, stjómmálamenn og
samtök blaðamanna.
Með kaupunum á HWT hefur
Murdoch undir sinni stjóm tíu stór-
blöð í fímm helstu borgum Ástralíu
og þar með yfír helming allrar
blaðaútgáfu í landinu.
Samkvæmt áströlskum útvaips-
réttarlögum eru útlendingum
óheimil yfírráð yfír útvarpi og sjón-
varpi, en engin slík lagaákvæði taka
til eignarhalds á blöðum eða ann-
arri útgáfustarfsemi. Lög banna
aftur á móti, að útvarps- og sjón-
varpsstöðvar annars vegar og
blaðaútgáfa hins vegar séu í eigu
sömu aðila.
ítalski leikritahöfundurinn Dario Fo:
Um háloftin í orrustuþotu
Carol Wallis er hætt að líma saman módel af flugvélum og tek-
in til við að fljúga sjálf. Fyrir viku festi hún kaup á Saab J29
Lansen orrustuþotu, sem eitt sín var eigu sænska flughersins.
Carol Wallis er dóttir flugmanns og þegar jafnöldrur hennar
voru í dúkkuleik sat Carol heima og setti saman flugvélalíkön.
Hún sagði að draumur sinn hefði ræst þegar hún keypti þot-
una, sem fljúga má á 1300 km hraða á klukkustund. Ekki var
gefið upp hvað þotan kostaði. Á myndinni stendur Carol stolt
við þotu sína.
Murdoch, sem er fæddur í Ástral-
íu, er nú bandarískur ríkisborgari
og rekur umfangsmikil viðskipti í
Bandaríkjunum og Bretlandi.
Áhugi Murdochs á HWT er ekki
eingöngu viðskiptalegs eðlis. Faðir
hans, sir Keith Murdoch, stjómaði
fyrirtækinu til dauðadags 1952 og
er enn talinn upphafsmaður þess.
Murdoch sagði fréttamönnum,
að ástæðan fyrir þeirri ákvörðun
sinni að kaupa HWT hefði byggst
á hörðum viðskiptalegum forsend-
um þrátt fyrir þessi fjölskyldu-
tengsl.
Hann fór a.m.k. tvívegis frá New
York til Ástralíu til að stjóma hinu
tvísýna kapphlaupi við aðalkeppi-
nauta sína, þ. á m. auðjöfurinn
Robert Holmes á Court.
Áströlsku blaðamannasamtökin
beittu sér af hörku á móti Murdoch
og lýstu yfír, að með kaupunum
safnaðist víðtækt fjölmiðlavald á
hendur eins manns.
Undir þessa skoðun blaðmanna-
samtakanna tóku ýmsir stjóm-
málamenn, bæði í stjóm og
stjómarandstöðu, en Bob Hawke
forsætisráðherra hélt sig utan við
bardagann.
Eigínkonan ákveð-
ur skilnað í beinni
sjónvarpsútsendingu
Torino, frá Bryiyu Tomer, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÍTALSKI leikritahöfundurinn
Dario Fo, sem er heimsþekktur
fyrir gamanleiki sína, fékk fyrir
skömmu heldur óskemmtilegar
fréttir í sjónvarpsþætti í beinni
útsendingu. Eiginkona hans,
leikkonan Franca Rame, til-
kynnti þar, að hún hefði í hyggju
að skilja við eiginmann sinn.
Franca Rame var gestur Raffa-
ellu Carrá, þekktrar, ítalskrar
söngkonu, sem stjómar vinsælum
skemmtiþætti í ítalska ríkissjón-
varpinu. Hefur Rame verið gift
Dario Fo síðan 1954. Tilkynningin
um skilnaðinn kom öllum í opna
skjöldu. Var Franca Rame spurð
hvort þau hjónin væru sammála um
þessa niðurstöðu. Leikkonan svar-
aði á þá leið, að maður hennar væri
í Amsterdam um þessar mundir.
Hún hefði því ekki getað ráðfært
sig við hann. „Annars hlýtur hann
að frétta af þessu fljótlega, fyrst
ég er búin að segja 10 milljónum
manna frá því í beinni útsendingu,"
sagði hún.
Dario Fo.
Sérstakt tækifæri!
Skrifstofuhúsnæði
Til sölu er skrifstofuhúsnæði í nýju vönduðu húsi í Skipholti.
Er hér um að ræða skrifstofuhúsnæði í eftirfarandi stærðum:
★ 2. h»6 275 fm. Seid.
★ 3. hæð 325 fm + 325 fm = 650 fm.
★ 4r"hæð froenthouso-V -533~fm. Seld.
Húsnæði þetta er nú í smíðum og verður fokhelt 30. apríl 1987,
en verður afhent 31. október 1987 í eftirfarandi ástandi:
★ Tilbúið að innan til innréttinga og málningar.
★ Með fullfrágenginni sameign og vönduðum frágangi eftir hönnun Sturlu
Más Jónssonar innanhússarkitekts.
★ Húsið verður fullfrágengið að utan með vönduðum frágangi á lóð eftir hönn-
un Guðmundar Sigurðssonar landslagsarkitekts.
Verð og greiðsluskilmálar:
★ Verð pr. fm er kr. 32.950 miðað við staðgreiðslu og byggingavísitölu 1. jan-
úar 1987, 293 stig.
★ Gert er ráð fyrir ýmsum möguleikum á greiðsluskilmálum, sem allir verða
reiknaðir til núvirðis miðað við ofangreint verð.
Hér er um sérstakt tækifæri að ræða m.a. vegna þess, hve stað-
ur er góður og allur frágangur sérlega vandaður. Nánari
upplýsingar verða veittar alla virka daga milli kl. 9 og 14 í
símum 31965 og 82659.