Morgunblaðið - 11.02.1987, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1987
Búnaðarfélag Islands 150 ára
Breyttar áherslur
og tölvuvæðing leið-
beiningaþjónustunnar
Rætt við Jónas Jónsson búnaðarmálastjóra um breyt-
ingar á starfsemi Búnaðarfélagsins vegna breyttra
aðstæðna 1 landbúnaði
„Leiðbeiningaþjónustan gegn-
ir alltaf ákaflega mikilvægu
hlutverki í þróun búskaparins,
ekki síst þegar þarf að breyta
til,“ sagði Jónas Jónsson búnað-
armálastjóri þegar rætt var við
hann um breytingar á starfi Bún-
aðarfélags Islands í ljósi breyttra
aðstæðna i atvinnugreininni.
Byggð upp þjónusta við
loðdýraræktina
Jónas skýrði þetta með nokkrum
dæmum: „Þegar loðdýraræktin
hófst hér upp úr 1970 voru búin
fá en stór. Þá fékk Búnaðarfélagið
mann til að kynna sér þessa grein
og réði hann síðan sem ráðunaut í
loðdýrarækt. Hann starfaði einn að
leiðbeiningum í loðdýraræktinni í
áratug.
Um 1979 byijuðu almennir
bændur á refarækt. Þeim fjölgaði
stöðugt og nokkuð ört og varð þá
mikil þörf fyrir leiðbeiningar í grein-
inni. Aður höfðu héraðsráðunaut-
amir ekki haft tækifæri til að
leiðbeina í loðdýraræktinni en upp
úr 1980 var farið að vinna skipu-
lega að þjálfun þeirra með þeim
árangri að nú eru ráðunautar, sem
kynnt hafa sér loðdýrarækt sérstak-
lega, starfandi í nær öllum loðdýra-
ræktarhéruðunum. Þá hefur
Búnaðarfélagið ráðið sérstakan fóð-
urráðunaut, sem sinnir nær ein-
göngu leiðbeiningum í loðdýrarækt-
inni, auk þess sem ýmsir ráðunautar
Búnaðarfélagsins veija miklum
tíma, sumir meirihluta starfstíma
síns, í þágu loðdýraræktarinnar.
Má í því sambandi nefna bygginga-
og bútækniráðunautinn og hag-
fræðiráðunautinn. Hjá Sambandi
íslenskra loðdýraræktenda starfaði
einnig á síðasta ári skinnaráðunaut-
ur.
Þetta er dæmi um þá áherslu-
breytingu sem orðið hefur í leið-
beiningaþjónustunni og reyndar
einnig kennslu og rannsóknum hjá
Búnaðarfélagi Islands, bændaskól-
unum og Rannsóknastofnun land-
búnaðarins. Þetta hefur verið gert
hér innanhúss, án þess að til hafi
komið teljandi auknar fjárveitingar.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
hefur þó stutt þessa fræðslustarf-
semi og með því gert hana mögu-
lega.
Leiðbeininga-
þörfin mikil
Nauðsynlegt er að geta þess að
þegar um nýbúgreinar er að ræða,
þar sem allir eru byijendur og hóp-
urinn stór; er leiðbeiningaþörfín
gífurleg. Arangurinn er líka að
miklu leyti kominn undir þjálfun
og reynslu bændanna. í þeim héruð-
um sem loðdýraræktin er komin vel
af stað öðlast bændumir þessa
þekkingu að töluverðu leyti frá
nágrönnum sínum sem þegar eru
komnir af stað. Mikilvægt er að
ráðunautarnir séu með á nótunum
þannig að hægt sé að miðla upplýs-
ingum um það besta sem þeir
reyndu gera til byijendanna.
Loðdýraræktin er á engan hátt
vandasamari búgrein en til dæmis
sauðfjárræktin. Munurinn er hins
Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri. Morgunblaðið/ói.K.M.
vegar sá að allir þeir sem alast upp
í sveit hafa reynslu aldanna til að
byggja á í sauðfjárrækt og þeir sem
koma nýir inn í greinina njóta
reynslu nágranna sinna og taka þá
meðvitað eða ómeðvitað til fyrir-
myndar. Þessu er ekki að heilsa í
loðdýraræktinni og er þörfin fyrir
fræðslustarfsemi því mikil, ekki síst
í ljósi þess hve dýrt það er að Iáta
alla læra af mistökum sínum.
Eg sé mikla möguleika fyrir
bændur að vera með í fiskeldinu.
Það getur orðið á einstökum býlum
og bændur geta einnig sameinast
um stærri og smærri stöðvar. Eg
er þó alveg viss um að forsenda
þessa er að ráðunautastarfsemi,
hliðstæð þeirri sem reynt hefur ver-
ið að byggja upp í loðdýraræktinni,
verði komið upp í fiskeldinu. Það
sama gildir raunar um aðrar nýbú-
greinar."
Tölvuvætt bænda-
bókhald
„Annað svið sem Búnaðarfélag
Seljum með verulega góðum afslœtti takmarkað magn af eldhúsvélum, innbyggingarofnum, helluborðum,
viftum og kœliskápum sem verið hafa í útstillingareldhúsum.
Einnig nokkurt magn af lítið útlitsgölluðum heimilistœkjum.
Nú er lag að gera góð kaup
— 10-30% afsláttur
Góðir greiðsluskilmálar.
EINAR FARESTVEIT &. CO. HF.
BERGSTAÐASTRATI I0A - SlMI 16995
Blomberq
þau gerast ekki betri.