Morgunblaðið - 12.02.1987, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1987
Viðeyingafélagið
Aðalfundur Viðeyingafélagsins veróur sunnudag-
inn 15. þ.m. í Síðumúla 17 og hefst kl. 14.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffíveitingar.
Fjölmennum á fundinn.
Viðeyingafélagið
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS:
Aðalfundur
Kaupmannasamtaka íslands verður haldinn í
Hótel Örk í Hveragerði 7. mars nk. og hefst
hann kl. 10.00 f.h.
Dagskrá:
1. Fundarsetning.
2. Ræða formanns.
3. Skýrsla framkvæmdastjóra.
4. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
Umræða og atkvæðagreiðsla.
5. Greinargerð fulltrúa K.í. í bankaráði Verslun-
arbanka íslands hf.
6. Greinargerð fulltrúa K.í. í stjórn Lífeyrissjóðs
verslunarmanna.
Hádegisverðarhlé.
7. Viðskiptaráðherra, Matthías Bjarnason,
ávarpar fundinn og svarar fyrirspurnum.
8. Kosinn formaður og varaformaður K.í. til
tveggja ára.
9. Kosnir tveir endurskoðendur og tveir til vara
til tveggja ára.
10. Lagabreytingar.
11. Önnur mál.
Tillögur og ályktanir.
Framkvæmdastjóri
Opið bréf til
Heimis Pálssonar
eftirJúlíus
K. Björnsson
Kæri Heimir.
Það er leitt að hann Þorsteinn,
fjármálaráðherra, skuli ekki hafa
svarað bréfi þínu. Hins vegar sá ég
í Morgunblaðinu í dag (10/2) að
starfsmaður Þorsteins, Indriði H.
Þorláksson, svarar bréfi þínu ótil-
kvaddur. Þú beindir bréfi þínu alls
ekki til hans heldur einmitt framhjá
honum til ráðherra vegna fram-
komu Indriða sjálfs sem formanns
samninganefndar ríkisins. Ekki nóg
með það. Indriði segir samninga-
nefnd BHMR annaðhvort ljúga að
þér eða ekki hafa skilið tilboð samn-
inganefndar ríkisins (þrátt fyrir
háskólamenntun). Af þessum sök-
um verð ég sem formaður samn-
inganefndar BHMR að senda þér
þessar línur og benda þér á eftirfar-
andi atriði.
Helsti tilgangur Indriða er að
firra Þorstein Pálsson skyldunni að
svara bréfi þínu, enda mun Þor-
steinn eiga erfitt með svör (en
tilgangur þinn var einmitt sá að
knýja Þorstein fram á sjónarsviðið
til að taka ábyrgð á Indriða eða
afneita honum).
Annar helsti tilgangur Indriða
er sá að ijúfa samstöðu félaga í
BHMR og freista þess að lokka HÍK
úr samstarfinu með því m.a. að
kalla samningamenn BHMR í nær
fullkveðnum vísum lygara.
Þriðji helsti tilgangur Indriða er
að rýra almennt málstað BHMR útá
við með því að þyrla enn á ný upp
moldviðri um efnisrök BHMR í
þessari kjaradeilu með blandi af
staðlausum fullyrðingum og rang-
færðum tölum.
Um einstök atriði í grein Indriða
má segja ýmislegt. Hann er snilling-
ur í að rangfæra hluti eins og þú
veist best sjálfur. Eg ætla að nefna
sumar af þessum rangfærslum.
1. Hann heldur því fram að samn-
inganefnd BHMR hafi ekki skilið
tillögur sínar sbr. 2.-5. málsgrein
í grein IHÞ þrátt fyrir háskóla-
menntun samninganna. Þetta telur
hann sig sanna með fullyrðingunni
um lágmarkslaun kennara og lýsir
furðu sinni á tölunni 34 þúsund
(sem á að vera 34.500). Liðir 1 og
2 í tilboði SNR eru alveg eins og
ég lýsti þeim fyrir þér en liður 3
BÍLSKÚRSHURÐIR
Við smíðum allar gerðir af bílskúrshurðum,
þ. á m. hinar hentugu fleka
hurðir. Þær henta sér-
staklega vel þar sem nota
á sjálfvirkan opnara og
hætt er við að snjór setjist
að hurðum.
Sýningarhurð á staðnum.
TRESMIDJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR hf.
V/REYKJANESBRAUT. HAFNARFIRÐI,
SlMAR. 54444, 54495
Samninganef nd ríkis-
ins var hins vegar alls
ekki tilbúin að ræða
kröfur BHMR um lág-
markslaun, jafnvel þó
öllum öðrum launþeg-
um utan opinbera
geirans haf i verið
tryggð lágmarkslaun í
nýgerðum samningrim.
Þetta er staðreynd
málsins sem ætti að
blasa við samninga-
mönnum ríkisins, hvort
sem þeir hafa háskóla-
menntun eða ekki.
er breyttur hjá Indriða núna, þann-
ig að auk niðurfellingar á starfsald-
ursþrepum talar hann nú um
flýtingu til að ná öðrum þrepum.
Þetta er hvorki í samræmi við skrif-
legt né munnlegt tilboð hans. Það
breytir þó alls ekki aðalatriðinu sem
er að núverandi lágmarkslaun innan
BHMR, 30.900 (1. fl. 2. þrep), verða
um 34.500, þegar felld hafa verið
niður tvö fyrstu þrepin og bætt við
áfangahækkunum samkvæmt til-
boði samninganefndar ríkisins!
Yfirskriftin á grein Indriða, „Um
40.000 kr. en ekki 34.000 kr.“, er
því nákvæmru mælikvarði á sann-
sögli hans. (Hins vegar má vel vera
að tölur hans um lágmarkslaun
kennara í lok samningatímabilsins
séu réttar og má líta á það sem
tilboð í rétta átt. Hingað til hefur
þó HÍK ekki viljað fallast á breytt
starfsaldurskerfi, enda mun það
rýra rétt þeirra sem eiga betra í
vændum.)
2. Hann heldur því fram að „hjal“
(þ.e. kröfur) BHMR um lágmarks-
laun sé „uppgerðarumhyggja". Því
fer víðs fjarri. Samninganefnd
BHMR lagði megináherslu á að fá
viðræður um lágmarkslaunakröf-
una og var tilbúin til að gefa því
máli algeran forgang, þ.e. að byij-
unarlaun háskólamanna hjá ríkinu
yrðu 45.500 strax 1. desember og
féllist þá BHMR á að aðrar leiðrétt-
ingar kæmu síðar og í áföngum.
Samninganefnd ríkisins var hins
vegar alls ekki tilbúin að ræða kröf-
ur BHMR um lágmarkslaun, jafnvel
þó öllum öðrum launþegum utan
opinbera geirans hafi verið tryggð
lágmarkslaun í nýgerðum samning-
um. Þetta er staðreynd málsins sem
ætti að blasa við samningamönnum
ríkisins, hvort sem þeir hafa há-
skólamenntun eða ekki.
Indriði heldur því statt og stöð-
ugt fram í grein sinni að stefna
BHMR sé að hækka mest laun
þeirra sem mest laun hafi fyrir en
tillögur samninganefndar ríkisins
hafi gengið í gagnstæða átt. Þetta
er alls ekki rétt. Fyrsta og aðal-
krafa BHMR var lágmarkslauna-
krafan sem að öðru óbreyttu hefði
þýtt að allmargir almennir háskóla-
menn í starfi hjá ríkinu hefðu náð
sambærilegum launum og yfirmenn
þeirra sem nú hafa smánarleg laun.
Auðvitað sýnir þetta hve laun allra
BHMR manna eru lág. Þetta vanda-
mál eygði samninganefnd BHMR
og undirrót vandans er sú að dag-
vinnulaun háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna í dag eru ekki aðeins
mjög lág heldur er bilið milli undir-
og yfirmanna afar lítið og hefði sem
sagt minnkað og jafnvel þurrkast
út. í þeirri stöðu myndu margir
kjósa að axla litla eða enga ábyrgð
og fá sömu laun. BHMR lagði þess
vegna fram ramma að hugmynd
hvemig mætti umbuna þeim sem
bera faglega og stjórnunarlega
ábyrgð sérstaklega. Það var skoðun
samningamann BHMR að hér væri
ekki unnt að vinna upp hugmyndina
í samráði við samninganefnd ríkis-
ins. En samninganefnd ríkisins vildi
hvorki ræða um lágmarkslaun né
hvernig ætti að tryggja að yfirmenn
fengju umbun fyrir ábyrgð sína.
Indriði heldur því fram að skiln-
ingur samningamanna BHMR hafi
verið lakari en skilningur samn-
ingamanna BSRB á tillögum
samninganefndar ríkisins. Samn-
ingamenn BSRB byrjuðu viðræður
við ríkið í byijun desember en
BHMR í byijun janúar. Stjóm
BHMR sleit viðræðum við samn-
inganefnd ríkisins 28. janúar sl. en
samninganefnd BSRB er í dag að
gera slíkt hið saman. Það tók BSRB
tvo mánuði að sjá í gegnum Ind-
riða, sem stjóm BHMR gerði á
tveimur vikum!
Með bestu kveðjum og von um
að þú fáir svör frá fjármálaráð-
herra.
Óskum eftir
u.þ.b. þriggja herb. íbúð í vesturbænum til
u.þ.b. tveggja ára.
Upplýsingar hjá Brynju eða Joseph í síma
612303 eftir kl. 5.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^um Moggans!
ÁRATUCA REYNSLA í HURÐASMÍÐI