Morgunblaðið - 12.02.1987, Page 64
X-Xöföar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!
Þjóðleikhúsið:
Aðsóknin
alveg með
eindæmum
„ÞAÐ er víst óhætt að segja að
aðsóknin hefur verið alveg með
eindæmum hjá okkur í vetur,“
sagði Gísli Alfreðsson, Þjóðleik-
hússtjóri, aðspurður hvemig
sýningar hefðu gengið í húsinu.
„Við lendum jafnvel í erfíðleikum
með að hætta við leikrit til að rýma
fyrir nýjum," sagði Gísli ennfremur,
„því auðvitað er ekki hægt að hætta
sýningum fyrir fullu húsi. Við miðum
ávallt við meðalaðsókn þegar við
gerum áætlanir fyrir veturinn, en
sýningar okkar nú hafa allar farið
fram úr þeim áætlunum. Það er enn
ekki útséð hvort við getum tekið öll
leikritin á verkefnaskrá vetrarins til
sýninga, en ennþá vonum við þó að
^-»3vo verði.
Þótt framboð á leikhúsverkum sé
mikið, miklu meira en í fyrra, virðist
það ekkert hafa að segja. Það virðist
heldur auka aðsóknina. Við enim, til
dæmis, að taka Uppreisn á ísafirði
aftur til sýninga, án þess að taka
þau verkj sem fyrir eru, út af stóra
sviðinu. A litla sviðinu úti við Lindar-
götu er Smásjáin í fullum gangi og
þar verða tveir einþáttungar frum-
sýndir að líkindum 24. þessa
mánaðar. Þetta eru verðlaunaleikrit
r úr leikritasamkeppni Þjóðleikhússins
í tilefni af lokum kvennaáratugar
1985 og við komum líklega til með
að sýna þar öll kvöld vikunnar, því
við munum halda áfram að sýna
Smásjána."
STERKT KDRT
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Nýja flugstöðvarbyggingin er glæsilegt hús, sérstaklega í ljósaskiptunum. Morgunblaðið/GuðmundurPétursson
Keflavíkurflugvöllur:
Nýja f lugstöðin að verða tilbúin
NYJA flugstöðin við Keflavík-
urflugvöll er nú óðum að taka
á sig endanlega mynd, og að
sögn Sverris Hauks Gunnlaugs-
sonar, formanns byggingar-
nefndar flugstöðvarinnar,
bendir ekkert til annars en að
áætlanir standist og flugstöðin
verði formlega opnuð 14. apríl.
Enn hefur ekki verið gengið
frá því hvaða verslanir fá að
selja varning sinn í flugstöðvar-
byggingunni, en Sverrir sagði
að margir hefðu sýnt því
áhuga.
Ymsar framkvæmdir eru í
gangi samhliða húsbyggingunni.
Verið er að ganga frá húsnæði
fyrir Flugleiðir, og eldsneytis-
birgðastöð sem olíufélögin eru að
láta reisa, auk þess sem miklar
lóðaframkvæmdir eru nú við
bygginguna, og verið er að leggja
þangað veg. Sverrir sagði að þótt
ekki verði allt fullfrágengið við
húsið 14. apríl verði örugglega
hægt að taka þar á móti far-
þegum.
Kostnaðaráætlun við byggingu
flugstöðvarinnar hljóðaði upp á
42 milljónir bandaríkjadala.
Sverrir sagði að einhveijar verð-
breytingar hefðu orðið síðan
áætlunin var gerð, og einnig var
stöðin stækkuð miðað við fyrstu
áætlanir, þannig að kostnaður við
bygginguna yrði eitthvað meiri
en samt innan eðlilegra marka.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ungar skríða úr eggjum í útungunarstöð Holtabúsins á Hellu.
Framleiðslan samsvar-
ar 100 sauðfjárbúum
Á STÆRSTA búi landsins,
Reykjagarði hf., eru 200.000
fuglar og framleiðsian er 750
tonn af kjúklingum á ári.
Reykjagarður hefur rekið vax-
andi alifuglabú í Mosfellssveit
undanfarin ár og um áramótin
keypti fyrirtækið kjúklinga-
hluta Holtabúsins á Ásmundar-
stöðum í Rangárvallasýslu og
urðu eigendur fyrirtækisins þá
umsvifamestu bændur Iandsins.
Eigendur Reykjagarðs hf. eru
feðgamir Jón V. Bjamason og
Bjami Ásgeir Jónsson og fjöl-
skyldur þeirra. Eftir kaupin á
Holtabúinu er framleiðslugeta
fyrirtækisins 1.200 tonn á ári en
vegna offramleiðslu á kjúklingum
er ætlunin að minnka framleiðsl-
una á þessu ári niður í 750 tonn.
Framleiðsla þessa eina bús sam-
svarar kindakjötsframleiðslu 100
verðlagsgmndvallarbúa í sauð-
fjárrækt og er talsvert meiri en
öll kindakjötsframleiðsla í Aust-
ur-Húnavatnssýslu svo dæmi sé
tekið.
Auk kjúklingaframleiðslunnar
er fyrirtækið með töluverða
eggjaframleiðslu. Þá á það ali-
fuglasláturhúsið Dímon á Hellu
og er stærsti innleggjandi í ali-
fuglasláturhúsinu ísfugli í Mos-
fellssveit.
Sjá miðopnu: „Bústofninn
200.000 fuglar.“
Hjartaskurðaðgerðir
á Landspítalanum mun
fleiri en ráðgert var
ÚTLIT er fyrir að fjöldi hjarta-
skurðaðgerða hér á landi fari
langt fram úr þeim áætlunum
sem gerðar voru i upphafi, að
sögn Davíðs Á. Gunnarssonar,
forstjóra Ríkisspítalanna. Á þeim
átta mánuðum sem liðnir eru
síðan fyrsta aðgerðin var gerð á
Landspítalanum hefur komið í
ljós að flestir ef ekki allir sjúkl-
ingar, sem þurfa að gangast
undir hjartaaðgerð, viþ'a fremur
gangast undir slíka aðgerð hér-
lendis en erlendis. Einnig hefur
komið f ljós að sá árangur sem
hér næst er fyllilega sambærileg-
ur við það besta sem gerist
annars staðar í heiminum. Því
er stefnt að því að innan tíðar
verði einnig gerðar hér aðgerðir
á hjartalokum, sem áður hafði
verið reiknað með að þyrfti að
gera erlendis.
„Við áttum von á því að einhver
hópur fólks færi áfram til útlanda,
en reynslan er sú að nánast allir
sjúklingar vilja fremur láta gera
slíkar aðgerðir á sér hér heima og
líklega verða 30-50% fleiri aðgerðir
gerðar árlega en gert var ráð fyrir
f upphaflegum áætlunum," sagði
Davíð. „Þessu til viðbótar er stefnt
að því að á allra næstu vikum hefj-
ist hér jafnframt útvíkkanir á
kransæðum hjartans. Allmargir
sjúklingar hafa árlega gengist und-
ir slíkar aðgerðir í Bretlandi og
Bandaríkjunum. Forsenda þess að
þessar aðgerðir flytjist hingað til
landsins er vel útbúin deild fyrir
hjartaskurðlækningar, en slík að-
staða er nú fyrir hendi hér.“
Að sögn Davíðs mun þessi breyt-
ing flytja til landsins starfsemi sem
áður kostaði yfir 50 milljónir í er-
NOKKUÐ hefur verið um það
að loðnukvótar hafi verið seldir
eða færðir milli skipa innan sömu
útgerðar. Mestu munar þar um
að þrjú skip, sem áttu kvóta,
nýttu sér hann ekki sjálf. Verð
á hverri lest af óveiddri loðnu
hefur verið 300 til 400 krónur.
Heimaey VE, Jöfur KE og Sjáv-
arborg ÞH fengu öll úthlutað
loðnukvóta fyrir þessa vertíð, en
þau hafa stundað rækjuveiðar í stað
loðnu og selt kvóta eða fært yfir á
önnur skip. Þá hefur einnig verið'
eitthvað um það að skipt hafi veriði
á loðnu og bolfiski. Einnig hefur
eitthvað af loðnu verið látið meðl
þeim hætti að viðkomandi þiggjend-
lendum gjaldeyri. Aðspurður sagði
Davíð að búið væri að gera 41
hjartaaðgerð á Landspítalanum nú
þegar, en ekki hefði verið hægt að
mæta þörfinni að fullu. Úr því yrði
hins vegar bætt alveg á næstunni
og þegar væri farið að gera ráðstaf-
anir í þá veru.
ur landi rækju hjá gefendum að
lokinni loðnuvertíðinni.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að heimila loðnuskipunum
að koma tvívegis að landi með full-
fermi umfram úthlutaðan kvóta.
Þetta er gert með hliðsjón af því,
að veiðistofn loðnunnar mældist
gjöfulli en áður hafði verið áætlað
og einnig til að tryggja að úthlutað-
ur afli náist. Ennfremur er þetta
gert í því skyni að auðvelda fram-
leiðendum að standa við gerða
samninga um sölu á frystri loðnu
og loðnuhrognum. Heimild þessi er
háð því, að aflinn, sem veiddur verð-
ur samkvæmt henni, dragist frá
úthlutuðum kvóta á næsta ári.
Nokkuð um sölu
á loðnukvótum
Loðna „á sporði“ kostar 3-400 kr. lestin