Morgunblaðið - 13.02.1987, Side 5

Morgunblaðið - 13.02.1987, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987 5 Vestmannaeyjar: Svartfuglinn sestur upp óvenju snemma Fug-Iaáhugamenn S Vest- lega væri svartfuglinn nú fyrr á mannaeyjum hafa veitt því ferðinni en áður, eða um mánuði athygli að svartfuglinn er fyrir fyrr en venjulega. Þá sagði Óskar nokkru sestur upp, eins og þeir að mikill fyll hefði verið kominn í segja, mun fyrr en vant er. Ritan janúar sem væri óvenjulegt og ritan og fýllinn hafa einnig setið uppi væri einnig snemma á ferðinni. meira og minna í janúar sem er „Ég held að fuglinn sæki þangað harla óvenjulegt. sem björgin er best og nóg er að Óskar J. Sigurðsson, vitavörður éta. Það að góð skilyrði eru í sjónum og veðurathugunarmaður í Stór- og veðurfar hefur verið gott hefur höfða, sem er mikill fuglaáhuga- haft sitt að segja með það hvað maður og hefur merkt þúsundir fuglinn er snemma á ferðinni í ár,“ fugla á undanfömum árum, sagði sagði Óskar J. Sigurðsson. í samtali við Morgunblaðið að vissu- — hkj. Morgunblaðið/Sigurgeir Það er orðið líflegt í fuglabjörgum Vestmannaeyja. Svartfuglinn sestur upp mánuði fyrr en vanalega. Lágt fiskverð erlendis VERÐ á ferskfiskmörkuðunum í Þýzkalandi hefur að undanförnu farið lækkandi. Stafar það aðal- lega af miklu framboði nú í kjölfar hás verðs í síðustu viku. Engey RE seldi á fimmtudag 247 lestir, merst karfa, í Bremerhaven. Heildarverð var 12 milljónir króna, meðalverð 48,40. Már SH lauk við sölu sína í Grimsby á fimmtudag. Alls seldi hann 192,6 lestir að verð- mæti 10 milljónir króna. Meðalverð var 52,27 krónur. Hátt í tíu þús- und afruglar- ar nú seldir HÁTT í tíuþúsund lyklar eða afruglarar til að ná útsendingum Stövar 2 hafa verið seldir hjá Heimilistækjum hf. að sögn Jóns Björgvinssonar aðstoðarverslun- arstjóra, og standa nú vonir til að hægt verði að afgreiða þesi tæki af lager í náinni framtíð. Hingað til hafa viðskiptavinir þurft að skrá sig á biðlista eða leggja það á sig að bíða í biðröð- um eftir að fá keypta afruglara. Afgreiðslufrestur á afruglurum hefur verið talsverður, frá því Stöð 2 hóf útsendingar, en að sögn Jóns Björgvinssonar er vonast til að fljót- lega verði hægt að afgreiða þá af lager. Samt væri enn töluverður fyöldi fólks sem bíður eftir slíku tæki, enda setti farmannaverkfallið nokkuð strik í reikninginn. Jón sagði að verslunin væri hætt að skrá fólk á biðlista eftir afruglurum. Heimilistæki hafa undanfarið selt nokkuð aðra gerð af afruglur- um en þá sem fyrst stóð til boða og eru þeir að sögn Jóns Björgvins- sonar fyrirferðarminni en um leið fullkomnari og gefa meiri mögu- leika á tengingu við aðrar sjón- varpsstöðvar sem hugsanlega verða settar upp í framtíðinni. Jafnframt eru þessir afruglarar aðeins dýrari en þeir sem fyrst voru seldir. Blöðru komið fyrir í maga til að minnka matarlystina TILRAUNIR til að lækna offitu með gúmmíblöðru, sem komið er fyrir í maga sjúklinga í ákveð- inn tíma, hafa lofað góðu í Danmörku undanfarið og nú at- hugar Ásgeir Theódórs melt- ingasjúkdómafræðingur möguleika á að reyna þessa megrunaraðferð hér á landi. Aðferðin byggist á að egglaga blaðra úr nægilega sterku efni til að þola meltingarvökva, er sett í magann til uppfyllingar svo fólk hefur ekki mikla matarlyst og getur ekki borðað eins mikið og venju- lega. Blaðran er höfð í maganum í 3-4 mánuði og á meðan er tíminn nýttur til að breyta mataræði og hegðunarmynstri fólks. Asgeir Theódórs hefur kynnt sér ísetningu slíkra blaðra í Danmörku en í samtali við Morgunblaðið sagði hann að tveir ungir Danir hefðu nýlega dottið niður á mjög gott plastefni fyrir blöðrurnar. Þangað til hafði gengið illa að finna heppi- legt efni og lögun á blöðrunni þótt tilraunir með aðferðina hefðu hafist fyrir nokkrum árum. Danimir hafa nú komið blöðrum fyrir í um 1000 sjúklingum og að sögn Ásgeirs tók- ust þær aðgerðir mjög vel og aukaverkanir voru fáar. Blaðran ein og sér er ekki nein allshetjarlausn, að sögn Ásgeirs, heldur þarf ýmislegt að fylgja með, þar á meðal eins konar sálræn end- uruppbygging. Ásgeir sagði að blaðran væri þó örugglega mun betri en margt annað sem notað er til megrunar, eins og kjálka- vírun, gamastytting og minnkun maga, þar sem þetta væru talsverð- ar aðgerðir sem hefða miklar aukaverkanir. Ásgeir sagði að erfítt væri að meta á þessari stundu hveijum þessi meðferð hentar best, og örugglega þurfí að velja það fólk mjög vand- lega sem fær þessa meðferð. Til að byrja með yrði sjálfsagt valið fólk sem er komið í áhættuflokk vegna offítu, hefur fengið fylgi- kvilla og fólk sem reynt hefur verið árangurslaust að megra fyrir skurð- aðgerðir. Verið er að athuga möguleika á að mynda hérlendis einskonar með- ferðarhóp með lækni, sem kæmi blöðrunni fyrir og væri þá melting- arsérfræðingur, hjúkrunarfræðingi, matvælasérfræðingi og hugsanlega sálfræðingi eða geðlækni. Einnig hafa farið fram viðræður við sjúkra- hús um að setja upp aðstöðu til að framkvæma ísetningu blöðrunnar. LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN MYNDAMOT HF. m m m Held nú síður — ekki með allar ■ Vertu bara velkominn @ KARNABÆR ™ barnadeild. Austurstræti 22

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.