Morgunblaðið - 13.02.1987, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987
Shcharansky
árílsrael
ÁR er iiðið síðan Anatoly
Shcharansky var sleppt úr
fangelsi í Sovétríkjunum og
leyft að flytja úr landi til ísra-
els. Skorað hefur verið á
Shcharansky að bjóða sig fram
til forseta eða hefja afskipti af
stjórnmálum, en hann neitar
alfarið. Aftur á móti hefur
Shcharansky heitið að halda
áfram bartáttunni í þágu gyð-
inga i Sovétríkjunum. Shchar-
ansky stendur hér á skrifstofu
sinni í Jerúsalem. Á veggnum
að baki honum hangir vegg-
spjald þar sem stofnun Isra-
elsríkis er fagnað.
Norræna fer ekki
í páskasiglinguna
Þórshöfn, frá Hilmari Jan Hansen, fréttaritara Morgunblaðsins.
NORRÆNA, færeyska farþega-
skipið, fer ekki í páskaferðina
til Israels vegna ónógrar þátt-
töku í ferðinni. Lágmark var að
350 farþegar yrðu í ferðinni, en
aðeins 225 bókuðu sig i ferðina,
þar á meðal 21 íslendingur og
átta Danir.
Talið er að eftirspurnin hafi ekki
verið meiri sökum þess að ferðalag-
ið átti að taka heilan mánuð og sú
skemmtidagskrá, sem í boði var um
borð, þótti ekki mjög áhugaverð.
Norræna átti að hafa viðdvöl í
Rómaborg, á Rhodos, og öðrum
athyglisverðum stöðum. Á heim-
leiðinni til Færeyja átti m.a. að
hafa viðdvöl á Isle of Man.
Sem stendur er Norræna í Kaup-
mannahöfn þar sem unnið er að
viðgerðum og viðhaldi á skipinu,
sem verið hefur flóttamannaheimili
frá í október.
Sumaráætlun Norrænu hefst 30.
maí nk. er skipið siglir frá Hants-
holm í Danmörku. I millitíðinni
verður skipið leigt til NATO-æfinga
í þijár vikur í marz.
Dr. Jón Bragi Bjarnason
sem skipar 5 sætiö
heldur opinn fund í Kosningamiðstöðinni
laugardaginn 14. febrúar kl. 14.00
K>0«S*N*I*N*G*A*M*I*Ð*S*T*Ö*Ð
A*L‘Þ*ݑБU*F*L*0*K*K*S*I*N*S
SÍMAR:
689370 - 689371
Spánn:
Lögregla
náði 18 kg
af heróíni
Lerida, Reuter.
SPÆNSKA lögreglan náði á mið-
vikudag tæpum 18 kg af hreinu
heróíni að andvirði 28 milljóna
dollara (um 1120 milljónir ísl.
kr.) í borginni Lerida.
Litlu munaði að aðgerð lögregl-
unnar færi út um þúfur því að
lögregluforingi, sem var á hælunum
á tveimur hinna grunuðu, keyrði á
og lét lífið.
Að sögn lögreglunnar varð þá
að handtaka fólkið í bifreiðinni, sem
lögregluforinginn elti, áður en það
komst til Madrid. í bifreiðinni voru
63 ára gamall maður og 33 ára
gömul kona hans.
Sveit lögregluþjóna í Madrid
gerði í sömu mund áhlaup á íbúð í
höfuðborginni og handtók þrjá
Tyrkja og fjórar konur frá
Kólombíu, sem lögregla sagði að
hefðu átt að fá eitrið í hendur.
Að sögn lögreglu var varaþing-
maður sósíalista á landsþingi, Jose
Luis Torner, handtekinn á flugvell-
inum í Madrid á þriðjudag þegar
hann tók á móti ferðamanni frá
Caracas í Venezuela, sem var með
300 grömm af kókaíni innan klæðá.
íhaldsflokk-
urinn með
meira fylgi
London, Reuter
ÍHALDSFLOKKURINN í Bret-
landi nýtur 3ja prósenta meira
fylgis en Verkamannaflokkur-
inn, að því er segir í niðurstöðum
skoðanakönnunar, sem var birt
í Guardian í dag, fimmtudag. Af
þéim sem spurðir voru sögðust
38 prósent styðja íhaldsflokkinn,
en 35 prósent kváðust mundu
kjósa Verkamannaflokkinn. Lýð-
ræðisbandalagið fékk 25 pró-
sent.
Talið er víst, að Margaret Thatc-
her, forsætisráðherra, muni efna til
kosninga á árinu og muni taka mið
af niðurstöðum skoðanakannana
um, hvenær hún ákveður kjördag.
Ef niðurstöður kosninganna yrðu í
samræmi við það sem út úr nýjustu
skoðanakönnuninni þýddi það að
enginn flokkur næði afgerandi
meirihluta í Neðri málstofunni. En
í skoðanakönnunum síðustu mánuði
hefur íhaldsflokkurinn þó jafnan
haft meira fylgi en Verkamannafli-
okkurinn.