Morgunblaðið - 26.03.1987, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
ÚTVARP / SJÓNVARP
Helena
Síðastliðinn miðvikudag settist ég
í betri stofuna og hlýddi á frétta-
mannamót þeirra Alberts, Þorsteins
og ólafs G. í Alþingishúsinu. Satt að
segja bjóst ég við að Albert hyrfi sem
slqótast af vettvangi en hann sat sem
fastast og ræddi málið með sínu lagi.
Hvað um það þá snerist fréttamanna-
mótið um tíma upp í einskonar spjall
þar sem oft var erfitt að greina þann
er sat í stóli spyrils. Svo mætti Albert
í beina útsendingu upp í Ríkissjónvarp
þar sem áhorfandinn bjóst við á hverri
stundu að Ingvi Hrafn leysti framboðs-
vandamál Alberts. Þá mætti Þorsteinn
í Eldllnu þeirra Páls Magnússonar og
Ólafs E. Friðrikssonar. Þorsteinn
spurði ekki ráða enda leiðtogi flokks-
ins. í gærmorgun kveikti undirritaður
svo að venju á útvarpinu — um frí er
víst ekki að ræða I þessu starfí — nú
og gellur þar ekki í Ásgeiri herráðs-
manni í Hulduhemum. Svo hófust
fréttir á Bylgjunni og þar var frétta-
maðurinn úti á flugvelli að taka á
móti Helenu Albertsdóttur, verðandi
herráðsformanni, og svo hlustaði ég
bæði fyrir og eftir fréttir á fjölda
manna er hringdu í símatíma útvarps-
ins og ósköpuðust sumir yfír með-
ferðinni á Albert.
Er þjóðin að bilast? Auðvitað eru
margir reiðir vegna þess að hér vaða
uppi valdsmenn er fara með peninga
almennings oft eins og sína eigin og
ausa þeim I glæsihallir og standa svo
saman eins og einn maður og vissulega
finnur maður til með Albert Guð-
mundssyni og fjölskyldu hans, einkum
syninum Inga Bimi, er fékk ekki jafn-
sjálfsögð yfírráð yfír fyrirtæki sínu og
prókúm, en hvað um það þá trúi ég
því ekki að Þorsteinn Pálsson segi
ósatt. Sjónvarpið er ágengur miðill og
undirritaður telur sig stundum geta
merkt af viðbrögðum manna í hinu
bjarta skini sjónvarpslampans hvort
þeir hafi hreina samvisku eður ei. Þor-
steinn hefur ekki sýnt nein merki þess
að hann fari með rangt mál. Þannig
höfðar Þorsteinn ekki til tilfínninga
manna né setur sig á stól píslarvotts.
Hann leggur einfaldlega spilin á borð-
ið og lætur áhorfendum eftir að dæma
I málinu. Slíkir menn hljóta að vekja
traust því þeir sækjast ekki eftir
skyndivinsældum né klappi á bakið.
Þorsteinn freistar þess einfaldlega að
framfylgja þeirri reglu að með lögum
skal land byggja.
Albertsmálið hefír hins vegar sann-
fært undirritaðan um að hér á landi
búa tvær þjóðir. Annars vegar laun-
þegar er telja hveija krónu fram til
skatts, hins vegar hópur atvinnurek-
enda (vonandi mjög fáir) er telur það
„eðlilega" viðskiptahætti að „gleyma"
að telja ákveðnar fjárhæðir fram til
skatts. Nú og ef upp kemst þá eru
fjárhæðimar svo „undursmáar“ að
ekki tekur því að ræða málið. Slíkar
fjárhæðir geta reyndar numið hálfum
árslaunum láglaunafólksins. Ólafur E.
Friðriksson, fréttamaður Stöðvar 2,
hefur að mínu mati gert ansi glögga
grein fýrir hinum tölulegu staðreynd-
um Albertsmálsins og mættu frétta-
menn ljósvakamiðlanna gera meira af
því að setja málin I tölfræðilegt sam-
hengi, til dæmis skoða afsláttargreiðsl-
umar og gjafimar í ljósi almennra
launakjara í landi vom. Þess I stað
spila sumir fréttamenn á tilfínningar
manna líkt og pólitískir æsingamenn
hafa ætíð gert, oft með hinum háska-
legustu afleiðingum.
Nei, leikið ykkur ekki að eldinum,
fréttamenn, í því skyni einu að seðja
fréttahungrið. Beinið þess í stað at-
hyglinni að þeim alvarlega vanda er
nú steðjar að þeim hluta íslensku þjóð-
arinnar er hefír lagt í langt og oft
strangt háskólanám t því skjmi að
þjóna landi og þjóð. Það er heldur
dapurlegt til þess að hugsa að ef ræt-
ist ekki fljótlega úr vandanum þá
muni tugir ef ekki hundruð sérmennt-
aðra íslendinga leita til starfa er hæfa
ekki hinni rándým menntun þeirra, eða
hvers á kennarinn að gjalda er fréttir
að nemandinn hafí hærri laun fyrir að
aka kókbfl en lærifaðirinn er kom heim
með sína sérmenntun og 700 þúsund
króna námsskuld á bakinu? Ljósvaka-
fréttamenn ættu að gera meira af því
að athuga þessa hluti í köldu ljósi töl-
fræðinnar — menn lifa ekki lengi á
vorkunnseminni einni saman.
Ólafur M.
Jóhannesson
Fimmtudagsleikritið:
Staldrað við
■■■■ Leikritið Staldr-
OAOO að við hlaut 2.
verðlaun í leik-
ritasamkeppni RÚV 1986.
í umsögn dómnefndar um
leikritið segir: „Staldrað
við eftir Úlf Hjörvar er vel
samið leikrit um efni sem
- eftir Úlf Hjörvar
löngum hefur gefist vel I
leikbókmenntum; afhjúpun
gamallar misgerðar sem
um árabil hefur legið falin
bak við hrukkulaust yfir-
borð góðborgaralegs lífs.
Uppistaða leiksins er flöl-
skyldudrama sem óvæntur
atburður verður til að end-
urvekja og höfundur leiðir
á markvissan hátt í ljós.
Siðræn ádeila verksins ber
persónusköpun og trúverð-
ugleik þess ekki ofurliði.
Það er spennandi og lausn
átakanna í senn rökrétt og
Leikendur aðalpersóna í Staldrað við ásamt leik-
stjóranum.
óvænt".
Aðalpersónur leika þau
Jón Sigurbjömsson, Guð-
björg Þorbjamardóttir og
Þóra Friðríksdóttir. Aðrir
leikendur eru Jóhann Sig-
urðarson, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Valdimar
Öm Flygenring, Þröstur
Leó Gunnarsson, Rósa G.
Þórsdóttir, Ragnheiður
Tryggvadóttir og Karl
Guðmundsson. Leikstjóri
er Stefán Baldursson.
UTVARP
FIMMTUDAGUR
26. mars
6.46 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin. — Jón
Baldvin Halldórsson og Jón
Guðni Kristjánsson. Fréttir
eru sagöar kl. 7.30 og 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25.
Guömundur Sæmundsson
talar um daglegt mál kl.
7.20.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Mamma í upp-
sveiflu" eftir Ármann Kr.
Einarsson. Höfundur les
(19).
9.20 Morguntrimm. Lesið úr
forustugreinum dagblað-
anna. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.46 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn — Hvað
vilja flokkarnir í fjölskyldu-
málum?
Fimmti þáttur: Kvennalist-
inn. Umsjón: Anna G.
Magnúsdóttir og Berglind
Gunnarsdóttir.
14.00 Miödegissagan: „Áfram
veginn", sagan um Stefán
(slandi. Indriði G. Þorsteins-
son skraði. Sigríður Schiöth
les (24).
14.30 Textasmiðjan.
Lög við texta Sigurðar Þór-
arinssonar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn.
Umsjón: Sverrir Gauti Di-
ego.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin. Jóhanna Haf-
liöadóttir. Dagskrá
16.16 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Siðdegistónleikar.
a. Konsert fyrir viólu og
strengjasveit eftir George
Philipp Telemann. Cino
Ghedin leikur með I Musici-
kammersveitinni.
b. Flautusónata í F-dúr eftir
Francesco Maria Veracini.
Auréle Nicolet, Georg Mal-
colm og Georg Donderer
leika á flautu, sembal og
selló.
c. Brandenborgarkonsert
nr. 6 í F-dúr eftir Johann
Sebastian Bach. Gítartríóið
í Amsterdam leikur.
17.40 Torgiö — Menningar-
straumar.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá morgni sem Guð-
mundur Sæmundsson
flytur.
19.45 Að utan. Fréttaþáttur
um eríend málefni.
20.00 Leikrit: „Staldrað við"
eftir Úlf Hjörvar
Leikstjóri: Stefán Baldurs-
son. Leikendur: Jóhann
Sigurðsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Valdimar
Örn Flygenring, Þröstur Leó
Gunnarsson, Jón Sigur-
björnsson, Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, Þóra Friðriks-
dóttir, Rósa Guðný
Þórsdóttir, Ragnheiður
Tryggvadóttir og Karl Guð-
mundsson. (Leikritið verður
endurtekið nk. þriöjudags-
kvöld kl. 22.20)
20.40 Tónleikar Berlínarfíl-
SJÓNVARP
jQfc
TF
FÖSTUDAGUR
27. mars
18.00 Nilli Hólmgeirsson
Níundi þáttur í þýskum
teiknimyndaflokki. Sögu-
maður: Örn Árnason.
Þýðandi: Jóhanna Þráins-
dóttir.
18.26 Stundin okkar
Endursýning. Endursýndur
þáttur frá 22. mars.
19.00 Á döfinni
Umsjón: Anna Hinriksdóttir.
19.10 Þingsjá
Umsjón: Ólafur Sigurðsson
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Poppkorn
Umsjónarmenn Guðmund-
ur Bjarni Harðarson og
Ragnar Halldórsson.
20.00 Fréttir og veður
20.36 Unglingarnirífrumskóg-
inum
Frá (slandsmeistarakeppn-
inni í dansi með frjálsri
aöferð sem háð var í
Tónabæ á dögunum. Fyrri
hluti: Flokkakeppni. Stjórn
upptöku: Gunnlaugur Jón-
asson.
21.36 Mike Hammer
Níundi þáttur í bandarískum
sakamálamyndaflokki. Þýð-
andi: Stefán Jökulsson.
22.25 Kastljós
Reyklaus dagur. Umsjónar-
maður: Helgi H. Jónsson.
22.66 Seinni fréttir
23.05 Stundargriö
(Prodlouzeny cas). Tékk-
nesk bíómynd frá árinu
1984. Leikstjóri: Jaromil Jir-
es. Aðalhlutverk: Milos
Kopecky og Tatana Fisc-
herova. Roskinn listfræðing-
ur, sem býr með ungri konu,
kvíðir ellinni og gerist sótt-
hræddur mjög. Honum er
tjáð að hann gangi með
krabbamein og eigi skammt
eftir ólifað. Þótt undarlegt
megi viröast léttist heldur á
karli brúnin við þá vitneskju.
Hann losnar við angistina
og tekur að njóta lífsins.
Þýöandi: Jóhanna Þráins-
dóttir.
00.40 Dagskrárlok.
U
0
5TÖÐ2
FIMMTUDAGUR
26. mars
§17.00 Myndrokk
§18.00 Knattspyrna. Um-
sjónarmaður er Heimir
Karlsson.
19.05 Hardy-gengið. Teikni-
mynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lína. Áhorfendum
Stöðvar 2 gefst kostur á að
hringja í síma 673888 á
milli 20.00 og 20.15. í sjón-
varpssal sitja stjórnandi og
einn gestur fyrir svörum.
20.60 Morðgáta (Murder She
Wrote).
Ferð Jessicu til Palm
Springs breytist óvænt þeg-
ar eiginmaður fyrrum skóla-
systur hennar er myrtur
þrátt fyrir mjög stranga ör-
yggisgæslu.
§21.35 Eiturlyfjavandinn
(Toma, the Drug knot).
Ný sjónvarpsmynd býggð á
sönnun atburðum. David
Toma er lögreglumaður
sem hefur starfað mikið
óeinkennisklæddur. Mynd
þessi er byggð á atburðum
úr lífi hans.
§22.05 Af bæ f borg
(Perfect Strangers).
Bandarískur gamanþáttur.
§22.55 Árásin á Pearl Har-
bor
(Toral Toral Thoral)
Bandarísk- japönsk bfó-
mynd með Martin Balsam
og Soh Yamamura í aðal-
hlutverkum. Mynd þessi
segir frá aðdraganda loftár-
ásarinnar frá sjónarhóli
beggja aðila.
§01.45 Dagskrárlok.
harmoníunnar 26. júli f fyrra
til heiðurs Yehudi Menuhin
sjötugum. Einleikari og
stjórnandi: Yehudi Menu-
hin. Fiðlukonsert f D-dúr op
61 eftir Ludwig van Beet-
hoven. (Hljóðritun frá Berlín-
arútvarpinu.)
22.35 Atvik undir Jökli
Steingrímur St. Th. Sigurðs-
son segir frá.
22.16 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma
Andrés Björnsson les 32.
sálm.
22.30 „Drukkna skipiö"
Jón Óskar les óprentaða
þýðingu sina á Ijóði eftir
Arthur Rimbaud og flytur
formálsorð.
22.40 „Þrfr háir tónar"
Fjallað um söngríóiö „Þrír
háir tónar", leikin lög með
þvi og talað við einn söngv-
arann, Örn Gústavsson.
Umsjón: Sigríður Guðna-
dóttir. (Frá Akureyri.)
23.00 Túlkun í tónlist
Rögnvaldur Sigurjónsson
sér um þáttinn.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
|Jj|
FIMMTUDAGUR
26. mars
6.00 í bítiö. Erla B. Skúladótt-
ir kynnir notalega tónlist í
morgunsárið.
9.05 Morgunþáttur f umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar og
Sigurðar Þórs Salvarssonar.
Meðal efnis: Tvennir tímar
á vinsældalistum, tónleikar
um helgina, verölaunaget-
raun og Ferðastundin með
Sigmari B. Haukssyni.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Leifur
Hauksson kynnir létt lög við
vinnuna og spjallar við
hlustendur.
16.05 Hringiðan. Umsjón:.
Broddi Broddason og Mar-
grét Blöndal.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Vinsældalisti rásar 2.
Gunnar Svanbergsson og
Georg Magnússon kynna
og leika tiu vinsælustu lög-
in.
20.30 I gestastofu. Erna Ind-
riöadóttir tekur á móti
gestum. (Frá Akureyri.)
22.05 Símsvarinn. Ólafur
Þórðarson, Bogi Ágústs-
son, Ólafur Guömundsson,
yfirverkfræðingur Rfkisút-
varpsins og Markús Örn
Antonsson útvarpsstjóri
svara spurningum hlust-
enda varðandi nýja dagskrá
rásar 2.
23.00 Við rúmstokkinn.
Guðrún Gunnarsdóttir býr
hlustendur undir svefninn
með tali og tónum.
00.10 Næturútvarp. Rafn
Jónsson stendur vaktina til
morguns.
2.00 Á frivaktinni. Þóra Mar-
teinsdóttir kynnir óskalög
sjómanna. (Endurtekinn
þáttur frá mánudags-
morgni, þá á rás 1.)
Fréttir sagöar kl. 7.00, 8.00
9.00, 10.00, 11.00, 15.00Í
16.00, 17.00, 18.00, 22.00
og 24.00.
BY L GJAN
FIMMTUDAGUR
26. mars
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður Iftur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Tapaö — fund-
ið, opin lína, mataruppskrift-
ir og sitthvaö fleira.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur.
Fréttapakkinn. Jóhanna og
fréttamenn Bylgjunnar fylgj-
ast með því sem helst er í
fréttum, segja frá og spjalla
við fólk. Flóamarkaðurinn
erádagskráeftirkl. 13.00.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar siðdegispoppiö og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn. Tónlistar-
gagnrýnendur segja álit sitt
á nýútkomnum plötum.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir í Reykjavfk siðdeg-
is. Þægileg tónlist hjá Ástu,
hún lítur yfir fréttirnar og
spjallar við fólkið sem kemur
við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Tónlist með
léttum takti. Fréttir kl.
19.00.
20.00—21.30 Jónfna Leós-
dóttir á fimmtudegi. Jónína
tekur á móti kaffigestum og
spilar tónlist aö þeirra
' smekk.
21.30—23.00 Spurningaleikur
Bylgjunnar. Jón Gústafsson
stýrir verðlaunagetraun um
popptónlist.
23.00—24.00 Vökulok. Frétta-
tengt efni og þægileg tónlist
í umsjá Karls Garðarssonar
fréttamanns.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veöur og flug-
samgöngur. Fréttirkl. 3.00.
Dagskrár ALFA, Utrásar
og svœðisútvarps Akur-
eyrar er á bls. 62 f blaftlnu
f dag.