Morgunblaðið - 26.03.1987, Blaðsíða 72
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
FIMMTUDAGUR 26. MARZ
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Árangurslaus
leit að hvalkjöti
EYRARFOSS, skip Eimskipafélags Íslands, var á miðvikudag- stöðv-
að af tollvörðum í Rotterdam vegna gruns um að hvalkjöt væri í
farmi skipsins. Grænfriðungasamtök Hollands fóru fram á leit í
skipinu eftir að hafa fengið ábendingu frá íslandi um að hvalkjöt
gæri verið í einhverjum af frystigámunum um borð. Samkvæmt
upplýsingum Braga Ragnarssonar, forstöðumanns skrifstofu Eim-
skipafélagsins i Rotterdam, var ekkert hvalkjöt um borð .
Þessar upplýsingar komu meðal
annars fram í samtali fréttaritara
Morgunblaðsins í Hollandi, Eggerts
H. Kjartanssonar, við Braga Ragn-
arsson. Bragi sagði, að um borð í
skipinu væru þrír frystigámar með
rækju og lúðu, sem væru á leið til
Japans. Það hefðu verið þeir gám-
ar, sem voru skoðaðir. Eggert H.
Kjartansson ræddi ennfremur við
starfsmann á skrifstofu grænfrið-
unga í Amsterdam. Hún sagði
samtökin hafa fengið ábendingu um
að hvalkjöt væri um borð. Jafnframt
sagði hún að grænfriðungar myndu
fara fram á kyrrsetningu og leit í
öllum skipum frá íslandi ef ábend-
ing eða grunur benti til þess að
hvalkjöt væri um borð.
Grænfriðungar í Hamborg rufu
á föstudag innsigli á sjö gámum
með hvalkjöti, sem hafði verið skip-
að upp á tollfijálsu svæði í höfninni
þar. Gámamir áttu að fara með
Maersk-skipafélaginu til Japans um
miðja næstu viku. Yfirvöld í Ham-
borg kyrrsettu þá gámana og hafa
farið fram á frekari upplýsingar
varðandi þennan útflutning. Krist-
ján Loftsson, forstjóri Hvals hf,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að um þetta giltu breyttar reglur
frá því um áramót, sem sér hefði
ekki verið kunnugt um. Hann biði
þess að fá að vita hvaða upplýsing-
ar Þjóðverjar vildu fá. Hann sagði
útflutningsleyfi auðvitað liggja fyr-
ir, en svo virtist sem þeir vildu
eitthvað meira.
Stjómendur tollfrjálaa svæðisins,
sem grænfriðungar fóru inn á við
höfnina í Hamborg, hafa kært
grænfriðunga fyrir lögreglu á
staðnum fyrir óleyfilegan umgang
um svæðið og rof á tollinnsigli.
Ráðherra rennir fyrir fisk
Morgunblaðið/RAX
UFFE Elleman-Jensen utanríkisráðherra
Danmerkur brá sér í sjóstangaveiði frá
Höfnum í gærmorgun. Ráðherrann er
staddur hér á landi í tilefni af utanríkisráð-
herrafundi Norðurlanda. Elleman-Jensen
og föruneyti hans veiddi nokkra fiska í
ferðinni, flesta undan Hafnarbergi. Þeir
Voru smáir utan einn, sem vó 10-12
kílógrömm.
Sérframboð á
vegum Alberts?
SEINT í gærkveldi var enn ekki
Ijóst hvort Albert Guðmundsson
og stuðningsmenn hans myndu
efna til sérstaks framboðs í al-
þingiskosningunum 25. apríl
næstkomandi. Helena Alberts-
dóttir, dóttir Alberts Guðmunds-
sonar, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkveldi: „Ég
tel að sérframboð verði ekki
stöðvað úr þessu.“
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins munu Albert Guðmundsson
og stuðningsmenn hans líta svo á,
að staða hans í efsta sæti D-listans
í Reykjavík sé orðin afar erfið, eft-
ir þá yfirlýsingu Þorsteins Pálsson-
ar, formanns Sjálfstæðisflokksins,
í fyrrakvöld, að Albert Guðmunds-
son ætti ekki kost á ráðherraemb-
ætti á ný. Albert Guðmundsson og
stuðningsmenn hans munu líta svo
á, að þar með verði hann eins kon-
ar annars flokks þingmaður.
Jafnframt að allur kraftur verði
dreginn úr fyrsta þingmanni Reyk-
víkinga og honum gert erfitt um
vik að sinna trúnaðarstörfum í þágu
borgarbúa. Við þá stöðu geti hann
ekki unað.
Búist er við að endanleg ákvörð-
un um sérframboð liggi fyrir í dag.
Framboðsfrestur rennur út á mið-
nætti annað kvöld.
Um 340 starfsmenn Ríkisspítalanna hafa sagt upp störfum:
Sjúklingar verða send-
ir til lækninga erlendis
- segir Helgi Valdimarsson, formað-
ur læknaráðs Landspítalans
UM 340 starfsmenn Rikisspítal-
anna hafa nú sagt upp störfum
og hætta þeir flestir þann 1.
apríl. Sljórn læknaráðs Land-
spítalans hefur sent frá sér
yfirlýsingu vegna þessa, þar sem
fram kemur að nú stefnir í neyð-
arástand á spítölunum. Helgi
Valdimarsson, formaður lækna-
ráðsins, sagði í gær að nú ætti
að fara að senda sjúklinga til
lækninga erlendis, einkum til
hjartaaðgerða og bæklunarað-
gerða.
Vegna yfirstandandi verkfalla
eru 80—90 rúm þegar auð, en Helgi
sagði að flestar deildir spítalans
myndu lokast 1. apríl, þar á meðal
allar skurðdeildir vegna lokunar
Blóðbankans, og yrðu þá aðeins
örfáir sjúkragangar opnir.
Það starfsfólk Ríkisspítalanna
sem sagt hefur upp eru hjúkrunar-
fræðingar, sjúkraþjálfar, sjúkralið-
ar, iðjuþjálfar, næringarfræðingar
og líffræðingar. Hann sagði að allt
væri þetta sérmenntað fólk og ekki
fengist fólk í staðinn fyrir það.
Menn yrðu að gera sér grein fyrir.
því að fólkinu væri full alvara með
uppsögnum sínum. Starfsfólk
Ríkisspítalanna hefði verulega
lægri laun en því stæði til boða hjá
öðrum opinberum stofnunum og
einkafyrirtækjum og eftir því sem
tíminn liði tækju fleiri og fleiri at-
vinnutilboðum annars staðar frá.
Helgi sagði að stjórnendur spítal-
ans væru nú að undirbúa aðgerðir
vegna lokunar. Meðal annars væri
verið að semja við aðra spítala um
að taka við þjónustunni og koma
þangað þeim sjúklingum sem mest
væru veikir. Þá væri ljóst að spítal-
inn gæti ekki tekið allar þær
bráðavaktir sem honum bæri næstu
daga, og hefði hann losað sig undan
vaktinni næsta laugardag.
Sjá yfirlýsingu stjórnar
læknaráðs Landspítalans á
blaðsíðu 4.
Hækkun á
launum þing-
manna og
ráðherra
KJARADÓMUR tók á þriðju-
dag ákvörðum um 'laun
þingmanna og æðstu embætt-
ismanna ríkisins. Nemur
launahækkunin 5-10% og gild-
ir frá áramótum.
Þingfararkaup er nú 97.698
krónur á mánuði, en var áður
93.046 krónur. Nemur hækkun-
in 5%. Ráðherrar hækka meira
í launum, eða um tæp 10%.
Mánaðarlaun þeirra voru
146.808 krónur, en verða
161.223 krónur. Laun forsætis-
ráðherra hækka um tæp 10%
og verða 177.346 krónur á mán-
uði.
Laun forseta Islands hækka
einnig um 10% frá áramótum
og verða 183.503 krónur á
mánuði.