Morgunblaðið - 26.03.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
AKUREYRI
Hluti bátaflotans lá bundinn við bryggju á Hjalteyri, er blaðamaður átti leið þar um fyrir skömmu.
Gamla fiskimjölsverksmiðjan á eyrinni, sem ekki hefur starfað í áratugi, er nú notuð sem skreiðar-
geymsla.
__ m j Morgunblaðið/HelgiBjamason
Kyrrð yfir Hjalteyri
Kjarasamningur sex stéttarfélaga við Slippstöðina hf
Felur í sér 7-8%
launahækkun
UNDIRRITAÐUR hefur verið
kjarasamningur starfsmanna
Slippstöðvarinnar hf. og fyrir-
tækisins. Einn samningur var
gerður við alla starfsmenn, og
eru sex stéttarfélög aðilar að
honum. Að sögn Gunnars Ragn-
ars forstjóra Slippstöðvarinnar
felur samningurinn í sér 7-8%
launahækkun en starfsmenn fyr-
irtækisins hafi raunar fengið
mjög litla hækkun við gerð des-
embersamninganna.
„Við höfum haft af því miklar
áhyggjur undanfarin ár að þróunin
hefur verið sú hjá okkur að það
hefur ekki orðið nein endumýjun í
Söngtríó
íSjallanum
ERLENT söngtríó, Jeun-
nesse, kemur fram í Sjallan-
um helgina 27. og 28. marz.
Tríóið syngur bæði og dansar
og þykir þvi svipa til söng-
flokksins „Five star“.
málmiðnaði. Það hefur nánast ekk-
ert aðstreymi verið í greinina og
okkar lið því verið að rýma. Við
þessu urðum við að bregðast á ein-
hvem hátt. Við vomm með afkasta-
hvetjandi premíu-kerfí. Það átti
fyrst og fremst við um nýsmíðar
en þar sem ekkert hefur verið að
gera í þeim hefur kerfíð ekki fallið
vel — óánægju hefur gætt meðal
starfsmanna og búið var að segja
upp premíunni. Við urðum einnig
að bregðast við því og nýttum því
heimildarákvæði frá því í desember-
samningunum um sérstakan vinnu-
staðasamning," sagði Gunnar
Ragnars í samtali við Morgunblað-
ið. „Með þessu vona ég að við náum
að snúa þróuninni við, að við löðum
fleiri menn inn í þessi störf og náum
meiri framleiðni."
Að sögn Gunnars var það haft
að leiðarljósi við samningsgerðina
að nýta vinnutímann betur. Nú
hafa kaffitímar verið lagðir niður,
fataskipti fara fram utan vinnutíma
og hálf klukkustund er í matarhlé.
Störf hófust skv. nýja kerfínu
síðastliðinn mánudag.
Skv. samningnum eiga málmiðn-
aðarmenn sjálfír verkfæri þau sem
þeir vinna með og fá í staðinn
ákveðna hækkun launa. Þá hafa
fæðis- og flutningsgreiðslur verið
færðar inn í kaupið. Premían svo-
kallaða fellur einnig niður en er
tekin inn í fastakaupið. Þess má
geta að trésmiðir og rafvirkjar hafa
í fjölda ára átt verkfæri sín, eins
og málmiðnaðarmenn gera nú, og
hefur það gefið góða raun. „Það
er farsælla, menn hugsa betur um
verkfærin," sagði Gunnar Ragnars.
Hann sagðist fagna þessum nýja
samningi. „Ég trúi því að við getum
hífað málmiðnaðinn upp með þessu
en auðna ræður því svo hvort við
fáum einhver verkefni."
Eins og áður sagði eru það sex
félög sem standa að þessum samn-
ingi við Slippstöðina: Félag málm-
iðnaðarmanna, Trésmiðafélag
Akureyrar, Sveinafélag rafvirkja,
Verkamannafélagið Eining, Félag
verslunar- og skrifstofufólks og
Verkstjórafélag Akureyrar.
Sjónvarp
Akureyri
FIMMTUDAGUR 26. mars
§ 18.00 Knattspyma. Umsjónar-
maður er Heimir Karlsson.
19.10 Ljósbrot. Valgerður Matt-
híasdóttir kynnir helstu dagskrárliði
Stöðvar 2 næstu vikuna og stiklar
á helstu viðburðum menningarlífs-
ins.
19.50 í sjónmáii. Að þessu sinni
mæta í stúdíó Ingimar Eydal, Knút-
ur Ottersted og Magna Guðmunds-
dóttir og ræða tónlistarmálefni í
bænum. Einnig er rætt við Boga
Pétursson forstöðumann Ástjamar
og að endingu við Pétur Jósepsson,
fasteignasala, og Sigurð Sigurðs-
son, framkvæmdastjóra, um fast-
eignamarkaðinn á Akureyri.
20.55 Morðgáta.
§21.45 Barist um bömin. Nýleg
sjónvarpsmynd með Lindu Gray,
John Getz og John Lithgow í aðal-
hlutverkum.
23.10 Af bæ í borg.
23.45 Alcatraz. Fyrri hluti sjón-
varpsmyndar um flótta úr einu
rammgerðasta fangelsi í Banda-
ríkjunum á eyjunni Alcatraz.
Aðalhlutverk: Telly Savalas, Micha-
el Beck, Art Camey og James
Macarthur. Seinni hlutinn verður á
dagskrá annað kvöld.
01.20 Dagskrárlok.
Skákþing Akureyrar 1987:
Gylfi og Arnar
heyja úrslitaeinvígi
GYLFI Þórhallsson og Amar
Þorsteinsson urðu efstir og jafn-
ir í opna flokknum á Skákþingi
Akureyrar 1987 sem lauk um
síðustu helgi. Þeir þurfa því að
eigast við í fjögurra skáka ein-
vígi, sem reyndar er hafið —
þeir tefldu fyrstu skákina í
fyrrakvöld, hún fór í bið og átti
að teflast áfram í gærkvöldi.
Þeir Gylfi og Amar hlutu 7 vinn-
inga af 9, Bogi Pálsson varð í 3.
sæti með 6 vinninga og Rúnar Sig-
urpálsson og Siguijón Sigurbjöms-
son í 4.-5. sæti með 5 V2 vinning
hvor.
Tómas Hermannsson sigraði
glæsilega í unglingaflokknum, vann
allar sínar skákir, níu talsins. Þetta
er í þriðja sinn í röð sem Tómas
verður Ákureyrarmeistari í ungl-
ingaflokki. Hann vann því til eignar
bikarinn sem keppt var um. Rúnar
Sigurpálsson og Bogi Pálsson urðu
jafnir í 2.-3. sæti með V/2 vinning,
Magnús Teitsson hlaut 5 vinninga
og Skúli Skúlason 4V2 vinning.
í drengjaflokki, 12 ára og yngri,
sigraði Þorleifur Karlsson. Hann
fékk 5l/2 vinning af 9 mögulegum.
í öðru til fimmta sæti urðu Páll
Þórsson, Ólafur Gíslason, Örvar
Amgrímsson og Birkir Magnússon,
allir með 4 vinninga.
Þess má geta að Hraðskákmót
Akureyrar verður haldið nk. sunnu-
dag kl. 13.30 í Skákheimilinu í
Þingvallastræti 18. Firma- og
stofnanakeppni hefst svo miðviku-
daginn 1. apríl kl. 20.00 og verða
tefldar 7 umferðir eftir monrad-
kerfi. Umhugsunartími verður
hálftími á keppenda og er keppt í
tveggja manna sveitum. Teflt verð-
ur þrisvar alls, á miðvikudögum.
Aðalfund-
ur Þórs
AÐALFUNDUR íþróttafélagsins
Þórs verður haldinn á laugar-
daginn kl. 14.00 í starfsmannasal
KEA í verslunarmiðstöðinni
Sunnuhlíð. Á fundinum verður,
auk venjulegra aðalfundar-
starfa, rætt um væntanlega
byggingu félagsheimilis á svæði
félagsins í Glerárhverfi.
Tónleikar í Sam-
komuhúsinu
HRÖNN Hafliðadóttir kontra-
altsöngkona og Þóra Friða
Sæmundsdóttir píanóleikari
halda tónleika í Samkomuhúsinu
á Akureyri laugardaginn 28.
mars nk. kl. 16.00. Á efnis-
skránni verða ljóð eftir J.
Brahms, F. Schubert, Richard
Wagner og Richard Strauss,
einnig verða fluttar óperuaríur
eftir Gluök, Ponchielli og Tchaik-
ovsky.
Hrönn lauk einsöngvaraprófí frá
Söngskólanum í Reykjavík og
stundaði framhaldsnám í Vínar-
borg. Hún hefur tekið þátt í
óperuuppfærslum bæði í íslensku
óperunni og í Þjóðleikhúsinu.
Þóra Fríða lauk píanókennara-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1978. Framhaldsnám
stundaði hún í Þýskalandi, við tón-
listarháskólann í Freiburg og í
Stuttgart, þar sem hún valdi ljóða-
flutning sem sérgrein. Þóra Fríða
starfar sem pfanóleikarí og kennari
í Reylqavík.
Þóra Fríða Sæmundsdóttir Hrönn Hafliðadóttir söngkona.
píanóleikari.