Morgunblaðið - 26.03.1987, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
67
• VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
,691100 KL. 13-14
, FRÁ MÁNUDEGI
-,TIL FÖSTUDAGS
i\n iUJn/’U If
þ=>t=>rMI<'l=l^áTF?H-<|
HULDU-
HELLRRSF
E& hblt TO
þRe VÆRl RU&-
uósi; mrður.
ÞÚ SKRlFRR F®
TEKIST HRFI
SÖ&ULEGRft
SÆTTIR OCrTIL
VRKR R0 RLLT
SÉ I G-RÆNUM
SJÓ
Þessir hringdu ..
Þorgeir
Hávarðsson
hékk í rótinni
Gestur Sturluson hringdi:
Nú stendur yfir 'spurninga-
keppni framhaldsskólanema í
ríkissjónvarpinu. Kepnni þessi er
hörkuspennandi og hin skemmti-
legasta í alla staði. Þó bar þar
nokkurn skugga á síðastliðin
laugardag þegar Menntaskólinn á
Akureyri og Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti kepptu.
Þannig var að brugðið var upp
mynd af Hombjargi og spurt
hvaða skáld hafí til foma hangið
þar á hvannarrót utan í þver-
hníptu bjarginu, en verið svo stolt
að það kallaði ekki á fóstbróður
sinn sem var þar nærstaddur.
Krakkarnir gátu ekki svarað
spumingunni. Þá svaraði Hemmi
Gunn, einn af stjómendum þáttar-
ins, og sagði að skáldið hefði verið
Þomióður Kolbrúnarskáld. Þetta
er ekki rétt eins og allir geta séð
sem lesið hafa Fóstbræðrasögu
og Gerplu eftir Halldór Laxness.
Það var Þorgeir Hávarðsson,
fóstbróðir Þormóðs, sem hekk í
hvannarrótinni. Svona lagað má
ekki koma fyrir. Því þó að það
kæmi ekki að sök þarna þá gæti
farið svo að það réði úrslitum.
Týndi
ermahnappi
Helgi Elíasson hringdi:
Ég týndi ermahnappi úr gulli,
merktum H.E., fyrir rúmlega
tveimur vikum síðan. Finnandi
vinsamlegast hafi samband í síma
34452 (heima) eða 20580 (vinna).
Týndi
gullarmbandi
Steinunn Jónsdóttir hringdi:
Ég varð fyrir því óláni að týna
gullarmbandi á Hótel Sögu
síðasta laugardag. Sérkenni þess
em þrír aflangir fjólubláir steinar.
Finnandi vinsamlegast hafi sam-
band við mig í síma 83185.
Gamall texti
Anna Bjömsdóttir hringdi:
Ég heyrði í útvarpinu sl. laug-
ardaginn gamlan texta sem ég
veit að er eftir Sigfús Elíasson.
Það er Alfreð Clausen sem syngur
með hljómsveitinni Moravick.
Textinn kom út í ljóðabók sem
hét Urðir og var gefin út á Akur-
eyri 1923 eð 1924. Ef einhver
gæti aðstoðað mig við að finna
þennan texta er hann beðinn um
að hafa samband við Velvakanda.
Jeg er fedt í
engeland
Rúna Gísladóttir hringdi:
Um daginn birtist í Velvakanda
svar við fyrirspurn um visuna um
„hálsinn á honum svana“. Nokkr-
um dögum síðar var svo vísan
birt á dönsku, en þaðan er hún
uppmnalega ættuð. Ég kann
seinna erindið við þessa vísu og
er það á þessa leið:
Jeg er fodt í engeland
og du er fodt í Skáne.
Vil du være min lille mand
sá vil jeg vare din kone.
Týndi
ljósmynd
Vigdís hringdi:
Eg týndi ljósmynd af dótturd-
óttur minni sem mér var gefín.
Ég ætlaði af fara að fá ramma
um hana en hef misst hana ein-
hversstaðar á leiðinni. Þetta var
fýrir um það bil þremur vikum
mánuði siðan. Ljósmyndin er af
eins og hálfs ára stúlku sem er í
hvítum og rauðum pífu-kjól.
Finnandi vinsamlegast hafí sam-
band í síma 40509.
öiUl.ld
Þrjár mis-
munandi að-
gerðir?
Júlíus hringdi:
Við sátum þrenn saman í gær-
kvöldi og bar mikið á góma mál
kynferðisafbrotamanna. I einni
blaðagrein út af þessum málum
var talað um vönun, geldingu og
afkynjun sem þijár mismunandi
aðgerðir. Er það rétt eða er þetta
einn og sami hluturinn?
Hattur tekinn
í misgripum
Sigurður Sigurðsson
Hattur minn var tekinn í mis-
gripum á skemmtun í Holtagörð-
um laugardaginn 14. mars og
fékk ég annan hatt í staðinn.
Báðir voru þeir gráir. Sá sem fékk
minn hatt er vinsamlegst beðinn
um að hafa samband í síma
50371.
Fundum
lyklakippu
Ólafur Jensson hjá
Byggingaþjónustunni hringdi:
Hér við bflastæðið okkar við
Hús iðnaðarins fundum við í
síðustu viku svarta leðurlykla-
kippu með tveimur bfllyklum,
þremur ASSA-lyklum og einum
minni lykli. Hægt er að vitja henn-
ar hjá Byggingaþjonustunni,
Hallveigarstíg 1.
Ráðleggið
eldra f ólki
Eldra fólk sem setur peninga
inn á bankareikninga verður að
fá einhverja ráðgjöf. Maður hefur
heyrt af fólki sem hefur verið lá-
tið leggja inn peninga á verð-,
tryggða reikninga sem bera
einungis 1-2% vexti. Bankinn
hirðir svo afganginn. Getur þetta
staðist? Einnig finnst mér það
ansi dýrt að eitt herbergi á elli-
heimili skuli kosta 31.000 á
mánuði.
1diO(J
?TO-CJ2
ierö«r'
1 vörur
STALVIRAR
KRANAVÍRAR
VÍRMANILLA
BENSLAVÍR
LÍNUGOGGAR
NETARÚLLUGOGGAR
ÚRGREIÐSLUGOGGAR
KARFAGOGGAR
FISKIHAKAJÁRN
BAUJUHAKAR
FISKISTINGIR
KARAT-LANDFESTARTÓG
40-56 MM
KARAT-TÓG
3 mm-36 mm
MARLIN-TÓG
KRAFT-TÓG
LÉTT-TÓG
BLÝ-TÓG
NÆLON-TÓG
BAUJUSTANGIR
ál, bambus, plast
BAUJULUKTIR
ENDURSKINSBOÐAR
FLATNINGSHNIFAR
BEITUHNÍFAR
SVEÐJUR
STÁLBRÝNI
HVERFISTEINAR
í kassa og lausir
ÍSSKOFLUR
SALTSKÓFLUR
ÁLSKÓFLUR
SNJÓÝTUR
STUNGUSKÓLFLUR
KARFAKVÍSLAR
TROLL-LASAR
SKRÚFULÁSAR GALV.
PATENT-LÁSAR
VÍRAKLEMMUR
KÓSSAR
SIGURNAGAR
NETAKEÐJUR
FÓTREIPISKEÐJUR
KEÐJUR SVARTAR
KEÐJUR GALV.
ELDVARNARBÚNAÐUR
BRUNASLÖNGUTENGI
BRUNASTÚTAR
KRANAR
BRUNASLÖNGUR
11/2“ og 2“
BRUNASLÖNGUSKÁPAR
BRUNASLÖNGUHJÓL m/25
mtr. og 30 mtr.3/«“
SLÖKKVITÆKI
duft 1-2-6-12-25 kg.
SLÖKKVITÆKI
HALON ýmsar st.
KOLSÝRUSLÖKKVITÆKI
2-6 kg.
VATNSSLÖKKVITÆK110 Itr.
ELDVARNARTEPPI
REYKSKYNJARAR
VATNSSKYNJARAR
BLAKKIR GALV.
TROLL-BLAKKIR
MÖLLERODDEN-BLAKKIR
KASTBLAKKIR
STILL-LONGS
ullarnærföt nælonstyrkt,
dökkblá, fyrir börn og full-
orðna.
SOKKAR
með tvöföldum botni.
Ánanaustum, Grandagarði 2, símí 28855.
Opið laugardaga 9—12