Morgunblaðið - 26.03.1987, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ
Stjórnarmyndunin í Finnlandi:
Flokksformenn
eru í feluleik
Kalkútta, AP.
FLOKKUR kommúnista gjör-
sigraði Kongressflokk Rajivs
Gandhi, forsætisráðherra, í kosn-
ingum til þings í Vestur-Bengal.
Hlutu kommúnistar og aðrir
vinstriflokkar 151 af 178 sætum.
Kosningabandalag vinstriflokka,
með kommúnista í forystu, vann
einnig kosningar í ríkinu Kerala,
sem var eina vígi Kongressflokksins
í suðurríkum landsins, hlaut 75
sæti af 138 en Kongressflokkurinn
61.
Kosið var til þings í þremur
ríkjum Indlands og vann Kongress-
flokkurinn í Kashmir.
Samstarfsnefnd miðflokkanna, þ.e.
Miðflokkurinn, Kristilegi flokkurinn
og Sænski þjóðarflokkurinn, kom
saman á þriðjudaginn. Ætlunin var
að ná samkomulagi um að Paavo
Váyrynen yrði forsætisráðherraefni
allra flokka í kosningabandalaginu.
Talsmenn Miðflokksins hafa sagt
að Váyrynen ætti rétt á forsætis-
ráðherraembættinu vegna þess að
kosningabandalagið fékk flest at-
kvæði í kosningunum. Af 58
þingsætum bandalagsins á Sænski
þjóðarflokkurinn 13 og án þeirra
getur Váyrynen ekki gert kröfur
til þess að verða „sjálfkjörinn" for-
sætisráðherra. Sænski þjóðarflokk-
urinn hefur ekki viljað gefa
Váyrynen beinan stuðning enda
hefur formaður hans, Christoffer
Taxell, stundum verið nefndur sem
hugsanlegur forsætisráðherra ef
stóru flokkamir geta ekki samein-
ast um hver þeirra skuli hljóta
hnossið.
Fundinum á þriðjudaginn lauk
með því að gefín var út sameiginleg
yfírlýsing um að allir miðflokkam-
ir, þ.m.t. Sænski þjóðarflokkurinn,
vildu sjá fulltrúa stærsta miðflokks-
ins á forsætisráðherrastól. Hvorki
Váyrynen né Miðflokkurinn var
nefíidur beint.
Sænski þjóðarflokkurinn var í
kosningabandalaginu við hina mið-
flokkana af tæknilegum ástæðum.
Hugmyndafræðilega er hann hvorki
miðflokkur, hægri flokkur né vinstri
flokkur. Aðalmarkmið hans er að
standa vörð um rétt sænskumæl-
andi Finna. Hann hefur þess vegna
gjaman setið í stjóm með hvaða
flokki með er.
í efnahagslífínu hefur kosninga-
sigur borgaraflokkanna haft í för
með sér að erlendir kaupsýslumenn
hafa fengið aukinn áhuga fyrir að
Qárfesta í Finnlandi. Hingað til
hafa finnsk fyrirtæki ijárfest meira
erlendis en sem nemur §árfesting-
um útlendinga í Finnlandi. Hvort
að þetta sé að breytast er enn óljóst.
Verð hlutabréfa í kauphöllinni í
Helsinki hækkuðu stórlega í viku-
lokin. Einkum hækkuðu þau hluta-
bréf sem samkvæmt lögum er hægt
að selja útlendingum. Sá möguleiki
að mynduð verði ríkisstjóm borg-
aralegu flokkanna hefur aukið
traust útlendinga á fínnskum verð-
bréfum. Þróun þessi byggist einnig
á því að mörg fínnsk fyrirtæki hafa
á síðustu árum farið að gefa út
„fíjáls" hlutabréf sem má selja út-
lendingum. Einnig hafa verið
gerðar lagabreytingar sem gera
kleift að selja erlendum aðilum
stærra hlutfall af hlutabréfum í
fínnskum fyrirtækjum. Áður voru
mjög ströng ákvæði um hve mörg
prósent af hlutabréfum í fínnskum
fyrirtækjum mætti selja erlendum
aðilum.
Reuter
Málverk á metverði
Þetta málverk eftir Vincent van Gogh verður boðið upp á upp-
boði hjá Christie’s í London 30. marz nk. Búizt er við, að það
fari fyrir hærra verð en nokkurt annað málverk áður eða fyr-
ir 16. millj. dollara (rúml. 640 mil(j. ísl. kr.).
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgimbladsms.
ÞEGAR rúm vika er liðin frá þingkosningnnum í Finnlandi
virðist áhugi flokksleiðtoganna fyrir stjórnarmyndunarviðræð-
um hafa minnkað í bili. Leiðtogar stærstu flokkanna hafa
dregið sig í hlé en þrátt fyrir þennan feluleik vinna a.m.k.
miðflokksmenn markvisst að þvi að formaður flokksins verði
næsti forsætisráðherra.
Kommar vinna í V-Bengal
Chad:
Tólf hundruð Líbýumenn
felldir við Quadi Doum
Parfe, AP.
YFIR 1.200 líbýskir hermenn féllu og 100 skriðdrekar voru
teknir herfangi eða eyðilagðir, er herlið Chad hertók flugvöll
Libýumanna við Quadi Doum í Norður-Chad um helgina. Skýrðu
stjórnvöld í Chad frá þessu í gær.
í tilkynningu frá sendiráði Chad í í fyrradag, að hermenn Chad hefðu
París var sagt, að 438 líbýskir her-
menn til viðbótar hefðu verið teknir
til fanga, en mannfall Chad hefði
verið 29 menns fallnir og auk þess
hefðu 58 særzt.
Líbýumenn hafa ekki viðurkennt
að hafa misst Quadi Doum og raun-
ar neitað þvi statt og stöðugt, að
þeir hafi herlið í Chad. Franskir
embættismenn staðfestu hins vegar
náð herstöðinni í Quadi Doum á sitt
vald í tveggja klukkustundarlöngum
bardaga á sunnudag.
Andre Giraud, vamarmálaráð-
herra Frakka, sagði á fundi með
fréttamönnum í gær, að árangurinn
af sókn Chadhersins hefði verið
„áhrifameiri og skjótari" en nokkum
hefði gmnað fyrirfram.
Nýtt mat á þætti Stalins í síðari heimsstyijöldinni:
Leiddi Sovétríkin fram
á brún glötunarinnar
- segir sovézkur sagnfræðingur
Moskvu, Reuter.
SOVÉZKUR sagnfræðingur, Alexander Samsonov, heldur
því fram, að Josef Stalin, sem lengi var talinn mikill styij-
aldarleiðtogi i sovézkri sagnritun, hafi framið stórfelld
mistök, er leitt hafi Sovétríkin fram á brún glötunarinnar
I baráttunni gegn Þýzkalandi nazista í heimstyijöldinni
síðan.
Samsonov staðhæfir, að Stalin
hafí látið ginnast af blekkingum
Þjóðverja varðandi hemaðará-
form Hitlers 1941. Breytir þar
engu um, þó að þessi blekkingará-
form hafí ekki tekizt samkvæmt
opinberum sovézkum frásögnum
af þessum atburðum.
Samsonov, sem ritað hefur
margar bækur um heimsstyrjöld-
ina síðari, sagði þetta í viðtali við
vikublaðið Rök og staðreyndir
(Argumenty i Fakty). Fullyrti
hann þar, að það hefði verið mis-
tökum Stalins að kenna, að herir
nazista komust í námunda við
Moskvu og næstum umrkingdu
Leningrad fljótlega efír innrásina
1941. „Því fer flarri, að ég líti á
hann sem mikinn herforingja,"
segir Samsonov I viðtalinu.
i Viðtal Samsonovs við þetta
blað, sem er einkum ætlað kenn-
urum og flokksfræðurum
kommúnistaflokksins, þykir
benda til þess, að róttæk breyting
sé í aðsigi á hinu opinbera mati
á hlutverki Stalins í striðinu. Jafn-
vel eftir að Nikita Krushchev,
þáverandi leiðtogi Sovétríkjanna,
hafði fordæmt Stalin sem harð-
stjóra 1956, var Stalin eftir sem
áður sagður hafa verið dugandi
herforingi, sem leitt hefði land
sitt til sigurs með viturlegum
ákvörðunum í baráttunni við Þjóð-
veija.
Samsonov heldur því hins vegar
fram nú, að opinberir sagnritarar
hafí til þess af ásettu ráði horft
framhjá mörgum erfíðum spum-
ingum varðandi herstjóm Sovét-
manna í striðinu og leitt hjá sér
margs konar mistök og viðkvæm
atvik. Á meðal þeirra mætti nefna
Stalins við því að skipa hemum í
viðbragðsstöðu í júní 1941 vegna
yfirvofandi innrásar Þjóðveija, sú
skoðun Stalins, að Þjóðveijar
myndu á ný beina sókn sinni til
Moskvu 1942 og loks meðferð
hans á sovézkum hermönnumn,
sem sluppu úr þýzkum fangabúð-
um.
„Því hefur verið haldið fram í
verkum okkar sagnfræðinganna,
að styijöldin hafi byijað með
skyndilegri árás Þýzkalands á
Sovétríkin. Staðreyndin er sú, að
árásin var alls ekki skyndileg.
óhjákvæmileiki þess, að til styij-
aldar drægi við Þýzkaland, var
augljós löngu áður en styijöldin
hófst," segir Samsonov.
Stalin, sem vissi, að Sovétríkin
vom ekki undir styijöld búin, var
sannfærður um, að unnt væri að
draga upphaf stríðsins á langinn
og byggði ákvarðanir sínar á því.
Þegar það var orðið fullkomlega
augljóst, að Þjóðveijar vom í þann
veginn að hefja innrásina, gaf
Stalin samt ekki fyrirmæli um
almennt herútboð né heldur fyrir-
mæli til hersveitanna á vestur-
landamæmm Sovétríkjanna um
að vera í ítrastu viðbragðsstöðu.
Opinber yfirlýsing ráðamann-
anna í Kreml aðeins nokkmm
dögum fyrir innrás nazista, þar
sem allar getgátur um yfirvofandi
árás Þjóðveija vom fordæmdar
sem ögmn, urðu einnig til þess
að villa um fyrir sovézku hersveit-
unum á vesturlandamæmnum.
„Ef þessar röngu ályktanir
hefðu ekki kömið til, þá er ég
ekki í nokkmm vafa um það, að
þýzka hemum hefði aldrei tekizt
að komast til Moskvu og Len-
ingrad, enda þótt honum hefði
kannski tekizt að sækja inn á
landsvæði okkar,“ segir Sam-
sonov. „Það var gjaldið, sem
greiða varð fyrir þau mistök, sem
framin vom rétt fyrir upphaf
stríðsins."
Samsonov nefnir einnig þann
atburð, er Stalin hélt því fram
sumarið 1942, að Þjóðveijar
myndu þá hefja nýja sókn til
Moskvu og lét því varalið sitt taka
sér stöðu á því svæði. Herir Hitl-
ers beindu hins vegar sóknarað-
gerðum sínum til suðausturs og
bmtust í gegnum vamir Sovét-
manna. Þetta leiddi til ormstunn-
ar um Stalingrad síðla sumars
1942, sem var háð á meðan „land
okkar var í skelfílegri aðstöðu"
Samsonov heldur því fram, að
mistök Stalins 1942 hafí að nokk-
Josef Stalin
ur mátt rekja til áætlunar Þjóð-
veija, sem gekk undir heitinu
„Kreml" um að blekkja sovézka
ráðamenn varðandi hemaðar-
áform Hitlers. Þessi áætlun tókst
að vemlegu leyti, enda þótt opin-
berar heimildir í Sovétríkjunum
greini svo frá, þar á meðal margra
binda sagnfræðirit um sfðari
heimsstyijöldina, að áform Þjóð-
veija með þessari áætlun hafi
ekki tekizt.
„Þetta er í mótsögn við stað-
reyndir sögunnar," segir Sam-
sonov. „Yfírhersfjóm Hitlers tókst
að koma röngum upplýsingum inn
hjá ráðamönnum okkar," rétt eins
og henni tókst það á fjórða ára-
tugnum að koma þeirri hugmynd
inn hjá Stalin að æðstu hers-
höfðingjar hans væm njósnarar.