Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 68

Morgunblaðið - 26.03.1987, Page 68
68 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 4 HELGARPÓSTURINN kom fyrst út fyrir átta árum og markaöi sér strax sér- stöðu í íslenskum fjölmidlaheimi. Hann er eina óháða fréttablaðið í landinu og hefur áuallt stundað aðhaldssama, upplýsandi og vandaða fréttamennsku. HELGARPOSTURINN hefur sýnt að hann þorir á meðan aðrir þegja. Hann er ekki auðsueipið blað. HELGARPÓSTURINN er einnig v kunnur fyrir umfjöllun sína um menningu og listir. Stór þáttur blaðsins er helgaður fréttum, greinum, uiðtölum og gagnrýni á því suiði, sem er þannig sett fram að eftir er tekið. I þessum efnum sem öðrum hefur HELGARPÓSTURINN farið nýjar leiðir sem hafa orðið öðrum til eftir- breytni. HELGARPÓSTURINN birtir uiðtöl sem mörg hver eru rómuð fyrir gœði og gildir þá einu huort litið er til texta eða meðfylgjandi Ijósmyndar. Greinaskrif blaðsins um ýms málefni líðandi stundar hafa einnig uakið athygli fyrir hugmyndaauðgi í framsetningu, inntak sitt og stíl. Að þessu leyti er uiku- blaðið HELGARPÓSTURINN á uið Árni Björnsson skrifar um óperur. Hann er löngu landsþekktur fyrir störf sín sem þjóðháttafræðingur. Árni Elfar er teiknari HP. Hann hefur getið sér gott orð fyrir stílfærðar andlirs- teikningar sínar, auk hljóðfæraleiks moð Sinfóníuhljómsveit íslands og víðar. Halldór Halldórsson ritstjóri HR Hann hefur starfað að fjölmiðlun hátt í tvo ára- tugi. Halldór er M.A. í fjölmiðlafræði frá Bandaríkjunum. Kristján Kristjánsson blaðamaður. Hann er yngsti blaðamaður HP og hóf þar störf eftir próf í bókmenntafræði frá Háskóla íslands. Magnea Matthíasdóttir rithöfundur er prófarkalesari HP. Hún er m.a. höf- undur leikritsins „Halló litla þjóð/' sem L.H. sýnir um þessar mundir. Ásgeir Tómasson er poppskríbent HP. Ásgeir er óefað einn fróðasti maður landsins um dægurtónlist, vinsæll út- varpsmaður og blaðamaður til fjöl- margra ára. Helgi Már Arthursson ritstjórnarfull- trúi. Helgi er margreyndur blaðamaður, m.a. frá velmektardögum Alþýðublaðs- ins. Hann er menntaður í bókmennta- fræðum. Gunnlaugur Ástgeirsson er fjölhæf- ur gagnrýnandi og hefur skrifað jöfnum höndum um leiklist og bókmenntir í blaðið frá því það hóf göngu sína. Gunnlaugur kennir við MH. Jónína Leósdóttir blaðakona. Hún hóf blaðamennsku á HP fyrir fáum ár- um og gat sér strax gott orð fyrir lipur skrif og góðar hugmyndir. Jónína er einnig kunn útvarpskona. Magnús Torfi Ólafsson hefur skrifaö um erlend málefni fyrir Helgarpóstinn allt frá byrjun. Hann er blaðafulltrúi rík- isstjórnarinnar, fyrrum ráðherra og einn helsti sérfræðingur landsins í alþjóða- stjórnmálum. Anna Kristine Magnúsdóttir blaða- kona á að baki meira en áratug ( blaða- mennsku og hóf nýlega störf á HP. Halldór Halldórsson fyrrverandi pró- fessor við Háskóla Íslands, hefur skrifað um mál og menningu í HP um nokkurt skeið. Hann er landsþekktur fræðimað- ur og höfundur rita um íslenskt mál. mánaðarrit að efni. Pegar suo uið bœtist fréttamennska sem mikið er uitnað til í þjóðfélaginu, getur uarla verið spurning hvaða blað menn kjósa sér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.