Morgunblaðið - 09.04.1987, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1987
Flensan gerð
útlæg með
bólusetningu?
EMBÆTTI borgarlæknis hefur
ekki skráð nein flensutilfelli i:nd-
anfarnar vikur. Telur Skúli
Johnsen borgarlæknir að farald-
ur sá, sem óttast var að gæti
borist til landsins, hafi ekki náð
fótfestu vegna víðtækrar bólu-
setningar í vetur. Um 30.000
manns létu bólusetja sig á öllu
landinu.
„Sú kenning er að vísu ekki
byggð á óyggjandi rannsóknum.
Við teljum engu að síður hugsan-
legt að hægt sé að bægja frá
flensufaraldri með bólusetningu al-
mennings," sagði Skúli. Hann sagði
að læknar hefðu verið hvattir til
að ráðleggja sjúklingum sínum
bólusetningar. Það væri stefna heil-
brigðisyfirvalda að þeir sem til-
heyrðu áhættuhópum, svo sem
gamalt fólk og lasburða, væru bólu-
settir gegn flensustofnum sem talið
væri að gætu borist til landsins.
„Við höfum líka fundið fyrir
áhuga hjá frísku fólki að koma til
bólusetningar. Það er öllum heim-
ilt, en kostnaður er ekki greiddur
af almannatryggingum. I vetur
kostaði slík bólusetning um 300
krónur," sagði Skúli.
Þeir sem bólusettir voru núna
geta búist við því að hafa mótefni
gegn flensu í eitt ár. Það er þeim
annmörkum háð að aðeins var bólu-
sett gegn fjórum flensustofnum.
Næsta ár gæti allt önnur flensa
verið á ferðinni.
Morgunblaðið/Júlíus
í sumar verður Laugavegur frá Klapparstíg að Vitastíg endurnýjað-
ur.
Laugavegi breytt
fyrir 11 milljónir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að taka tilboði Víkurveija hf.,
sem bauð rúmar 11 milljónir í
endurnýjun Laugavegar, 2.
áfanga, frá Klapparstíg að Vita-
stíg. Að sögn Þorvalds S.
Þorvaldssonar, forstöðumanns
borgarskipulags Reykjavíkur, á
verkinu að ljúka í júlí næstkom-
andi.
Þorvaldur sagði að í verklýsingu
væri gert ráð fyrir að í 2. áfanga
yrði Laugavegur hellulagður með
mismunandi stórum hellum. „Götu-
gögn, eins og bekkir, grindur í kring
um tré og steyptir pollar verða ekki
eins og í fyrsta áfanga," sagði Þor-
valdur. „Laugavegurinn er svo
langur að það er nauðsynlegt að
breyta aðeins til.“ Skipt verður um
lagnir í götunni og lagður hiti í
hana alla. Að sögn Þorvaldar hafa
endurbætur sem gerðar voru í 1.
áfanga mælst afar vel fyrir, bæði
meðal kaupmanna og vegfarenda.
Ný stafrófs-
röðun tekin upp
í símaskránni
NÝRRI símaskrá verður dreifí í
næsta mánuði. Að sögn Ágústar
Geirssonar símstjóra í Reykjavík
er búið að setja og brjóta um
meirihluta bókarinnar, en unnið
er að prófarkalestri og frá-
gangi. Utgáfudagur hefur ekki
verið ákveðinn. Grundvallar-
breyting verður á skipan sima-
skrárinnar með nýrri stafrófs-
röðun, sem unnin var i samvinnu
við Hagstofuna og íslenska mál-
nefnd. _
„Nú eru allir íslenskir stafir jafn
réttháir, þannig að grönnu sérhljóð-
amir fá hver sinn kafla," sagði
Ágúst. „Nýja stafrófsröðunin gæti
vafist fyrir sumum í fyrstu, sérstak-
lega þar sem grönnu sérhljóðamir
eru annar eða þriðji stafur nafna.“
Ágúst sagði að bókin lengdist
að vonum ár frá ári. Símum færi
fjölgandi. Þá væri nú sífellt meira
um að hjón létu bæði skrá sig í
símaskrána, þanníg að fleiri notend-
ur væru skráðir á hvem síma. Auk
þess verður í bókinni fyrsta skráin
yfir farsímanúmer, sem vom orðin
2000 þegar bókin fór í vinnslu.
Morgunblaðið/Bjöm Guðmundsson
Vænum þorski landað í Ólafsvík í fyrrakvöld.
Mikill afli í Breiðafirðinum:
Ævintýri á miðunum
og örtröð í höfninni
MIKILL afli hefur verið hjá
bátum frá Snæfellsnesi siðustu
sólarhringa. Aflinn er mestur
hjá smábátunum, sem margir
hveijir hafa tvíhlaðið og dæmi
eru til um að þeir hafi þríhlaðið.
Að sögn Rafns Þórðarsonar,
vigtarmanns á Ólafsvík, hófst
hrotan um helgina, eftir að nokk-
uð dauft hafði verið yfir því um
hríð. Á mánudag var landað um
600 tonnum í Ólafsvík, á þriðju-
dag vom tonnin 530 og svipaður
afli kom á land í gær frá um fjör-
utíu bátum. Mikill fjöldi aðkomu-
báta er í Ólafsvík og var líkt og
smáþorp væri á sjónum úti fyrir
hafnargarðinum þar sem bátarnir
biðu þess að komast inn á höfn-
ina. Fjöldi vömbíla flytur hluta
hráefnisins í vinnslustöðvar ann-
ars staðar á landinu. Smábátamir
vom við veiðar alveg upp við land,
eða „í kálgörðunum“, eins og vigt-
armaðurinn orðaði það. Svipaða
sögu er að segja annars staðar
af Snæfellsnesinu, til dæmis em
annir miklar í Stykkishólmi.
Ríkharð Magnússon, skipstjóri
á Gunnari Bjarnasyni SH 25,
sagði að þorskurinn væri mjög
vænn og góður, lítil loðna í honum
og lítið af ormi. „Það hefur geng-
ið sæmilega að veiða. Fyrst vomm
við á línu og það var nokkuð gott
að hafa og nú er reitingsafli í
netin,“ sagði Ríkharð, en hann
er aflahæstur skipstjóra í Ól-
afsvík. „Það hefur hins vegar
verið óvenju gott fiskerí á gmnn-
slóð og þetta hefur verið hálfgert
ævintýri undanfarna daga. Það
er mikið af aðkomubátum hér og
ég hef aldrei séð annan eins flota
á Breiðafjarðarmiðum og nú. Það
er örtröð í höfninni hjá okkur, en
það gengur ágætlega að landa."
Ríkharð sagði menn fá næga
hvíld, þrátt fyrir mikið fiskerí.
„Við fömm út um fimmleytið á
morgnana og komum inn svona
sjö, átta á kvöldin. Það þykir nú
bara nolckuð rólegt.“
Aukning í sölu á bú-
vörum til vamarliðsins
Tvö naut, tvö svín, 1.800 kjúklingar og 21.600 egg á viku
ÍSLENSK fyrirtæki eru byijuð
að selja egg, kjúklinga, nauta-
kjöt og svínakjöt til varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli, í
samræmi við samninga sem
gerðir voru fyrr á þessu ári.
Til skamms tíma hefur verið til
talsvert af þessum vörum á
Vellinum, innfluttum, og búast
forráðamenn fyrirtækjanna við
að salan aukist þegar þær verða
búnar.
Tvær afurðastöðvar hafa vam-
arliðsviðskiptin með höndum. Það
em Sláturfélag Suðurlands, sem
selur nauta- og svínakjötið, og
ísfugl í Mosfellssveit, sem selur
kjúklingana og hefur auk þess
milligöngu um eggjasöluna fyrir
hönd helstu eggjadreifingarfyrir-
tækjanna.
Steinþór Skúlason, framleiðslu-
stjóri SS, sagði að á Keflavíkur-
flugvöll fæm nú 400 kg af
nautahakki á viku og 130 kg af
svínarifjum, og var hann ánægður
með viðtökumar. Hann sagði að
kjötið væri framleitt sérstaklega
fyrir þennan markað og gerðu
Bandaríkjamennimir miklar kröf-
ur um rétta tilreiðslu og frágang
vömnnar. Væri það mjög hollt
fyrir fyrirtækið og kæmi þeim til
góða á innanlandsmarkaðnum.
Steinþór sagði að vikuleg sala nú
samsvaraði rúmlega 2 nauta-
skrokkum og rúmlega 2 svína-
skrokkum. Hins vegar samsvaraði
árssalan til Varnarliðsins, sam-
kvæmt samningum, 225 nautum
og tæplega 100 svínum.
Alfreð Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri ísfugls, sagði að
eggja- og kjúklingasalan væri
komin vel af stað, og vonaðist
hann til að á næstunni yrðu seld
minnst 1,5 tonn af kjúklingum á
viku og 2 tonn af eggjum. Salan
væri ekki orðin svo mikil ennþá
vegna birgða sem enn væm á
Vellinum af innfluttum afurðum.
Þeir seldu nú eingöngu í stórmark-
aðnum, en væm ekki komnir inn
í klúbbana. Hann sagði að vikuleg
sala samsvaraði 1.800 kjúklingum
og 21.600 eggjum, en heildar-
samningurinn samsvaraði 62.000
kjúklingum og 900.000 eggjum.
Alfreð sagði að neytendur á
Keflavíkurflugvelli tækju íslensku
vömnum sérstaklega vel, enda
legði ísfugl sig fram við að fram-
leiða vömna eftir þeirra kröfum.
ísfugl var með kynningu á kjúkl-
ingum í stórmarkaðnum á
Keflavíkurvelli um síðustu helgi
og var Alfreð ánægður með undir-
tektimar.